Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fyrsta kvikmynd leikstjórans Rún- ars Rúnarssonar, Eldfjall, hefur átt virkilega góðu gengi að fagna frá því hún var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes sl. vor, hlotið bæði jákvæða gagnrýni og fjölda verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Aðalleikarar myndarinnar, Theódór Júlíusson og Margrét Helga Jóhannsdóttir, hafa verið ausnir lofi en Theódór hefur nú hreppt tvenn verðlaun fyrir frammistöðu sína í myndinni, var í byrjun mánaðar útnefndur besti leikarinn á 35. kvikmyndahátíðinni í São Paulo og hafði þá hlotið verð- laun á kvikmyndahátíð Evrasíu í Kasakstan. Í Eldfjalli fer Theódór með hlutverk Hannesar sem er að komast á eftirlaunaaldur, er skap- styggur og einangraður frá fjöl- skyldu sinni og heimili. Hannes þarf óvænt að takast á við nýtt og erfitt hlutverk sem gjörbreytir lífi hans. Blaðamaður ræddi við Theó- dór í liðinni viku en þá hafði hann nýhlotið verðlaunin á hátíðinni í São Paulo og var að vonum ánægður. „Ég var á leikæfingu og var að koma inn úr dyrunum, ég vissi nú ekki af þessu fyrr en ég sá sms frá Rúnari Rúnarssyni, að ég hefði ver- ið að fá þessi verðlaun,“ segir Theó- dór kíminn. Eftirsótt af kvikmyndahátíðum – Eldfjall hefur sópað að sér verðlaunum … „Já, þetta er alveg makalaust og kvikmyndahátíðir vilja fá hana endalaust þannig að þetta er ekki eins og verið sé að troða henni á þessar há- tíðir,“ segir Theódór og rifjar upp að meiri eft- irspurn hafi verið á árinu eftir Eldfjalli en nýj- ustu kvikmynd Lars Von Trier, Melanch- olia. „Ég er bara hrærður og fékk bara gæsahúð þegar ég las þetta sms frá Rúnari.“ Theódór segir erlenda fjölmiðla ekki hafa haft samband við sig svo mikið vegna myndarinnar en í Can- nes hafi hann hinsvegar veitt ótal viðtöl og allur tíminn þar hafi farið í að veita viðtöl og kynna myndina með Margréti og Rúnari. Þau hafi í raun verið í sjónvarpi um allan heim. „Þetta voru milli 20 og 30 sjónvarpsviðtöl,“ segir Theódór þegar hann rifjar þetta upp. – Hefurðu áður lent í viðlíka fjöl- miðlahavaríi og úti í Cannes? „Aldrei nokkurn tímann. Maður var svolítið þreyttur þegar maður kom heim frá Cannes, gerði ekki ráð fyrir því að þetta yrði svona. En mér fannst þetta óskaplega gaman, það kom einhver extra-orka í mann við þetta og maður gerði sér ekki grein fyrir því fyrr en þar hversu mikil spenna var fyrir myndinni. Þetta kom manni skemmtilega og þægilega á óvart,“ segir Theódór. Theódór segist hafa sökkt sér djúpt í hlutverk Hannesar og æft mikið með Rúnari fyrir tökur. „Meðan á þessu stóð var maður gjörsamlega fastur í þessu og það tók mig dálítið langan tíma að losna út úr þessum karli.“ Theódór segist hafa upplifað myndina öðruvísi á frumsýningu í Háskólabíói en í Cannes, hann hafi notið hennar betur þá. Hann sé sáttur við leik sinn í henni þó svo alltaf megi finna eitthvað sem hefði mátt gera betur. – Eru einhverjar kvikmyndir framundan hjá þér? „Já, já en ég má eiginlega ekki segja frá því,“ segir Theódór. Hann verði í Djúpinu, væntanlegri kvik- mynd Baltasars Kormáks, og hafi fengið tilboð um að leika í kvik- mynd sem fer að öllum líkindum í tökur næsta sumar. Spurður að því hvort hann muni eiga frekara sam- starf við Rúnar segist Theódór vona innilega að svo verði. Óskarinn nálgast – Það verður spennandi að sjá hvort Eldfjall verður meðal þeirra kvikmynda sem keppa um Óskarinn sem besta erlenda myndin, spennan magnast með hverjum verðlaun- unum sem hún bætir við sig og lík- urnar aukast, ekki satt? „Einmitt en maður reynir að hugsa sem minnst um það. Það væri náttúrlega rosalega gaman en ég hef einhvern veginn náð því að halda mig alveg á rólegu nótunum gagnvart því. Við erum náttúrlega þarna inni og eigum hugsanlega möguleika, miðað við velgengni myndarinnar í útlöndum og á kvik- myndahátíðum,“ segir Theódór. Hann sé fyrst og fremst ánægður með hinar góðu viðtökur sem skipti máli fyrir íslenskan kvikmynda- iðnað. „Rúnar á eftir að ná langt, ég er sannfærður um það.“ Tók dálítið langan tíma að komast út úr þessum karli  Theódór Júlíusson hefur hlotið tvenn verðlaun fyrir leik sinn í Eldfjalli Lofsungin Theódór og Margrét í kvikmyndinni Eldfjall. Kvikmyndin Eldfjall hefur verið sýnd á fjölda alþjóðlegra kvik- myndahátíða víða um heim og fleiri eru framundan. Hún hef- ur hlotið verðlaun á hátíðum í São Paulo, Valladolid, Montréal, Chicago, Reykjavík (RIFF), Kasakstan, Tran- silvaníu og var einnig tilnefnd til Camera d’or í Cannes. Þar af hefur Theódór hlotið tvenn verðlaun fyr- ir bestan leik í aðalhlutverki. Eld- fjall er framlag Íslands til Ósk- arsverðlaunanna á næsta ári. Eldfjall sýnd víða um heim VERÐLAUN OG HÁTÍÐIR Rúnar Rúnarsson  Í ár eru 20 ár liðin frá útgáfu hljómplötunnar Nevermind með hljómsveitinni Nirvana og af því tilefni verða haldnir heið- urstónleikar á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld, 11. nóv- ember, og hefjast þeir kl. 23.11. Á tónleikunum verður platan flutt í heild sinni af hljómsveit en hana skipa Einar Vilberg, Franz Gunnarsson, Þórhallur Stef- ánsson og Jón Svanur Sveinsson. Auk laga af Nirvana verða flutt lög af fleiri plötum sveitarinnar goðsagnakenndu, þ.e. Bleach, In Utero, Incesticide og Unplugged in New York. Tónleikarnir verða bæði rafmagnaðir og órafmagn- aðir. Nirvana heiðruð á Græna hattinum  Afmælistónleikar Hins Hússins og Unglistar fara fram í kvöld í Austurbæ. Fram koma Dikta, Agent Fresco, Búgdrýgindi,We Made God og Synir Raspútíns. Síð- astnefnda sveitin hefur ekki komið fram í sautján ár en meðlimir í henni eru m.a. Kolbeinn Óttarsson Proppé blaðamaður, Kristinn Schram þjóðfræðingur og Hafþór Ragnarsson, fyrrverandi skáld. Synir Raspútíns spila í fyrsta sinn í 17 ár AF LEIKHÚSI Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Nú standa yfir sýningar íÞjóðleikhúskjallaranum áJudy Garland kabarett. Þar bregður leikkonan Lára Sveins- dóttir sér í hlutverki leik- og söng- konunnar Judy Garland. Djass- hljómsveit Úlfs Eldjárns leikur undir og tekur þátt í sýningunni. Sýningin byggir aðallega á lögum Garland og á milli er farið yfir lífs- hlaup hennar í grófum dráttum. Hún hóf feril sinn aðeins á þriðja aldursári og lék í fjölda kvikmynda, kom fram í sjónvarpsþáttum, á tón- leikum og söng inn á hljómplötur. Garland þekkti ekkert annað en sviðsljósið, það var hennar (storma- sama) líf.    Lára syngur þrettán lög Gar-land, meðal annars hið ódauð- lega „Over the Rainbow“. Á milli laga segir hún sögu Garland og bregður sér í hlutverk hennar og annarra sem komu við sögu í lífi hennar. Mér fannst Lára leika óað- finnanlega. Hún stökk á milli hlut- verka á sannfærandi hátt, var sögu- maður, ung kona og fullorðinn karlmaður í einni senu og allt gerði hún jafn-sannfærandi án þess að að annað en breytt rödd og öðruvísi lík- amsburður þyrftu að eiga sér stað. Það er ljóst af þessari sýningu að Lára er mikil leikkona og frábær söngkona. Hún túlkaði lög Garland af innlifun og er með mjög flotta rödd sem hentaði þeim fullkomlega. Djasshljómsveit Úlfs Eldjárns stóð sig líka frábærlega í flutningnum og gaman að hafa meðlimi hennar rauðklædda og myndarlega á svið- inu allan tímann.    Þjóðleikhúskjallarinn hefuralltaf verið í uppáhaldi hjá mér og sýning eins og Judy Garland- kabarett á mjög vel heima þar. Það er líka ekki oft sem maður getur set- ið við borð með rauðvínsglas á ka- barettsýningu hérlendis, eitthvað svo afskaplega „retro“ og svalt. Nokkur smáatriði fóru þó í taug- arnar á mér og skrifast þau líklega á rekstraraðila kjallarans. Þegar komið var í Þjóðleikhúskjallarann tók á móti gestum skært flúorljós og eitt borð sem miðasölumaðurinn sat við. Dempaðra ljós og kannski smá- meiri huggulegheit í anddyrinu hefðu strax slegið tóninn fyrir það sem koma skyldi og komið fólki í stemninguna. Einnig fór í taugarnar á mér ljós sem blasti við alla sýn- inguna í gegnum glugga á hurð vinstra megin við sviðið. Það kostar ekki mikið að setja svarta gardínu fyrir þennan glugga svo áhorfendur þurfi ekki að hafa þetta óþarfa ljós fyrir augunum allan tímann og sjá þá sem áttu leið um þessar dyr. Mas í þjónunum á barnum mátti líka heyra inn í sýningarsalinn þegar ekki var þeim mun meiri hávaði í sýningunni. Smáatriði eru oft vanmetin en þau skipta máli í heildarupplifuninni og mér finnst Þjóðleikhúskjallarinn eiga skilið klassa. Judy Garland- kabarett er sýning í fyrsta klassa og allt í kringum sýninguna og gesti hennar á að vera það líka.    Þetta var annars afskaplegaánægjuleg kvöldstund í Þjóð- leikhúskjallaranum. Judy Garland- kabarett tekur rúmlega klukkutíma í flutningi, er aðstandendum hennar öllum til sóma og ætti að vera frá- bær kvöldskemmtun fyrir alla þá sem kunna að meta góða sögu og góða tónlist. Glæsilegur Garland-kabarett Ljósmynd/Katrín Lilja Ólafsdóttir Kabarett Lára Sveinsdóttir er frábær í hlutverki Judy Garland í sýningu um ævi leik- og söngkonunnar í Þjóðleikhúskjallaranum. » Það er líka ekki oftsem maður getur setið við borð með rauð- vínsglas á kabarettsýn- ingu hérlendis, eitthvað svo afskaplega retro og svalt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.