Morgunblaðið - 17.12.2011, Síða 41
UMRÆÐAN 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Fjarðabyggð er sveit-
arfélag með um fimm
þúsund íbúa sem flytur
út um fjórðung af út-
flutningsvörum Íslend-
inga. Hér býr fólk sem
vinnur yfirleitt langan
vinnudag og hefur
ágætis laun. Það er
skortur á starfsfólki í
ákveðnum greinum auk
þess sem talsvert er af
viðskiptatækifærum í
sveitarfélaginu.
Laun í Fjarðabyggð eru hærri en á
flestum öðrum stöðum og þar af leið-
andi greiðir fólk hér hærri skatta en
annars staðar auk þess sem að við
hækkuð laun eykst framlag vinnuveit-
enda í atvinnutryggingasjóð og er að
líkindum með því hæsta per íbúa á
landinu.
Ég tel að í Fjarðabyggð vanti um
það bil 1500 íbúa til að fullmanna þau
atvinnu- og viðskiptatækifæri sem hér
eru.
Af hverju er ekki fullt af fólki sem
býður við bæjarmörkin til að flytja
hingað þar sem næg vinna er og ekki
hefur orðið vart við kreppu nema úr
fréttum fjölmiðla? Svarið við því er
ekki einfalt en þó má leiða líkum að því
að það sé vegna þess stjórnvöld og rík-
isstofnanir virðast líta á okkur íbúana
hér sem skítugu börnin sem vinna við
erlenda stóriðju og vel rekin sjáv-
arútvegsfyrirtæki. Það vinna fáir hér
við tískufyrirbærið ferðaþjónustu, sem
að vísu skilar mjög litlu til samfélags-
ins. Það virðist henta vel að svæfa um-
ræðu um þessi blómlegu byggðarlög
og lágmarka fjárframlög hingað aust-
ur og hafa sterkan einstefnuloka á
peningarennslinu héðan suður.
Nýjasta dæmið hjá þessari rík-
isstjórn er að slá nánast út af borðinu
Norðfjarðargöng og þar með eðlilega
íbúaþróun í sveitarfélaginu. Þetta er
ríkisstjórn sem til skamms tíma var
með samgönguráðherra að nafni
Kristján Möller og enn nýtur stjórnin
óskoraðs stuðnings hans. Hann lofaði
á fleiri en einum fundi hér fyrir kosn-
ingar að Norðfjarðargöng kæmu á yf-
irstandandi kjörtímabili og að hafist
yrði handa eigi síðar en 2012. Hann og
aðrir þingmenn Norð-austur-
kjördæmis hafa með bleyðuskap orðið
þess valdandi að ekki er útlit fyrir
þessa sjálfsögðu samgöngubót á kom-
andi árum. Fjarðabyggð á undir högg
að sækja varðandi íbúaþróun. Mikið er
af farandverkafólki á staðnum og eru
jafnvel leigðar íbúðir undir tækni-
menntað fólk sem dvelur hér á virkum
dögum en fer til síns heima um helgar
á höfuðborgarsvæðið. Af hverju vilja
fáir búa hér? Jú ástæðan er frekar ein-
föld. Hér eru nokkrir byggðakjarnar
af óhagstæðri stærð og stærsti kjarn-
inn er einangraður með bröttum fjall-
vegi og úrsérgengnum jarðgöngum.
Einnig er snjómokstri á fjölfarnasta
vegi fjórðungsins á milli
Eskifjarðar og Reyð-
arfjarðar sinnt með
pínulitlum pallbíl í eigu
Vegagerðarinnar og eru
jafnan klaki og hjólför á
veginum að vetri til og
útafkeyrslur tíðar. Sam-
göngur innan svæðis eru
ekki nægilega greiðar til
að hér þrífist t.d. afþrey-
ingarþjónusta o.fl. Á
Norðfirði er mjög gott
sjúkrahús með færu
starfsfólki en að fara
þangað er ekki alltaf
heiglum hent. Þar er einnig Verk-
menntaskóli sem berst fyrir tilveru
sinni. Hvers vegna? Jú það eru margir
foreldrar sem ekki langar beint til
þess að börnin þurfi yfir skarð daglega
allan veturinn í rútu hvað þá á Yar-
isnum sínum. Fyrir Norðfirðinga
sjálfa sem sækja vinnu t.d. í álverið er
skarðið tálmi og getur tekið langan
tíma að komast úr og í vinnu.
Það eru flutt þúsundir tonna af fiski
yfir Oddskarð á hverju ári, enda eitt
stærsta og best rekna sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins staðsett þar. Rík-
isstjórnin hefur auðvitað reynt að gera
það fyrirtæki órekstrarhæft með til-
lögum sínum um stjórn fiskveiða, bein-
línis til höfuðs fyrirtækinu og þar af
leiðandi smám saman að gera göngin
óþörf. Ég hef stundum á tilfinningunni
að Steingrím J. myndi hlakka í sinni ef
ekki væri hægt að reka stóriðjurna í
Fjarðabyggð sökum mannaflaskorts,
hann teldi það efalaust sönnun á
hversu vonlausar stóriðjur eru og
áfangasigur fyrir veruleikafirrta
Vinstri-græna.
Fjarðabyggð er góður staður sem
hægt og bítandi er verið að eyðileggja
með aðgerðaleysi og svikum stjórn-
valda. Ef eðlileg stjórnvöld héldu hér
um stjórnartaumana myndu þau halda
á lofti þessari byggð og gera hana að
vinsælum stað til búsetu í stað þess að
hvetja til Noregsferða og styrkja
norska vinnuveitendur í leit að vinnu-
afli á Íslandi og neita síðan að við-
urkenna tölur Hagstofunnar um fjölda
brottfluttra.
Þetta er ömurleg staða, verandi
með fyrsta þingmann kjördæmisins
valdagráðugan fjármálaráðherra og
aðra þingmenn kjördæmisins dug-
lausa og þá sérstaklega stjórn-
arþingmennina þótt hinir séu slappir
líka. Það eru ekki margir mánuðir síð-
an þingmannaskari kjördæmisins kom
hérna og sagði okkur hversu mikla
áherslu hann legði á samgöngubætur í
Fjarðabyggð. Verður fróðlegt að
heyra bullið í þeim næst þegar þeir
koma hingað ef þeir þá þora. Þeim er
kannski alveg sama um okkur, við er-
um sennilega ekki nógu mörg? Alla-
vega höfum við vel getað þverfótað
fyrir þeim undanfarin ár og þeir
treysta væntanlega á að næst þegar
kosið verður geti þeir lofað öðrum íbú-
um fjórðungsins vegabótum sem svo
er hægt að draga 1-2 kjörtímabil. Ég
skora á þingmenn kjördæmisins að
berjast nú eins og menn fyrir Odds-
skarðsgöngum sem eru hreint og beint
lífsspursmál fyrir íbúa Fjarðabyggðar
og framtíð svæðisins.
Eftir Einar Birgi
Kristjánsson » Fjarðabyggð er
sveitarfélag sem
varð til við sameiningu
og var fyrir nokkrum
árum sex sjálfstæð
sveitarfélög.
Einar Birgir
Kristjánsson
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Skítugu börnin í Fjarðabyggð
www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is
Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu
hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa
A
N
TO
N
&B
ER
G
U
R
Ármúla 38 | Sími 588 5011
AKIKO
„Enlightenment“
My spirit is wise and
knowledgeable
Verð frá kr. 1990.-
Kimmidoll
á Íslandi
Höfðabakka 3 - Sími: 587-9500 - Krafla.is
Fluguveiðipakkar frá kr. 14.900,-
Frábær
vöðlu-
tilboð
Frábær
jólatilboð
Flugubox úr birki eða mahoný
Gröfum nöfn veiðimanna á boxin
Íslensk box, íslenskar flugur, íslensk hönnun
Opið alla daga til jóla frá 10 til 18
Veiðibúðin
Krafla
Flugustöng - Fluguhjól með aukaspólu - Undirlína og flotlína #5 - Sex flugur í boxi - Línan á hjóli með taum
Viltu vinna
flugubox frá
Kröflu?
Komdu í verslun
okkar og taktu þátt í
getraun. Hvað eru
margar túpur á
Kröflujólatrénu?
Trébox með 28
flugum í verðlaun.