Morgunblaðið - 01.02.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.02.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2012 STUTTAR FRÉTTIR ● Íslenskir neytendur virðast nú vænta betri tíðar ef marka má væntinga- vísitölu Gallup, sem birt var í gær. Vísi- talan hækkaði um 7,5 stig milli mánaða eða um 11%. Er hún nú 75 stig og hefur ekki verið hærri frá því í september 2008. Þeir svartsýnu eru áfram fleiri en þeir bjartsýnu en þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri svartsýnir en bjartsýnir. Vísitalan hefur verið undir 100 stigum samfellt sl. fjögur ár. Bjartsýni landsmanna heldur að aukast ● Hagnaður bresku sjónvarps- veitunnar BSkyB jókst um 8,4% á fyrri hluta rekstr- arársins, júlí- desember, og nam 441 milljón punda, 85,4 milljörðum króna. Á sama tímabili árið á und- an nam hagnaður- inn 407 milljónum punda. Segir í tilkynningu frá BSkyB að áskrifendum hafi fjölgað á tímabilinu og er stefnt er að því að fjölga starfs- mönnum um 1.300 á næstu tveimur ár- um. Stærsti hluthafinn í BSkyB er fjöl- miðlaveldi Ruperts Murdochs, News Corp. BSkyB hagnaðist um 85 milljarða á hálfu ári Stjórnarformaður James Murdoch ● Atvinnuleysi á evrusvæðinu mældist 10,4% í desember, samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofu Evrópu, Eurostat. Eurostat uppfærði einnig upplýs- ingar um atvinnuleysið í nóvember en samkvæmt bráðabirgðatölum var það talið vera 10,3% en er 10,4%. Atvinnuleysi er mun minna í Þýska- landi heldur en í flestum öðrum evru- ríkjum eða 7,3% í janúar. Í desember var atvinnuleysið hins vegar 6,6%. Atvinnuleysi á evru- svæðinu 10,4% ● Afgangur var á vöruskiptum við útlönd í fyrra, reiknað á fob- verðmæti, sem nam 104,5 millj- örðum en árið áð- ur voru þau hag- stæð um 119,9 milljarða á sama gengi. Vöru- skiptajöfnuðurinn var því 15,4 milljörðum króna óhag- stæðari en 2010. Samkvæmt bráða- birgðatölum fyrir árið 2011 voru flutt- ar út vörur fyrir 626,4 milljarða króna en inn fyrir 521,9 milljarð króna fob (560,6 milljarða cif), samkvæmt frétt Hagstofunnar. Vöruskipti hagstæð um 104 milljarða króna Útflutningur Meira verðmæti út en inn. Verðbólga mældist að meðaltali 2,9% í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Um er að ræða verðbólgu mælda á tólf mánaða tímabili en í nóvember mældist verðbólgan að meðaltali 3,1%. Ástæðan fyrir minnkandi verð- bólgu er einkum sú að dregið hefur úr hækkun orkuverðs. Í nóvember nam tólf mánaða hækkun orku- verðs 11,6% en í desember 8,6%. Matvælaverð hækkaði um 4,4% á síðasta ári samanborið við 4,1% í nóvember. Verðbólga mest í Tyrklandi Á evrusvæðinu mældist verðbólgan að meðaltali 2,7% í desember sam- anborið við 3% í nóvember. Í ríkjum Evrópusambandsins var verðbólg- an 3%. Á Íslandi var verðbólgan 5,3% í desember en 6,5% í janúar. Að meðaltali mældist verðbólgan 4% á Íslandi á síðasta ári. Í Sviss ríkti verðhjöðnun í desem- ber, 0,4%, og í Noregi var verð- hjöðnunin 0,1%. Í desember var verðbólgan mest í Tyrklandi, 10,4%, af ríkjum OECD. Verðbólga 2,9% í OECD-ríkjum  Mældist 3,1% í nóvember 2011 Reuters Istanbúl Snjór var í Istanbúl í Tyrklandi í gær, en þar mældist verðbólgan 10,4% í desember. Það var mesta verðbólga í aðildarríkjum OECD. Hörður Ægisson hordur@mbl.is Evrópskar fjármálastofnanir munu að öllum líkindum taka um þúsund milljarða evra að láni hjá Evrópska seðlabankanum í lok þessa mánaðar. Það er tvöfalt hærri upphæð en bank- ar tóku að láni í desember þegar Evr- ópski seðlabankinn ákvað í fyrsta skipti að veita bönkum aðgang að lánsfjármagni á aðeins 1% vöxtum til þriggja ára. Hin mikla eftirspurn gefur til kynna þá viðvarandi lausafjárþurrð sem ríkir á evrópskum millibanka- markaði. Heimildir Financial Times herma að nokkrir af stærstu bönkum Evrópu áformi að sækja sér tvö- eða þrefalt meira lánsfjármagn þegar uppboð Evrópska seðlabankans fer fram 29. febrúar næstkomandi. Gríðarleg ásókn bankastofnana í ódýrt lánsfjármagn kemur fæstum greinendum á óvart. Á fyrsta fjórð- ungi þessa árs þurfa bankar að standa skil á lánum að andvirði 230 milljarða evra og ljóst er að fáar – ef nokkrar – fjármálastofnanir eru í þeirri aðstöðu að geta selt skuldabréf til fjárfesta við núverandi aðstæður á markaði. Bankar hafa því gripið feginshendi að geta sótt sér ódýrt fjármagn hjá Evrópska seðlabankanum til að styrkja lausafjárstöðuna og að auki hefur lánsféð að einhverju marki ver- ið notað til að kaupa ríkisskuldabréf evruríkjanna. Fátt bendir hins vegar til þess að útlán til raunhagkerfisins hafi aukist. Evrópskir bankar vilja taka 1000 milljarða evra að láni Reuters Bjargvættur? Sú ákvörðun Marios Draghi, bankastjóra Evrópska seðlabank- ans, að veita bönkum niðurgreidd lán til þriggja ára hefur mælst vel fyrir.  Mikil ásókn í ódýr lán seðlabankans  Lausafjárþurrð á millibankamarkaði Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið fyrirtækjaráð- gjöf Landsbank- ans að annast sölu á öllu hlutafé í Sóln- ingu Kópavogi ehf. sem rekur hjólbarðaverk- stæði og annast innflutning á dekkjum, að því er fram kemur í tilkynningu. Söluferlið er opið öllum áhuga- sömum fjárfestum sem sýnt geta fram á fjárfestingagetu að upp- hæð 100 milljónir króna auk við- eigandi þekkingu og reynslu af fjárfestingum og rekstri. Markmið eiganda er að fá sem hagstæðast verð fyrir hlutaféð sem til sölu er. Stefnt er að því að söluferlinu ljúki fyrir lok apríl 2012. Sólning boðin til sölu Sólning Félagið var stofnað 1969.  Rekur stóra hjólbarðaþjónustu                                         !"# $% " &'( )* '$* +,,-.. +/0-,/ +,,-1 ,+-10, ,+-21 +3-+41 +05-21 +-4255 +/2-2+ +4+-.4 +,,-35 +/0-14 +,0-24 ,+-1/4 ,+-+0, +3-,, +05-55 +-42/+ +/2-.3 +4,-2+ ,,,-25+ +,0-+0 +/5-,0 +,0-5, ,+-34 ,+-+/5 +3-,10 +05-3+ +-4+03 +/+-+. +4,-54 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hörður Ægisson hordur@mbl.is Samkvæmt áætluðu uppgjöri sem slitastjórn Glitnis kynnti á skipta- fundi með kröfuhöfum í gær munu forgangskröfuhafar fá greidda ríf- lega 100 milljarða króna út úr þrotabúi bankans. Steinunn Guðbjartsdóttir, for- maður slitastjórnar Glitnis, segir í samtali við Morgunblaðið að athuga- semdir hafi komið fram frá kröfuhöf- um um tillögu að greiðslu til for- gangskröfuhafa eins og gert hafi verið ráð fyrir. „Við kynntum tillögu að því hvern- ig staðið yrði að greiðslum til for- gangskröfuhafa. Nú liggur fyrir að samþykktar forgangskröfur nema um 50 milljörðum króna. Forgangs- kröfur sem enn ríkir ágreiningur um fyrir dómstólum – andvirði ríflega 50 milljarða króna – verða hins vegar lagðar inn á geymslureikning. Sam- tals eru þetta því um 100 milljarðar.“ Útgreiðslur til kröfuhafa eru endan- legar, hvort sem greitt er beint til samþykktra for- gangskröfuhafa eða inn á geymslureikning. Að sögn Stein- unnar mun slita- stjórn nú skoða þær athugasemd- ir sem fram hafi komið á fundinum og bregðast við þeim eins fljótt og hægt er. Samkvæmt áætlun slita- stjórnar Glitnis stóð til – að því gefnu að ekki kæmu fram mótmæli við fyrr- nefnt uppgjör – að kröfuhöfum yrði greitt í síðasta lagi 29. febrúar næst- komandi. Steinunn segir að samhliða því að farið verður í gegnum athuga- semdir kröfuhafa muni koma betur í ljós hvort sú dagsetning haldi. Greitt í körfu fimm gjaldmiðla Á fundinum var jafnframt fjallað um lokun slitameðferðar bankans og undirbúning nauðsamninga. „Því ferli miðar vel,“ segir Steinunn. „Það er hins vegar í mörg horn að líta og verkefnið er bæði flókið og stórt.“ Steinunn upplýsir ennfremur að við útgreiðslu út úr þrotabúi Glitnis verði kröfurnar greiddar út í körfu fimm mismunandi gjaldmiðla. Um er að ræða norskar krónur (35,66%), evrur (35,66%), íslenskar krónur (19,08%), Bandaríkjadali (17,39%) og sterlingspund (11,67%). Forgangskröfuhafar fá ríflega 100 milljarða  Slitastjórn Glitnis vonast til að greiða út í lok mánaðar Steinunn Guð- bjartsdóttir Greiðslur til forgangs- kröfuhafa Glitnis » Forgangskröfuhafar munu fá greidda ríflega 100 milljarða króna » 50 milljarðar verða greiddir beint til samþykktra forgangs- kröfuhafa en afgangurinn lagð- ur inn á geymslureikning » Um er að ræða fulln- aðargreiðslur og vonir standa til að útgreiðslur hefjist ekki síðar en 29. febrúar næstkom- andi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.