Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 1. A P R Í L 2 0 1 2
Stofnað 1913 93. tölublað 100. árgangur
gerir grillmat að hreinu lostæti!
TVÆR NÝJARBRAGÐTEGUNDIR
SKÖPUNIN
SKIPTIR
SKÖPUM
HJARTAÐ
LÝGUR
ALDREI
HRÚTUR SEM
ÁORKAÐI MIKLU
Á STUTTRI ÆVI
SUNNUDAGSMOGGINN BOGI FRÁ HEYDALSÁ 21TÓNAR OG TRIX 10
Ungum Labradorhundi var
bjargað úr 15 metra djúpri sprungu
í Eyjafjallajökli í fyrradag. „Þetta
var mjög góð æfing og raunveruleg
í alla staði,“ segir Guðmundur
Sveinbjörn Ingimarsson, sem seig
niður í sprunguna og kom böndum
á hundinn Tinna.
Hundurinn var orðinn mjög kald-
ur eftir að hafa verið í sprungunni í
meira en tvo klukkutíma, en var
fljótur að jafna sig. »26
Hundi bjargað
úr jökulsprungu
Tengist vogunarsjóði
» Árið 2008 keypti bandaríski
fjárfestingarbankinn og vog-
unarsjóðurinn Blackstone Gro-
up 20% hlut í China Blue Star.
» Kaupverðið var 76 milljarðar
kr. og var samanlegt verðmæti
bréfa China Blue Star því áætl-
að um 380 milljarðar á núvirði.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Fyrst og fremst er þetta viðurkenn-
ing á því að Kínverjarnir ætli að
byggja upp frekari starfsemi á
Grundartanga. Á tímabili var óvissa
um framtíð járnblendisins og hvort
starfsemin yrði byggð upp á Grund-
artanga eða annars staðar. Þeirri
óvissu hefur verið eytt,“ segir Guð-
bjartur Hannesson, starfandi iðnað-
arráðherra, í tilefni af viljayfirlýs-
ingu iðnrisans China Blue Star.
Yfirlýsingin varðar áform um
65.000 tonna kísilmálmvinnslu á
Grundartanga og fullvinnslu á 12.000
tonnum af hreinkísil. Kemur til
greina að framleiða sólarrafhlöður
úr hreinkísil á Grundartanga.
Fjármögnun er tryggð
Spurður hversu langt verkefnið sé
komið svarar Guðbjartur því til að
það sé á byrjunarreit en að ljóst sé
að með aðkomu Wen Jiabao, for-
sætisráðherra Kína, að yfirlýsing-
unni í gær sé mikil alvara að baki.
„Það kom fram að fjármögnun er
tryggð þegar af framkvæmdum
verður með lánsfé frá Kína.“
Kínversk stjórnvöld myndu hafa
beina aðkomu að framkvæmdunum
en móðurfélag Elkem á Íslandi er í
100% eigu China Blue Star sem er
aftur í 80% eigu Chem China, efna-
risa í eigu kínverska ríkisins.
Einar Þorsteinsson, forstjóri El-
kem á Íslandi, segir framkvæmdirn-
ar ekki þurfa að fara í umhverfismat.
Þær muni skapa tugi starfa í fram-
tíðinni.
Festir járnblendið í sessi
Starfandi iðnaðarráðherra fagnar áformum um kísilvinnslu á Grundartanga
Fjármögnunin sé tryggð Yrði hrein viðbót við járnblendiverksmiðjuna
Ljósmynd/Landsvirkjun
Hálslón Ef vorleysingum lýkur
hratt gætu lón fyllst snemma í ár.
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er
óvenjugóður í ár miðað við vatns-
stöðu helstu miðlunarlóna í gær.
„Almennt séð yfir það heila þá er
miðlunarforðinn okkar mun meiri en
á sama tíma í fyrra,“ sagði Guð-
mundur Björnsson, sérfræðingur í
vinnsluáætlunum hjá Landsvirkjun,
spurður um málið í gær.
Vatnshæð Þórisvatns, sem er
helsta miðlunarforðabúr fyrir fimm
virkjanir fyrirtækisins á vatnasviði
Þjórsár og Tungnaár, vekur sér-
staka athygli, en vatnshæðin um
miðjan júlí 2011 var um 577,5 metrar
og yfirfall vatnsins er á 579 metrum.
Frá 14. júlí 2011 tók einungis 16
daga fyrir lónið að fyllast og fara á
yfirfall, 30. júlí. Ef þrjú önnur lón
eru skoðuð þá var vatnsstaða Há-
göngulóns sú sama í gær og 18. maí í
fyrra og tók lónið 2 mánuði að fara á
yfirfall. Blöndulón var í sömu vatns-
stöðu 11. maí í fyrra og fylltist á 3
mánuðum og Hálslón var í sömu hæð
31. júlí í fyrra og fylltist eftir það á
einum og hálfum mánuði. »27
Lónin gætu fyllst snemma
Vatnsstaða miðlunarlóna Landsvirkjunar óvenjugóð í ár
Vel virtist fara á með Wen Jiabao, forsætisráð-
herra Kína, og Jóhönnu Sigurðardóttur, for-
sætisráðherra Íslands, í kvöldverðarboði í Hörpu
í gærkvöldi. Wen er staddur hér á landi í opin-
berri heimsókn og auk Jóhönnu ræddi hann við
Ólaf Ragnar Grímsson forseta í gær. »4
Forsætisráðherrar Kína og Íslands skála í Hörpu
Ljósmynd/Gunnar Vigfússon
Árlega eru
veittar um 60
milljónir króna
til viðhalds og
nýlagningar
reiðvega hér á
landi. Hesta-
mönnum finnst
allt of hægt
ganga því reið-
vegir eru mikilvægir til þess að
hægt sé að ganga betur um náttúru
Íslands og draga úr umferð ríðandi
fólks um þjóðvegi. Miðað við verk-
efni hestamannafélaganna þyrfti að
margfalda þessa fjárhæð.
Samgöngunefnd Landssambands
hestamannafélaga mun á þessu ári í
fyrsta skipti taka frá fé og nota í
lagfæringar á fjölförnum ferðaleið-
um áður en reiðvegafénu er út-
hlutað til verkefna félaganna. Þar
er meðal annars hugað að leiðinni
vestur Mýrar, á Löngufjörur. »24
Of naumt skammt-
að til reiðvega
Bókanir á gistirými eru fleiri nú en
á sama tíma í fyrra, að sögn mark-
aðsstjóra hótela. Nú þegar er upp-
bókað á sumum hótelum á mesta
álagstímanum í sumar. Bók-
unarmynstrið hefur breyst frá því
sem áður var. Það ber meira á því
að fólk ferðist á eigin vegum frem-
ur en í hópferðum og ferðamenn
bóka gistingu með skemmri fyrir-
vara en áður. Markaðsstjórum ber
saman um að það sé bjart fram-
undan. Nýjasta hótelið, Icelandair
Hótel Reykjavík Marina, var full-
bókað um helgina. »32
Meira bókað af gist-
ingu nú en í fyrra