Morgunblaðið - 17.12.2011, Page 49

Morgunblaðið - 17.12.2011, Page 49
orðin hrædd um að við séum öll farin að sakna þess, það er allt frekar einmanalegt án þessara áhyggna. Hún átti aldrei slæma daga (samkvæmt henni), það var alltaf allt eins og það átti að vera. Hún var nú bara 25 ára svo afhverju ætti eitthvað að vera að? Það var alltaf svo gott að koma til hennar og fá nammi og setjast við eldhúsborðið og spila við hana, hún leyfði okkur líka alltaf að vinna. Já við munum svo sannar- lega sakna hennar, konunnar sem var okkur til skammar út í búð þegar hún leitaði að vörum á til- boði eða afslætti til að kaupa, sem keypti sokka handa nýja kærast- anum í fjölskyldunni til að bjóða hann velkominn, konunnar sem taldi upp Hafnfirðingabrandara fyrir framan vinkonurnar og vin- ina og hló svo ein. Það var alltaf svo gott að koma og kúra hjá henni yfir nóttina, það var sko dekrað við okkur þá. Hún bað alltaf faðir vorið og tvær aðr- ar stuttar bænir fyrir svefninn og alltaf fannst okkur það tilgangs- laust en gerðum það samt með henni. Amma hafði endalausar sögur að segja, sögur frá því mamma var lítil, sögur af mömmu sinni og pabba sem við fengum aldrei að kynnast, sögur af gömlum vin- konum sem gerðu eitthvað vand- ræðalegt á almannafæri. Amma var full af sögum og alltaf fannst henni jafn gaman að segja frá þeim. Oft skáldaði hún sögur, ég man eftir sögunni sem hún las fyrir mig þegar ég var yngri frá lífinu í himnaríki, það var nú meiri draumaheimurinn. Einn daginn mun hún koma til mín í draumi og segja mér hvort sagan sé sönn eða ekki. Það er ekki auðvelt að kveðja, kona eins og þessi á skilið góða kveðju, hún á skilið endalausa raf- ræna kossa og faðmlög, sem hún fær. Hvíldu í friði, elsku amma. Sandra Karen, Kristófer Leví og Lilja Rún. Elsku besta amma mín, ég man þegar ég gisti hjá þér allar nætur, það var svo gott. Þú gafst mér alltaf nammi og gos, þú gafst mér alltaf allt sem ég vildi og gerðir meira en þú gast. Þú hafðir alltaf allt svo fínt og sagðir mér alltaf að hafa hreint í herberginu mínu. Þú sagðir mér sögur síðan þú varst lítil, svo baðstu alltaf bæn- irnar með mér, þú baðst alltaf um handleggi og það bara ef ég væri að sækja eithvað og koma svo aft- ur. Ég sakna þess að fá knús á hverjum degi og fá svo alltaf að spila. Heyra á hverjum degi hvað þér þykir vænt um mig. Ég var ekki tilbúin að missa þig, þú varst alltof góð að ég vildi aldrei fara frá þér, ég elskaði þig svo heitt, þú varst mín besta amma, ég gat ekki gert neitt annað en að vera hjá þér öll kvöld, þú sýndir mér og kenndir mér svo margt. Takk fyr- ir allt elsku besta amma mín. Hvíldu í friði. Kveðja, Álfheiður Birta. Í dag verður til moldar borin frænka mín, Álfheiður, sem ætíð var kölluð Abba á meðal ættingja og vina. Hún var fædd á Patreks- firði og ólst þar upp hjá góðum foreldrum og stórri móðurfjöl- skyldu sem bjuggu á símstöðinni. Systkinin á stöðinni voru ellefu talsins, móðir hennar elst og mín yngst. Barnabörnin voru lengi vel bara tvö, systkinin Abba og Dengi. Á mínum yngri árum dvaldi Abba oft á heimili foreldra minna þegar hún kom til Reykjavíkur. Mér er sérstaklega minnisstæð ein heimsóknin. Við deildum sam- an herbergi og er ég vaknaði að morgni sá ég glitta á trúlofunar- hring á hendi frænku minnar. Þar með var Jakob kominn til sögunn- ar, það var gæfuspor þeirra beggja og upphaf að farsælu og góðu hjónabandi alla tíð. Þau sett- ust að á Ólafsfirði, þar sem Jakob gerðist rafveitustjóri, og hafa bú- ið þar alla tíð. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að bærinn hafi verið heppinn að fá þetta góða og trausta fólk, þau unnu staðnum og vildu hag hans sem bestan. Systkinabörn þeirra Öbbu og Jakobs; Örn, Ásta og Jónas, dvöldu hjá þeim í lengri eða skemmri tíma. Þau tóku einnig þrjú kjörbörn Sigurbjörn, Haf- stein og Ruth. Börnin voru þeirra ríkidæmi og barnabörnin, sem eru orðin 10, voru þeim miklir gleðigjafar. Abba hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lét sig ekki muna um að fara til Reykja- víkur, panta sér tíma hjá ráða- mönnum ef henni fannst á hallað. Sérstaklega er henni ætíð þökkuð umhyggjan sem hún sýndi móð- ursystur okkar, Gurru. Abba fór aldrei til útlanda en undi ávallt glöð við sitt heima á Ólafsfirði. Þau hjónin voru höfðingjar heim að sækja, þar var ætíð gestkvæmt og má segja að heimilið hafi legið um þjóðbraut þvera. Hugur minn er hjá Jakobi, sem nú dvelur að Hornbrekku. Hann sér að baki sínum góða lífsföru- naut. Honum og börnunum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Að lokum vil ég gera orð systur minnar að mínum: „Hún Abba var með svo stóran faðm.“ Ása Hanna Hjartardóttir. Álfheiðar Jónasdóttur er gott að minnast. Ávallt var eins og maður hefði farið í gær þegar hún tók á móti manni, en samt kominn um svo langan veg og seinfæran að maður hlyti að vera aðfram- kominn af hungri og vosi. Jakob föðurbróðir minn var gæfumaður að eiga hana og vissi það vel og lét hana stýra því sem hún vildi. Slíkar konur hafa reynst okkur frændum mörgum vel, enda stundum kallaðar Álf- heiðar þegar okkur þykir sérlega mikið í lagt. Hún bjó nafna og börnunum þeirra gott atlæti og var öll gló- andi af umhyggju og hluttekningu í gleði og sorg, jafnvel svo að henni kvað ráðlegast að vera ekki of nærri þegar þeir bræður kepptu í fótboltanum. Hún hvatti þau og aðstoðaði og lét ekki af því þótt þau færu að heiman og náði örmum um þau allt suður í Reykjavík og lengra ef því var að skipta. Ég kom til þeirra Öbbu og Jak- obs um páska og endranær þegar ég var í skóla á Akureyri og fékk viðtökur af þeim báðum sem seint verða fullþakkaðar. Ég minnist sérstaklega fertugsafmælis nafna sem haldið var með annáluðum myndarbrag. Ég var beðinn um að koma með drykkjarföng og þótti óreyndum nafni ætla að gera vel við menn í drykk, en svo kom í ljós að hann var löngu búinn að efna í veisluna, vildi bara vera viss um að hafa nóg. Eftir þessu voru tertuflákar Álfheiðar um allar hillur og uppslegin borð í bíl- skúrnum sem okkur Ödda frænda var stranglega bannað að snerta meðan við værum að blanda boll- urnar. Og þótt við hefðum etið svo sem við höfðum lyst á, og hún gat verið mikil eins og stundum sann- aðist, þá hefði ekki séð högg á vatni. Systur mínar, Martha og Hera, minntu mig á það hve jólagjafirn- ar frá þeim Öbbu og Jakobi voru tilhlökkunarverðar og gaman þegar þau komu vestur á sumrum á dögum barnæsku okkar á Bíldu- dal. Seinna þegar við Auður kom- um við hjá þeim með strákana okkar voru viðtökurnar eftir þessu og Daníel okkar, sem hefur legið þar í landi löngum vegna uppruna Völu sinnar á þeirra slóðum, hefur á sama hátt notið dálætis þeirra og þau öll sem hon- um fylgja. Ég skil að nafna muni þykja sól af himni núna og langnætti. Sig- urbjörn, Hafsteinn og Rut eiga um hana minningar um gleðileg jól þótt ljómi þessara verði minni. En það mun stöðugt birta af eilífri sól elskunnar sem alla vill baða birtu sinni og hlýju. Undir henni skulum við safnast saman seinast öll. Í ljóma hennar hugsum við til Álfheiðar og þökkum líf hennar. Kveðjur frá Auði minni, systrum mínum og okkur öllum. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Kær vinkona okkar í Ólafsfirði er látin, Álfheiður Jónasdóttir. Margir munu minnast hennar og notalegra stunda á heimili hennar í Aðalgötu 25 með kaffi og með- læti í eldhúsinu eða stofunni. Þar komu vinir saman, sumir á hverj- um morgni til að spjalla og vera samvistum við þessa konu sem hafði svo mikla hjartahlýju og ljúfa nærveru og leit á þá eins og þeir væru úr fjölskyldunni. Úr varð lítið samfélag sem varð jafn- vel nánara heldur en margir ná að öðlast heima hjá sér í venjulegum stórum eða smáum fjölskyldum. Álfheiður var þar í essinu sínu og var eins og hún lifði og hrærðist fyrst og fremst á því að láta fólki líða vel í kringum sig, spjalla við það og láta það finna að einhver kærði sig um það og áhuga á að deila með því gleði og þrautum lífsins. Abba, eins og við vinir hennar kölluðum hana, fæddist og ólst upp á Patreksfriði og eiginmaður hennar í Bíldudal. Þau fluttust ung til Ólafsfjarðar árið 1952, en þá gerðist Jakob rafveitustjóri þar. Þau áttu fyrst heima á Brekkugötu 19 í húsi Gunnu frænku og Gríms Bjarnasonar. Þær fjölskyldur urðu strax afar nánar. Við Rúna nutum þess að vera heimilisvinir þeirra eftir að við komum í Ólafsfjörð árið 1960. Við vorum tekin ljúflega inn í vinasamfélagið. Það var sérstök upplifun að kynnast því hvernig þau urðu eiginlega meiri Ólafs- firðingar en við hin, sem höfðum alist þar upp, hvað þau tóku virk- an þátt í að berjast fyrir framfara- málum í bænum. Jakob varð bæj- arfulltrúi og haslaði sér fljótt völl í forystusveit kaupstaðarins. Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og sveitarstjórnar- málum. Abba var enginn eftirbát- ur hans í þeim efnum, hélt fast á sínum málstað. Hún var mikil sjálfstæðiskona, en fór aldrei í manngreinarálit á pólitíska svið- inu. Það var hins vegar einstak- lega gaman að því hvað hún var mikil keppnismanneskja í pólitík- inni eins og knattspyrnunni. Það fór ekki á milli mála að hún studdi Leiftur á knattspyrnuvellinum né heldur hvar hjarta hennar sló í stjórnmálunum. Á kosningadag var oft mannmargt á heimili þeirra Öbbu og Jakobs. Það var gaman að finna spennuna og brennandi áhugann á mönnum og málefnum. Þá var ekki slegið af gestrisninni og höfðingskapnum, sem einkenndi þau bæði. Abba var afar heppin og farsæl í einkalífi sínu. Þau Jakob voru samhent að búa sér og sínum notalegt heimili. Þau voru börn- um sínum, Sigurbirni, Hafsteini og Rut einstakir foreldrar. Það var stórkostlegt og lærdómsríkt að sjá hvað þau umvöfðu þau. Nú er mikill harmur að þeim öllum kveðinn og ekki síst Jakobi, sem er orðinn heilsulítill og dvelst á Hornbrekku. Við Rúna sendum þeim og öllum vinum Öbbu inni- legustu samúðarkveðjur. Við biðj- um góðan Guð að blessa okkur öll- um minningu Álfheiðar Jónasdóttur. Guðrún (Rúna) og Lárus Jónsson. Hún Abba mín er dáin. Þessi staðreynd er eins og þungur steinn í hjarta mínu. Hún sem alltaf var svo dugleg, hún sem ég gat alltaf leitað til í blíðu og stríðu. Hún gaf mér ráð og kjark í öllum raunum. Þegar börnin mín voru veik voru þau vön að segja:„Get- um við ekki bara hringt í Öbbu?“ Og alltaf kom Abba. Hún reyndist mér ómetanlegur vinur, sem besta systir, og var frá fyrstu kynnum hluti af minni fjölskyldu. Ég var unglingur þegar Abba flutti hingað í Ólafsfjörð og kynnt- ist ég henni fljótt. Við unnum mik- ið saman við bakstur og matar- gerð, en það var hennar uppáhald. Hún kenndi mér mikið í þeim efn- um og þegar ég fór að læra hár- greiðsluna kom Abba mér til hjálpar og kom mér á samning hjá móðursystur sinni, Mörtu. En systurdóttir hennar var nýkomin úr námi frá Bandaríkjunum og setti upp stofu á Laugaveginum. Þar vann ég í fjögur ár. Allt vildi Abba gera fyrir mig. Álfheiður, eins og hún hét fullu nafni, var frábær móðir og amma. Hún bjó fjölskyldu sinni fallegt heimili og var höfðingi heim að sækja, enda gestagangur mikill hjá henni alla tíð. Þau hjónin áttu marga góða vini og oft var þröngt setið við eldhúsborðið. Eins voru vinir hennar ávallt velkomnir og gengu þar út og inn. Hún átti allt- af góðar kökur og bauð í svanga munna. Eftir að Jakob, maður hennar, veiktist hugsaði hún um hann af mikilli alúð alveg fram á síðasta dag. Það var hennar lífsviðhorf að halda áfram meðan kraftarnir leyfðu. Hún glímdi við sín veikindi af æðruleysi – ætlaði ekki að láta undan en sjúkdómurinn hafði bet- ur. Við kveðjum elsku Öbbu með djúpri virðingu og kæru þakklæti. Hennar er sárt saknað. Nú hvílir hún í faðmi frelsarans, guð blessi hana og varðveiti. Elsku Jakob, Bjössi, Hafsteinn, Rut og fjöl- skyldur, guð styrki ykkur í sorg- inni og blessi minningu einstakrar eiginkonu, móður og ömmu. Guðrún Jónsdóttir og fjölskylda. Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarveru hans, eins og fjall- göngumaður sér fjallið bezt af slétt- unni. (Úr Spámanninum) Kær vinkona er látin. Vinskap- ur okkar Öbbu hófst strax þegar ég flutti til Ólafsfjarðar fyrir 43 árum. Eiginmenn okkar voru vin- ir og við vorum nágrannar öll þessi ár. Fyrst í Ólafsveginum, þar sem nokkur hús voru á milli okkar og síðar fluttum við í Að- algötu og bjuggum í húsunum nr. 25 og 27 í yfir 30 ár. Það var stutt að skjótast á milli húsa í kaffi og spjall. Abba var höfðingi heim að sækja, gestrisin með afbrigðum og borð alltaf hlaðin kræsingum. Í mörg ár voru nokkrir vinir þeirra hjóna fastagestir í morgunkaffi og ef einhver ekki mætti á tilsett- um tíma var hringt og spurt hvort viðkomandi væri lasinn. Það þurfti góða og gilda ástæðu fyrir því að mæta ekki í morgunkaffið! Abba var alltaf heilsuhraust en síðastliðið ár hefur verið henni erfitt. Hún ætlaði sér að sigrast á þessum veikindum og stóð á með- an stætt var, en maðurinn með ljáinn hafði betur. Við leggjum blómsveig á beðinn þinn og blessum þær liðnu stundir er lífið fagurt lék um sinn og ljúfir vinanna fundir en sorgin með tregatár á kinn hún tekur í hjartans undir. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Að leiðarlokum skal þökkuð áratuga vinátta og samfylgd. Elsku Jakob, Bjössi, Haf- steinn, Ruth og fjölskyldur. Ég flyt ykkur hugheilar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu mætrar konu. Klara. MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 24 tíma vakt Sími 551 3485 Davíð H.Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947 ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ ÚTFA RARÞJÓNUSTA ✝ Elsku mamma okkar, dóttir, systir, mágkona og frænka, INGIBJÖRG VAGNSDÓTTIR, Holtastíg 11, Bolungarvík, sem lést sunnudaginn 20. nóvember, verður jarðarsungin frá Hólskirkju í Bolungar- vík miðvikudaginn 28. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð slysa- varnardeildar kvenna í Bolungarvík, reikningur 1176-15-550655, kt. 680191-2479. Kristín, Birna og Ívar Ketilsbörn, Birna Hjaltalín Pálsdóttir, Soffía, Hrólfur, Margrét, Pálína, Haukur og Þórður Vagnsbörn og fjölskyldur. ✝ Okkar ástkæri unnusti, sonur og bróðir, INGI ÞÓR HAFBERGSSON guðfræðinemi, Frostafold 42, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 13. desember, verður jarð- sunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 21. desember kl. 13.00. Anna Birna Þorvarðardóttir, Freydís Harðardóttir, Hafberg Magnússon, Lára Ósk Hafbergsdóttir, Sóley Dögg Hafbergsdóttir, Sigvaldi Þorsteinsson, Tristan Ýmir. ✝ Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HADDUR JÚLÍUSSON, Ránargötu 27, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 9. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Alúðarþakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð. Starfsfólki Einihlíðar eru færðar sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun. Elín Rannveig Jónsdóttir, Margrét Haddsdóttir, Stefán Kárason, Áslaugur Haddsson, Hulda Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Minn kæri eiginmaður og faðir okkar, STEFÁN JÓNSSON, Gnoðarvogi 80, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans aðfaranótt mánudagsins 12. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kærar þakkir fá allir sem honum sinntu í veikindum. Halldóra Jónsdóttir, Elísabet Stefánsdóttir, Helena Júnía Stefánsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, STEFÁN S. BJARNASON, lést á heimili sínu að Kambahrauni 19, Hveragerði. Jarðarförin verður auglýst síðar. G. Sigríður Geirsdóttir, Bjarni Stefánsson, Lillian Gundestrup-Sørenesen, Halldór Ásgrímur Stefánsson, Guðrún Bjarnadóttir Bergese, Margrét Rósa Bjarnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.