Morgunblaðið - 31.12.2011, Síða 42

Morgunblaðið - 31.12.2011, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011 1 Um hálf milljón erlendra ferðamanna komtil Íslands á árinu, 20% fleiri en í fyrra. Frá hvaða heimshluta fjölgaði þeim mest?  a) Norðurlöndum.  b) Austur-Asíu.  c) Norður-Ameríku.  d) Suður-Evrópu. 2 Hosni Mubarak neyddist til að segja af sérvegna mótmæla í Egyptalandi. Hversu lengi hafði hann þá stjórnað landinu?  a) 42 ár.  b) 27 ár.  c) 30 ár.  d) 18 ár. 3 KR-ingar urðu Íslands- og bikarmeistararí fótbolta karla 2011. Hvaða KR-ingur var í lok Íslandsmótsins valinn besti leikmaður deildarinnar?  a) Bjarni Guðjónsson.  b) Kjartan Henry Finnbogason.  c) Hannes Þór Halldórsson.  d) Grétar Sigfinnur Sigurðarson. 4 Mugison gaf út plötu á árinu. Hvað kallasthún?  a) Hríðarbylur.  b) Ég sé snjó.  c) Haglél.  d) Úrkoma. 5 Ný verslun var opnuð á Ísafirði í júlí, súfyrsta sinnar tegundar í 15 ár. Engin slík verslun var fyrir á Vestfjörðum og var hennar því beðið með nokkurri eftirvæntingu. Um hvernig verslun var að ræða?  a) Fiskbúð.  b) Leikfangaverslun.  c) Verslun með hjálpartæki ástalífsins.  d) Ostabúð. 6 26. febrúar féll fyrsta ríkisstjórnin vegnaskuldakreppunnar á evrusvæðinu. Í hvaða landi?  a) Portúgal.  b) Írlandi.  c) Grikklandi.  d) Ítalíu. 7 Stjarnan varð Íslandsmeistari kvenna í fót-bolta í fyrsta skipti árið 2011. Hvaða leik- maður liðsins var valinn besti leikmaður deild- arinnar?  a) Ashley Bares.  b) Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.  c) Soffía A. Gunnarsdóttir.  d) Ásgerður S. Baldursdóttir. 8 Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall,vakti mikla athygli í ár. Hvað heitir aðalleikarinn?  a) Theodór Jónsson.  b) Theodór Júlíusson.  c) Theodór Jakobsson.  d) Björn Ólafsson. 9 Forseti Íslands átti fund með BenediktXVI páfa á árinu og færði honum gjöf frá Íslandi við það tilefni. Hver var gjöfin?  a) Krukka með ösku úr eldgosinu í Eyja- fjallajökli.  b) Áritað eintak af fyrstu prentun Guð- brandsbiblíu frá árinu 1584.  c)Ljósmynd af Grími rakara Kristgeirs- syni, föður hans.  d) Afsteypa af styttunni Fyrsta hvíta móð- irin í Ameríku eftir Ásmund Sveinsson. 10Dominique Strauss-Kahn sagði af sérsem framkvæmdastjóri Alþjóðagjald- eyrissjóðsins eftir að hafa verið sakaður um nauðgun. Hver tók við af honum í sjóðnum?  a) Christine Lagarde.  b) Josephine Lagarde.  c) Josephine Lagerlöf.  d) Christine Chubbuck. 11 Íslenskur keilumaður fékk brons-verðlaun á Evrópumóti landsmeistara ár- ið 2011. Hver var það?  a) Dagný Edda Þórisdóttir.  b) Róbert Dan Sigurðsson.  c) Karen Rut Sigurðardóttir.  d) Hafþór Harðarson. 12 Ragnar Kjartansson flutti umtalaðangjörning í New York í haust ásamt m.a. Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara. Hvað heitir verkið?  a) Sing!.  b) Bliss.  c) Opera.  d) Transfusation. 13 Styr stóð um Skálholtskirkju á árinuvegna byggingar Þorláksbúðar ofan á fornum tóftum norðan við kirkjuna. Hver er forvígismaður Þorláksbúðarfélagsins?  a) Árni Johnsen.  b) Vilhjálmur Bjarnason.  c) Bjarni Harðarson.  d) Þorlákur Helgason. 14Laurent Gbagbo, fyrrverandi forsetiFílabeinsstrandarinnar, var handtekinn í apríl eftir umdeildar forsetakosningar sem leiddu til átaka. Hvað heitir stærsta borg landsins?  a) Yamoussoukro.  b) Accra.  c) Abidjan.  d) Abuja. 15 Kvennalandsliðið í handbolta vaktimikla athygli fyrir árangur sinn á heimsmeistaramótinu í Brasilíu. Í hvaða sæti endaði liðið?  a) 6. sæti.  b) 10. sæti.  c) 12. sæti.  d) 14. sæti. 16 Gísli Örn Garðarsson og Vesturportstanda nú að Hróa hattar-leiksýningu í London sem fengið hefur mikið lof. Hver sér um tónlistina í verkinu?  a) Högni Egilsson.  b) Ben Frost.  c) Jónsi.  d) Hallur Ingólfsson. 17Eitt umfangsmesta úrarán Evrópu íseinni tíð var framið í verslun Franks Michelsens á Laugavegi. Lögreglu tókst að upplýsa málið á aðeins níu dögum, en hvers virði var ránsfengurinn?  a) Verðmætið fékkst ekki uppgefið að kröfu Rolex.  b) 20-30 milljóna króna.  c) 60-70 milljóna króna.  d) Ránsfengurinn varð ekki metinn til fjár. 18Forseti Líberíu er á meðal þriggjakvenna sem fengu friðarverðlaun Nób- els í ár. Hvað heitir hún?  a) Graça Machel.  b) Nkosikazi Nomzamo Madikizela.  c) Aung San Suu Kyi.  d) Ellen Johnson Sirleaf. 19Íslendingur náði 13. sæti í sinni grein áheimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum í Daegu í Suður-Kóreu. Hver var það?  a) Kristinn Torfason.  b) Helga Margrét Þorsteinsdóttir.  c) Óðinn Björn Þorsteinsson.  d) Ásdís Hjálmsdóttir. 4 2 3 Fullorðinsgetraun 2011-2012 18 ára og eldri Nafn: Heimili: Staður: Sími: Svör sendist í Hádegismóa 2, 110 Reykjavík, merkt Morgunblaðið Fullorðinsgetraun. Skilafrestur til 11. janúar 2012 Verðlaun 1. Hannes Pétursson - Jarðlag í tímanum 2. Einar Falur Ingólfsson - Án vegabréfs 3. Sigríður Víðis Jónsdóttir - Ríkisfang ekkert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.