Morgunblaðið - 01.02.2012, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
5 6 3 9
9 6 3
4 8
8 6 1 4 9
2
3 8 4 2
4 2 5
5 1 6
5 1 3
5 6 9
4
9 7 4
6 4 7
8 1
9 6 8 7
4 1 6 3
9 8 5
4 2 1
1 6 3 5
6 8
5 6 2
5 3
3 7 4
2
9 4
4 9 5 3
6 3 4 8 7 9 1 2 5
8 9 2 5 4 1 3 7 6
1 5 7 3 2 6 9 8 4
4 8 3 6 5 2 7 1 9
5 2 9 7 1 4 8 6 3
7 6 1 9 8 3 5 4 2
9 1 6 2 3 7 4 5 8
2 7 8 4 9 5 6 3 1
3 4 5 1 6 8 2 9 7
9 2 6 7 3 5 1 8 4
4 7 5 6 1 8 2 9 3
8 3 1 9 4 2 6 5 7
6 5 4 3 9 1 8 7 2
2 9 8 4 5 7 3 1 6
7 1 3 8 2 6 5 4 9
5 8 7 2 6 9 4 3 1
3 6 9 1 8 4 7 2 5
1 4 2 5 7 3 9 6 8
6 3 9 1 4 8 5 2 7
5 1 2 7 9 3 8 4 6
4 8 7 6 5 2 1 9 3
1 7 8 2 6 5 9 3 4
3 9 5 4 7 1 2 6 8
2 6 4 8 3 9 7 5 1
9 4 1 3 2 7 6 8 5
7 5 6 9 8 4 3 1 2
8 2 3 5 1 6 4 7 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 1. febrúar,
32. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Ég segi við Drottin: „Þú
ert Drottinn minn, ég á engin gæði
nema þig.“ (Sálm. 16, 2.)
Víkverji var um helgina á Póst-mótinu í körfubolta, sem
Breiðablik hélt í Smáranum. Mótið
er haldið fyrir yngstu iðkendur
körfuboltans og má þar sjá ótrúleg
tilþrif þrátt fyrir ungan aldur leik-
manna. Í körfuboltanum hefur verið
farin önnur leið en í öðrum bolta-
íþróttum að því leyti að þegar börnin
eru að stíga sín fyrstu skref eru stig-
in ekki talin. Þetta er ekki nýtt og
virðist ekki eyðileggja ánægju
barnanna af spilamennskunni og hef-
ur Víkverji á tilfinningunni að fremur
sé þetta metnaðarfyllstu foreldr-
unum til skapraunar. Á bak við þetta
er hins vegar mjög jákvæð hugsun,
sem er mjög mikilvæg, og hún er sú
að fyrst og fremst eigi leikmennirnir
að njóta þess að vera inni á vellinum
og spila.
x x x
Víkverjanum brá því þegar hannheyrði umræður á einhverri út-
varpsstöðinni á mánudag um þetta
fyrirkomulag. Þar heyrðist að það
drægi úr metnaði barnanna að telja
ekki stigin. Raunar má benda á að
elstu börnin á þessu móti eru farin að
keppa á Íslandsmóti þar sem stigin
eru talin, þannig að þeim er ekki
ókunnugt um að eitt lið geti tapað og
annað unnið á körfuboltavellinum. Ef
til vill átti þessi umræða aðeins þær
rætur að stöðugt þarf að finna um-
ræðuefni til að fylla öldur ljósvakans.
Víkverja finnst þó að af öllu því, sem
hægt er að gagnrýna í íþróttum, sé
sú ákvörðun að telja ekki stigin á
mótum fyrir yngstu börnin í körfu-
bolta mjög aftarlega í röðinni.
x x x
Íþví sambandi mætti reyndarbeina athyglinni að því að á um-
ræddu móti – í það minnsta á meðan
Víkverji var á staðnum – fengu strák-
arnir að spila alla sína leiki á stærsta
vellinum í húsinu, en stelpurnar
spiluðu á litlum völlum. Víkverji von-
ar að þetta hafi verið hugsunarleysi
hjá skipuleggjendum, en víst er að
þetta fór ekki fram hjá stelpunum,
sem ekki leggja síður hart að sér í
æfingum og keppni en strákarnir, og
gildir þá einu hvort stigin eru talin
eða ekki. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gerðarleg, 8 reik-
ar, 9 pésa, 10 starf, 11 froða,
13 tómar, 15 lítils skips, 18
klöpp, 21 frostskemmd, 22
pjatla, 23 ávinnur sér, 24
bundin eiði.
Lóðrétt | 2 gretta, 3 skepn-
an, 4 rás, 5 kvenkynfruman,
6 farandkvilli, 7 hæðir, 12
ótta, 14 reyfi, 15 gleði, 16
gæsarsteggur, 17 virki, 18
ferma, 19 styrkti, 20 fæða.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hamra, 4 hamli, 7 lifur, 8 lokki, 9 sút, 11 aumt, 13 frán,
14 örlar, 15 hníf, 17 úrar, 20 smá, 22 létta, 23 metum, 24 róast,
25 nárar.
Lóðrétt: 1 halla, 2 máfum, 3 aurs, 4 holt, 5 mokar, 6 iðinn, 10 út-
lim, 12 töf, 13 frú, 15 halur, 16 ístra, 18 ritur, 19 rómar, 20 satt,
21 áman.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fornleg sagnvenja. A-Allir.
Norður
♠KD76
♥K6
♦G74
♣ÁG82
Vestur Austur
♠ÁG9543 ♠82
♥8432 ♥105
♦6 ♦ÁKD109852
♣95 ♣D
Suður
♠10
♥ÁDG97
♦3
♣K107643
Suður spilar 5♣.
Frá fornu fari hafa spilarar opnað á
þremur gröndum til að lýsa yfir
löngum og þéttum láglit. Spil austurs
henta sérlega vel í þá sögn og Guð-
mundur Gunnarsson hóf þar leikinn á
móti búlgörsku landsliðsmönnunum
Tendafilov og Karaivanov. Þetta var
undir lokin á tvímenningi Bridshátíðar.
Hvernig á suður að bregðast við 3G?
Allt orkar tvímælis þá er gert er, en
Trendafilov kaus að segja einfaldlega
4♣. Makker hans lyfti í 5♣, sjálfsagt
skíthræddur um að slemma stæði á
borðinu. Svo reyndist þó ekki vera og
sagnhafi mátti þakka fyrir að vinna 5♣.
Út kom tígull og meiri tígull, sem suð-
ur trompaði með tíunni. Hjúkk!
Á tveimur borðum spilaði austur 3G
við lítinn orðstír. Útspilið var lauf og
vörnin tók ellefu fyrstu slagina: 700 í
A-V og toppur.
1. febrúar 1904
Heimastjórn. Ný stjórnskipan
kom til framkvæmda og fól í
sér skipan íslensks ráðherra
sem bæri ábyrgð gagnvart Al-
þingi. Þessu var „fagnað með
veisluhöldum bæði í Reykjavík
og víðar um land,“ eins og
sagði í Skírni. Hannes Haf-
stein varð fyrsti ráðherrann.
Hann gegndi því embætti til
1909 og aftur frá 1912 til 1914.
1. febrúar 1952
Snjódýpt í Reykjavík mældist
48 sentimetrar, sem var það
mesta síðan 1937. „Snjórinn
var víða hátt upp á hurðir.
Urðu menn að moka frá þeim
og traðir í gegnum snjóinn út
á götuna,“ sagði Morgun-
blaðið. „Hvarvetna á götum
bæjarins gaf að líta bíla fennta
í kaf og það svo algjörlega að
hvergi sá í þá. Voru þeir sem
snjódyngja.“
1. febrúar 2000
Seðlabanki Íslands gaf út
minnispening úr gulli í tilefni
af „kristni í þúsund ár,“ eins
og letrað er á peninginn.
Verðgildi hans er 10.000 krón-
ur.
1. febrúar 2002
Íslenskir fjárfestar seldu bjór-
verksmiðju í Pétursborg í
Rússlandi fyrir rúma fjörutíu
milljarða króna.
1. febrúar 2009
Ríkisstjórn Samfylkingar-
innar og Vinstri grænna undir
forsæti Jóhönnu Sigurðar-
dóttur tók við völdum. Kynja-
skipting var jöfn og tveir ráð-
herrar utan þings.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég er aldrei með nein sérstök plön í tilefni af af-
mælinu mínu,“ segir Lára Björg Björnsdóttir, rit-
höfundur og sagnfræðingur, aðspurð hvað hún
hafi í hyggju að gera í tilefni af afmæli sínu en hún
er 35 ára í dag. Aðspurð hvort hún sé mikil áhuga-
manneskja um að halda upp á afmælin sín segir
hún svo ekki vera. „Ég geri aldrei neitt sér-
staklega mikið úr þeim. Ef hægt væri þá myndi ég
alveg geta sleppt því að halda upp á þau,“ segir
Lára og hún segist mjög sátt við að vera ekkert
sérstakt afmælisbarn eins og sumir aðrir. „Ég bíð
yfirleitt bara eftir því að afmælisdagurinn sé bú-
inn,“ segir hún og hlær.
Lára var nýkomin frá útlöndum þegar blaðamaður náði í hana, nán-
ar tiltekið frá New York. Þangað fór hún í þeim tilgangi að heim-
sækja systur sína sem þar býr. „Það má kannski segja að ég hafi gert
það í tilefni afmælisins,“ segir Lára en hún var í borginni sem aldrei
sefur í eina tíu daga. Aðspurð segist hún fara reglulega til New York
að heimsækja systur sína enda séu þær mjög nánar. Síðast í sept-
ember á liðnu ári en þá eignaðist systir Láru litla dóttur sem skírð var
í höfuðið á henni. hjorturjg@mbl.is
Lára Björg Björnsdóttir er 35 ára í dag
Ekki mikið afmælisbarn
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
1. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.19 3,0 6.33 1,6 12.48 2,8 19.03 1,5 10.10 17.14
Ísafjörður 2.19 1,5 8.33 0,8 14.46 1,4 21.08 0,7 10.31 17.02
Siglufjörður 5.02 1,0 11.34 0,5 17.48 0,9 23.41 0,5 10.15 16.44
Djúpivogur 3.34 0,7 9.26 1,2 15.53 0,6 22.34 1,4 9.43 16.39
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Veltu fyrir þér leiðum til þess að bæta
vinnuaðstæður þínar. Einnig er lag að byrja
nýtt samband og handsala viðskipti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Skyndilega er eins og allir leiti til þín
um svör við þeim spurningum, sem á þeim
brenna. Sýndu þolinmæði og þá mun allt
leysast farsællega.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er eins og áhyggjurnar hrannist
upp með þér. Notaðu daginn til þess að gera
sjálfum þér eitthvað til góða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Menn hafa misjafnar skoðanir á mál-
um og þurfa að virða það ef gott samstarf á
að geta haldið áfram. Þú skalt forðast rifrildi
við yfirmenn þína eða foreldra.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það hefur ekkert upp á sig að berja
höfðinu við steininn. Eftir allt saman er það
einmitt fróðleiksleitin, sem gefur lífinu gildi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nýttu þér þörfina sem þú virðist hafa
fyrir að skipuleggja líf þitt betur. Vináttan
batnar ef þú leggur þig ekki of mikið fram.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vogin gegnir mörgum hlutverkum, en
henni gengur best ef hún passar að vera allt-
af hún sjálf. Það er orðið tímabært að þú
dekrir svolítið við sjálfan þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú elskar að vinna með hönd-
unum, ekki síst ef þú ert að fást við eitthvað
sem þú hefur ekki prófað áður. Allt er það
gott en varastu ofmetnað.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hugsanir hafa áhrif á allt í lífi okk-
ar. Hugsanlega hittir þú nýjan einstakling eða
sérð nýja hlið á einhverjum sem þú þekkir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að finna þér lausar stund-
ir til þess að eyða í friði og ró. Hlustaðu ekki á
umtal um fólk sem þú þekkir engin deili á.
Framlag þitt er mikilvægt,
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Með réttum félaga getur þú
myndað sterkt bandalag til að hrinda áhuga-
málum þínum í framkvæmd. Varastu samt að
blanda þeim inn í starf þitt því þá áttu ým-
islegt á hættu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ný tækni eða tækjabúnaður gæti ver-
ið tekinn í notkun á vinnustað. Enginn getur
vitað allt, en reynsla þín er víðtæk.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. Rc3 Rxc3 6. dxc3 Be7 7. Be3
Rd7 8. Dd2 0-0 9. 0-0-0 c6 10. h4 He8
11. Bd3 d5 12. Rg5 Rf8 13. h5 Bf6 14.
Rf3 Bg4 15. Hde1 Bxf3 16. gxf3 Re6
17. f4 h6 18. a3 Da5 19. Dd1 Rc5 20.
Bf5 Ra4 21. Dd3 Rc5 22. Dd1 Db5 23.
De2 Da4 24. Dd1 Re4 25. Bxe4 Hxe4
26. Hhg1 Hae8 27. Hg3 Kh8 28. Heg1
Dc4 29. Kb1 c5 30. Dd3 b6 31. Dxc4
Hxc4 32. Hd1 d4 33. cxd4 cxd4 34. b3
Staðan kom upp á ofurskákmóti
sem lauk fyrir skömmu í Reggio
Emilia á Ítalíu. Anish Giri (2.714) frá
Hollandi hafði svart gegn bandarísk-
um kollega sínum í stórmeistarastétt,
Hikaru Nakamura (2.758). 34. …
dxe3! 35. bxc4 exf2 36. Hf3 He1 37.
Kc1 Bd4 38. c3 Be3+ 39. Kc2 f5 40.
a4 a5 41. c5 Bxc5 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.