Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf.
Gerður Kristný, myndir teiknaði Halldór
Baldurssson. Mál og menning 2011. 73 síður.
bbbbn
Hér er óð-
kunna boðið til
krýningar nýrra
valdhafa í Noregi.
Hann kvíðir
nokkuð ferðinni,
því svo vill til að
hann á afmæli og
hann er ókunnug-
ur erlendum af-
mælissiðum. Allir
eru óskaplega
syfjaðir í höllinni,
fyrr en varir fer
hann að hnjóta
um sofandi fólk á
göngum konungs-
hallarinnar og dularfull óhljóð heyrast úr kjall-
aranum. Fyrir algeran misgáning leysir for-
setinn síðan gátuna og bókin endar á
heljarinnar veislu.
Rétt eins og í fyrri bókunum um forsetann
er hér dreginn upp mynd af forseta sem er
býsna einlægur í orðum og æði. Þetta er
áhugaverð sýn og þetta tekst Gerði Kristnýju
vel án þess að það verði nokkurn tímann til-
gerðarlegt. Eða hvers vegna ættu forsetar
endilega að vera stífir og alvarlegir?
Sagan er virkilega skemmtileg og Gerður
Kristný er flestum lunknari í líkingamáli. Í
bókinni lendir flugvél eins og lipur spói, myrk-
ur lýkst um fólk eins og mjúkur trefill og gam-
almenni talar eins og kvefuð húsfluga.
Myndir Halldórs Baldurssonar skapa örlítið
geggjaðan léttleika, það er mikil hreyfing í
þeim og þær styðja geysilega vel við söguna.
Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf er
sprellfjörug skemmtilesning, ekki bara fyrir
börn, heldur fyrir alla sem langar til að gleyma
sér um stund með forsetanum glaðlynda og
vinum hans.
Söngur guðsfuglsins. Sagan af unganum
sem vissi ekki til hvers fuglar voru.
Ísak Harðarson og Helgi Þorgils Friðjónsson.
Uppheimar 2011. 50 síður.
bbbbm
Fjórir þrastar-
ungar klekjast úr
eggjum í Hljóm-
skálagarðinum.
Þeir eru uppfullir af
spurningum um
heima og geima og
sú spurning sem
helst brennur á
þeim er: Til hvers
eru fuglar? Smám
saman þroskast
ungarnir og komast
hver að sinni eigin
niðurstöðu um til
hvers fuglar séu, allir nema yngsti unginn.
Eftir að hafa orðið fyrir miklu áfalli gengur
hann í gegnum mikla sjálfskoðun, uns hann
veit til hvers fuglar eru. Listaskáldið góða
kemur svo lítillega við sögu í bókarlok. Myndir
Helga Þorgils dýpka söguna og kallast
skemmtilega á við textann.
Söngur guðsfuglsins er flott og fallega skrif-
uð bók (líka fyrir fullorðna) um efni sem okkur
er öllum hugleikið; hver erum við og til hvers
erum við?
Dans vil ég heyra.
Eva María Jónsdóttir. Óskar Jónasson mynd-
skreytti. Mál og menning 2011. 22 blaðsíður
bbbbn
Hvernig er hægt að heyra dans? Til dæmis
með því að hlusta á geisladiskinn sem fylgir
bókinni Dans vil ég heyra, en þar má hlusta á
söng sagnadansa sem var tekinn upp af Árna-
stofnun fyrir um hálfri öld.
Hér hefur Eva María Jónsdóttir valið kvæði
og lausavísur og í þeim eru sagðar sögur. Til
dæmis er eitt kvæðið um forláta húfu sem eig-
andinn vill ekki láta af hendi, þrátt fyrir kosta-
boð konungs og í annarri segir frá manni sem
ber að garði á presstsetri og vekur ýmsar
kenndir húsfreyju.
Myndir Óskars eru glettnar og ná andrúms-
lofti vísnanna býsna vel. Alltaf er gleðilegt
þegar fólk tekur sig til í þeim tilgangi að kynna
gleymdar þjóðlegar hefðir fyrir okkur hinum
og ekki er verra þegar það er sett fram á svona
frumlegan og aðgengilegan hátt. Maður fyllist
þakklæti í garð svona fólks og gaman væri að
fá framhald á, það hlýtur að vera til meira
þjóðlegt efni sem hægt er að gefa út á svipaðan
hátt. Líklega verða margir kennarar fegnir út-
gáfunni, því þetta er afbragðs innlegg í
kennslu, ekki síst yngri barna. En bókin er
ekki síður kærkomin viðbót í bókasafn fjöl-
skyldunnar.
Barnabækur
ANNA LILJA ÞÓRISDÓTTIR
ANNALILJA@MBL.IS
Yfirlit yfir nýútkomnar
íslenskar barnabækur
Dimmt Það getur verið
kuldalegt í höll forsetans.
Íslenskir myndlistarmenn taka þátt í al-
þjóðlegri samsýningu listamanna sem nú
stendur í St. Pétursborg í Rússlandi. Birta
Guðjónsdóttir er einn af fimm sýning-
arstjórum sýningarinnar, en alls eru sýn-
endur 35 talsins, flestir frá Norðurlönd-
unum og Rússlandi. Sýnt er í
menningarmiðstöðinni Loft Project ETAGI,
sem er í miðborg St. Pétursborgar.
Íslensku sýnendurnir, sem eru Anna Lín-
dal, Bjarki Bragason, Gunndís Ýr Finn-
bogadóttir, Steingrímur Eyfjörð, Unnar
Örn Jónasson og Olivia Plender, sýna ný
verk, sem eru unnin sérstaklega fyrir sýn-
inguna. Listamennirnir fjölluðu um verk
sín í fyrirlestrasal Loft Project ETAGI um
síðustu helgi, en einnig var tekin upp lýs-
ing hvers sýningarstjóra á sínum hluta
sýningarinnar sem sýnd verður meðan á
sýningunni stendur, en einnig er hægt að
horfa á þá á vefsetrinu www.nordic-
arttoday.ru/.
Aðrir listamenn eru frá Noregi, Finn-
landi, Svíþjóð, Danmörku og Rússlandi.
Sýningin ber yfirskriftina Nordic Art
Today, eða norræn list í dag, og hefur að
markmiði að kynna norræna myndlist í St.
Pétursborg og í norðvesturhluta Rúss-
lands. Verkefnið á að standa yfir í nokkur
ár, á að ljúka 2015, og einnig verða haldin
málþing og kynningar, frekari sýningar á
alþjóðlegri nútímalist og útgáfa, en sýning-
arskrá á ensku og rússnesku er gefin út í
tilefni sýningarinnar með upplýsingum um
og myndum af verkum hvers listamanns.
List „Kellingin“ eftir Steingrím Eyfjörð.
Íslensk list
í Rússlandi
Norræn list kynnt
í St. Pétursborg
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
IN TIME Sýnd kl. 8 - 10:10
ÆVINTÝRI TINNA 3D Sýnd kl. 5
ÆVINTÝRI TINNA 2D Sýnd kl. 5
BORGRÍKI Sýnd kl. 6 - 8
THE THING Sýnd kl. 10:10
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA
HVERSU
LANGT MYNDIR
ÞÚ GANGA FYRIR ÞANN
SEM ÞÚ ELSKAR?
HHHH
ÞÞ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
KHK. MBL
HHH
AK. DV
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
TINNI, TOBBI OG KOLBEINN KAFTEINN,
DÁÐUSTU HETJUR
ALLRA TÍMA LIFNA
VIÐ Í FLOTTUSTU
ÆVINTÝRAMYND
SÍÐARI ÁRA.
FRÁ STEVEN SPIELBERG OG PETER JACKSON
B.G. -MBL
HHHH
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
SPURT OG SVARAÐ MEÐ
TOM SIX Í KVÖLD KL. 20
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 18 ÁRA
“TIL HAMINGJU, ÍSLAND”
-Þ.Þ., FT
IN TIME KL. 8 - 10 12
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 6 - 8 - 10 7
ÞÓR 2D KL. 6 L
HUMAN CENTIPEDE 2 KL. 8 18
MONEYBALL KL. 6 - 9 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
MIDNIGHT IN PARIS KL. 5.50 - 8 L
WHAT´S YOUR NUMBER KL. 10.10 12
ELDFJALL KL. 5.45 - 10.15 L
IN TIME KL. 5.40 - 8 - 10.30 12
IN TIME LÚXUS KL. 10.30 12
MONEYBALL KL. 5 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 7
ÆVINTÝRI TINNA 3D LÚXUS KL. 3.20 - 5.40 - 8 7
ÆVINTÝRI TINNA 2D KL. 3.20 7
HEADHUNTERS KL. 8 - 10.15 16
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 - 5.50 L
BORGRÍKI KL. 8 - 10 14