Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Fjárfestum í eigin landi
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til fundar um opinberar fjárfestingar í ljósi
ramma- og samgönguáætlana og nýs Landspítala
Miðvikudaginn 25. apríl kl 8:30 - 10.00 á Hilton Reykjavík Nordica
Opinberar fjárfestingar og atvinnusköpun
Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis
Rammaáætlun
Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá SI
Nýr Landspítali
Gunnar Svavarsson, form. byggingarnefndar um nýjan Landspítala
Opinberar fjárfestingar og lífeyrissjóðirnir
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Gildi og framkvæmdastjóri hjá Eimskip
Afstaða þingflokka til verkefnanna
Sjálfstæðisflokkur, Bjarni Benediktsson
Framsókn, Sigurður Ingi Jóhannesson
Samfylking, Magnús Orri Schram
Vinstri græn, Björn Valur Gíslason
Panelumræður
Fundarstjóri: Sigþór Sigurðsson,
formaður Mannvirkis
Skráning á www.si.is
Sími: 555 2992 / 698 7999
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Stjórnir Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands og Félags skip-
stjórnarmanna mótmæla frumvörp-
um um stjórn fiskveiða og
veiðigjöld. Segir í umsögn að verði
þau að lögum muni þau viðhalda og
jafnvel auka ósætti innan greinar-
innar. Með skerðingu aflaheimilda
muni kjör sjómanna versna veru-
lega og leigubrask, sem stjórnvöld
ætli að takast á hendur, muni
aukast. Þetta sé fráleitt framferði
gagnvart einni starfsstétt og sýni í
hnotskurn hvaða hug stjórnvöld
beri til greinarinnar.
Í umsögninni segir: „Fyrrver-
andi fjármálaráðherra / núverandi
sjávarútvegsráðherra lýsti því yfir
fyrir u.þ.b. ári að á þeim tíma hefði
skapast gríðarleg, undirliggjandi
uppsöfnuð endurnýjunar- og við-
haldsþörf hjá fiskiskipaflotanum,
vegna langvarandi óvissu um stjórn
fiskveiða. Nú hampar þessi sami
ráðherra frumvörpum sem við blas-
ir að leiða muni til grafalvarlegrar
stöðu þar sem bráðnauðsynleg end-
urnýjun flotans er slegin út af
borðinu og viðhaldi allt of gamals
flota verður haldið í algjöru lág-
marki. Í stað aukins öryggis og
betri aðbúnaðar sjómanna munu
menn sjá fram á hið gagnstæða,
með margvíslegum neikvæðum af-
leiðingum.“
Engin rök fyrir
sérstöku veiðigjaldi
Í umsögn Sjómannasambands Ís-
lands segir að sambandið hafi til
þessa verið mótfallið veiðigjaldi í
formi auðlindagjalds. Eðlilegt sé að
útgerðin greiði hóflegt veiðigjald til
að standa straum af kostnaði við
stofnanir ríkisins á sviði fiskveiði-
stjórnunar og sjávarútvegs, en að
öðru leyti séu engin rök fyrir sér-
stöku veiðigjaldi á útgerðina að
mati Sjómannasambands Íslands.
Þá telur sambandið reiknaða
ávöxtun rekstrarfjármuna of lága
og skattlagninguna á umframrent-
una of háa til að útgerðin geti stað-
ið undir veiðigjaldinu.
Varað við ofurskattlagningu
Í umsögn Félags vélstjóra og
málmtæknimanna er það harmað
að ekki liggi fyrir nægilega glöggir
útreikningar og útfærslur á gjöld-
unum, áhrifum þeirra á efnahag
fyrirtækja í veiðum og vinnslu og
samfélagsins alls til framtíðar. Fé-
lagið lýsir þungum áhyggjum af því
að gjaldið verði tekið af launum sjó-
manna og leggur til að Verðlags-
stofa skiptaverðs verði efld og hlut-
verk stofnunarinnar um eftirlit og
upplýsingagjöf um afurðaverð er-
lendis verði tryggt til að tryggja að
eðlilegt afurðaverð skili sér til
landsins.
VM er sammála því að gjöld séu
lögð á veiðar og vinnslu sem afgjald
fyrir afnot af sameiginlegri auðlind
þjóðarinnar, allir útreikningar á
auðlindagjaldinu séu hins vegar of-
reiknaðir og allt of háir vegna, von-
andi, tímabundins veikleika krón-
unnar, eins og segir í umsögninni.
Félagið varar við að ofurskattlagn-
ing geti skaðað atvinnugreinina.
Nauðsynleg endurnýjun
flotans slegin út af borðinu
Samtök sjómanna andvíg frumvarpi um veiðigöld Nánari útreikninga vantar
Morgunblaðið/Kristinn
Í slipp Víkingur AK 100 var smíðaður í Þýskalandi fyrir rúmlega hálfri öld eins og Lundey NS og Sigurður VE.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness getur ekki undir nokkrum kring-
umstæðum stutt frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjald á meðan
ekki hefur farið fram ítarleg rannsókn á hvaða áhrif þau hefðu á atvinnu-
öryggi og kjör fiskvinnslufólks, sjómanna og síðast en ekki síst á byggðir
þessa lands, segir í umsögn félagsins og er hvatt til slíkrar rannsóknar.
„Það er mat félagsins að það svigrúm sem útgerðin hefur verði notað
til að lagfæra og leiðrétta launakjör fiskvinnslufólks, en þau eru verka-
lýðshreyfingunni, Samtökum atvinnulífsins og útgerðinni til ævarandi
skammar. Stjórn Verkalýðsfélags Akraness veltir því fyrir sér hvort fyr-
irhugað auðlindagjald sé af sama meiði og kolefnisskatturinn, sem átti
m.a. að leggja á Elkem á Íslandi fyrir áramót, en sú skattlagning stefndi
atvinnuöryggi þeirra sem þar störfuðu í algjöra óvissu eins og frægt
var,“ segir í umsögninni.
Launakjör verði leiðrétt
AUÐLINDAGJALD AF SAMA MEIÐI OG KOLEFNISSKATTURINN?
Dómur landsdóms í máli Alþingis
gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, er endanlegur og
verður ekki áfrýjað, að sögn Þor-
steins A. Jónssonar, skrifstofustjóra
Hæstaréttar og ritara landsdóms.
Hins vegar er hægt að leita til
Mannréttindadómstóls Evrópu
vegna dómsniðurstöðunnar.
Bein útsending verður á mbl.is
frá landsdómi þegar hann kemur
saman á mánudaginn kemur, 23.
apríl, klukkan 14.00, í Þjóðmenning-
arhúsinu við Hverfisgötu. Þar mun
Markús Sigurbjörnsson dómsforseti
lesa dóminn upp í heyranda hljóði.
Ákveðið hefur verið að leyfa upp-
töku á dómsuppsögunni, bæði á
hljóði og mynd, og senda út beint.
„Fyrirkomulag verður með þeim
hætti að einungis verður leyft að
hafa einn ómerktan hljóðnema hjá
forseta landsdóms og eina mynda-
vél. Hljóð þarf jafnframt að vera
tengt hljóðkerfi hússins. Tveir fjöl-
miðlar RÚV og Stöð 2 hafa þegar
óskað eftir að taka dómsuppsögu
upp. Fjölmiðlar verða að koma sér
saman um fyrirkomulag upptöku og
bera þeir ábyrgð og allan kostnað af
henni. Ef fleiri fjölmiðar óska eftir
að taka upp hljóð eða mynd þurfa
þeir að eiga kost á aðgangi að því,“
segir í tilkynningu frá ritara lands-
dóms.
Fjölmiðlarnir verða að koma sér
saman um fyrirkomulag upptöku og
útsendingar og tilkynna ritara
landsdóms um það eigi síðar en á
hádegi á mánudaginn kemur. Í til-
kynningunni kemur einnig fram að í
framhaldi af dómsuppkvaðningu
verði dómurinn sendur til fjölmiðla
með tölvupósti og um hálftíma síðar
á hann að verða aðgengilegur á
heimasíðu landsdóms. gudni@mbl.is
Dómur landsdóms
er endanlegur
Morgunblaðið/Kristinn
Landsdómur Bein útsending verður
á mbl.is frá uppkvaðningu dóms.
Nokkurt magn af meintu þýfi fannst
við brottfarareftirlit tollgæslu í ferj-
unni Norrænu á Seyðisfirði í vik-
unni. Svo virðist sem gera hafi átt
tilraun til að koma því úr landi.
Verðmæti þýfisins gæti numið allt
að fimm milljónum króna, sam-
kvæmt lauslegu mati tollsins.
Hið meinta þýfi fannst við leit í
bifreið og farangri. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
enginn verið handtekinn vegna
málsins. Tollurinn hefur vísað mál-
inu til framhaldsrannsóknar hjá lög-
reglunni á Seyðisfirði og afhenti
henni varninginn.
Tollverðir fundu þýfi
í bifreið í Norrænu