Morgunblaðið - 09.03.2012, Page 56
Undirbúningur: Mikilvægt er að vera með hreina húð þegar það er byrj-
að á förðun. Hreinsið húðina með viðeigandi hreinsi og berið síðan á and-
litsvatn til að jafna ph-gildi húðar. Berið síðan á rakagefandi krem. Athug-
ið að nota krem sem er ekki of feitt ef húðin er blönduð/feit.
IceCreamTime er upplagt fyrir unga húð þar sem það er létt og nærandi
og gott undir farða.
Grunnur: Áður en farði er borinn á er einnig gott að bera á svokallað
grunnkrem til að gefa farðanum betri endingu. Grunnkrem er sérstaklega
gott fyrir unglingshúð sem er ef til vill blönduð/feit og fyrir unglinga sem
eru með útbrot þar sem grunnurinn jafnar yfirborðið fyrir farðann og gef-
ur húðinni að auki ljóma. BasePreper grunnur í kremformi sem gerir húð-
ina frísklegri. Eftir að kremið hefur verið borið á er gott að leyfa kreminu
að jafna sig á húðinni í um mínútu. Síðan er farðinn borinn á.
Farði: Fyrir unga húð er einstaklega gott að veljaWonderPowder sem
farða. Púðrið er náttúrulegt og án rotvarnar- og bindiefna. Farðinn stíflar
ekki svitaholur og verndar húðina. Það er auðvelt að stjórna áferðinni og
útkoman er óaðfinnanleg. Fyrir þær sem vilja ekki nota farða er upplagt
að nota eingöngu WonderPowder fyrir náttúrulegt útlit. Einnig er auðvelt
að blanda púðrinu út í rakakrem til að útbúa litað dagkrem fyrir þurra
erta húð. Svo er púðrinu dustað yfir með stórum púðurbursta. Steinefnap-
úðrið hentar viðkvæmustu húðgerð.
Hyljari: Gott er að hafa í huga að nota farða til að jafna húðlit í stað þess
að hylja bauga, bólur og roða. Notið heldur þynnri farða fyrir ferming-
arstúlkur og þéttan hyljara á roða og bólur og undir augu ef þess þarf.
Byrjið á að bera farða á húðina og athugið síðan hvort það þurfi hyljara
yfir ákveðin svæði eins og á bauga eða bólur. CoverAll Mixer frábærhylj-
ari, því hann inniheldur 3 liti með þéttum litögnum og hylur alla mislitaða
tóna húðarinnar. Gulur hylur roða, ferskjulitaður hylur bláma og ljósi húð-
litaði tónninn er notaður til að blanda við hvorn tóninn fyrir sig. Best er
að bera hyljara á með bursta með nylonhárum og þá sérstaklega á bólur
til að koma í veg fyrir að það þurfi að nota fingurna.
Augabrúnir: Augnabrúnirnar eru formaðar meðTaupe augnblýanti en
hann er mjög mildur og fallegur fyrir flesta húðtóna því hann er „neutra-
l“,ekki gulur né rauðtóna. Liturinn er afar hentugur til að forma og fylla
inn í augabrúnirnar í stað þess að dekkja. Hann hentar einnig í það að
ramma inn augun á náttúrulegan og mildan hátt.
Augu: Það er best að varast það að nota of dökka liti á fermingardaginn.
Reynið frekar að velja milda liti til að fá náttúrulegra yfirbragð og poppa
þá förðunina upp með t.d. einum björtum lit. Pastellitir eru afar vinsælir
nú í vor. Auðveld leið er að bera einn lit af augnskugga eða kremskugga
yfir allt augnlokið og yfir það augnskuggaduft. Augnskuggaduftin eru afar
vinsæl hjá ungu kynslóðinni og fáanleg í fjölmörgum litum. Að lokum er
augnblýantur borinn á undir augað. Skemmtilegt er að velja einhvern
bjartan blýant. Mýkja út línuna með litlum bursta og jafnvel að bera örlít-
in augnskugga yfir augnblýantinn í sama lit.
Maskari: Fyrir þær sem eru ekki farnar að nota maskara er oft nóg að
bretta upp á augnhárin og setja t.d. örlitið vaselín á endana á augnhár-
unum til að gera þau glansandi. Annars er líka gott ráð að velja svar-
brúnan maskara í stað þess að nota blá-svartan og greiða vel yfir augnhár-
in eftir að maskarinn er borinn á til að koma í veg fyrir klessur og til að fá
náttúrulegt útlit.
Þegar maskari er borinn á er gott að juða burstanum fram og til baka,
það gefur augnahárunum meiri þykkt. Síðan er maskara greitt vel inn á
milli rótarinnar á augnhárunum og greitt út eftir augnhárunum til að
lengja.
Kinnar: Nú í vor er afar vinsælt að vera með bjarta og jafnvel skæra
kinnaliti í bleikum og kóraltón fremst á kinnunum. Veljið lit sem fellur vel
við húðlit, þannig næst fram frísklegt útlit. Einnig er hægt að nota High-
Tech Lighter kremlit. Það er fjölnota vara sem meðal annars er hægt er
að nota sem augnskugga, kinnalit, varalit og sem „highlight“ á kinnbein.
Andlitið er skyggt með Sun Touch sólarpúðri undir kinnbein, við gagn-
auga, undir höku og niður á háls. Síðan er kinnalitur settur fremst í kinn-
arnar.
Varir: Á varir er ýmist valið varagloss eða gegnsær varalitur. Nú í vor
eru mildir kórallitir afar vinsælir og jafnvel gloss með fíngerðu glimmeri
settir yfir.
Neglur: Það getur verið skemmtileg leið til að tjá sinn stíl á ferming-
ardaginn að setja einhvern skemmtilegan lit á neglurnar. Það eru allir
regnbogans litir í tísku í naglalökkum þannig auðvelt er að finna lit. Ef til
vill er hægt að velja einhvern lit sem passar við förðunina eða blómin í
fermingunni sjálfri.
jonagnar@mbl.is
Falleg Enza Marey Massaro lítur glæsilega út að lokinni fermingarförðun frá Make-Up Store.
Fermingar-
förðun frá
Make Up
Store
Margrét Ragna Jónasardóttir hjá Make-Up Store gefur
hér góð ráð fyrir fermingarförðunina og útskýrir, skref
fyrir skref, hvernig best er að bera sig að.
56 | MORGUNBLAÐIÐ
Húð: WonderPowder (Ka-
lahari), hyljari: CoverAll-
Mix hyljari.
Augu: HighTechLighter
(Venus), Augn-
skuggaduft: Lady
Augnblýantur: GoWild,
Maskari: MultiLash,
Kinnalitur: MustHave
Varir: Lipgloss:Tulip
Fermingarmódel: Enza
MareyMassaro, 13 ára
Förðun: Margrét R. Jón-
asar með MAKEUP-
STORE
Vörur sem
voru notaðar
á módel