Morgunblaðið - 17.12.2011, Side 41

Morgunblaðið - 17.12.2011, Side 41
UMRÆÐAN 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 Fjarðabyggð er sveit- arfélag með um fimm þúsund íbúa sem flytur út um fjórðung af út- flutningsvörum Íslend- inga. Hér býr fólk sem vinnur yfirleitt langan vinnudag og hefur ágætis laun. Það er skortur á starfsfólki í ákveðnum greinum auk þess sem talsvert er af viðskiptatækifærum í sveitarfélaginu. Laun í Fjarðabyggð eru hærri en á flestum öðrum stöðum og þar af leið- andi greiðir fólk hér hærri skatta en annars staðar auk þess sem að við hækkuð laun eykst framlag vinnuveit- enda í atvinnutryggingasjóð og er að líkindum með því hæsta per íbúa á landinu. Ég tel að í Fjarðabyggð vanti um það bil 1500 íbúa til að fullmanna þau atvinnu- og viðskiptatækifæri sem hér eru. Af hverju er ekki fullt af fólki sem býður við bæjarmörkin til að flytja hingað þar sem næg vinna er og ekki hefur orðið vart við kreppu nema úr fréttum fjölmiðla? Svarið við því er ekki einfalt en þó má leiða líkum að því að það sé vegna þess stjórnvöld og rík- isstofnanir virðast líta á okkur íbúana hér sem skítugu börnin sem vinna við erlenda stóriðju og vel rekin sjáv- arútvegsfyrirtæki. Það vinna fáir hér við tískufyrirbærið ferðaþjónustu, sem að vísu skilar mjög litlu til samfélags- ins. Það virðist henta vel að svæfa um- ræðu um þessi blómlegu byggðarlög og lágmarka fjárframlög hingað aust- ur og hafa sterkan einstefnuloka á peningarennslinu héðan suður. Nýjasta dæmið hjá þessari rík- isstjórn er að slá nánast út af borðinu Norðfjarðargöng og þar með eðlilega íbúaþróun í sveitarfélaginu. Þetta er ríkisstjórn sem til skamms tíma var með samgönguráðherra að nafni Kristján Möller og enn nýtur stjórnin óskoraðs stuðnings hans. Hann lofaði á fleiri en einum fundi hér fyrir kosn- ingar að Norðfjarðargöng kæmu á yf- irstandandi kjörtímabili og að hafist yrði handa eigi síðar en 2012. Hann og aðrir þingmenn Norð-austur- kjördæmis hafa með bleyðuskap orðið þess valdandi að ekki er útlit fyrir þessa sjálfsögðu samgöngubót á kom- andi árum. Fjarðabyggð á undir högg að sækja varðandi íbúaþróun. Mikið er af farandverkafólki á staðnum og eru jafnvel leigðar íbúðir undir tækni- menntað fólk sem dvelur hér á virkum dögum en fer til síns heima um helgar á höfuðborgarsvæðið. Af hverju vilja fáir búa hér? Jú ástæðan er frekar ein- föld. Hér eru nokkrir byggðakjarnar af óhagstæðri stærð og stærsti kjarn- inn er einangraður með bröttum fjall- vegi og úrsérgengnum jarðgöngum. Einnig er snjómokstri á fjölfarnasta vegi fjórðungsins á milli Eskifjarðar og Reyð- arfjarðar sinnt með pínulitlum pallbíl í eigu Vegagerðarinnar og eru jafnan klaki og hjólför á veginum að vetri til og útafkeyrslur tíðar. Sam- göngur innan svæðis eru ekki nægilega greiðar til að hér þrífist t.d. afþrey- ingarþjónusta o.fl. Á Norðfirði er mjög gott sjúkrahús með færu starfsfólki en að fara þangað er ekki alltaf heiglum hent. Þar er einnig Verk- menntaskóli sem berst fyrir tilveru sinni. Hvers vegna? Jú það eru margir foreldrar sem ekki langar beint til þess að börnin þurfi yfir skarð daglega allan veturinn í rútu hvað þá á Yar- isnum sínum. Fyrir Norðfirðinga sjálfa sem sækja vinnu t.d. í álverið er skarðið tálmi og getur tekið langan tíma að komast úr og í vinnu. Það eru flutt þúsundir tonna af fiski yfir Oddskarð á hverju ári, enda eitt stærsta og best rekna sjávarútvegs- fyrirtæki landsins staðsett þar. Rík- isstjórnin hefur auðvitað reynt að gera það fyrirtæki órekstrarhæft með til- lögum sínum um stjórn fiskveiða, bein- línis til höfuðs fyrirtækinu og þar af leiðandi smám saman að gera göngin óþörf. Ég hef stundum á tilfinningunni að Steingrím J. myndi hlakka í sinni ef ekki væri hægt að reka stóriðjurna í Fjarðabyggð sökum mannaflaskorts, hann teldi það efalaust sönnun á hversu vonlausar stóriðjur eru og áfangasigur fyrir veruleikafirrta Vinstri-græna. Fjarðabyggð er góður staður sem hægt og bítandi er verið að eyðileggja með aðgerðaleysi og svikum stjórn- valda. Ef eðlileg stjórnvöld héldu hér um stjórnartaumana myndu þau halda á lofti þessari byggð og gera hana að vinsælum stað til búsetu í stað þess að hvetja til Noregsferða og styrkja norska vinnuveitendur í leit að vinnu- afli á Íslandi og neita síðan að við- urkenna tölur Hagstofunnar um fjölda brottfluttra. Þetta er ömurleg staða, verandi með fyrsta þingmann kjördæmisins valdagráðugan fjármálaráðherra og aðra þingmenn kjördæmisins dug- lausa og þá sérstaklega stjórn- arþingmennina þótt hinir séu slappir líka. Það eru ekki margir mánuðir síð- an þingmannaskari kjördæmisins kom hérna og sagði okkur hversu mikla áherslu hann legði á samgöngubætur í Fjarðabyggð. Verður fróðlegt að heyra bullið í þeim næst þegar þeir koma hingað ef þeir þá þora. Þeim er kannski alveg sama um okkur, við er- um sennilega ekki nógu mörg? Alla- vega höfum við vel getað þverfótað fyrir þeim undanfarin ár og þeir treysta væntanlega á að næst þegar kosið verður geti þeir lofað öðrum íbú- um fjórðungsins vegabótum sem svo er hægt að draga 1-2 kjörtímabil. Ég skora á þingmenn kjördæmisins að berjast nú eins og menn fyrir Odds- skarðsgöngum sem eru hreint og beint lífsspursmál fyrir íbúa Fjarðabyggðar og framtíð svæðisins. Eftir Einar Birgi Kristjánsson » Fjarðabyggð er sveitarfélag sem varð til við sameiningu og var fyrir nokkrum árum sex sjálfstæð sveitarfélög. Einar Birgir Kristjánsson Höfundur er framkvæmdastjóri. Skítugu börnin í Fjarðabyggð www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa A N TO N &B ER G U R Ármúla 38 | Sími 588 5011 AKIKO „Enlightenment“ My spirit is wise and knowledgeable Verð frá kr. 1990.- Kimmidoll á Íslandi Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500 - Krafla.is Fluguveiðipakkar frá kr. 14.900,- Frábær vöðlu- tilboð Frábær jólatilboð Flugubox úr birki eða mahoný Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Íslensk box, íslenskar flugur, íslensk hönnun Opið alla daga til jóla frá 10 til 18 Veiðibúðin Krafla Flugustöng - Fluguhjól með aukaspólu - Undirlína og flotlína #5 - Sex flugur í boxi - Línan á hjóli með taum Viltu vinna flugubox frá Kröflu? Komdu í verslun okkar og taktu þátt í getraun. Hvað eru margar túpur á Kröflujólatrénu? Trébox með 28 flugum í verðlaun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.