Morgunblaðið - 10.11.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Túnfisk-
samloka
169kr
...opið í 20 ár
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Heilsuborg og kvennadeildLandspítala eru nú í sam-vinnuverkefni þar sembarnshafandi konum er
veitt fræðsla frá lækni, næring-
arfræðingi og sjúkraþjálfara. Líkt og
kom fram í fréttum nýlega hefur
barnshafandi konum í yfirþyngd
fjölgað til muna hérlendis. En
fræðslufundirnir eru opnir öllum
barnshafandi konum sem vilja gera
lífsstílsbreytingu.
Leiða saman hesta sína
„Við erum mjög meðvituð um
þennan offituvanda svo og starfsfólk
á kvennadeild Landspítalans sem sér
gríðarlega aukningu í offitu kvenna
og þar með fylgikvillum eins og t.d.
meðgöngusykursýki. Þetta hefur
valdið þeim áhyggjum og þegar leiðir
okkar lágu saman ákváðum við að
gera eitthvað í málunum. Við
ákváðum hér í Heilsuborg að bjóða
fræðslu sem í fyrstu var hugsuð fyrir
of þungar konur og með sykursýki en
það hefur síðan verið útvíkkað og er
fyrir allar barnshafandi konur.
Fræðslan samanstendur af fræðslu
hjá næringarfræðingi, Bryndísi Elvu
Gunnarsdóttur, og sjúkraþjálf-
aranum Önnu Borg sem leiðbeinir
konunum um allt það sem tengist
stoðkerfinu á meðgöngu. Ég er síðan
með fræðslu um lífsstílsbreytingar og
hvernig er best að byrja og koma sér
af stað,“ segir Erla Gerður Sveins-
dóttir, yfirlæknir hjá Heilsuborg.
Góður byrjunarpunktur
Erla Gerður segir aðaláhersluna
Vegferð barnsins
mikilvægust
Barnshafandi konum í yfirþyngd hefur fjölgað hérlendis. Mikilvægt er að konur
geri sér grein fyrir mikilvægi hreyfingar og holls mataræðis á meðgöngu. Í sam-
starfsverkefni Heilsuborgar og kvennadeildar Landspítala um fræðslu fyrir konur
á meðgöngu er lögð áhersla á slíka lífsstílsbreytingu. Fræðslufundirnir eru þó opn-
ir öllum barnshafandi konum sem vilja stíga fyrsta skrefið að betri lífsstíl.
Morgunblaðið/Ómar
Hreyfing Anna Borg sjúkraþjálfari leiðbeinir konunum um hreyfingu.
Við ættum að sinna frændum okkar í
Færeyjum betur en við gerum. Þeir
eru ekki aðeins nágrannar okkar
heldur einstaklega góðviljaðir (munið
að þeir voru manna fyrstir reiðubúnir
til að leggja okkur lið í hruninu), og
svo eru þeir einstaklega skemmti-
legir og frábærir heim að sækja.
Náttúrufegurð Færeyja er með ein-
dæmum og mikil upplifun að koma
þangað. Færeyingar halda úti góðum
fréttavef sem heitir aktuelt.fo, og þar
er mjög gaman að vafra um og fylgj-
ast með því sem er að gerast í Fær-
eyjum. Aukreitis má hafa af því góða
skemmtun að lesa færeyskuna því
hún er mjög lík íslenskunni og sum
orðin geta verið ansi hreint skondin.
Til dæmis segir svo um tónleika
Frostrósa í Færeyjum: Áhugin fyri
stórslignu jólakonsertini við ís-
lendsku Fróstrósum er sera stórur,
og konsertin í Norðurlandahúsinum
varð útseld beinanvegin. Á vefnum
eru m.a. innlendar fréttir frá Fær-
eyjum, erlendar fréttir, íþróttafréttir,
menningarfréttir, sölutorg o.fl.
Vefsíðan www.aktuelt.fo
Færeyskir tónar Á síðunni segir m.a. frá nýju lagi með Páli Finni Páli.
Um frændur okkar Færeyinga
Veirurnar eru sönghópur Skagfirð-
inga og nokkurra Sunnlendinga sem
hafa sungið saman í 25 ár. Söng-
gleðin er ævinlega við völd hjá þeim
og þau vita fátt skemmtilegra en að
syngja raddað. Veirurnar halda tón-
leika öðru hverju og enginn má láta
þá fram hjá sér fara, en sönghóp-
urinn ætlar að vera með tónleika á
morgun, föstudag, í Guðríðarkirkju.
Yfirskrift tónleikanna er Eftirmið-
dagslúr og ætlar Jón Þorsteinn Reyn-
isson harmónikkuleikari að vera með
þeim og óhætt að lofa góðri skemmt-
un fyrir fólk til að ylja sér við.
Stjórnandi Veiranna er Guðbjörg R.
Tryggvadóttir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30
og aðgangseyrir er 2.000 kr.
Frítt er inn fyrir 12 ára og yngri.
Endilega …
… heyrið og
sjáið Veirurnar
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórinn Guðbjörg R. Tryggvadóttir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 10. - 12. nóvember verð nú áður mælie. verð
svínahnakki úrb. úr kjötborði....... 998 1.398 998 kr. kg
svínalundir úr kjötborði............... 1.498 2.198 1.498 kr. kg
Hamborg. m/brauði, 2x115 g ..... 396 480 396 kr. pk.
KF lúxus-lambalæri .................... 1.398 1.698 1.398 kr. kg
Grillaður kjúklingur +2 ltr coke .... 1.198 1365 1.198 kr. pk.
FK ferskur kjúklingur ................... 765 890 765 kr. kg
FK kjúklingabringur .................... 2.098 2.498 2.098 kr. kg
Fjallalambs-hangframpartur úrb.. 1.983 2.479 1.983 kr. kg
FK reykt folaldakjöt .................... 629 786 629 kr. kg
Hagkaup
Gildir 10. - 13. nóvember verð nú áður mælie. verð
Íslandsgrís kótilettur................... 974 1.498 974 kr. kg
Jói Fel fyllt lambalæri úrbænað ... 1.998 2.854 1.998 kr. kg
Opal laxaflök beinhr. m/roði ....... 1.918 2.398 1.918 kr. kg
Holta leggir ferskir í magnp ......... 674 898 674 kr. kg
Eldsfugls kjúklingabollur, 400 g .. 449 598 449 kr. pk.
Myllu kleinur í lausu ................... 59 139 59 kr. stk.
Myllu fimmkornabrauð ............... 279 399 279 kr. stk.
Krónan
Gildir 10. - 13. nóvember verð nú áður mælie. verð
Grísahryggur m/pöru.................. 998 1.298 998 kr. kg
Grísakótilettur............................ 1.049 1.498 1.049 kr. kg
Ungnautagullas erlent ................ 1.869 2.498 1.869 kr. kg
Ungnautasnitsel erlent ............... 1.869 2.897 1.869 kr. kg
Ungnautapiparsteik erlend ......... 2.298 3.849 2.298 kr. kg
Grillborgararm/brauði, 4 stk. ...... 649 698 649 kr. pk.
Kea hangiframpartur sagaður ..... 1.099 1.598 1.099 kr. kg
SS bláberjahelgarsteik ............... 2.398 2.988 2.398 kr. kg
Nóatún
Gildir 10. - 13. nóvember verð nú áður mælie. verð
Korngrís grísakótilettur ............... 1.298 1.598 1.298 kr. kg
Korngrís grísalundir .................... 1.998 2.598 1.998 kr. kg
Korngrís grísahnakki úrb. ............ 1.358 1.698 1.358 kr. kg
Ungnautahakk........................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Lamba Prime ............................. 2.798 3.498 2.798 kr. kg
Folaldasnitsel............................ 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Folaldagúllas ............................ 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Folaldapiparsteik....................... 2.598 2.898 2.598 kr. kg
Ísf. Úrb. kalkúnalæri ................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Þín verslun
Gildir 10. - 13. nóvember verð nú áður mælie. verð
Lambaprime rib úr kjötborði........ 2.998 4.698 2.998 kr. kg
Lambafillet með fitu úr kjötborði.. 3.598 4.998 3.598 kr. kg
Kindafillet úr kjötborði ................ 3.298 3.798 3.298 kr. kg
Hámark jarðaberja, 250 ml ........ 189 239 756 kr. ltr
Ballerina vanillukex, 210 g ......... 269 349 1.281 kr. kg
Remi núgat kex, 100 gr. ............. 259 298 2.590 kr. kg
McCain franskar Crinkle, 900 g... 799 849 888 kr. kg
Daloon vorrúllur, 720 g .............. 798 998 1.109 kr. kg
Blue Dragon súrsæt sósa, 370 g. 385 459 1.041 kr. kg
Toblerone, 100 g ....................... 219 298 2.190 kr. kg
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Arnaldur