Morgunblaðið - 21.03.2012, Page 22

Morgunblaðið - 21.03.2012, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012 ✝ SkarphéðinnÖrn Ársælsson fæddist í Reykjavík 8. ágúst. 1982. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 14. mars síðastliðinn. Skarphéðinn Örn var sonur Erlu Ingu Skarphéðinsdóttur, f. 10.1. 1959, og Ár- sæls Gunnarssonar, f. 5.7. 1957, d. 15.6. 1987. Foreldrar Erlu eru Guð- björg Axelsdóttir, f. 14.12. 1929, og Skarphéðinn Guðmundsson, f. 15.2. 1927. Foreldrar Ársæls eru Erla Ársælsdóttir, f. 30.6. 1930, og Gunnar Björnson, f. 18.11. 1930, d. 24.3. 1986. Systur Skarp- héðins eru Sara Ósk Ársæls- dóttir, f. 3.12. 1980, m. Magnús Ómarsson, f. 13.9. 1976, Þeirra barn er Salka Dögg, f. 14.10. 2010. Helga Vala Helgadóttir, f. 5.9. 1996. Faðir Helgu Völu er Helgi Valur Helgason, f. 22.6. 1956. Dóttir Helga og uppeldisystir Skarphéðins er Helma Ýr Helga- dóttir, f. 2.3. 1975, m. Ólafur E. Ólafs- son, f. 15.10. 1974. Þeirra synir eru Helgi Kristberg, f. 9.3. 2009, og Guðmundur Logi, f. 13.6. 2010. Bóbó, eins og hann var alltaf kallaður ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur við Holtsgötu til 12 ára aldurs og flutti þá á Seltjarn- arnes. Útför Skarphéðins Arnar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 21. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku frændi minn, nú er erf- iðustu viku lífs míns að ljúka. Þó að undan farin vika hafi verið eins erfið og raun bar vitni þá lýstu kærar minningar um þig upp myrkrið. Ég gæti skrifað í nokkra daga samfleytt um allar þær minningar sem ég á með þér, hver hversdagslegur hlutur sem við brölluðum varð að æv- intýri þegar þú áttir hlut að máli. Hugmyndaflug þitt og uppátæki voru endalaus og hæfileiki þinn til að hrífa fólk með þér var aðdáunarverður. Ein minning lifir sérstaklega sterk, við vorum í strætó á leið úr Eiðismýrinni upp í Grafar- vog, þetta var á milli jóla og ný- árs og í útvarpinu hljómaði lagið Perfect Day með Lou Reed, í þínum huga var þetta hin full- komni dagur því frí var í skólum og flugeldamarkaðirnir opnuðu þennan sama dag. Þessi minning lýsir uppátækjaseminni og lífs- gleðinni þinni einstaklega vel. Þó svo að veikindi þín hafi hindrað þig í að geta uppfyllt alla drauma þína léstu það ekki buga þig, þú fannst alltaf leið áfram úr áföllunum. En öll veik- indin tóku sinn toll og á end- anum lauk baráttunni. Ég kveð þig elsku besti frændi í hinsta sinn með tár í augunum en þó gleði yfir því að hafa fengið tækifæri til þess að alast upp þér við hlið. Ég mun ávallt búa að þeirri gleði sem þú komst með inn í líf mitt og minna. Að lokum eftir langan, þungan dag, er leið þín öll. Þú sest á stein við veginn, og horfir skyggnum augum yfir sviðið, eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn, eitt sinn, endur fyrir löngu lagðir þú upp frá þessum sama stað. (Steinn Steinarr) Þinn frændi Axel Hreinn. Í dag kveðjum við ástkæran frænda okkar Skarphéðin Örn Ársælsson sem alltaf var nefnd- ur Bóbó eins og afi og nafni, það hefði líka verið hægt að kalla hann Trygg eða Trausta. Það sem einkenndi þennan dreng var brosið og hvað hann var uppátækjasamur, góður við menn og málleysingja. Eftir að faðir hans lést og Bóbó rétt að verða fimm ára fór hann að vera mikið hjá ömmu Diddu og afa Bóbó í Urriðakvísl. Þar voru systir hans Sara og einnig frændsystkin Dagný og Axel mikið saman, var hann þeim bæði tryggur og traustur vinur allt til dánardags. Margar góðar minningar eigum við frá upp- vexti hans og þá kemur brosið hans fyrst upp í hugann og hvað Bóbó var uppátækjasamur og foringi meðal sinna vina. Bóbó kom nokkrum sinnum með okk- ur í sumarhús sem er við bæinn Fljótshóla í Flóa og þar var gaman, hann vaknaði kl. 5 til að sækja kýrnar þó að allir á bæn- um væru í fasta svefni. Tvisvar kom Bóbó með Axel á Reykja- fossi á ströndina og eftir það sagðist hann ætla að verða skip- stjóri en heilsa hans leyfði það ekki. Amma og afi voru honum sérlega kær og eftir að hann flutti í Skipholtið var hann nærri þeim og kom jafnvel tvisvar á dag og hringingar voru ótal- margar dag hvern, skutla ömmu að prjóna í Rauða krossinn afa í bankann og svo með bæði í Bón- us. Elsku Erla systir og mág- kona, þú hefur verið einstök móðir, hugsað um þennan dem- ant þinn frá fyrstu stundu til hinnar hinstu. Kæra fjölskylda Erla, Sara, Helga Vala, Helgi og Helma, amma hans Erla Ársælsdóttir, mamma og pabbi við sendum ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur, megi Guð vera með ykkur öllum í sorg okkar allra. Sofðu, sofðu, litla barnið blíða, bjartir englar vaki þér við hlið. Móðurhöndin milda, milda, þýða, mjúkt þér vaggar inn í himinfrið. Vaki, vaki auga guðs og gæti góða, veika, litla barnsins þá. Sofðu, sofðu! Sorgin græti, sonur ljúfi, aldrei þína brá. (Benedikt Þ. Gröndal.) Elín og Steinþór. Stórt skarð er höggvið í okk- ar litla frændsystkinahóp. Okk- ar elskulegi frændi, Skarphéð- inn Örn, er skyndilega fallinn frá, aðeins 29 ára gamall. Bóbó, eins hann var kallaður, var einstaklega ljúfur og vel gerður drengur, barngóður og með mikla kímnigáfu. Minningar okkar um Bóbó frá barnæsku okkar sýna hann brosandi og hlæjandi, smávegis stríðinn. Við frændsystkinin nutum góðs af því hversu Eddi afabróð- ir okkar var duglegur að gera skemmtilega hluti með okkur saman. Margar minningar okkar systkina með Bóbó tengjast samverustundum með Edda. Hann tók okkur með í veiðiferð- ir og útivistarferðir sem eru okkur ógleymanlegar. Bóbó var mikill KR-ingur og náðu hann og Þorvaldur, sem er yngstur af okkur, mjög vel sam- an sem eldheitir KR áhuga- menn. Bóbó frænda verður sárt saknað. Við trúum því að það sé vel tekið á móti honum af föður hans, sem lést á sama aldursári, og fleira góðu fólki. Þú hefur talið hrakninga mína, safnað tárum mínum í sjóð þinn, þau eru rituð í bók þína. (Sálm. 56.) Þín Salvör, Iðunn og Þorvaldur. Skarphéðinn Örn Ársælsson HINSTA KVEÐJA Það er með sorg í hjarta sem við kveðjum þig elsku Bóbó. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og munum ávallt geyma minningar um þig djúpt í hjörtum okkar. Hvíl í friði kæri vinur, þín er sárt saknað. Ingunn og Ómar. ✝ Kjartan Magn-ússon fæddist á Ísafirði 30. sept- ember 1926, hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ 15. mars 2012. For- eldrar hans voru Magnús Helgason frá Odda, Ísafirði, og Híramía Jensína Guðjónsdóttir, fædd í Bolungarvík bak Horni á N-Ströndum. Systkini Kjartans eru Jón Andrés Jónsson, f. 1938, og Stef- anía Ólöf Jónsdóttir, f. 1940. Kjartan ólst upp með móður sinni til 12 ára aldurs að hann fór í Vigur í Ísafjarð- ardjúpi og var þar til 26 ára aldurs, en þá flutti hann til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Kjartan kvæntist Kristínu Guðjónsdóttur. Þau slitu samvistir. Sam- an áttu þau einn son, Jón Finn, fædd- ur 10. júní 1973, dá- inn 10. júlí 1991. Kjartan var verkamaður og vann mest við fiskvinnslu, lengst af hjá Sambandi íslenskra fiskframleið- enda. Útför Kjartans verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 21. mars 2012, kl. 15. Vestfjarðavíkingurinn er geng- inn til Valhallar. Kjartan vinur minn hefur lokið langri vegferð þar sem ekki var alltaf slétt undir fæti. Híramía móðir hans eignaðist þennan dreng fyrir sjálfa sig og fylgdust þau að í æsku hans. Fyrsta ár Kjartans voru þau á prestssetr- inu Stað í Grunnavík í Jökulfjörð- um, hjá þeim þjóðkunna klerki séra Jónmundi Halldórssyni. Þar var Kjartan skírður og fékk nafn bróð- ur húsfreyjunnar sem lést af slys- förum við hrap í björgum. Næstu árin var móðir hans vistráðin á nokkrum bæjum en endaði í Gjörfi- dal í Ísafirði, þar sem hún giftist syni bóndans, Jóni Magnússyni. Þau Jón og Híramía hófu síðar bú- skap á Eyri í Skötufirði, en það stóð ekki lengi því bæjarhúsin brunnu og stuttu síðar lést Jón. Þá var Kjartan á tólfta ári. Það varð hon- um mikil gæfa, að þarna tók oddvit- inn og bændahöfðinginn Bjarni í Vigur til sinna ráða og tók til sín drenginn, m.a. til almennrar fræðslu og undirbúnings undir ferminguna. Kjartan ílentist í Vig- ur fram á fullorðinsár og Vigur- heimilið og fólkið þar var alla tíð kjölfestan í lífi hans. Þar naut hann alúðar og skilnings og uppeldið á því menningarheimili mótaði hann og gerði að þeim sterka einstaklingi sem hann var. Á þrítugsaldri hleypti hann heimdraganum og settist að í höfuðborginni. Lengst af vann hann hjá Sölusambandi ís- lenskra fiskframleiðenda og eign- aðist þar marga góða vini sem hald- ið hafa tryggð við hann til æviloka. Kjartan kvæntist Kristínu Guð- jónsdóttur og stóð sambúð þeirra í nokkur ár, en þau slitu samvistir. Þau eignuðust einn dreng Jón Finn, en hann lést innan við tvítugt, og það var Kjartani mínum erf- iðasti hjallinn í lífinu að komast yfir. En hann stóð það hregg af sér eins og annað, bognaði en brotnaði ekki. Leiðir okkar lágu saman á fimmta áratugnum þegar ég kom sem sumarstrákur í Vigur. Mér fór eins og Kjartani að ég bast Vig- urheimilinu traustum böndum og var þar viðloðandi næsta áratug- inn. Gömlu Vigrungarnir hafa nú flestir kvatt þessa tilveru, en það var alltaf gott samband á milli manna og sá Kjartan gjarnan um að hnippa í menn ef of langur tími leið. Kjartan fæddist með mjög skerta sjón sem dapraðist heldur er á ævina leið. Bjarna í Vigur tókst þó að kenna honum að draga til stafs og undirstöðu í reikningi. Honum nýttist aldrei kunnáttan til lestrar, en þekkti stafina og bjarg- aðist af á sterkum vilja og hyggju- viti. Kjartan var óvenjulegur mað- ur, einstakt eintak í tilverunni. Hann var vandlátur á vini, vinfast- ur og tryggðatröll. Dálítill ein- streingingur, gaf seint sinn hlut og talaði ekki til vinsælda. Var þó mik- ill höfðingi heim að sækja og stór- tækur í gjöfum. Þrátt fyrir að vera 100% öryrki allt sitt líf þáði hann aldrei styrki eða samfélagshjálp. Hann átti sína eigin íbúð, þvoði og þreif, eldaði sinn mat og bakaði kökur án hjálp- ar. Hann var sannkallaður víking- ur í sínu lífi sem aldrei gafst upp og barðist til loka. Eitt sinn var sagt „þá væri þjóðinni borgið ef þúsund- ir gerðu eins". Blessuð sé minning góðs drengs. Kristinn Kristinsson. Kjartan Magnússon Erfidrykkjur af alúð HÓTEL SAGA, REYKJAVÍK S ími 525 9930 hote lsaga@hote lsaga.is www.hote lsaga.is Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju. Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, PÉTUR SIGURÐSSON, Hraunbúðum Vestmannaeyjum, áður Heimagötu 20, lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum föstu- daginn 16. mars. Minningarathöfn verður í Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 23. mars kl. 11.00. Jarðsungið verður frá Víkurkirkju, Vík Mýrdal, laugardaginn 24. mars kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á dvalarheimilið Hraunbúðir. Erling Pétursson, Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir, Sigrún Pétursdóttir, Ástþór Óskarsson, Erla Pétursdóttir, Óskar Ólafsson, Svana Pétursdóttir, Jón Halldórsson, Ingibjörg Pétursdóttir, Matthías Óskarsson, Guðrún Pétursdóttir, Guðlaugur Guðlaugsson, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. ✝ Elsku faðir okkar, tengdafaðir, sonur, afi og bróðir, AÐALSTEINN RÚNAR EMILSSON lífefnafræðingur, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi miðvikudaginn 14. mars. Útförin fer fram í kyrrþey. Erpur Aðalsteinsson, Soufia Aðalsteinsson, Hulda Steinunn Aðalsteinsdóttir, Áslaug Dóra Aðalsteinsdóttir, Alexander Fadi Aðalsteinsson og systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, AMY EVA EYMUNDSDÓTTIR, sem lést miðvikudaginn 7. mars, verður jarðsungin frá Hólaneskirkju Skagaströnd laugardaginn 24. mars kl. 14.00. Hallbjörn J. Hjartarson, Grétar Hallbjörnsson, Cornelía Boncales, Kenny Hallbjörnsdóttir, Ómar Sigurbjörnsson, Svenny Hallbjörnsdóttir, Gunnar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR HJARTARDÓTTIR, Hólagötu 46, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja mánu- daginn 12. mars. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 24. mars kl. 14.00. María Gústafsdóttir, Kristján Birgisson, Aðalheiður Kristjánsdóttir, Jóna Dís Kristjánsdóttir, María Ýr Kristjánsdóttir, Gústaf Kristjánsson, Silja Rós Guðjónsdóttir, Kári Kristján Kristjánsson, Kristjana Ingibergsdóttir, Kristjana María Steingrímsdóttir, Jóhanna Rún Steingrímsdóttir, Klara Káradóttir, Guðjón Elí Gústafsson. ✝ Eiginmaður minn, sonur, bróðir og tengda- sonur, JÓN BJÖRN MARTEINSSON, Brekastíg 30, Vestmannaeyjum, lést á krabbameinsdeild Landspítalans miðvikudaginn 14. mars. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 24. mars kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn í Vestmannaeyjum. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Erla Ragnarsdóttir, Guðbjörg Halla Björnsdóttir, Marteinn Jónsson, Jónína Marteinsdóttir, Unnur Guðgeirsdóttir, Ragnar Gíslason og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.