Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 10
H vort sem það er kreppa eða góðæri, börnin á heimilinu ótal mörg eða aðeins eitt, þá getur ald- eilis borgað sig að halda fermingarveisluna með hagkvæmum hætti. María Sigurbjörnsdóttir er hagsýn húsmóðir í Vestmannaeyjum. Hún kann ýmis brögð í eldhúsinu enda einn af forkólfum Kvenfélagsins Líknar sem þekkt er fyrir gott bakk- elsi. María lét á síðasta ári ferma barn númer tvö og eru þá tvö eftir sem verða fermd á næstu árum. Hún náði síðast að útbúa veislu sem féll mjög vel í kramið hjá gestunum án þess að kosta nein ósköp, og líka án þess að kosta mikla vinnu. „Það eina sem fermingardreng- urinn vildi ráða var valið á tertunni. Honum leist best á ístertu frá Kjörís. Tertan var mjög flott á veisluborðinu og ekki dýr. Síðan keyptum við hum- arsúpu frá Grími kokki. Grímur gerir afskaplega góða súpu, en við gerðum hana ögn að okkar, bættum við rjóma, kryddjurtum, smjörsteiktum humar og öðru góðgæti. Handa þeim sem ekki vildu humarsúpu út- bjuggum við síðan koníaksbætta sveppasúpu,“ segir María. „Hjá Vil- bergsbakaríi lét ég baka fyrir mig svokallað partíbrauð, mjög gott súpu- brauð úr mörgum litlum kúlum sem mynda hring. Hvert brauð kostar svo lítið að það tekur því ekki að baka það sjálfur. Við höfðum svo salat sem meðlæti.“ Með ístertunni var framreiddur heimagerður ís, dóttirin á heimilinu bakaði súkkulaðitertur og fjölskyldu- vinur útbjó Rice Crispies-bita. María gerði litlar vatnsdeigsbollur með fyll- ingu og kransakökumola. Drykkjar- föngin voru gos og kaffi. „Ég fékk svo góða vinkonu mína til að standa vakt- ina í eldhúsinu, svo ég gæti notið veislunnar með gestunum. Ég kem svo til með að gjalda greiðan þegar hún fermir næst eða heldur veislu. Útkoman af þessu öllu varð ósköp ljúf veisla og allir kvöddu mjög sáttir.“ Eldað með góðum fyrirvara Matseldin var líka þannig að María gat haft flestallt klárt daginn áður. „Við vorum með súpurnar klárar en þurftum bara að gæta þess að láta humarinn ekki út í fyrr en skömmu fyrir veisluna svo hann yrði ekki seig- ur. Einnig þurfti að geyma sveppa- súpuna rétt svo hún myndi ekki súrna,“ útskýrir María og segir það gott ráð að halla sveppasúpupottinum agnarögn í kælinum og loka ekki Hélt 100 manna veislu fyrir 80.000 kr. Sáttur Fermingardrengurinn vildi endilega bjóða gestum ístertu. pottinum alveg með pottlokinu. „Um- gjörðin var frjálsleg og þægileg og í stað þess að þurfa að sitja yfir mar- gréttuðu veisluborði gátu gestir verið á hreyfingu og skrafað við fjölda fólks. Utanumhaldið var svo einfalt að við fjölskyldan gátum verið allan tím- ann með gestunum og notið dagsins.“ Veislan var í stærra lagi og telst Maríu til að um hundrað manns hafi komið í félagsheimili björg- unarfélagsins þennan daginn. „Ég reiknaði vandlega útgjöldin við mat- arinnkaupin og fékk það út að veiting- arnar kostuðu í kringum 80.000 kr. eða um 800 kr. á hvern gest.“ Skammtastærðir flæktust ekki mikið fyrir og María var óhrædd við að eiga afganga. „Við héldum nefni- lega annað 40 manna matarboð fyrir nánustu fjölskyldumeðlimi næsta dag og komu umframsúpur og -kökur úr fermingarveislunni þá í góðar þarfir.“ Um það hvort næsta ferming verð- ur með sama sniði getur María engu lofað. Hún kveðst hafa sloppið mjög vel þegar hún fermdi fyrsta barnið, en þá vantaði tíu daga í að fjölgaði í fjölskyldunni svo vinkvennahópurinn hljóp undir bagga og tók að sér mat- seldina og baksturinn. „Það er auðvit- að margt gott við að halda einfalda súpu- og kökuveislu, en ég get líka al- veg séð að það er ekki amalegur kost- ur hreinlega að kaupa alla veisluna og láta fagmenn um allt skipulagið og matseldina.“ ai@mbl.is Bjó þannig um hnútana að matseldin truflaði ekki fermingardaginn. Súpur og heimilislegur bakstur ein- faldaði vinnuna til muna 10 | MORGUNBLAÐIÐ Fljótgerð hvítlauksbrauð Fyrir átta manns. 2 snittubrauð 100 g smjör 2-3 hvítlauksgeirar, marðir 1 dl steinselja, fínt söxuð 1 msk. timjan, fínt saxað Smjör, hvítlaukur og krydd hrært vel saman. Skurður gerður í snittu- brauðin langsum, samt ekki í gegn. Kryddsmjörinu jafnað þar í. Brauðin bökuð við 225°C í ca. 10 mínútur. Borin fram heit. Hægt að útbúa brauðin daginn áð- ur, pakka vel inn og geyma í kæli. Hátíðarpottréttur Pottréttir eru alltaf vinsælir og úr mörgu að velja í þeim efnum. Hér er einn sem fljótlegt er að matbúa, auk þess sem hann smakkast mjög vel. Fyrir 8 manns. Hráefni 1 kg lamba- eða nautakjöt, beinlaust 300 g perlulaukur ½ dós sveppir ásamt vökva 3 msk. matarolía 2 msk. smjör 2 tsk. salt 1 tsk. pipar 1 tsk. karrí, milt 1 tsk. hvítlauksduft, má sleppa 1 tsk. paprikuduft 1 dós tómatmauk 2 dl vatn 2 dl rauðvín eða 4 dl vatn (gjarnan með kjötkrafti í) 2 grænar paprikur 3-4 dl rjómi Aðferð Kjötið skorið í teninga og brúnað létt á pönnu í heitri olíunni. Kjötið fært yfir í pott. Smjörinu bætt á pönnuna og lauk- ur mýktur þar í. Settur saman við kjötið. Vatni og rauðvíni hellt í pott- inn ásamt kryddi, tómatmauki og sveppum bætt út í. Látið malla í 20 mín. (lamb) eða 30 mín. (naut). Paprikurnar skornar í ræmur og settar út í ásamt rjómanum og látið malla í 10-15 mínútur í viðbót. Smakkað til með salti og pipar. Borinn fram með soðnum hrís- grjónum, salati og smábrauði eða hvítlauksbrauði. Í stað niðursoðinna sveppa má að sjálfsögðu nota ferska, ca. 1 bakka og nota aðeins meira vatn í soðið. Pottréttinn má frysta. Kvenfélagasamband Íslands starfrækir Leiðbeiningastöð heimilanna og veitir þar faglega ráðgjöf um allt sem við- kemur matseld og heimilishaldi. Á vefnum www.leidbein- ingastod.is hefur verið safnað saman alls kyns hagnýtum upplýsingum en einnig má hringja í gjaldfrjálsa símaþjón- ustu mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 10 og 14, í síma 552-1135. Uppskriftirnar hér til hliðar eru fengnar úr safni Eyglóar Guðjónsdóttur, forstöðumanns Leiðbeiningastöðv- arinnar, en að auki tók Eygló saman nokkur hollráð fyrir fermingarveisluna: Góð veisla undirbúin „Að mörgu þarf að huga þegar ferming er framundan í fjölskyldunni. Hvernig veislu skal halda? Á hvaða tíma dagsins? Verður veislan í heimahúsi eða að heiman? Áætla þarf svo fjölda veislugesta og senda út boðskort,“ segir Eygló. „Úr mörgu er að velja og fer tegund og um- gjörð veislunnar eftir því hvað fjölskyldunni hentar best. Það eru ekkert endilega bestu veislurnar þar sem mestu er kostað til. Tilgangurinn er fyrst og fremst að koma saman og njóta dagsins með fermingarbarninu, fjölskyldu og vinum. Og umfram allt á fermingarbarnið sjálft að vera með í ráðum, sérstaklega þegar velja skal veitingarnar.“ Eygló segir mikilvægt að skipuleggja undirbúning veisl- unnar með góðum fyrirvara, t.d. gera einn innkaupalista yfir það sem hægt er að kaupa og vinna fyrirfram og ann- an yfir það sem þarf að kaupa þegar nær dregur. „Margt er hægt að útbúa með góðum fyrirvara og frysta, s.s. baka kökur, brauð og útbúa pottrétti. Gera þarf lista yfir borð- búnað og annað sem hægt er að fá að láni til veislunnar ef hún er haldin heima, ákveða borðskreytingar og panta servíettur og kerti. Ekki sakar að fá fjölskyldu og vini með sér í undirbúninginn því margar hendur vinna létt verk.“ Tímasetning veislunnar segir Eygló að fari svo eftir því hvaða tegund veislu verður fyrir valinu. Dögurður (brunch) er á bilinu kl. 11-13, hádegisverður kl. 12-14, eft- irmiðdagskaffiboð kl. 13-17, smáréttahlaðborð kl. 17-19 og kvöldverðarboð kl. 18-21. ai@mbl.is Gefa ómetanleg ráð við matseldina Samvera Fjölskyldan saman á fermingardaginn. María, maður hennar Adolf Þórsson og börnin fjögur. María er ættuð frá Fáskrúðsfirði en kom til Vestmannaeyja á eina vertíð 1986 og hefur verið þar síðan. SKÓLAVÖR‹USTÍG 6B - SÍMI 562 6999 FERMINGARFÖT Á MÆÐGURNAR www.marialovisa.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.