Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Það er vegleg jólagjöf sem rík- isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur færir bákninu í Washington þessi jólin, bákninu sem reyndi að þvinga okkur til að borga Icesave,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um frumvarp efnahags- og við- skiptaráðherra um hækkun á kvóta Íslands af stofnfé Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins við umræður á Alþingi í gær. Önnur umræða um frumvarpið fór fram á þinginu í gær en skv. því mun kvóti Íslands hækka úr 117,6 milljónum SDR í 321,8 millj- ónir SDR, sem jafngildir um 58,3 milljörðum króna. Framlagið myndar sérstaka gjaldeyrisinn- stæðu hjá AGS en nýtt framlag Ís- lands til sjóðsins verður 37,2 millj- arðar kr. Níu milljarðar fluttir á inni- stæðureikning hjá AGS Helgi Hjörvar, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar, benti á það við umræðurnar að fjórðungur fjárhæðarinnar yrði lagður fram í erlendum gjaldeyri með þeim hætti, að af innistæðu Íslendinga í gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans, á erlendum bankareikningum, verða níu milljarðar fluttir á inni- stæðureikning hjá AGS. Tryggvi Þór sagði hins vegar að ríkisstjórnin ætlaði að framkvæma óhæfuverk á lokadögum þingsins með þessu frumvarpi, sem virtist eiga að lauma í gegn án umræðu. Fáir þingmenn stjórnarmeiri- hlutans tóku þátt í umræðunni en Tryggvi Þór og fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar bentu á að hækkun stofnfjárframlagsins væri m.a. gerð til að standa straum af fjárhagsaðstoð við fallvölt aðildar- ríki AGS og fæli í sér mikla áhættu. Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálf- stæðisflokki mælti fyrir nefndar- áliti minnihluta efnahags- og við- skiptanefndar sem telur málið allt of seint fram komið. Það varði mikla fjárhagslega hagsmuni þjóð- arinnar og óskiljanlegt sé að vinna mál sem varða tugi milljarða með þessum hætti. Pétur H. Blöndal Sjálfstæðis- flokki minnti á að AGS væri alltaf að taka áhættu og gæti tapað þeim peningum sem hann veitti ríkjum sem hefðu leitað ásjár hans í mikl- um vanda. Ef um stór ríki væri að ræða gæti AGS lent í því að stofn- féð dygði ekki til. „Þetta er áhætta vegna þess að Seðlabankinn er að kaupa stofnbréf í Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum. Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn gæti farið á hausinn. Þá lendir Seðlabankinn í því að eiga ekki lengur þessa eign og þarf að afskrifa hana og þar af leiðandi hjá ríkissjóði sem tap,“ sagði hann og bætti við að ef svo færi þá lentu tugir milljarða á íslenskum skatt- greiðendum. Sjálfstæðsimenn lögðu til að mál- inu yrði aftur vísað til nefndar og skoðað þar þegar þing kemur aftur saman í lok janúar. Helgi Hjörvar sagði nánast úti- lokað að sjá fyrir sér að AGS yrði gjaldþrota. Ef svo ólílega vildi til þá væri allur heimurinn í kaldakoli. „Þá yrði þessi inneign hluti af því vandamáli sem við þyrftum þá að glíma við. Hins vegar skapar aðild okkar að sjóðnum, eins og við þekkjum, okkur líflínu, möguleika á því að ef við verðum fyrir áfalli þá getum við leitað þangað og fengið stuðning til að rísa á fætur á ný, eins og við höfum góða reynslu af.“ Birgir Ármannsson Sjálfstæðis- flokki sagði að í sér væri nokkur óhugur að samþykkja málið í ljósi vinnubragða stjórnarmeirihlutans. „Vegleg jólagjöf“ stjórnarinnar til AGS  Heitar umræður um frumvarp um 37,2 milljarða hækkun á framlagi Íslands til AGS  Stjórnarand- stæðingar vöruðu við gríðarlegri áhættu og gagnrýndu að lauma ætti frumvarpinu í gegn á örfáum dögum Morgunblaðið/Golli Deilt Frumvarp ríkisstjórnarinnar um 37,2 milljarða aukið framlag til AGS var harðlega gagnrýnt á Alþingi í gær. Ásmundur Einar Daðason, Framsóknarflokki, sagði hneyksli að hér væri reynt að lauma frumvarpi um framlag Ís- lands til AGS í gegn rétt fyrir þinglok. Þessu væri öfugt farið í öðrum löndum. Í Þýskalandi varaði t.d. seðlabankinn mjög við sambærilegu frumvarpi um aukið framlag til AGS og óvíst væri hvernig því reiddi af í þýska þinginu. Miklar efasemdir og deilur væru líka á bandaríska þinginu og í Bretlandi um stór- aukin fjárframlög til AGS. Efasemdir í öðrum löndum SEGIR HNEYKSLI AÐ LAUMA MÁLINU Í GEGN Þrjátíu utanlandsferðir voru farnar á vegum Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins (ÁTVR) fyrstu níu mánuði ársins, samkvæmt svari fjármálaráðuneytisins við fyrir- spurn Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns. Sex þeirra voru vegna funda um „samfélagslega ábyrgð norrænna einkasala“. Fundirnir voru á Norðurlöndum, í Argentínu og Síle. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að- stoðarforstjóri ÁTVR, sagði verk- efnið felast í því að norrænu áfeng- iseinkasölulöndin, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð, ynnu að því að vörurnar í vínbúðunum uppfylltu kröfur Sameinuðu þjóðanna um samfélaglega ábyrgð á heimsvísu, eða The Global Compact. Vörurnar á að framleiða í sátt við sam- félagið og með siðrænum hætti. Í því skyni er unnið að sameig- inlegum gagna- grunni um „vott- aðar“ vörur. Í ferðum til Argentínu og Síle voru m.a. fundir með framleiðendum, verka- lýðsfélögum o.fl. og þeim kynnt að norrænu einkasölurnar myndu gera þessar kröfur. Sigrún sagði að ÁTVR hefði ekki tekið þátt í öllum ferðum hópsins og taldi að fjarfundir mundu færast í vöxt í framtíðinni. gudni@mbl.is Vínið fái vottorð um „samfélagslega ábyrgð“ Sigrún Ósk Sigurðardóttir frá föstudegi til sunnudags Grjótháls 10, 110 Reykjavík. Sími 588 1010 Ein ástsælasta bílaþvottastöð landsins hefur opnað í nýju húsnæði að Grjóthálsi 10. Af því tilefni bjóðum við bón og handþvott á öllum bílum frá föstudegi til sunnudags fyrir 1500 krónur, svo lengi sem hann kemst inn. OPNUNARTILBOÐ Opið alla virka daga: kl. 08:00 – 18:00 Laugardaga og sunnudaga: kl. 10:00 – 16:00Vesturlandsvegur Grjótháls Fossháls Dragháls H ö fð a b a k k i B it ru h á ls Aðkoma frá Vesturlandsvegi og Bitruhálsi VIÐ ERUM HÉR Gamla Bón og þvottastöðin í Sóltúni á nýjum stað. Bón og handþvottur á öllum bílum á aðeins Sími 555 2992 og 698 7999 VERIÐ VIÐBÚIN VETRINUM Hóstastillandi og mýkjandi hóstasaft frá Ölpunum NÁTTÚRUAFURÐ úr selgraslaufum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.