Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 24
Barist fyrir reiðleiðunum
Reiðleiðir eru skráðar og gerðar aðgengilegar á netinu Lítið fjármagn til
viðhalds og endurbóta reiðvega Mikilvæg framkvæmd til að vernda náttúruna
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hestamenn standa í stöðugri baráttu
fyrir því að fá fjármagn til endurbóta
og nýbygginga á reiðvegum og halda
umferð vélknúinna ökutækja frá.
Unnið er að skráningu og flokkun
reiðleiða og birtingu í kortasjá. Til-
gangurinn með þessu starfi er að
hægt sé að fara um landið án þess að
valda skemmdum á náttúru þess.
Þorri hestamanna hefur hesta-
mennsku sem sitt helsta áhugamál.
Keppnis- og ræktunarmennirnir sem
sýna og keppa á mótum eru aðeins lít-
ill hluti hópsins þótt þeir haldi merk-
inu á lofti og séu meira áberandi.
Hestaferðalög eru efst á dagskránni
hjá mörgum hestafjölskyldum og er
jafnvel farið í tvær til þrjár ferðir á
sumri. Föstu punktarnir eru sleppi-
ferðin á vorin og miðsumarsferðin.
Sumir ferðahópar fara saman ár
eftir ár og hittast nokkrum sinnum
um veturinn til að skipuleggja ferð-
irnar. Um þessar mundir eru margir
að ganga frá síðustu atriðunum enda
víða orðið fullt á gististöðum við vin-
sælar þjóðleiðir.
Hluti af íslenskri náttúru
„Við áttum okkur ekki alltaf á því
hvílík forréttindi við búum við hér á
Íslandi að geta notið náttúrunnar og
eigum að standa vörð um það. Hest-
urinn hefur alltaf verið og er hluti af
íslenskri náttúru,“ segir Haraldur
Þórarinsson, formaður Lands-
sambands hestamannafélaga (LH).
Hann vekur athygli á því að úti í Evr-
ópu sé víða orðið vandamál að ríða um
náttúruna vegna lokunar á einkalönd-
um og einkaskógum.
Hér á landi eru fjölmargar leiðir
opnar fyrir hestafólk, fornar þjóð-
leiðir og reiðvegir, auk almenna vega-
kerfisins. Samgöngunefnd LH og
hestamannafélögin um allt land vinna
stöðugt að því að endurbæta og
byggja nýja reiðvegi til að hestamenn
þurfi sem minnst að nota þjóðvegina
og geti farið um án þess að skaða
náttúruna. Halldór H. Halldórsson,
formaður nefndarinnar, segir að ætl-
aðar séu 60 milljónir til þessa verks á
fjárlögum ríkisins í ár. Upphæðin
hrekkur skammt því hestamanna-
félögin sækja um 300 milljónir til
verkefna sinna. „Þetta er ekki stór
fjárhæð í ljósi þess að hestatengd
ferðaþjónusta skilar þjóðarbúinu 25
milljörðum í tekjur á ári,“ segir Hall-
dór.
Það fé sem hestamannafélögin fá
til að sinna verkefnum fyrir almenna
félagsmenn hefur verið af skornum
skammti vegna þess að peningana
hefur þurft að nota til að lagfæra fjöl-
farnar ferðaleiðir. Í ár verður í fyrsta
skipti tekið frá fé í slíkar stofnleiðir,
áður en úthlutað er til félaganna.
Þjóðleiðin vestur Mýrar, „með múl-
um“, og niður á Löngufjörur er meðal
þeirra stofnleiða sem ætlunin er að
styrkja sérstaklega.
Umferð torfæruhjóla og annarra
vélknúinna ökutækja á reiðvegum er
ein helsta ógnin við notkun þeirra.
Halldór bendir á að hross fælist við
hávaða og læti. „Flestir þessir mót-
orhjólamenn stoppa og víkja þegar
þeir mæta hestum. Þeir skemma hins
vegar reiðvegina, skilja eftir för sem
valda því að það fer að renna úr í leys-
ingum,“ segir Halldór.
Þótt það sé almennt viðurkennt að
bannað sé að fara með vélknúin öku-
tæki á reiðvegi hefur það verið stund-
að. Hestamenn hafa lagt til að kveðið
verði afdráttarlaust á um þetta bann
við breytingar á umferðarlögum sem
Alþingi fjallar nú um.
Kortasjá byggð upp
Samgöngunefnd LH hefur unnið
að því undanfarin ár að koma upp
gagnagrunni um reiðleiðir í svokall-
aðri kortasjá sem hægt er að nálgast
á vef samtakanna, lhhestar.is. Þar
eru leiðirnar teiknaðar inn á loftmynd
og settir inn gps-punktar. Einnig eru
settir inn skálar en til stendur að gera
þjónustunni mun betri skil í framtíð-
inni.
Búið er að merkja inn leiðir á Suð-
vesturlandi og undirbúningur fyrir
Norðvesturland kominn vel á veg.
Vinnan liggur hins vegar niðri eins og
er, vegna fjárskorts. Halldór Hall-
dórsson tekur fram að aðeins séu til-
greindar leiðir sem sýndar eru í að-
alskipulagi viðkomandi sveitarfélaga.
Kortasjáin er eitt af þeim gögnum
sem hestamenn nota við skipulagn-
ingu sumarferða. „Þetta er mikið nýtt
og er alltaf að aukast,“ segir Halldór.
Ferðahóparnir nota einnig ferðabæk-
ur af ýmsu tagi. Nýjasta viðbótin er
bók Jónasar Kristjánssonar, 1001
þjóðleið, sem kom út fyrir jólin og er
hafsjór af upplýsingum um hestaleið-
ir.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Um lúpínugötur Ferðahópur úr Hafnarfirði kemur niður af Haukadalsheiði. „Ég læt mig dreyma allan veturinn um
að komast í að minnsta kosti eitt svona hestaferðalag á ári,“ sagði Margrét Tryggvadóttir, einn Sörlafélaga.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
VEIÐIMÁLASTOFNUN
Veiðinýting • Lífríki í ám og vötnum • Rannsóknir • Ráðgjöf
Ársfundur Veiðimálastofnunar 2012
Verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl
í Bíósal, Hótel Natura (Loftleiðum)
Dagskrá:
13:30 Fundur settur
13:35 Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Steingrímur Jóhann Sigfússon
13:50 Yfirlit um starfsemi Veiðimálastofnunar.
Sigurður Guðjónsson
14:05 Staða íslenska laxins í alþjóðlegu tilliti.
Guðni Guðbergsson
14:25 Skráning veiði á netinu.
Ingi Rúnar Jónsson
og skýrslur Veiðimálastofnunar á netinu
Guðmunda Björg Þórðardóttir
14:45 Erfðafræðileg uppbygging íslenskra laxastofna.
Kristinn Ólafsson
15:05 Kaffihlé
15:20 Uppruni laxa í sjó í kringum Ísland.
Sigurður Már Einarsson
15:40 Áhrif eldgosa á fisk í ám og vötnum.
Rannsóknir í kjölfar gosa í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum.
Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson
16:00 Fundarslit
Allt áhugafólk velkomið
„Það er samneyti við hestinn, útivera
og upplifun náttúrunnar – og svo fé-
lagsskapurinn,“ segir Valtýr Valtýs-
son, sveitarstjóri Bláskógabyggðar og
félagi í ferðahópnum Víðförla, spurður
um hvað hann fengi út úr hestaferðum
um hálendi landsins. Hópurinn hefur
ferðast saman í um þrjátíu ár og ekki
eru margar hestaleiðir á Suður- og
Suðvesturlandi sem þeir félagar hafa
ekki farið og sumar oft.
Undirbúningur ferðanna hefst á
haustin eða snemma vetrar. Þá leggur
ferðanefnd sem kosin hefur verið fram
hugmyndir að tveimur eða þremur
ferðum sem valið er úr og reynt að
finna heppilega tímasetningu. Venjan
er að fara seinnihluta júnímánaðar.
Það eru margir bændur í hópnum og
þeir fara að detta út vegna heyskapar
ef ferðirnar dragast fram í júlí. Svo er
aukinn þrýstingur á landsmótsárum,
að ljúka ferðinni fyrir mót,“ segir Val-
týr. Áfram er unnið að undirbúningi.
Ráða þarf matráð og menn til að sjá
um trúss. „Síðan þarf maður að þjálfa
hrossin og sjálfan sig.“
Hópurinn hittist þrisvar til fjórum
sinnum yfir veturinn. Fer saman í
ferðir og útreiðatúra til upphitunar og
saman út að borða, allt til að lyfta and-
anum í hópnum.
Í hestaferðum Víðförla eru oft 14 til
18 félagar, hver með þrjú til fjögur
hross.
„Uppistaðan í hópnum er fólk sem
er fætt og uppalið í sveit. Meðvitund
um náttúruna og góð umgengni er
þeim í blóð borin,“ segir Valtýr þegar
hann er spurður um sýn sína á um-
hverfismálin. Hann tekur fram að taka
þurfi tillit til aðstæðna þegar farið er
með hesta um viðkvæmt land og ekki
ætla sér of mikið og jafnvel að teyma.
Þá sé rétt að forðast viðkvæmustu
svæðin. „Við höfum mikla reynslu af
þessu. Maður tekur ekki með sér ung
hross og aðeins eitt sem ekki er vant
ferðum. Ef ekki er rekið of mikið á eft-
ir mynda hrossin fljótt lestina.“
„Þetta er eins og utanlandsferð,
tæplega þó,“ segir Valtýr um kostnað
við hestaferð. Greiða þarf fyrir matráð
og hráefni og kostnað við rekstur
trússbíla. Allt er þetta hófleg hjá Víð-
förla enda leggja félagsmenn mikið til
sjálfir.
Eins og ut-
anlandsferð
Þar sem maður hefur farið
þar hefur farið hestur
„Ég get tekið undir það með Jónasi
Kristjánssyni að besta leiðin til að
viðhalda fornum þjóðleiðum er
hæfileg notkun þeirra. Þær eru
markaðar eftir hófa hestanna um
aldir,“ segir Halldór H. Hall-
dórsson, formaður samgöngu-
nefndar Landssambands hesta-
mannafélaga. Nokkur umræða
hefur orðið um sambýli hests og
náttúru eftir að Vatnajök-
ulsþjóðgarður var stofnaður, með-
al annars vegna þess að þá var lok-
að fyrir umferð ríðandi fólks um
Vonarskarð og fleiri staði.
Vonarskarð er ekki fjölfarin
reiðleið en hestamenn hafa eigi að
síður haldið fram kröfum sínum
um að mega fara þar um eins og
gert hefur verið um aldir. Þá fór
það illa í suma þegar það spurðist
út að hópi hestamanna sem áði við
Öskju var gert að hreinsa upp
heyafganga og hrossatað úr næt-
urhólfinu.
Tveimur hópum sem fóru Gæsa-
vatnaleið á síðasta sumri var fyr-
irskipað að fjarlægja skít og hey
úr næturhólfum sem þeir settu upp
innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Her-
mann Árnason sem fór fyrir fyrri
hópnum segist hafa unnið þetta
eftir bestu getu, í samstarfi við
landverðina, þótt honum hafi ekki
þótt öll skilyrðin jafnskynsamleg.
Sækja þarf um leyfi til þjóð-
garðsins ef fara á með 20 hesta eða
fleiri í hóp um svæði hans. Hesta-
menn hafa viljað rýmka þau mörk
og nú hafa verið settar fram til-
lögur um að miða við 45 hesta svo
venjulegir ferðahópar geti farið
um. Þórður Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Vatnajökuls-
þjóðgarðs, tekur fram að engin
skilyrði séu í reglum þjóðgarðsins
um að hreinsa þurfi upp hey og
skít. „Þetta voru fyrstu stóru ferð-
irnar, eftir að þjóðgarðurinn varð
til, og við vildum hafa varann á.
Hugsunin er sú að með heyi og taði
kunni menn að vera að flytja með
sér annan gróður,“ segir Þórður
og bendir á að þessi svæði séu ein-
stök og hafi gildi á heimsvísu.
Hann tekur fram að eðlilegt sé að
menn hreinsi eftir sig og það sé
ekki ofverkið, í flestum tilvikum
séu hestahóparnir með bíla til að
flytja heyið og geti tekið leifarnar
með sér til baka.
„Það er sjálfsagt að ganga vel
um en erfitt er fyrir fólk sem er að
njóta hestsins úti í náttúrunni að
lúta slíkum öfgareglum,“ segir
Haraldur Þórarinsson, formaður
LH, og bendir á að enginn gróður
þrífist í þessari hæð og engin
hætta á að aðkominn gróður nái
sér þar á strik.
Þórður reiknar með að í ljósi
reynslunnar frá síðasta sumri verði
unnt að slaka frekar á kröfum
næst þegar hestahópar fara þarna
um.
Haraldur telur það með ólík-
indum að verið sé að berjast á móti
umferð hesta á ákveðnum svæðum
í nafni náttúruverndar og vísar þar
sérstaklega til Vonarskarðs. „Þar
sem maður hefur farið um hálend-
ið, þar hefur farið hestur. Maður
og hestur fóru alltaf saman,“ segir
Haraldur.
Rannsókn á þoli svæða
Þegar Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra samþykkti til-
lögur að stjórnunar- og vernd-
aráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
ákvað hún, væntanlega vegna
gagnrýninnar sem kom fram á til-
lögurnar, að efna til viðbót-
arsamráðs við hagsmunaaðila um
samgöngumál garðsins. Starfs-
hópur hefur farið yfir kerfið í
heild og komið fram með ýmsar til-
lögur.
Ágreiningur er enn um tvær
leiðir sem stjórn þjóðgarðsins
ákvað að loka, Vikrafellsleið og
Vonarskarð. Starfshópurinn lagði
til að gerð yrði svokölluð þol-
marksrannsókn til að athuga áhrif
umferðar á þessi svæði. Að henni
lokinni verður metið hvort ástæða
þykir til að breyta þessum ákvörð-
unum.
Gagnrýna lokun Vonarskarðs Hreinsa upp hey og tað