Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Gjafavara fyrir
konur og stelpur
á öllum aldri ...
Kimmidoll á Íslandi
einfaldlega betri kostur
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mán. - fös. 11-18:30 lau. 10-18, sun. 12-18
Gleðileg�
sumar
SUMMER garðsett
29.900,-
SUMMER Garðsett, polytrefjar. Grábrúnt. 29.900,-
Felliborð og 2 fellistólar. Felliborð 59x59x71 cm.
Hæð á stól 85 cm. Einnig til svart.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Þetta var mjög góð æfing og raunveruleg í alla staði,“
segir Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson, sem í fyrradag
seig niður í um 15 metra djúpa sprungu á Eyjafjallajökli
og bjargaði Labrador-hundinum Tinna. „Við stóðum að
þessu eins og við björgun á fólki og eðlilega var mikið
fagnað þegar hundurinn var kominn heilu og höldnu upp á
brún aftur.“
Guðmundur var í um 70 manna hópi á vegum Ferða-
félags Íslands á Eyjafjallajökli á fimmtudaginn, sum-
ardaginn fyrsta. Þarna var einnig á ferð rúmlega 20
manna hópur á vegum Félags íslenskra fjallalækna, en
hundurinn er í eigu eins þeirra. Jökullinn er talsvert
sprunginn og féll Tinni ofan í sprungu í um 1540 metra
hæð. Læknarnir höfðu samband við Ferðafélagshópinn og
óskuðu eftir aðstoð við að bjarga hundinum og komu þeir á
vettvang rúmlega tveimur tímum síðar, eftir að hafa geng-
ið á topp jökulsins.
Hrikalega kaldur
Sett var upp línubjörgunarkerfi og Guðmundur seig
niður á eftir hundinum, en Ólafur Þór Rúdolfsson aðstoð-
aði hann á brúninni. Þeir eru báðir reyndir björg-
unarsveitar- og leiðsögumenn og hafa æft sprungu-
björgun sérstaklega.
„Hundurinn var orðinn hrikalega kaldur í sprungunni
svo hann gat sig hvergi hreyft og kom ekki lengur frá sér
hljóði,“ segir Guðmundur. „Ég tjaslaði sigbelti utan um
hundinn, sem síðan var dreginn upp og ég á eftir. Þetta fór
allt mjög vel og Tinni var fljótur að jafna sig, en það er
sannarlega varhugavert að vera með lausa hunda á jökli.“
Ljósmynd/Ólafur Þór Rúdolfsson
Hólpinn Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson með Tinna og Magnúsi Gottfreðssyni, eiganda hans.
Góð æfing og raunveruleg
Hundi bjargað úr 15 metra djúpri sprungu í Eyjafjallajökli
Kalt Guðmundur og Tinni í fimmtán metra djúpri
sprungunni í jöklinum. Hundinum varð ekki meint af.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Langhlauparinn Gunnlaugur Júl-
íusson hefur skráð sig til leiks í
hlaupinu Grand Union Canal Race á
Bretlandi sem fram fer fyrstu
helgina í júní, frá laugardeginum 2.
júní til mánudagsins 4. júní.
Hlaupið verður frá miðborg
Birmingham, annarrar stærstu
borgar Bretlands, til London með-
fram síkjum og gömlum flutn-
ingaleiðum sem liggja á milli borg-
anna. Vegalengdin sem er hlaupin er
144 mílur eða rúmur 231 kílómetri.
Keppendur, sem eru um 220-230
talsins og koma víða að úr Evrópu,
hafa að hámarki tvo sólahringa til
þess að ljúka hlaupinu.
„Þetta er svolítið öðruvísi hlaup
því það er ekki hlaupið eftir malbik-
uðum stígum heldur eru þetta slóðar
meðfram þessum síkjum. Það getur
verið drulla, sef og gróður þannig að
þetta er öðruvísi,“ segir Gunnlaugur
um hlaupið.
Hann segist ekki hafa sett sér
nein markmið um tíma sem hann
ætli að ná enda erfitt að áætla það
þar sem aðstæður geti breytt miklu.
Ef það rigni til dæmis þá sé ekki
sjálfgefið að menn komist eitthvað
áfram. Hann segist þó vita til þess
að menn hafi klárað hlaupið á rétt
undir þrjátíu klukkustundum.
Með kortabók á lofti
Keppendur hlaupa vegalengd-
ina í einum rykk en drykkjar- og
næringarstöðvar eru á um 20-30
kílómetra fresti á leiðinni að sögn
Gunnlaugs. Menn þurfi þó að ná að
stöðvunum innan ákveðins tíma og
þeir megi aðeins stoppa þar ákveðið
lengi.
Það er mikilvægt að vera vel
útbúinn í hlaupi sem þessu og þá er
kortabókin sérlega mikilvæg því að
hlaupaleiðin er ekki sérstaklega
merkt. Þá segist Gunnlaugur verða
með ljós á sér til þess að geta hlaup-
ið í gegnum nóttina.
„Maður verður með nesti, föt og
græjur til þess að geta gert að sér í
erfiðleikum, eins og plástra, krem og
þvíumlíkt. Það er bara staðalbún-
aður,“ segir Gunnlaugur.
Áskorun að finna þolmörkin
Þetta er langt því frá fyrsta
langhlaupið sem Gunnlaugur leggur
upp í en hann hefur tekið þátt í
fjölda sólarhrings- og tveggja sólar-
hringa hlaupa erlendis.
Þannig hefur hann til dæmis
tvisvar sigrað í tveggja sólarhringa
hlaupum í Danmörku og síðasta
sumar lenti hann í þriðja sæti í írska
meistaramótinu í sólarhringshlaupi.
Þau hlaup voru þó frábrugðin
mótinu í Bretlandi í sumar að því
leyti að í þeim keppast menn við að
hlaupa sem lengst á þeim tíma sem
er gefinn.
„Þetta er bara áskorun að finna
þolmörkin. Sumir hlaupa hratt, aðrir
hlaupa lengi,“ segir Gunnlaugur
þegar hann er spurður um hvað það
sé sem laði hann að því að hlaupa
tímunum saman. „Þetta er ákveðin
áskorun að finna hvað maður getur
þjálfað sig upp í að gera.“
Hleypur frá
Birmingham til
London í sumar
230 kílómetrar á tveimur dögum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úthald Gunnlaugur hefur tekið
þátt í fjölda langhlaupa.
Lögfræðistofa Íslands er með for-
ystu á Íslandsmótinu í sveitakeppni í
bridge þegar átta umferðum er lok-
ið. Sveitin er skipuð landsliðs-
mönnum Íslands í bridge og er hún
með 143 stig, fimm stigum á undan
Jóni Ásbjörnssyni.
Í þriðja sæti er sveitin Grant
Thornton með 137 stig og í því fjórða
er Karl Sigurhjartarson með 133
stig. Alls keppa tólf sveitir á mótinu.
Í dag fara þrjár síðustu umferðir
mótsins fram en á morgun keppa
fjórar efstu sveitirnar til úrslita.
Mótið fer fram í sal Karlakórs
Reykjavíkur að Grensásvegi 13.
Landsliðs-
mennirnir
eru efstir
Morgunblaðið/Þorkell
Bridge Úrslitin ráðast á sunnudag.