Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni kynnir byggingu 49 þjónustuíbúða að Hólabergi 84 í
Reykjavík. Íbúðirnar verða tengdar við Menningarmiðstöðina Gerðuberg þar sem mikið og öflugt
félagslíf er fyrir eldri borgara. Að auki er bókasafn staðsett í Gerðubergi sem og mötuneyti.
Í nánasta umhverfi Gerðubergs er heilsugæsla, tannlæknastofa, bakarí, Fella- og Hólakirkja auk
þess sem Breiðholtslaug er hinum megin götunnar.
GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR FYRIR ELDRI BORGARA
K YNN IR
Hólaberg 84, Reykjavík
FAGRABERG
Allar nánari
upplýsingar á
www.fagraberg.is
Söluaðili: Byr fasteignasala
Sími: 483 5800 - www.byrfasteign.is
Byggingaraðili:
Sveinbjörn Sigurðsson hf.
www.fagraberg.is
ÍBÚÐIRNAR VERÐA TILBÚNA
R
TIL AFHENDINGAR Í NÓVEM
BER!
Verð frá:
65 fm íbúð, stæði í bílakjallara
22.292.000,- kr.*
90 fm íbúð, stæði í bílakjallara
30.085.000,- kr.*
* Verð miðast við byggingavísitölu í apríl 2012.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hann varð til af tilviljun, eins og
allar skepnur,“ segir Ragnar Braga-
son, sauðfjárbóndi á Heydalsá í
Steingrímsfirði, um hrútinn Boga
frá Heydalsá. Bogi var talinn besti
kynbótahrúturinn á síðasta ári.
Bogi var fæddur hjá Ragnari á
Heydalsá árið 2004. Hann var not-
aður á búinu í upphafi. „Hann
reyndist strax vel, það kom í ljós
þegar fyrstu lömbin undan honum
fæddust. Þau voru vel gerð og fitu-
lítil í sláturhúsi. Hann sannaði sig
svo enn frekar þegar dætur hans
fóru að bera, þær hafa reynst af-
skaplega góðir gripir til kynbóta,“
segir Ragnar.
Bogi hefði vel getað endað í slát-
urhúsi sitt fyrsta haust. Ragnar seg-
ir að lömbin séu vigtuð þegar þau
koma af fjalli og þau álitlegustu tek-
in frá og síðan mæld og metin af
ráðunautum. „Hann kom vel út úr
þessu mati og var þessvegna settur
á. Það er samt alltaf þannig að menn
þurfa að velja á milli einhverra
hrúta og tilviljun getur ráðið nokkru
en einnig er litið til reynslunnar af
mæðrum þeirra og feðrum,“ segir
Ragnar.
Margar ær undan Boga
Ragnar treystir mjög á Boga við
ræktunarstarfið. Þannig eru á átt-
unda tug ánna á búi hans undan hon-
um, á liðlega 600 kinda búi. Sjald-
gæft er að svo stór hluti fjárstofns sé
frá einum hrúti, að sögn Ragnars.
Ráðunautar og starfsmenn sæð-
ingastöðvanna eru sífellt að leita að
efnilegum hrútum. Þeir skoða nið-
urstöður skýrsluhalds í sauðfjár-
rækt. Ragnar segir að Jón Viðar
Jónmundsson ráðunautur hafi fljót-
lega farið að fylgjast með Boga og
hann var síðan keyptur á sæð-
ingastöð.
„Bogi var gríðarlega mikið not-
aður þau þrjú ár sem hann var á
sæðingarstöðvunum. Hann hefur
skilað fituminni skrokkum en nokk-
ur annar kollóttur hrútur sem komið
hefur fram,“ segir Lárus G. Birg-
isson, sauðfjárræktarráðunautur
Búnaðarsamtaka Vesturlands.
Lárus segir að lögð hafi verið
áhersla á að rækta fyrir minni fitu.
Bogi hafi staðið sig vel í því og einn-
ig skilað lömbum með góða vöðva-
fyllingu. „Svo er hann hreinhvítur
með góða ull og skilar frábærum
dætrum sem mjólka vel,“ segir Lár-
us.
Bogi hefur mikil og vaxandi áhrif
í sauðfjárræktinni. Sjálfur var Bogi
mikið notaður á sæðingastöðvunum
og synir hans hafa verið teknir til
sæðinga og fleiri bætast við næsta
haust. Þá eru hrútar frá Heydalsá
vinsælir þegar bændur víða um land
hafa verið að byggja upp nýja stofna
eftir niðurskurð. „Ég hef selt tölu-
vert af hrútum undan honum. Þeir
hafa flestir sannað sig sem af-
skaplega góðir gripir til kynbóta,“
segir Ragnar.
Minna úrval til kynbóta
Hyrnda féð hefur haft forskot á
það kollótta. Miklu fleira hyrnt fé er
til í landinu og því meira úrval til
kynbóta. Þessi munur hefur þó verið
að minnka, að sögn Lárusar. Samt
er það svo að einn afburða kynbóta-
hrútur getur haft mikil áhrif í koll-
ótta stofninum. „Það hefur senni-
lega enginn kollóttur hrútur haft
jafnmikil áhrif í lifanda lífi og Bogi.
Hann mun áfram hafa áhrif í gegn
um syni og dætur.“
Bogi var felldur á árinu 2010 og
hafði þá verið notaður í þrjú ár á
sæðingastöð.
Áorkaði miklu á stuttri ævi
Hrúturinn Bogi frá Heydalsá hefur haft mikil áhrif á kollótta fjárstofninn „Hann reyndist strax
vel,“ segir Ragnar á Heydalsá Mikið notaður á sæðingastöðvunum Synir hans teknir við
Kollóttur kynbótagripur Bogi frá Heydalsá hefur nýst vel á Heydalsá og
sauðfjárbúum um allt land eftir að hann var keyptur á sæðingastöð.
Ljósmynd/Hörður Kristjánsson
Bændur Sigurður Sigurjónsson og
Ragnar Bragason með verðlaunin.
Sæðingastöðvarnar verðlauna
árlega bestu kynbótahrútana.
Verðlaunin voru afhent í lok
málþings um sauðfjárræktina
sem fram fór að loknum aðal-
fundi Landssamtaka sauð-
fjárbænda á dögunum.
Besti lambhrúturinn (lamba-
faðirinn) 2010-2011 var Gosi frá
Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum.
Ræktandi hans er Sigurður Sig-
urjónsson, bóndi þar. Besti al-
hliða fullorðni hrúturinn var
Bogi frá Heydalsá en hann var
fæddur Ragnari Bragasyni
bónda þar.
Gosi var fæddur 2009. Jón
Viðar Jónmundsson ráðunautur
sagði við þetta tækifæri, að því
er fram kemur í Bændablaðinu,
að hann hefði sýnt strax árið
eftir einhverja mestu yfirburði
við skoðun sem sést hefðu.
Hann á nú þegar fjölda afkom-
enda sem bendir til að hann hafi
verið vinsæll þegar bændur
völdu sér sæðingahrúta á fengi-
tímanum.
Sýndi yfir-
burði við
fyrstu skoðun
GOSI FRÁ YTRI-SKÓGUM