Morgunblaðið - 21.04.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 21.04.2012, Síða 24
Barist fyrir reiðleiðunum  Reiðleiðir eru skráðar og gerðar aðgengilegar á netinu  Lítið fjármagn til viðhalds og endurbóta reiðvega  Mikilvæg framkvæmd til að vernda náttúruna BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hestamenn standa í stöðugri baráttu fyrir því að fá fjármagn til endurbóta og nýbygginga á reiðvegum og halda umferð vélknúinna ökutækja frá. Unnið er að skráningu og flokkun reiðleiða og birtingu í kortasjá. Til- gangurinn með þessu starfi er að hægt sé að fara um landið án þess að valda skemmdum á náttúru þess. Þorri hestamanna hefur hesta- mennsku sem sitt helsta áhugamál. Keppnis- og ræktunarmennirnir sem sýna og keppa á mótum eru aðeins lít- ill hluti hópsins þótt þeir haldi merk- inu á lofti og séu meira áberandi. Hestaferðalög eru efst á dagskránni hjá mörgum hestafjölskyldum og er jafnvel farið í tvær til þrjár ferðir á sumri. Föstu punktarnir eru sleppi- ferðin á vorin og miðsumarsferðin. Sumir ferðahópar fara saman ár eftir ár og hittast nokkrum sinnum um veturinn til að skipuleggja ferð- irnar. Um þessar mundir eru margir að ganga frá síðustu atriðunum enda víða orðið fullt á gististöðum við vin- sælar þjóðleiðir. Hluti af íslenskri náttúru „Við áttum okkur ekki alltaf á því hvílík forréttindi við búum við hér á Íslandi að geta notið náttúrunnar og eigum að standa vörð um það. Hest- urinn hefur alltaf verið og er hluti af íslenskri náttúru,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Lands- sambands hestamannafélaga (LH). Hann vekur athygli á því að úti í Evr- ópu sé víða orðið vandamál að ríða um náttúruna vegna lokunar á einkalönd- um og einkaskógum. Hér á landi eru fjölmargar leiðir opnar fyrir hestafólk, fornar þjóð- leiðir og reiðvegir, auk almenna vega- kerfisins. Samgöngunefnd LH og hestamannafélögin um allt land vinna stöðugt að því að endurbæta og byggja nýja reiðvegi til að hestamenn þurfi sem minnst að nota þjóðvegina og geti farið um án þess að skaða náttúruna. Halldór H. Halldórsson, formaður nefndarinnar, segir að ætl- aðar séu 60 milljónir til þessa verks á fjárlögum ríkisins í ár. Upphæðin hrekkur skammt því hestamanna- félögin sækja um 300 milljónir til verkefna sinna. „Þetta er ekki stór fjárhæð í ljósi þess að hestatengd ferðaþjónusta skilar þjóðarbúinu 25 milljörðum í tekjur á ári,“ segir Hall- dór. Það fé sem hestamannafélögin fá til að sinna verkefnum fyrir almenna félagsmenn hefur verið af skornum skammti vegna þess að peningana hefur þurft að nota til að lagfæra fjöl- farnar ferðaleiðir. Í ár verður í fyrsta skipti tekið frá fé í slíkar stofnleiðir, áður en úthlutað er til félaganna. Þjóðleiðin vestur Mýrar, „með múl- um“, og niður á Löngufjörur er meðal þeirra stofnleiða sem ætlunin er að styrkja sérstaklega. Umferð torfæruhjóla og annarra vélknúinna ökutækja á reiðvegum er ein helsta ógnin við notkun þeirra. Halldór bendir á að hross fælist við hávaða og læti. „Flestir þessir mót- orhjólamenn stoppa og víkja þegar þeir mæta hestum. Þeir skemma hins vegar reiðvegina, skilja eftir för sem valda því að það fer að renna úr í leys- ingum,“ segir Halldór. Þótt það sé almennt viðurkennt að bannað sé að fara með vélknúin öku- tæki á reiðvegi hefur það verið stund- að. Hestamenn hafa lagt til að kveðið verði afdráttarlaust á um þetta bann við breytingar á umferðarlögum sem Alþingi fjallar nú um. Kortasjá byggð upp Samgöngunefnd LH hefur unnið að því undanfarin ár að koma upp gagnagrunni um reiðleiðir í svokall- aðri kortasjá sem hægt er að nálgast á vef samtakanna, lhhestar.is. Þar eru leiðirnar teiknaðar inn á loftmynd og settir inn gps-punktar. Einnig eru settir inn skálar en til stendur að gera þjónustunni mun betri skil í framtíð- inni. Búið er að merkja inn leiðir á Suð- vesturlandi og undirbúningur fyrir Norðvesturland kominn vel á veg. Vinnan liggur hins vegar niðri eins og er, vegna fjárskorts. Halldór Hall- dórsson tekur fram að aðeins séu til- greindar leiðir sem sýndar eru í að- alskipulagi viðkomandi sveitarfélaga. Kortasjáin er eitt af þeim gögnum sem hestamenn nota við skipulagn- ingu sumarferða. „Þetta er mikið nýtt og er alltaf að aukast,“ segir Halldór. Ferðahóparnir nota einnig ferðabæk- ur af ýmsu tagi. Nýjasta viðbótin er bók Jónasar Kristjánssonar, 1001 þjóðleið, sem kom út fyrir jólin og er hafsjór af upplýsingum um hestaleið- ir. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Um lúpínugötur Ferðahópur úr Hafnarfirði kemur niður af Haukadalsheiði. „Ég læt mig dreyma allan veturinn um að komast í að minnsta kosti eitt svona hestaferðalag á ári,“ sagði Margrét Tryggvadóttir, einn Sörlafélaga. 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 VEIÐIMÁLASTOFNUN Veiðinýting • Lífríki í ám og vötnum • Rannsóknir • Ráðgjöf Ársfundur Veiðimálastofnunar 2012 Verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl í Bíósal, Hótel Natura (Loftleiðum) Dagskrá: 13:30 Fundur settur 13:35 Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Steingrímur Jóhann Sigfússon 13:50 Yfirlit um starfsemi Veiðimálastofnunar. Sigurður Guðjónsson 14:05 Staða íslenska laxins í alþjóðlegu tilliti. Guðni Guðbergsson 14:25 Skráning veiði á netinu. Ingi Rúnar Jónsson og skýrslur Veiðimálastofnunar á netinu Guðmunda Björg Þórðardóttir 14:45 Erfðafræðileg uppbygging íslenskra laxastofna. Kristinn Ólafsson 15:05 Kaffihlé 15:20 Uppruni laxa í sjó í kringum Ísland. Sigurður Már Einarsson 15:40 Áhrif eldgosa á fisk í ám og vötnum. Rannsóknir í kjölfar gosa í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum. Magnús Jóhannsson og Benóný Jónsson 16:00 Fundarslit Allt áhugafólk velkomið „Það er samneyti við hestinn, útivera og upplifun náttúrunnar – og svo fé- lagsskapurinn,“ segir Valtýr Valtýs- son, sveitarstjóri Bláskógabyggðar og félagi í ferðahópnum Víðförla, spurður um hvað hann fengi út úr hestaferðum um hálendi landsins. Hópurinn hefur ferðast saman í um þrjátíu ár og ekki eru margar hestaleiðir á Suður- og Suðvesturlandi sem þeir félagar hafa ekki farið og sumar oft. Undirbúningur ferðanna hefst á haustin eða snemma vetrar. Þá leggur ferðanefnd sem kosin hefur verið fram hugmyndir að tveimur eða þremur ferðum sem valið er úr og reynt að finna heppilega tímasetningu. Venjan er að fara seinnihluta júnímánaðar. Það eru margir bændur í hópnum og þeir fara að detta út vegna heyskapar ef ferðirnar dragast fram í júlí. Svo er aukinn þrýstingur á landsmótsárum, að ljúka ferðinni fyrir mót,“ segir Val- týr. Áfram er unnið að undirbúningi. Ráða þarf matráð og menn til að sjá um trúss. „Síðan þarf maður að þjálfa hrossin og sjálfan sig.“ Hópurinn hittist þrisvar til fjórum sinnum yfir veturinn. Fer saman í ferðir og útreiðatúra til upphitunar og saman út að borða, allt til að lyfta and- anum í hópnum. Í hestaferðum Víðförla eru oft 14 til 18 félagar, hver með þrjú til fjögur hross. „Uppistaðan í hópnum er fólk sem er fætt og uppalið í sveit. Meðvitund um náttúruna og góð umgengni er þeim í blóð borin,“ segir Valtýr þegar hann er spurður um sýn sína á um- hverfismálin. Hann tekur fram að taka þurfi tillit til aðstæðna þegar farið er með hesta um viðkvæmt land og ekki ætla sér of mikið og jafnvel að teyma. Þá sé rétt að forðast viðkvæmustu svæðin. „Við höfum mikla reynslu af þessu. Maður tekur ekki með sér ung hross og aðeins eitt sem ekki er vant ferðum. Ef ekki er rekið of mikið á eft- ir mynda hrossin fljótt lestina.“ „Þetta er eins og utanlandsferð, tæplega þó,“ segir Valtýr um kostnað við hestaferð. Greiða þarf fyrir matráð og hráefni og kostnað við rekstur trússbíla. Allt er þetta hófleg hjá Víð- förla enda leggja félagsmenn mikið til sjálfir. Eins og ut- anlandsferð Þar sem maður hefur farið þar hefur farið hestur „Ég get tekið undir það með Jónasi Kristjánssyni að besta leiðin til að viðhalda fornum þjóðleiðum er hæfileg notkun þeirra. Þær eru markaðar eftir hófa hestanna um aldir,“ segir Halldór H. Hall- dórsson, formaður samgöngu- nefndar Landssambands hesta- mannafélaga. Nokkur umræða hefur orðið um sambýli hests og náttúru eftir að Vatnajök- ulsþjóðgarður var stofnaður, með- al annars vegna þess að þá var lok- að fyrir umferð ríðandi fólks um Vonarskarð og fleiri staði. Vonarskarð er ekki fjölfarin reiðleið en hestamenn hafa eigi að síður haldið fram kröfum sínum um að mega fara þar um eins og gert hefur verið um aldir. Þá fór það illa í suma þegar það spurðist út að hópi hestamanna sem áði við Öskju var gert að hreinsa upp heyafganga og hrossatað úr næt- urhólfinu. Tveimur hópum sem fóru Gæsa- vatnaleið á síðasta sumri var fyr- irskipað að fjarlægja skít og hey úr næturhólfum sem þeir settu upp innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Her- mann Árnason sem fór fyrir fyrri hópnum segist hafa unnið þetta eftir bestu getu, í samstarfi við landverðina, þótt honum hafi ekki þótt öll skilyrðin jafnskynsamleg. Sækja þarf um leyfi til þjóð- garðsins ef fara á með 20 hesta eða fleiri í hóp um svæði hans. Hesta- menn hafa viljað rýmka þau mörk og nú hafa verið settar fram til- lögur um að miða við 45 hesta svo venjulegir ferðahópar geti farið um. Þórður Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Vatnajökuls- þjóðgarðs, tekur fram að engin skilyrði séu í reglum þjóðgarðsins um að hreinsa þurfi upp hey og skít. „Þetta voru fyrstu stóru ferð- irnar, eftir að þjóðgarðurinn varð til, og við vildum hafa varann á. Hugsunin er sú að með heyi og taði kunni menn að vera að flytja með sér annan gróður,“ segir Þórður og bendir á að þessi svæði séu ein- stök og hafi gildi á heimsvísu. Hann tekur fram að eðlilegt sé að menn hreinsi eftir sig og það sé ekki ofverkið, í flestum tilvikum séu hestahóparnir með bíla til að flytja heyið og geti tekið leifarnar með sér til baka. „Það er sjálfsagt að ganga vel um en erfitt er fyrir fólk sem er að njóta hestsins úti í náttúrunni að lúta slíkum öfgareglum,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður LH, og bendir á að enginn gróður þrífist í þessari hæð og engin hætta á að aðkominn gróður nái sér þar á strik. Þórður reiknar með að í ljósi reynslunnar frá síðasta sumri verði unnt að slaka frekar á kröfum næst þegar hestahópar fara þarna um. Haraldur telur það með ólík- indum að verið sé að berjast á móti umferð hesta á ákveðnum svæðum í nafni náttúruverndar og vísar þar sérstaklega til Vonarskarðs. „Þar sem maður hefur farið um hálend- ið, þar hefur farið hestur. Maður og hestur fóru alltaf saman,“ segir Haraldur. Rannsókn á þoli svæða Þegar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra samþykkti til- lögur að stjórnunar- og vernd- aráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs ákvað hún, væntanlega vegna gagnrýninnar sem kom fram á til- lögurnar, að efna til viðbót- arsamráðs við hagsmunaaðila um samgöngumál garðsins. Starfs- hópur hefur farið yfir kerfið í heild og komið fram með ýmsar til- lögur. Ágreiningur er enn um tvær leiðir sem stjórn þjóðgarðsins ákvað að loka, Vikrafellsleið og Vonarskarð. Starfshópurinn lagði til að gerð yrði svokölluð þol- marksrannsókn til að athuga áhrif umferðar á þessi svæði. Að henni lokinni verður metið hvort ástæða þykir til að breyta þessum ákvörð- unum.  Gagnrýna lokun Vonarskarðs  Hreinsa upp hey og tað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.