Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 60
Heimildarmyndin One Day On Earth,
með um 19.000 sjálfboðaliðum, verð-
ur frumsýnd í 160 löndum á sama
tíma á alþjóðlegum degi jarðarinnar á
sunnudag. Félag Sameinuðu þjóðanna
á Íslandi sýnir myndina á sunnudag kl.
16.00 í samstarfi við
Bíó Paradís. Allur
ágóði hér á
landi rennur
til neyðar-
söfnunar
UNICEF fyrir
Sahel-
svæðið.
One Day On Earth
sýnd í Bíó Paradís
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2012
Fyrsti fundur
samræðudag-
skrár sýning-
arinnar Núnings í
Listasafni ASÍ fer
fram í safninu á
sunnudag kl. 15.
Gunnar J. Árna-
son og Hjálmar
Sveinsson halda
erindi og stjórna umræðum.
Meginþema sýningarinnar er nún-
ingur borgar og menningar og birting-
armyndir listarinnar í samfélaginu.
Rætt um Núning
í Listasafni ASÍ
Deildarmeistarar Hauka eru í slæm-
um málum eftir að hafa tapað í tví-
gang fyrir HK í undanúrslitum N1-
deildar karla í handknattleik, síðast í
gærkvöldi, 21:18. HK vantar einn sig-
ur til viðbótar til að komast í úrslit.
Akureyri jafnaði hins vegar metin í
undanúrslitarimmu sinni við Íslands-
meistara FH í íþróttahöllinni á Akur-
eyri í gærkvöldi, 25:18. »2
Haukar í slæmum mál-
um – Akureyri jafnaði
„En þegar ég sá hana þá
bara öskraði ég og var skít-
hræddur. Það var mikið áfall
en þá kom Teitur [Örlygs-
son þjálfari Stjörnunnar] og
stökk á mig. Hann sagði
mér að horfa ekki á þetta og
róaði mig aðeins niður,“
segir Ólafur Ólafsson,
körfuknattleiksmaður hjá
Grindavík, sem slasaðist í
leik Grindavíkur og Stjörn-
unnar í fyrrakvöld. »1
„Öskraði ég og
var skíthræddur“
„Þetta er afar erfiður riðill og ljóst að
enginn andstæðingur verður auð-
veldur,“ sagði Guðmundur Þórður
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik karla, eftir að ljóst
varð síðdegis í gær að Slóvenar,
Hvít-Rússar og að öllum
líkindum Rúmenar
verða andstæðingar
íslenska landsliðsins í
undankeppni Evrópu-
mótsins sem
hefst í októ-
ber og lýkur
í júní á
næsta ári.
»4
„Enginn andstæðingur
verður auðveldur“
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Söngur hvalanna í Skjálfandaflóa í bland við íslenska
tónlist er á leiðinni á tölvudisk sem gæti orðið út-
flutningsvara. Einnig er unnið að gerð tölvuleiks um
líf hvala á norðurslóðum. Það er doktorsneminn
Edda Elísabet Magnúsdóttir, sem vinnur að þessum
verkefnum, en hún hefur síðustu ár fylgst með
hnúfubak og öðrum hvalategundum í Skjálfanda.
„Ég vildi gefa almenningi tækifæri til að hlusta á
þessi hljóð og söng hvalanna,“ segir Edda. „Þessi
vinna er enn á hönnunarstigi en vonandi tekst okkur
að ná að framleiða vöru sem hægt verður að selja
hvalaskoðendum og öðrum í sumar. Efnið verður á
einhvers konar margmiðlunarformi með hvala-
hljóðum og útskýringum á því hvað við teljum að
hljóðin þýði. Einnig er hópur þekktra, íslenskra tón-
listarmanna að vinna að tónlist sem yrði notuð í bland
við hvalahljóðin. Loks er fræðandi tölvuleikur um líf
hvalanna með tilheyrandi hvalahljóðum í vinnslu.“
Vetrarsöngvar við makaleit
Edda Elísabet hefur tekið upp hljóð hnúfubaka
og annarra hvala í Skjálfandaflóa allan ársins
hring. Mestar upplýsingar hefur hún um hnúfu-
baka og er söngur þeirra kröftugastur yfir hávet-
urinn. Að sumrinu eru hljóðin talin tengjast ýmissi
félagslegri hegðun eins og samvinnu við fæðuöflun,
en á tímabilinu frá desember og fram í mars er
söngurinn talinn tengjast makaleit.
„Þegar líður að áramótum breytist hljóðmyndun
þeirra í skipulagðari tónasamsetningu, sem hægt
er að skilgreina sem lög eða söngva og þeir ágerast
og verða fágaðri í febrúar og mars. Þessir vetrar-
söngvar líkjast makaleitarsöngvum,“ sagði Edda í
samtali við Tímarit Háskóla Íslands nýlega.
Syngja hástöfum til að laða kvendýrin að
Edda segir að við úrvinnslu á hljóðum frá síð-
asta ári bendi margt til makaleitar og jafnvel
mökunar hnúfubaks í Skjálfandaflóa. Svo virðist
sem karldýrin búi til leiksvæði (lek) og syngi
þar hástöfum til að laða kvendýrin að, eins og
þekkt sé meðal fíla. Þó að hnúfubakur sé í
forgrunni hafa einnig náðst hljóð-
upptökur af hnýðingum, búrhvölum,
langreyðum og steypireyðum.
Söngur hvalanna til útflutnings
Hljóð hvala í bland við ís-
lenska tónlist Tölvuleikur
með fræðsluefni um hvali
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Mynd og hljóð Hvalur leikur listir sínar og þá er um að gera að vera snöggur með myndavélina. Í sumar geta ferðamenn einnig haft hljóð hans í farteskinu.
Verkefnið Tónar hafsins hlaut viðurkenn-
ingu þegar hagnýtingarverðlaun Háskóla Ís-
lands voru veitt á síðasta ári. Með vinnslu
efnisins er ætlunin að höfða til þess mikla
fjölda sem fer í hvalaskoðun við Íslands-
strendur á hverju ári. Í samtali við
Tímarit Háskóla Íslands segist
Edda Elísabet vonast til að með
aukinni þekkingu á hljóðum
hvala og þá um leið hegðun
þeirra verði samfélagið „meðvit-
aðra um það hversu ótrúlega
áhugaverðir og magnaðir
hvalirnir eru og sjái
verðmætið sem felst í
þeim, ekki bara í
formi hvalkjöts“.
Áhugaverðir og
magnaðir
VERÐLAUN Í HÁSKÓLANUM
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Ásgeir Þór Davíðsson látinn
2. Léttist um 12 kíló á mánuði
3. Skuldarar geti skilað lyklunum
4. Jessica Alba lendir í „fótósjoppi“
MaidenIced mun fagna 30 ára út-
gáfuafmæli stórvirkisins Number of
the Beast með Iron Maiden á Gaukn-
um í kvöld. Matti Matt og Stefán Jak-
obsson sjá um sönginn.
Afmæli Number of
the Beast fagnað
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan og austan 2-10 m/s og dálítil él við norður- og austur-
ströndina, en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast suðvestanlands.
Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag Norðaustlæg átt, víða 3-8 m/s. Dá-
lítil slydduél eða él norðan- og austantil, en annars úrkomulítið og lengst af bjartviðri á
Suðvesturlandi. Hiti 1 til 10 stig að deginum, hlýjast suðvestanlands.
Á fimmtudag Útlit fyrir austlæga átt með úrkomu víða á landinu.
Edda Elísabet
Magnúsdóttir