Morgunblaðið - 09.03.2012, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ | 51
Má bjóða þér
fermingarveislu?
Kársnesbraut 96a
200 Kópavogi
Sími 571 5777
lystauki@lystauki.is
lystauki.is
Létt hlaðborð
Frábær miðdegisveisla
Hlaðborð með kalkún
Ein af vinsælustu veislunum okkar
Hlaðborð með Hamborgarhrygg
Alltaf hátíðlegt!
Steikarveisla
Klassísk skotheld veisla
Smáréttaveisla
Vinsælusta veislan okkar
Sælkeraveisla
Lúxus smáréttir ásamt meðæti!
Úrvalið og gæðin eru hjá okkur
Kíktu á matseðlana okkar á lystauki.is, sendu okkur póst á lystauki@lystauki.is
eða hafðu samband í síma 571 5777. Við gerum okkar besta til að uppfylla óskir þínar.
Viðmiðin breytast frá einum
tíma til annars. Það sem skrif-
að er samkvæmt viðtekinni
hefð á líðandi stundu þykir oft í
fyllingu tímans lýsa sér-
stæðum hugsunarhætti.
Fjallað var um fermingar í
Morgunblaðinu í apríl 1973 og
sagt frá starfi sr. Jóhanns Hlíð-
ar í Neskirkju. Var og lýst um-
stanginu sem fermingu fylgir
og sagt að þær væru yfirleitt
stórmál.
„Fer yfirleitt öllu meira fyrir
veraldlegu inntaki hennar en
trúarlegu. Hundruð heimila um
landið gervallt eru undirlögð
fermingarundirbúningnum.
Húsmæðurnar skúra og
skrúbba út í hvern krók og
kima, láta mála og breyta,
sauma og snurfusa — og
heimilisfeðurnir tæma vasana
og veskin og slá svo gjarnan
víxla ekki sízt, þegar tækifærið
er notað til að betrumbæta
húsbúnaðinn, áður en fjöl-
skyldurnar eru kallaðar saman
til að hylla fermingarbarnið og
hella yfir það gjöfum.“
Já, svona voru viðhorfin fyrir
39 árum. Sjálfsagt þótti að
húsmæðurnar stæðu upp fyrir
haus við ýmiss konar húsverk;
skrúbbuðu, bónuðu og létu
breyta heimilinu. Svo var það
feðranna að draga björg í bú
og borga brúsann. Nú eru við-
horfin hins vegar allt önnur.
Undirbúningurinn er sameig-
inlegt verkefni fjölskyldunnar
þar sem allir leggja sitt af
mörkum, enda er slíkt jafnrétti
í reynd. Þó það nú væri.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Neskirkja Fermingarbörn í Neskirkju í Reykjavík vorið 1973 með sr. Jó-
hanni Hlíðar. Síðar var Jóhann lengi Íslandsprestur í Kaupamannahöfn.
Fjölskyldurnar hylla fermingar-
barnið og hella yfir það gjöfum
Fermingarbörn í kristnum
kirkjum landsins þetta vorið
eru nærri 4.000 talsins. Ná-
kvæmar tölur um þetta liggja
enn ekki fyrir en viðmiðin hafa
þó verið á svipuðu róli und-
anfarin ár. Um 4.200 börn eru í
fermingarárgangi þessa vors
og yfirleitt fermast um 90%
barna í hverjum árgangi hjá
kristnum söfnuðum landins,
segir Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir upplýsingafulltrúi
Biskupsstofu.
Fyrstu fermingardagarnir
eru nú í mars og svo koma þeir
einn af öðrum, til dæmis um
páskana en rík hefð er fyrir
fermingum á skírdag. Yfirleitt
lýkur fermingum í þéttbýlinu í
apríl eða snemma í maí. Úti í
sveitunum er hins vegar gömul
og gróin hefð fyrir fermingum
á hvítasunnudag eða á annan í
hvítasunnu, sem að þessu
sinni er dagana 27. og 28. maí
næstkomandi.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/hag
Tímamót Fyrstu fermingar vors
eru á næstu dögum og eru út maí.
Um 4.000
börn fermast
Um það bil sjö milljónir króna
söfnuðust þegar fermingar-
börn um land allt gengu í hús
aðra viku í nóvember sl. með
bauk Hjálparstarfs kirkjunnar.
Undanfari þess var fræðsla til
um 2.700 fermingarbarna um
aðstæður í fátækum löndum
Afríku, sérstaklega hvað varð-
ar skort á hreinu vatni.
Féð sem fermingarbörnin
söfnuðu rennur til vatnsverk-
efna Hjálparstarfsins í Afríku-
löndunum Eþíópíu, Malaví og
Úganda.
Alls 66 prestaköll tóku þátt
og þegar allt verður saman tal-
ið má reikna með að með söfn-
uninni hafi í hús náðst alls um
átta milljónir króna. Þetta var í
þrettánda sinn sem söfnunin
fór fram.
sbs@mbl.is
Söfnuðu fyrir
Afríkuvatni