Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 36
N
ærri fermingaraldri
eru krakkar orðnir vel
meðvitaðir um tískuna
og finnst mikilvægt að
fylgja straumum henn-
ar. Það gildir jafnt um hár-
greiðslu, fatnað og skó; allt frá
toppi til táar ef þannig mætti að
orði komast. „Hvað skófatnað
áhrærir sjáum við marga
skemmtilega tískustrauma um
þessar mundir,“ segir Hildur
Björk Guðmundsdóttir sem rekur
skóverslunina Bata í Smáralind í
Kópavogi.
Svartur og grár eru sígildir litir
Allir Bataskór koma frá Ítalíu.
Er fyrirtækið einn stærsti skó-
framleiðandi heims en á þess veg-
um eru reknar um 5.000 verslanir
um veröld víða. „Ítalar eru mjög
virkir í nýjustu hönnun og
straumum. Það sem hefur alltaf
mótað tískuna er hvaða flíkum eða
skóm stjörnur kvikmyndanna
klæðast. Tíska í fatnaði helst í
hendur við skóframleiðslu og eru
litir þar mikið atriði. Núna finnst
mér tískan vera að leita alveg aft-
ur til 1930 til 1940. Hollywood-
tíska þess tíma er ráðandi í skó-
fatnaði og ég geri ráð fyrir að
áhrif þessa verði mjög áberandi í
vor og sumar,“ segir Hildur.
Ballerínu- og þykkbotnaskór
eru vinsælir meðal ferming-
arstúlkna í dag. Einu má gilda
hver liturinn er, hann ræðst alltaf
af því hvaða litur hæfir fötunum.
Hjá strákum eru margir að taka
sportlega leðurskó og eða jafnvel
herraskó í bítlastíl; svarta eða
gráa sem eru sígildir litir.
„Rosalega flottir skór“
„Ég var fyrir nokkrum dögum
suður á Ítalíu og það er greinilegt
að skótískan er í mikilli gerjun um
þessar mundir. Haustið verður
ofsalega spennandi og margt
áhugavert kemur á markað þá,“
segir Hildur og bætir við að
gjarnan vilji fermingarbörnin tvö-
faldan umgang af fermingarskóm;
annars vegar spariskó og hins
vegar skó til dæmis fyrir mynda-
tökuna eða fyrir önnur þau
skemmtilegu tilefni sem unglings-
árunum fylgja.
„Strákarnir voru stundum í
Buffaloskóm en slíkir komust í
tísku um 1990 eða þegar Spice
Girls voru upp á sitt besta. Skóla-
félagi minn í Garðabæ, Pétur Jó-
hann Sigfússon, var í Buffaloskóm
í Næturvaktinni enda veitti honum
ekki af því, en tískan hefur þróast
síðan þá. Núna eru þessir skór
þannig að sólinn er um 2-4 cm og
hællinn verður um 13 cm. Þetta
geta verið rosalega flottir skór,
hvort sem þeir eru með háum
hælum eða sléttbotna en þá selj-
um við í ljósgrænu og appels-
ínugulu sem eru vinsælustu lit-
irnir í dag. Sannkallaðir vorlitir.
Stelpurnar vilja líka frekar þægi-
lega lágbotna skó í skemmtilegum
sumarlitum, til dæmis ball-
erínuskó í bleiku, gulu, rauðu og
appelsínugulu. Slíkt eru skór sem
stelpurnar nota í allt sumar og
fram á haust,“ segir Hildur sem
undir merkjum Bata starfrækir
eina verslun í Smáralind og stefn-
ir að því að opna aðra síðar á
árinu. Þá verður nú í mars opnuð
heimasíðan Bata.is núna í mars
þar sem hægt verður að skoða skó
og kaupa – sem bæði má sækja í
verslunina og fá senda hvert á
land sem er.
sbs@mbl.is
Ballerínustíll hjá stúlk-
unum og bítlaskór á
strákana, Tískan í mikilli
gerjun. Fermingarbörnin
vilja gjarnan tvöfaldan
umgang af skóm. Holly-
wood-tíska fyrri ára er
komin aftur, segir Hildur
Björk Guðmundsdóttir í
Bata í Smáralind.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaupmaður Tíska í fatnaði helst í hendur við skóframleiðslu og eru litir þar mikið atriði. Núna leitar alveg aftur til 1930 til 1940, segir Hildur Björk
’Rosalega flottirskór, hvort semþeir eru með háumhælum eða sléttbotnaen þá seljum við í ljós-
grænu og appels-
ínugulu sem eru vin-
sælustu litirnir í dag
Skemmtilegir tískustraumar
Svart Sígildir
herraskór standa
fyrir sínu.
Herra Skóúr-
valið hjá Bata
er mikið.
Stelpur Þykkbotna
skór eru vinsælir
meðal stúlkna í dag.
Strákaskór Grá-
ir, góðir og fer-
lega flottir
Dans Ballerínuskór
á stelpurnar eru
flottir og fást í
mörgum litum.
Flott Dömuskór í ýmsum
litum með rós fá hrós.
36 | MORGUNBLAÐIÐ
Höfuðhandklæðin frá Sif eru saumuð úr gæðabómull.
Létt og þægileg í notkun og henta jafnt síðu sem stuttu
hári og dömum á öllum aldri.
Sölustaðir: Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu, Sundlaugin í Borgar-
nesi, Lyfjaver, Reykjavíkur Apótek, Apótek Vesturlands, Apótek
Hafnarfjarðar og Garðabæjar, Minja Skólavörðustíg, Femin.is, HB
búðin, Skipt í miðju, Apótekarinn Mosfellsbæ, Mistý, Snyrtivörubúðin
Glæsibæ, Litla búðin Akranesi. Lyf og heilsa: Eiðistorgi, JL-húsinu,
Kringlunni, Austurveri, Firðinum Hfj. og Keflavík.
Fáanleg í 9 litum
Nánar um Sif höfuð-
handklæði á facebook