Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Maískorn
129kr
...opið í 20 ár
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Við erum einmitt að reyna að taka á
því sem okkur finnst vera efst á baugi
og það er meðal annars offita, þessi
tilhneiging þjóðarinnar til að þyngj-
ast með öllum þeim afleiðingum sem
við vitum að það hefur á heilsufar og
svo líka ýmislegt annað sem skiptir
máli,“ segir Elínborg Bárðardóttir,
heilsugæslulæknir og formaður fram-
kvæmdanefndar Fræðsludaga
heilsugæslunnar, sem fara fram í dag.
Hún bætir við að vitað sé að hreyf-
ing hafi jákvæð áhrif á offitu en hins
vegar sé spurning hvernig hún hafi
áhrif, þ.e. hvort áhrifin séu einungis
líkamleg eða hvort hreyfing hafi einn-
ig andleg áhrif.
Að sögn Elínborgar er heilsugæsl-
unni í sjálfu sér engin takmörk sett.
Heilsugæslan sé gjarnan fyrsti við-
komustaður fólks í heilbrigðiskerfinu
og því verði starfsmenn hennar að
geta tekið á nánast hvaða vandamáli
sem er eða a.m.k. vísað sjúklingum á
réttan stað. Einmitt af þessum sökum
er boðið upp á mikinn fjölda mismun-
andi erinda á Fræðadögum, allt frá
kennslu í vinsælu tölvupóstforriti yfir
í fyrirlestra um fjölbreytt málefni á
borð við t.d. hreyfingu, offitu, geð-
heilsu, endurhæfingu og lyfjaávísan-
ir. Elínborg segir ekkert sérstakt
heildarþema vera á Fræðadögum en í
þetta skipti sé nokkuð mikið fjallað
um hreyfingu og heilsu.
Elínborg segir Fræðsludaga þjóna
þeim tilgangi að auka fræðslu heil-
brigðisstarfsmanna en einnig stuðli
þeir að auknum tengslum slíkra
starfsmanna og styrki liðsheildina.
„Því betur upplýstir sem allir starfs-
menn eru því betra verður starfið,“
segir Elínborg. Hún bendir jafnframt
á að búist sé við því að heilbrigðis-
starfsmenn frá öllum landshornum
mæti á Fræðsludaga til þess að
kynna sér þau fjölmörgu erindi sem
þar eru í boði.
Hreyfing sem meðferðarform
„Hreyfing sem meðferðarform er
búið að vera í gangi í Bretlandi og í
fleiri löndum í heiminum í nokkuð
mörg ár, ég er að koma heim til að
halda erindi um gildi þess að nota
hreyfingu sem meðferðarform,“ segir
Ingibjörg Jónsdóttir, lífeðlisfræðing-
ur og yfirmaður Streiturannsóknar-
stofnunar Gautaborgar, en hún held-
ur erindi um hreyfingu sem
meðferðarform á Fræðsludögum
heilsugæslunnar.
Að sögn Ingibjargar nýtist hreyf-
ing vel í meðferð við alskonar heilsu-
farsvandamálum. Þannig skipti
hreyfing og mataræði miklu máli í
baráttunni gegn offitu en hreyfing sé
einnig eitt af fyrstu meðferðarúrræð-
unum sem gripið er til þegar fólk
greinist með sykursýki. Ingibjörg
segir að á Norðurlöndum og í Bret-
landi sé nú þegar farið að mæla með
hreyfingu sem meðferðarúrræði við
vægu þunglyndi. Hún bendir á að
hreyfing virki jafnframt vel sem með-
ferðarúrræði við streitu. „Hreyfingin
hefur rosalega mikil áhrif á þá sjúk-
dóma eða geðraskanir sem eru tengd-
ar streitu, það er að segja þunglyndi,
kvíða, kulnun og síþreytu,“ segir
Ingibjörg sem bætir við að hreyfing
skipti þessa sjúklinga mjög miklu
máli sem hluti af meðferð.
Auka þarf hversdagshreyfingu
„Hversdagshreyfingin skiptir í
raun og veru meira máli en að fara
t.d. í tvo hjóla- eða eróbiktíma á viku,“
segir Ingibjörg.
Hún tekur einnig fram að auka
þurfi fræðslu um mikilvægi hvers-
dagshreyfingar. Ingibjörg bendir á
að 63% af öllum sjúkdómum í heim-
inum í dag stafi af lifnaðarháttum
fólks. Loks hvetur Ingibjörg yfirvöld
til þess að passa upp á aðgengi göngu-
og hjólreiðamanna þegar verið er að
skipuleggja götur.
Hreyfing og baráttan
gegn offitu efst á baugi
Morgunblaðið/Eggert
Fræðsla Heilbrigðisstarfsmönnum gefst tækifæri til þess að fræðast um hátt í 50 mismunandi málefni á Fræðslu-
dögum heilsugæslunnar sem fram fara, í þriðja skiptið, í dag og á morgun á Grand Hótel í Reykjavík.
Fræðsludagar heilsugæslunnar fara fram í þriðja sinn
Fræðsludagar
» Þeir standa yfir í dag og á
morgun.
» Yfir 300 heilbrigðisstarfs-
menn eru skráðir á Fræðslu-
daga en þetta er í þriðja skipti
sem þeir eru haldnir.
» Dagskrá Fræðsludaganna er
fjölbreytt en hún skiptist upp í
11 þemu sem innihalda samtals
um það bil 50 erindi. En þar að
auki verður boðið upp á vinnu-
smiðju í kynfræðslu.
„VIRK er starfsendurhæfing sem er rekin af Starfsend-
urhæfingarsjóði sem aðilar vinnumarkaðarins eiga,
þetta er sjálfseignarstofnun sem sinnir starfsendur-
hæfingu fyrir fólk sem er að detta út af vinnumarkaði og
raunar fleiri hópum,“ segir Kristján G. Guðmundsson
læknir, sem flytur erindi um endurhæfingu á vegum
VIRK á Fræðadögum heilsugæslunnar 2011.
Að sögn Kristjáns er VIRK ný þjónusta sem býður upp
á ráðgjöf sem fellur utan hinnar almennu heilbrigðis-
þjónustu, en Starfsendurhæfingarsjóður er fjármagn-
aður þannig að 0,13% af öllum launum á vinnumarkaði
renna inn í sjóðinn. VIRK er þó í miklu samstarfi við
starfsmenn heilbrigðiskerfisins og sem dæmi um þetta þá hefur sjóðurinn
nýlega gert samstarfssamning við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að
sögn Kristjáns.
„Það eru um 2.500 manns sem hafa fengið þjónustu hjá þessum sjóði og
það er þannig núna að meira en 70% af þeim eru komin út á vinnumark-
aðinn aftur,“ segir Kristján en hann bætir við að endurhæfing geti oft ver-
ið tímafrek, yfirleitt taki þessi ferill um eitt og hálft ár en hann geti oft tek-
ið lengri tíma. Loks tekur Kristján fram að í erfiðum endurhæfingarmálum
sjái sérhæft matsteymi um að meta líkur á örorku. skulih@mbl.is
Ný endurhæfing af hálfu Starfsendurhæf-
ingarsjóðs sýnir fram á 70% árangur
Kristján G.
Guðmundsson
„Þetta er meira svona um gagnrýni annarra á lyfjaávís-
anir heimilislækna og svo verður reynt að skoða hver sé
ástæðan fyrir því og er það réttmætt eða ekki og af
hverju erum við komin í þessa stöðu að það sé verið að
gagnrýna heimilislækna fyrir óhóflegar lyfjaávísanir,
sem ég tel vera ranga gagnrýni, ég tel að það sé ekki
ástæða fyrir þessari gagnrýni,“ segir Sigríður Dóra
Magnúsdóttir yfirlæknir, en hún flytur erindi um gagn-
rýni á lyfjaávísanir á Fræðadögum heilsugæslunnar.
Að sögn Sigríðar takmarkar Persónuvernd mjög svo
yfirsýn lækna yfir lyfjaávísanir, en Sigríður nefnir sem
dæmi að apótek hafi oft og tíðum betri yfirsýn yfir þetta
en læknarnir sem ávísa á lyfin. „Þau [persónuverndarsjónarmiðin]
skemma fyrir því að heimilislæknar hafi yfirsýn yfir lyfjanotkun skjólstæð-
inga sinna, þau valda ofnotkun lyfja. Ef maður hefði þessa yfirsýn þá væri
miklu auðveldara að vinna þetta vel,“ segir Sigríður. Að sögn Sigríðar
mætti draga úr óhóflegri lyfjaávísun með því að setja kerfið upp þannig að
hver sjúklingur geri samning við einn lækni um lyfjaávísanir, en svo verði
þessu fylgt eftir með reglulegu samráði við lækninn varðandi endurnýjun
lyfseðla, en þetta telur hún að muni auka yfirsýn. skulih@mbl.is
Segir gagnrýni á óhóflegar lyfjaávísanir
heimilislækna vera ranga og ástæðulausa
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir
„Það eru nú ekki til neinar vísindalegar rannsóknir á því
en það er ýmislegt sem bendir til að þetta vandamál [þ.e.
óhóflegar lyfjaávísanir] sé kannski heldur stærra hérna
en í nágrannalöndunum og það finnst okkur náttúrlega
vont,“ segir Magnús Jóhannsson læknir, en hann flytur
fyrirlestur um lyfjagagnagrunn og notagildi hans á
Fræðadögum heilsugæslunnar.
Að sögn Magnúsar eru dæmi um það að fólk hafi
flakkað á milli jafnvel margra tuga lækna til að fá ávísað
ávanabindandi lyfjum, en slíkt telur hann að geti vart
talist eðlilegt. Magnús segir að lækna skorti gjarnan
upplýsingar um sjúklinga sína og yfirsýn með þeim upp-
lýsingum en þeir geti leitað til Landlæknis og fengið upplýsingar þaðan.
Magnús segir lyfjagagnagrunninn ekki vera gallalausan, þannig sé hann
t.d. ekki uppfærður nema á um það bil hálfs mánaðar fresti. Magnús leggur
til að heimilislæknar fái aðgang að sínum eigin sjúklingum í lyfjagagna-
grunninum en þannig gætu þeir fylgst með því hvort sjúklingar þeirra fái
sömu lyfin frá mörgum læknum. Magnús bendir á að nú þegar sé eftirlit
með lyfjaávísunum lækna í lyfjagagnagrunninum og ef upp kemst um óhóf-
legar lyfjaávísanir geti slíkt á endanum leitt til skerðinga á rétti viðkom-
andi læknis til þess að ávísa á ávanabindandi lyf.
Segir óhóflegar lyfjaávísanir vera stærra
vandamál hér en í nágrannalöndunum
Magnús Jóhanns-
son læknir
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við höfum horft til Íslands í um tvö
ár. Þetta er einn af þeim mörkuðum
sem ég tel að við getum komið sterk-
ir inn á,“ segir Hugh Aitken, mark-
aðsstjóri breska lággjaldaflugfélags-
ins easyJet í Bretlandi, en tilkynnt
var á blaðamannafundi í gær að fé-
lagið ætlaði að hefja áætlunarflug á
milli London og Íslands 27. mars á
næsta ári.
Flogið verður þrisvar í viku til Lu-
ton-flugvallar í London; sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga að sögn
Aitkens og verða ódýrustu miðarnir
seldir á 32,99 pund aðra leiðina eða á
um 6.100 krónur, en miðasalan hefst
á heimasíðu easyJet í dag. Hann seg-
ir stefnt að því að fljúga allt árið um
kring til Íslands og ennfremur auka
starfsemina smám saman og mögu-
lega fjölga áfangastöðum.
„Þetta er nú búið að liggja í loftinu
í svolítinn tíma þannig að þetta kem-
ur kannski ekki alveg á óvart. En
þetta er bara eins og gengur. Sam-
keppnin er til staðar og verður til
staðar þannig að við leggjum bara
áherslu á það sem við gerum vel og
trúum því og treystum að það virki
hér eftir sem hingað til,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, spurður um ákvörðun
easyJet.
Segir easyJet engu breyta
„Það sem mér finnst kannski at-
hyglisverðast er það hvað þetta er
umfangslítið. Þrjár flugferðir á viku
er nú ekki mikið,“ segir Skarphéðinn
Berg Steinarsson, starfandi forstjóri
Iceland Express. „Þetta breytir ná-
kvæmlega engu um samkeppni í
flugi til og frá Íslandi.“
Horft til Íslands í tvö ár
Breska lággjaldaflugfélagið easyJet ætlar að hefja flug til Ís-
lands í mars Íslensku flugfélögin óttast ekki samkeppnina
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Flug Hugh Aitken á fundinum.