Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Marel gekk nýlega frá stærstu sölu
fyrirtækisins í fiskiðnaði með samn-
ingum við fiskframleiðanda í norð-
austurhluta Kína. Um er að ræða
nýja flæðilínu fyrir hvítfisk sem
verður sérstaklega sniðin að þörfum
kínverskra fiskframleiðenda. Flæði-
línan er meðal þess hátæknibúnaðar
sem Marel sýnir á sjávarútvegssýn-
ingunni í Brussel í næstu viku. Fjár-
hæð samningsins samsvarar 1-2% af
ársveltu Marel.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Marel.
Þar kemur fram að aðstæður á
vinnumarkaði og hækkandi fram-
leiðslukostnaður í Kína hafi skapað
aukna þörf fyrir sjálfvirkni í verk-
smiðjum þar í landi. Vöruframboð og
lausnir Marel auki framleiðsluhraða,
hráefnisnýtingu og -meðferð í fisk-
iðnaði auk þess sem Marel bjóði upp
á hugbúnaðarlausnir til öflugri fram-
leiðslustýringar.
Auk Marel komu íslensku fyrir-
tækin 3X Technology og Skaginn að
verkefninu.
„Þessar sérsniðnu flæðilínur voru
hannaðar sérstaklega fyrir kín-
verskan markað,“ er haft eftir Krist-
manni Kristmannssyni, söluráðgjafa
Marel. „Kínverski markaðurinn er
að breytast, fyrirtæki sækjast í
auknum mæli eftir sjálfvirkum bún-
aði og tækjum í stað þess að vera
með mikinn mannafla í framleiðslu.
Við hjá Marel erum afskaplega
ánægð með árangurinn og þær
lausnir sem fyrirtækið hefur þróað í
þessu samstarfi.“
Sölusamningur sem þessi er til
marks um þá stefnu sem Marel hefur
fylgt á alþjóðlegum markaði, að
leggja enn frekari áherslu á sókn á
nýmörkuðum eins og Kína þar sem
vöxtur er mikill. Fiskiðnaðarsetur
Marel í Qingdao mun gegna lykil-
hlutverki við uppbyggingu á starf-
seminni í Kína þar sem miklu skiptir
að viðskiptavinir Marel hafi aðgang
að þjónustu nálægt sínu starfssvæði.
Stór samningur Marel
Selur nýja flæðilínu fyrir hvítfisk til Kína Fjárhæð
samningsins samsvarar 1-2% af ársveltu fyrirtækisins
Morgunblaðið/Ernir
Marel Viðskiptasamningurinn sem Marel hefur gert við Kínverja er mjög
stór, og samsvarar um 1-2% af ársveltu fyrirtækisins.
Markaðurinn getur einfaldlega orðið
blindur einsog við öll í uppsveiflum.“
En þeir bentu einnig á þann gríðar-
lega kostnað sem er í vörnum bank-
anna og eftirlitinu sjálfu. Það hefði
kostað um 238 milljarða bandaríkja-
dali að bjarga breska bankakerfinu.
Það er gríðarlega há tala en samt lítil í
samanburði við það fjármagn sem
bankar Evrópu þurfa að bæta við eig-
ið fé sitt til að ná viðmiðum Basel III
sem á að innleiða að fullu í Evrópu
fyrir árið 2019. En samkvæmt út-
reikningum eru það 1300 milljarðar
dollara.
Skýrslan afgerandi
Samkvæmt skýrslu Greiningar-
deildar Arionbanka um málið sem
dreift var í lok fundarins er talið að
ókostirnir séu fleiri en kostirnir við að
skilja að viðskipta- og fjárfestinga-
bankastarfsemi hér á landi. Í skýrsl-
unni er sagt að líklega myndi það
leiða til þess að aðskildir viðskipta-
bankar verði litlu minni en þeir voru
áður og nýir fjárfestingarbankar yrðu
litlir og vanmáttugir og þetta hefði
neikvæð áhrif á getu fyrirtækja til að
sækja nýtt hlutafé. Auk þess myndi
aðskilnaður leiða til aukins kostnaðar
við miðlun fjármagns hér á landi þar-
sem stærðar- og breiddarhagræði
tapaðist.
Í skýrslunni er bent á kosti aðskiln-
aðar. Horft er til gömlu bankanna og
þeirrar staðreyndar að þeir virðast
hafa veitt afar slæm útlán til eignar-
haldsfélaga í þeim tilgangi að búa til
þóknunartekjur og styðja við gengi
eigin bréfa. En aðskilnaður myndi
girða fyrir að bankar sem taki við inn-
lánum veiti slík lán. Á það er bent að
nú þegar séu komnar laga- og reglu-
gerðarbreytingar, ásamt auknu eftir-
liti, sem komi í veg fyrir að bankar
geti yfirleitt veitt mörg af þeim lánum
sem þeir veittu á sínum tíma til eign-
arhaldsfélaga. „En ef ekki yrði að að-
skilnaði gæti verið nauðsynlegt að
grípa til frekari aðgerða til að koma í
veg fyrir slík útlán og þann freistni-
vanda (þ.e. að léleg útlán séu veitt til
að búa til þóknunartekjur) sem fylgir
samrekstri viðskipta- og fjárfesting-
arbankastarfsemi,“ segir í skýrslunni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Aðskilnaður Davíð Stefánsson hjá Greiningardeild Arionbanka og Hösk-
uldur H. Ólafsson bankastjóri sitja hér fremstir á meðal áheyrenda á vel
sóttum fundi í Arionbanka í gærmorgun.
Frumkvöðull og
fræðimaður
Boðað er til málþings í
tilefni 250 ára fæðingar-
afmælis Sveins Pálssonar
24. apríl 2012 kl. 15–17
í Öskju, náttúrufræðahúsi
Háskóla Íslands, sal 132.
Sveinn var annálaður fræðimaður,
rithöfundur, læknir og ferðagarpur
sem var frumkvöðull í rannsóknum
á náttúru landsins og þá sérstak-
lega jöklunum. Hann er talinn
meðal fyrstu Íslendinganna sem
vöktu athygli á hugmyndafræði
sjálfbærrar þróunar, og var dagur
umhverfisins því tileinkaður
honum.
Aðgangur er ókeypis.
SVEINN PÁLSSON
DAGSKRÁ
Ávarp umhverfisráðherra
Upplýsingarmaðurinn Sveinn Pálsson
• Steinunn Inga Óttarsdóttir
Læknirinn Sveinn Pálsson
• Ólafur Jónsson
Náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson
• Oddur Sigurðsson
Jöklafræðingurinn Sveinn Pálsson
• Helgi Björnsson
Landkönnuðurinn Sveinn Pálsson
• Sveinn Runólfsson
Fundarstjóri er Elín Einarsdóttir,
oddviti Mýrdalshrepps
P
O
K
A
H
O
R
N
IÐ