Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 18
Ó missandi hluti ferming- arveislunnar er að dekka borðin á staðnum og skreyta. Möguleikarnir til þess eru nánast ótelj- andi og aðalatriðið að búa svo um að fermingarbarninu sjálfu líki, eins og Díana Allansdóttir hjá Blómavali fræddi blaðamann um. Margir möguleikar með vírnum Díana, sem er deildarstjóri í af- skornum blómum hjá Blómavali í Skútuvogi, hefur ásamt samstarfs- fólki sett upp nokkur borð í versl- uninni með mismunandi grunnlit og útfærslum af borðskrauti fyrir ferm- ingarveisluna. Að hennar sögn kemur vírinn sterkur inn í skrautið í ár. „Við notum vírinn talsvert í skreyting- unum í ár. Hann notum við til að skapa ákveðið flæði í skreytingunum og hann býður upp á marga mögu- leika,“ segir Díana. „Hvort sem grunnurinn í skreytingunni er kerti eða afskorin blóm þá nýtist vírinn vel.“ Að sögn Díönu hefur vírinn verið notaður undanfarin ár en þó er hann meira ríkjandi í ár en áður. „Við not- um ýmsar mismunandi þykktir af vír- um, grófan jafnt sem fínan. Það býð- ur upp á andstæður sem spilast vel saman.“ Díana bendir á að með vír í skrautinu sé tiltölulega einfalt að skapa góða heild á borðinu. „Vírinn gefur færi á að tengja mismunandi form, hring, ferning, þríhyrning og svo framvegis.“ Litur eftir höfði hvers og eins Að sögn Díönu taka skreytingarnar í fermingarveislum í auknum mæli mið af fermingarbarninu persónulega og áhugamálum þess. Það virðist því af sem áður var þegar ein lausn hæfði öllum, blátt fyrir stráka og bleikt fyrir stelpur. „Nú getur meginliturinn í skreytingunum allt eins tekið mið af uppáhaldsfótboltafélagi viðkomandi fermingarbarns,“ bendir Díana á. „Eins getur ýmislegt annað spilað inn í. Ef fermingin er um páska er algengt að láta gulan lit vera ráðandi. Annars vilja strákarnir eftir sem áður flestir að skreytingarnar séu bláar á litinn í grunninn, en hins vegar getur blái lit- urinn verið í ótal mismunandi tónum. Sama er að segja um stelpurnar. Þær kjósa eftir sem áður bleika litinn sem þær hafa hrifist af síðan þær voru fimm ára.“ Þá bendir Díana á að lime- grænn sé nokkuð algengur valkostur hjá þeim sem ekki vilja hengja sig á sí- gildu litaskiptinguna milli stráka og stelpna. „Lime-grænn er frísklegur og um leið hlutlaus litur sem gefur kost á ákaflega fallegum skreytingum. Svo er grænn líka afar skemmtilegur litur að sjá á vorin þegar dag er loks tekið að lengja og gróðurinn farinn að taka við sér. Servíettur, matborð, gestabók Að lokum minnir Díana á hina þrjá helstu pósta í skreytingum í ferming- arveislunni. „Fyrst er að telja borðin þar sem fólk situr. Þar eru jafnan servíettur á diskunum sem gefa lita- tóninn. Þá eru það skreytingar á borðinu þar sem veitingarnar eru, og svo loks borðið þar sem gestabókin stendur. Þar er oftast kerti í litnum sem ríkjandi er, og við bendum fólki á að með því að hafa þetta þrennt í huga er hægt að binda veisluna sam- an í einn ráðandi lit.“ Að lokum minn- ir Díana á að leyfa fermingarbarninu að ráða litnum því dagurinn snúist óneitanlega um viðkomandi. „Það er um að gera að leyfa einstaklingnum að njóta sín á fermingardaginn“ segir Díana að lokum. jonagnar@mbl.is Konunglegur Fjólublár fer afskaplega vel í fermingarskreytingum og er því afskaplega vinsæll valkostur við bleikan í veislum hjá stúlkunum. Borðskraut í Blómavali Borðskreytingar í fermingarveislum taka í auknum mæli mið af einstaklingnum sem er að fermast, þó litirnir haldi sér nokkurn veginn milli ára. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Skreytingarnar taka í síauknum mæli mið af áhugasviði ferming- arbarnsins. Hér má glögglega sjá að viðkomandi kann að skauta. Vírinn eykur möguleikana þeg- ar kemur að borð- skreytingum. 18 | MORGUNBLAÐIÐ Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Stærðir 40-60 Full búð af flottum fötum fyrir flottar konur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.