Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Mér líður stórkostlega vel og ég finn hvergi til,“ sagði Jó-hannes Guðlaugur Jóhannesson, sem verður níræður ámorgun, 22. apríl. Hann fæddist og ólst upp á Nönnugötu 6
í Reykjavík og býr þar enn ásamt eiginkonu sinni, Petrínu Kristínu
Steindórsdóttur. „Það kom aldrei til mála að flytja af Nönnugöt-
unni,“ sagði Jóhannes. „Maður þekkti alla áður en núna engan,“
sagði Jóhannes um nágrannana.
Jóhannes var í fyrsta árgangi Austurbæjarskólans sem tók til
starfa haustið 1930. Að loknu námi fór hann að vinna og var m.a.
sendisveinn hjá Blómum og ávöxtum og fór um bæinn á reiðhjóli
með vörur. Jóhannes tók bílpróf og svo fór að ævistarf hans snerist
um bíla, nánar tiltekið strætisvagna. Hann var starfsmaður Strætis-
vagna Reykjavíkur (SVR) í 42 ár. Fyrstu árin var hann strætis-
vagnabílstjóri.
„Þetta voru ágætir bílar en göturnar stundum dálítið holóttar,“
sagði Jóhannes. „Það var alltaf fullur bíll af fólki.“ Eftir að hann
hætti akstri fór hann að vinna á verkstæði SVR. Auk þess bar hann
út Morgunblaðið í um aldarfjórðung, einn eða með öðrum.
Jóhannes á alls níu börn og stjúpbörn auk barnabarna. Hann átti
þrjú börn úr fyrra sambandi þegar hann giftist Petrínu og hún átti
þrjú börn. Þau eignuðust þrjú börn saman þannig að barnaskarinn
var stór. gudni@mbl.is
Jóhannes G. Jóhannesson, 90 ára 22. apríl
Ljósmynd/Úr einkasafni
90 ára Jóhannes með tveimur dótturdætrum sínum, þeim Iðunni
Helgu Zimsen, sex ára, og Grétu Petrínu Zimsen, þriggja ára.
„Það kom aldrei
til mála að flytja“
I
ngimundur Sveinsson arki-
tekt fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1962,
stundaði nám i byggingarlist við
RWTH Aachen í Þýskalandi 1962-
68, með DAAD-styrk síðari hluta
náms og lauk Dipl.Ing.-prófi 1969.
Ingimundur starfaði á Teikni-
stofu Skarphéðins Jóhannssonar
1969-70 og hefur rekið eigin arki-
tektastofu í Reykjavík frá 1971.
Helsti samstarfsmaður hans síðari
ár hefur verið Jóhann Einarsson
arkitekt.
Ingimundur sat í stjórn Al-
menna bókafélagsins 1980-92, var
formaður Hverfafélags sjálfstæð-
ismanna í Vestur- og Miðbæ 1980-
82, var varaformaður skipulags-
nefndar Reykjavíkurborgar 1982-
94 og hefur sinnt dómnefnd-
arstörfum í ýmsum samkeppnum.
Helstu verk Ingimundar
Meðal ýmissa verka Ingimundar
má nefna aðal- og deiliskipulags-
vinnu fyrir Ísafjarðarkaupstað
1972-89; Deiliskipulagsvinnu fyrir
Garðabæ; Bæjargil, Arnarnesland
og fleira; Hús verslunarinnar;
byggingu Ísbjarnarins, síðar
Granda; íbúðir fyrir aldraða; VR í
Hvassaleiti, einnig Efstaleiti, Mið-
leiti, Seltjarnarnesi og Ísafirði;:
skipulag og húsahönnun Eið-
isgranda í Reykjavík og á Hvömm-
um í Hafnarfirði; Vestur-
bæjarskóla og stækkun Árbæjar-
skóla; miðbæjarkjarna í Garðabæ
og Mosfellsbæ; íbúðarhverfi ein-
býlis-, rað- og parhúsa fyrir Álft-
árós hf. í Mosfellsbæ; Sjóvá-
Almennar, Kringlunni 5; Perluna í
Öskjuhlíð; leikskóla við Vætta-
borgir og Mururima í Reykjavík;
verksmiðju- og skrifstofubyggingu
Málningar í Kópavogi; höf-
uðstöðvar Olís við Sundagarða auk
bensínstöðva fyrir félagið; deil-
iskipuag og hönnun bygginga við
Sóltún í Reykjavík; höfuðstöðvar
Íslenskrar erfðagreiningar; höf-
uðstöðvar Marels og höfuðstöðvar
Orkuveitu Reykjavíkur í samvinnu
við Horn-steina ehf.; Háskólatorg
og Gimli, einnig í samvinnu við
Hornsteina.
Ingimundur fékk menningar-
verðlaun DV fyrir skrifstofuhús
Sjóvár-Almennra 1990 og fyrir
Perluna 1992, fékk sérstaka við-
urkenningu frá byggingarnefnd
Reykjavíkur fyrir höfuðstöðvar Ol-
ís, deiliskipulag og hönnun bygg-
inga við Sóltún og höfuðstöðvar Ís-
Ingimundur Sveinsson 70 ára
Lífsfylling Ingimundar
í línum og formum
Verk Nokkur verk Ingimundar Sveinssonar arkitekts, talið efst frá vinstri:
Sjóváhúsið; Perlan; Orkuveituhúsið að innan; Íslensk erfðagreining, að inn-
an; leikskólinn Vættaborgir; bensínstöð Olís á Selfossi; Sparisjóður Mýr-
arsýslu á Selfossi; fyrrv. höfuðstöðvar Olís; Íslensk erfðagreining í Vatns-
mýrinni; Miðbær og ráðhús Garðabæjar; Sóltún 11-13, höfuðstöðvar
Málningar að innan og hús Marel.
Blönduós Guðjón Þór fæddist 15. nóv-
ember kl. 16.45. Hann vó 4.220 g og
var 55 cm langur. Foreldrar hans eru
Ingibjörg Signý Aadnegard og Hjálm-
ar Björn Guðmundsson.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Örn Thomas Hannam
fæddist 21. febrúar kl. 10.23. Hann vó
3.380 g og var 50 cm langur. Foreldrar
hans eru Helgi Geir Arnarson og
Díana Lind Rúnarsdóttir.
Jóhannes A. Jón-
asson verður sjö-
tugur 26. apríl
næstkomandi. Í til-
efni afmælis míns
býð ég ættingjum
og vinum mínum
að samgleðjast
með mér í Víkingasal Hótel Loftleiða á
morgun, 22. apríl milli kl. 15 og 18.
Árnað heilla
70 ára
Bullboxer: 7.995.-
Again & Again: 18.995.- Again & Again: 19.995.-
Brako: 21.995.-
Kringlunni - Smáralind
ntc.is - erum á
s. 512 1760 - s. 512 7700
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón