Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
✝ Rósa KempÞórlindsdóttir
fæddist á Búðum
Fáskrúðsfirði 11.
febrúar 1924. Hún
andaðist á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi 8.
mars 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Þórlindur
Ólafsson, f. 27.5.
1887, d. 29.1. 1982,
bræðslustjóri, og kona hans Jór-
unn Bjarnadóttir, f. 27.4. 1885,
d. 18.12. 1955, kennari og hús-
freyja. Systkini hennar eru
Bjarni Þórlindsson, f. 1.8. 1916,
d. 19.5. 2005, Kristjana Sigríður
Lilja Þórlindsdóttir, f. 21.8.
1917, d. 21.6. 2002, Ólafur Ár-
mann Þórlindsson, f. 20.12.
1919, d. 25.6. 1996, Birna Guðný
Þórlindsdóttir, f. 4.12. 1927,
Guðlaugur Magni Þórlindsson,
f. 6.4. 1932.
Árið 1951 giftist Rósa Kemp
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Jóni Þorberg Eggertssyni, f.
7.10. 1922, fyrrv. skólastjóra.
Börn þeirra eru: 1) Ólafur Ólafs-
son, f. 26.9. 1947, kvæntur Öldu
an, b) Kristín Lilja Åsberg, f.
24.1. 1980, í sambúð með Atla
Ericsson og saman eiga þau Ove
Vidar, c) Jón Henrik Åsberg, f.
30.6. 1984, í sambúð með Diana
Ucar. 4) Guðríður Erna Jóns-
dóttir, f. 10.3. 1956, gift Ólafi
Ágústi Gíslasyni. Börn þeirra
eru: a) Brynja Rós Ólafsdóttir, f.
23.10. 1987, í sambúð með
Andra Erni Sigurðssyni, b) Þór-
dís Ólafsdóttir, f. 21.10. 1989, c)
Gísli Ólafsson, f. 2.10. 1994. 5)
Jórunn Linda Jónsdóttir, f. 10.3.
1956, börn hennar eru: a) Aldís
Buzgò, f. 2.5. 1991, í sambúð
með Stefáni Georg Ármanns-
syni, b) Heiðdís Buzgò, f. 2.5.
1991.
Rósa Kemp ólst upp á Búðum
í Fáskrúðsfirði og lauk þaðan
grunnskólanámi og síðar námi
við Húsmæðraskólann á Laug-
arvatni. Fyrstu hjúskaparárin
bjó hún á Fáskrúðsfirði og einn-
ig á Suðureyri við Súg-
andafjörð. Síðar flutti hún til
Patreksfjarðar þar sem maður
hennar Jón var skólastjóri í
sautján ár. Árið 1972 lá leiðin
suður til Reykjavíkur. Frá 1977
hafa þau búið í Mosfellsbæ. Rósa
var mjög félagslynd, virk í öllu
félagsstarfi, jafnframt því að
sinna stóru og gestkvæmu heim-
ili. Hún starfaði lengst af við af-
greiðslu- og þjónustusörf.
Útför Rósu var gerð frá
Grensáskirkju 19. mars 2012.
Konráðsdóttur.
Þau eiga þrjú börn:
a) Rósa Ólafsdóttir,
f. 6.12. 1970, gift
Örlygi Andra
Ragnarssyni, þau
eiga tvö börn, Öldu
Björk og Arnar
Loga, b) Konráð
Þór Ólafsson, f.
10.1. 1976, í sam-
búð með Sigríði
Margréti Birkis-
dóttur, þau eiga tvö börn, Sól-
eyju Líf og Ísak Frey, c) Andri
Ólafsson, f. 9.11. 1980, kvæntur
Hildi Maríu Hjaltalín Jóns-
dóttur, þau eiga þrjú börn, Est-
er Ósk, Ólaf Alexander og Daní-
el Inga. 2) Svala Haukdal
Jónsdóttir, f. 31.5. 1952, gift
Kjartani Oddi Þorbergssyni,
dóttir þeirra er Sif Haukdal
Kjartansdóttir, f. 14.3. 1987,
unnusti hennar er Tryggvi
Kristmar Tryggvason. 3) Þórdís
Elva Jónsdóttir, f. 9.7. 1953, í
sambúð með Hafsteini Ágústs-
syni. Börn hennar eru þrjú: a)
Linda María Lisle, f. 2.12. 1977,
gift Matthew Lisle, börn þeirra
eru Leo Thomas og Bo Christi-
Elsku mamma mín, ég mun
alltaf minnast þín sem yndislegr-
ar, hjartahlýrrar konu; upp-
örvndi og fullrar umhyggju og
stuðnings hvenær sem á þurfti að
halda. Mér eru minnisstæðir ófá-
ir morgnar saman í eldhúsinu á
Stekkum; Patreksfirði, þar sem
tækifæri gafst til að vera með þér
í einrúmi og um leið læra ýmis-
legt af þér, áður en systkini mín
vöknuðu. Allar fallegar vöggu-
vísur og önnur lög sem þú söngst
fyrir okkur koma fram í hugann
og þolinmæðin við að hlusta á mig
fyrir próf var líka einstæð og á
það við um pabba líka.
Margar fórum við gönguferð-
irnar, spjallað var og sungið,
stundum voru tíndir steinar og
blóm og þú sagðir okkur frá liðn-
um tímum.
Að jafnaði var mikill undirbún-
ingur á öllum sviðum fyrir jólahá-
tíðina og við systur hlökkuðum
mikið til að fá nýja kjóla og nátt-
föt; allt saumaðir þú sjálf,
mamma mín. Sama gilti um
prjónapeysur og annan fatnað á
alla fjölskylduna. Við fórum líka
oftar sem áður akandi í heimsókn
í Dýrafjörð til afa og ömmu og
varð Sæból ykkur pabba mjög
kært er fram liðu stundir. Þið
pabbi nutuð samvistanna þar um
mörg ár í fallegu umhverfi með
gróðri sem þið höfðuð komið á
laggirnar, eins og fyrr við Barr-
holtið. Það vantaði ekkert á fag-
mennsku ykkar né auga fyrir
náttúrufegurð, sem þið nýttuð,
sérstaklega við sköpun garðanna
góðu. Ferðirnar austur á firði
urðu líka margar. Leiðin lá til Fá-
skrúðsfjarðar, að heimsækja
móðurættingjana. Ferðalögin
urðu oft á tíðum ævintýraleg,
með misgóðri færð á fjallvegum,
tjaldgistingu og fleiru skemmti-
legu, ásamt viðkomu á Akureyri
og öðrum góðum stöðum. Ferða-
nestið var alltaf einstaklega gott.
Ég man vel hangikjötið, svið,
harðfisk; kleinur og annað heima-
gert góðgæti, að ógleymdum
söng og frásögnum. Þetta voru
góðar stundir.
Ég man mörg veisluborðin
sem þú útbjóst við ýmis tækifæri,
með ljúffengum mat, ásamt tert-
um, kökum og brauði. Aldrei
komið að tómu í eldhúsinu hjá
ykkur pabba.
Það er margs að minnast,
elsku mamma mín, þó að ég hafi
löngum verið búsett erlendis og
því ekki getað notið samvista eins
og ég hefði óskað. Þess betur
naut ég þeirra stunda sem buðust
við heimsóknir á báða vegu. Þið
pabbi eruð svo gestrisin og hafið
ávallt tekið á móti mér og mínum
með opnum örmum; það á líka við
um síðustu jól og áramót. Þú
gekkst þó ekki heil til skógar,
mamma mín, en vildir sem
minnst láta á því bera. Innra með
mér myndaðist kvíði yfir að
hverju stefndi og er ég ævinlega
þakklát fyrir að hafa getað kvatt
þig og fundið þessa ósegjanlegu
hlýju streyma frá þér deginum
fyrir andlát þitt. Ég kveð þig í
hinsta sinn með miklum söknuði,
elsku mamma mín, og svo gera
einnig börnin mín, sem gátu ekki
verið viðstödd er við kvöddum
þig 19. mars.
Elsku pabbi minn, hugur minn
dvelur hjá þér allar stundir, því
missir þinn er stærstur eftir sam-
veru ykkar mömmu öll þess ár.
Ég mun gera það sem í mínu
valdi stendur, pabbi minn, til að
létta þér sorgina. Megi góður
Guð vera með þér og gefa þér
styrk og kraft til að takast á við
það ber að höndum í lífinu.
Þín einlæg dóttir,
Þórdís Elva.
Rósa Kemp
Þórlindsdóttir
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum
við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og
fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
Vistvænar íslenskar kistur
Þjónusta allan sólarhringinn.
Komum heim til aðstandenda ef óskað er.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
hjartkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HÓLMFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnesi.
Starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi eru færðar
alúðarþakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Ása Baldursdóttir, Sveinn Gunnar Hálfdánarson,
Erlendur Sigurður Baldursson, Kristrún Ísaksdóttir,
Kristín Ingibjörg Baldursdóttir, Flemming Jessen,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elsku mömmu
minnar, tengdamömmu, ömmu og lang-
ömmu,
JÓNÍNU MAGNÚSDÓTTUR,
Ninnu.
Sérstakar þakkir til Einars Björgvinssonar
læknis, Karitas heimaþjónustu og starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi.
Helga Hrönn Stefnisdóttir, Viggó Haraldur Viggósson,
Kristín Helga Viggósdóttir, Ragnar Árnason,
Viggó Helgi Viggósson, Lilja Karen Steinþórsdóttir,
Andri Hrafn Viggósson,
Birta Lind og Birkir Ingi.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför
JÓNASAR ÞORSTEINSSONAR
frá Ytri-Kóngsbakka.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalar-
heimilis aldraðra og St. Franciskusspítala
í Stykkishólmi.
Aðalheiður Bjarnadóttir,
Þorsteinn Jónasson, Kristín Rut Helgadóttir,
Bjarni Jónasson, Ólafía Hjálmarsdóttir,
Agnar Jónasson, Svala Jónsdóttir,
Guðbjörg Guðbjartsdóttir, Kristinn Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kæri mágur minn.
Gunnar Gíslason lést á líknar-
deild Landspítalans eftir ára-
langa baráttu við illvígan sjúk-
dóm.
Gunnar kom ungur maður
austur á firði frá Flateyri við Ön-
undarfjörð þar sem hann fæddist
og ólst upp í stórum systkinahópi.
Það fór svo að hann ílentist á
Eskifirði. Þar kynntist hann einni
systur minni, Hólmfríði Maríu
(kölluð Gógó), þau felldu hugi
saman og það endaði með giftingu
og búskap.
Þau eignuðust þrjú mannvæn-
Gunnar Gíslason
✝ Gunnar Gísla-son fæddist á
Þorfinnsstöðum í
Valþjófsdal 14.
mars 1935. Hann
lést í faðmi fjöl-
skyldunnar á líkn-
ardeildinni í Kópa-
vogi 3. apríl 2012.
Útför Gunnars
fór fram 13. apríl
2012 frá Fella- og
Hólakirkju.
leg börn, Ingigerði,
Sigurþór og Hörpu
Rún sem býr á Ítalíu
en hin í Reykjavík.
Þegar Gunnar
kom austur vann
hann við línulagnir
hjá Snæfelli hf. en
snéri sér fljótlega að
sjómennskunni á
bátum og togurum
og gerðist fljótlega
matsveinn sem varð
hans ævistarf. Gunnar og Gógó
voru samhent og samtaka í sínum
búskap enda búnaðist þeim vel.
Árin 1964 byggðu þau sér hús á
Steinholtsvegi 1 og bjuggu þar
alla tíð síðan. Það var tekið til
þess hvað þau hugsuðu vel um
húsið bæði úti og inni og eins lóð-
ina, þar var alltaf í toppstandi hjá
þeim. Gunnar var myndarlegur
maður og geðgóður, hafði gaman
af að spjalla um menn og málefni,
og var ævinlega stutt í grínið.
Nú kveðjum við góðan dreng
og þökkum samfylgdina. Guð
blessi hann.
Jónas G. Sigurðsson.
Fyrstu geislar morgunsólar
gylltu fjallatinda og heiðarbrún-
ir, heilladísir vorsins voru að
byrja að stilla strengi sína við
engi og tún, hún talaði oft um
það hvað vorið væri yndislegur
tími þegar hljómar mófuglanna
fylltu loftin blá og gott er að hún
fékk að kveðja á þessum fallega
tíma.
Látin er kær tengdamóðir
Anna Marta
Helgadóttir
✝ Anna MartaHelgadóttir
fæddist í Tröð í
Kollsvík við Pat-
reksfjörð 13. nóv-
ember 1924. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Blöndu-
óss 10. apríl sl.
Útför hennar fór
fram frá Þingeyra-
kirkju laugardag-
inn 14. apríl 2012.
mín, Anna Marta
Helgadóttir frá
Uppsölum.
Anna átti ætíð
bjart vor í hug og
hjarta og þrátt fyrir
annasama og erfiða
daga á stóru sveita-
heimili heyrðist
þessi netta kona
aldrei kvarta heldur
var ætíð hlýja og
umhyggja fyrir öðr-
um í fyrirrúmi hjá henni.
Anna kom ung að árum í
Húnavatnssýsluna, þar kynntist
hún ungum manni úr sveitinni
sem varð til þess að þau gengu í
hjónaband og hófu búskap að
Uppsölum í Sveinsstaðahreppi
nú í Húnaþingi eystra. Anna
tókst á við bústörfin af miklum
myndarskap og dugnaði en hún
lifði í sínum búskap einhverja þá
mestu breytingatíma sem orðið
hafa í íslenskum sveitum.
Allt frá því á fyrstu búskapar-
árum sínum þegar mat og vefn-
aðarvara var unnin að mestu á
heimilinu og til þess tíma þegar
flest var hægt að fá í búðum eða
í kaupfélaginu. Nærri má nærri
geta að oft hefur verið annasamt
hjá Önnu með stórt heimili,
börnin mörg og heimili gest-
kvæmt, en hún hélt ætíð í þá
gömlu hefð að búa heimilið vel
að mat að hausti og var algjör
snillingur í þeim efnum. Eins
lengi og hún hafði heilsu til verk-
aði hún sjálf sitt jólahangikjöt,
gerði sjálf sitt slátur og var ætíð
einstaklega notalegt að koma í
eldhúsið til hennar og njóta glað-
værðar hennar sem og ljúf-
fengra ekta íslenskra sveitarétta
sem hún var fljót að töfra fram
fyrir gesti sína. Síðustu æviár
sín glímdi Anna við erfið veikindi
en tókst á við þá erfiðleika af
sínu alkunna æðruleysi en ætíð
var þó stutt í glaðværð og
skemmtileg tilsvör hjá henni.
Votta ég ættingjum og vinum
mína dýpstu samúð. Guð blessi
minninguna um góða konu.
Hjálmar Magnússon.
Elsku Bjarni afi.
Núna er kveðjustundin runn-
in upp. Aðstæður haga því svo
að ég er nánast stödd hinum
megin á hnettinum í litlu landi
sem heitir Laos. Hér er gott að
vera þrátt fyrir að ég hafi átt
erfitt með að njóta síðustu daga,
þ.e. frá því að ský bar fyrir sólu
og mér bárust fréttirnar að þú
værir stiginn upp í hendur
hæsta höfuðsmiðs. Það tekur
Bjarni Halldór
Þórarinsson
✝ Bjarni HalldórÞórarinsson
fæddist á Húsatóft-
um í Garði 9. maí
1928. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja laug-
ardaginn 7. apríl
2012.
Útför Bjarna fór
fram frá Grinda-
víkurkirkju þriðju-
daginn 17. apríl
2012.
mig sárt að hafa
ekki getað verið
viðstödd í faðmi
fjölskyldunnar og
kvatt þig eins og
vera ber.
Margar góðar
minningar tengjast
þér, elsku afi. Mér
fannst alltaf
skemmtilegt að sjá
þig standa upp frá
hádegismatnum og
leggjast í sófann með neftóbakið
þitt og melta yfir Grönnum. Þótt
þú hafir tekið þinn tíma í sóf-
anum má segja að það hafi varla
verið til virkari maður. Það var
ósjaldan sem þú dróst okkur
systurnar með í kartöflugarðinn
og niður á bryggju. Á hjólinu
varstu svo ansi sprækur. Tókst
þig vel út í hverju sem þú tókst
þér fyrir hendur.
Ég montaði mig oft af því að
eiga afa sem gæti farið í splitt
og tekið eldspýtustokk upp af
gólfinu með munninum. Eitt-
hvað sem ég hef ekki enn haft
kjarkinn í að prófa.
Elsku afi minn, þú varst svo
sannarlega góður og hjartahlýr
maður. Ég veit að það verður
tekið vel á móti þér. Ég geymi
ljúfar minningar um þig í hjart-
anu. Ég kveð þig með djúpum
söknuði og þakka þér fyrir allar
dýrmætu samverustundirnar.
Ástar- og saknaðarkveðjur.
Megi allar góðar vættir styðja
og styrkja alla eftirlifandi ást-
vini.
Tinna Karen.