Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
✝ Stefán Jónssonfæddist á Hofi
á Eyrarbakka 19.
janúar 1931. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands, Ljósheimum
á Selfossi, 2. apríl
2012.
Foreldrar Stef-
áns voru Jón B.
Stefánsson versl-
unarmaður f. 10.
febrúar 1889, d. 19. apríl 1960
og Hansína Ásta Jóhannsdóttir
húsmóðir f. 20. maí 1902, d. 13.
mars 1948. Systkini Stefáns eru
Ingibjörg d. 2006, Kristín d.
2005, Björgvin d. 1997, Margrét,
Jóhann d. 1997. Stefán kvæntist
23.12. 1950 eftirlifandi konu
sinni, Unni Sigursteinsdóttur. f.
4. júlí 1932. Foreldrar hennar
voru Halldóra Gísladóttir og
Sigursteinn Steinþórsson.
Börn Stefáns og Unnar eru:
a) Hansína Ásta f. 2.12. 1949,
d. 24.6. 2007, gift Gissuri Jen-
sen. Börn: 1) Stefán Róbert,
kvæntur Sigrúnu Sigurð-
ardóttur og eiga þau 2 börn og 1
barnabarn. 2) Axel Þór á 3 börn
með Ásdísi B. Ingvarsdóttur. b)
Jón Björgvin, f. 14.9. 1951,
kvæntur Ásdísi J. Rafnar. Jón á
dísi Þóru Harðardóttur og eiga
þau 1 dóttur. 2) Tvíburarnir Ívar
Haukur og Unnur Dóra. Stefán
ólst upp í foreldrahúsum á Hofi
á Eyrarbakka þar til hann flutti
á Selfoss 1946 vegna náms. Stef-
án og Unnur byggðu hús að
Tryggvagötu 22. Stefán hóf nám
í járnsmíði 1946, þá 15 ára gam-
all, og tók sveinspróf hjá KÁ.
Fékk hann meistararéttindi árið
1955. Stefán starfaði sem járn-
smiður hjá KÁ til ársins 1956 er
hann réð sig til MBF. Stefán
starfaði hjá MBF til ársins 1970.
Stefán hóf störf hjá fiskvinnslu-
fyrirtækinu Straumnesi á Sel-
fossi 1971 og starfaði þar til árs-
ins 1975 sem framkvæmdastjóri.
Samhliða þeim störfum lauk
Stefán matsmannsnámskeiði hjá
sjávarútvegsráðuneytinu og öðl-
aðist réttindi fiskmatsmanns.
Árin 1975 til 1977 starfaði Stef-
án hjá ráðuneytinu sem eftirlits-
maður. Stefán réðst til Glettings
1977 sem rekstrarstjóri á Sel-
fossi og starfaði þar til 1981.
Samhliða rekstri Straumness
ráku þeir bræður Björgvin, Stef-
án og Jóhann fiskbúð í húsnæði
Glettings á Selfossi. Stefán réðst
til SÍF árið 1981 sem matsmaður
og síðustu árin sem birgðastjóri
á Granda og starfaði hann þar
til ársins 1999 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Útför Stefáns fór fram frá
Selfosskirkju 12. apríl 2012.
2 dætur með fyrr-
verandi eiginkonu,
Þórunni H. Guð-
mundsdóttur. 1)
Unnur Eva, gift
Benedikt Jónssyni
og eiga þau 3 börn,
2) Andrea Ósk, í
sambúð með Þór-
halli Ásbjörnssyni
og eiga þau 2 börn.
c) Sigmundur, f.
2.2. 1953, kvæntur
Ingileifu Auðunsdóttur. Börn: 1)
Þór, kvæntur Guðrúnu Rann-
veigu Stefánsdóttur og eiga þau
2 börn. Þór á dóttur með Drífu
Heimisdóttur. 2) Linda Björk á 2
dætur með Stefáni Þór Hólm-
geirssyni. d) Gísli, f. 2.2. 1953,
kvæntur Guðrúnu Björnsdóttur.
Börn: 1) Valur Fannar, kvæntur
Margréti Einarsdóttur og eiga
þau 3 börn. 2) Stefán er kvæntur
Hörpu Lind Harðardóttur og
eiga þau 2 syni. 3) Sonja, í sam-
búð með Þór Þórðarsyni. e)
Dóra Sjöfn, f. 27.2. 1958, gift
Óskari Jónssyni. Börn: 1) Jón
Jökull, í sambúð með Pierre
Marly 2) Birna, í sambúð með
Úlfari Gíslasyni 3) Unnsteinn. 4)
Anna Björg, f. 15.9. 1966, gift
Bergi Tómasi Sigurjónssyni.
Börn: 1) Sigurjón, kvæntur Al-
Elsku afi. Þegar ég sest niður
og skrifa til þín kveðjuorð koma í
hugann bara skemmtilegar og fal-
legar minningar. Ég var svo hepp-
in að geta verið mikið hjá ykkur
ömmu sem krakki á Selfossi á
Tryggvagötunni og í Vallholtinu.
Þar var margt brallað og sérstak-
lega þegar við komum saman
krakkarnir. Anna Björg var stóra
frænka og snillingur að leika í
dúkkulísuleik og þá fuku eldhús-
rúllurnar hjá ömmu, góðar minn-
ingar um það þegar „stóra
frænka“ Axels og Þórs reyndi að
siða þá frændur til. Þú hefur ef-
laust hlegið að því.
Þegar við fluttum í bæinn voruð
þið flutt þangað líka og komuð oft í
heimsókn. Þegar ég var unglingur
flutti fjölskyldan til Virginíu og
komuð þið amma í heimsóknir. Við
gerðum margt skemmtilegt eins
og að fara á tónleika með Tinu
Turner, borða á veitingastöðum
og sækja skemmtigarða, þú varst
eins og lítill strákur. Man ég eftir
þér úti í garði að raka lauf en alltaf
komu þau aftur og þú varst farinn
að grípa þau áður en þau féllu til
jarðar, ég fylgdist með þér úr
glugganum og þessi minning kem-
ur oft í hugann og ég brosi, afi
sigraði laufin.
Þegar ég flutti ein til Íslands að
ganga í menntaskóla veittuð þið
amma mér húsaskjól í tvo vetur.
Þar var yndislegt að vera og varð
mitt heimili þar til Benni kom inn í
myndina. Þegar ég eignaðist mitt
eigið heimili var alltaf jafngott að
koma til ykkar og vel tekið á móti
manni, yfirleitt heimabakað þar
sem í uppáhaldi var sandkaka með
osti (þú settir reyndar líka smjör),
Mikka-mús eða rúsínuplokkuð
jólakaka og þú fékkst þér renning
með. Suma dagana hlýddirðu mér
svo yfir vísuna „Frá Eyrarbakka
út í vog, fjegur …“ þar sem þér
var mikið í mun að hún gleymdist
ekki og að segja fjegur eins og
seytján. Seinni árin var ég hætt að
hringja á undan mér svo umstang-
ið yrði ekki of mikið þegar ég
kæmi að hitta ykkur.
Þú barst alltaf mikla umhyggju
fyrir mér og öllum ættingjum, það
var einfaldlega þitt hjartans mál.
Þegar ég varð ólétt tókstu and-
köf því þér fannst ég of ung en
þóttist svo sjálfur ekkert muna
hvað þið amma voruð búin að eiga
mörg börn á þeim aldri. Þú pass-
aðir líka upp á að ég hugsaði um
bílana mína og aðstoðaðir með allt
sem þurfti. Lést mig finna hvað
þér þótti vænt um að fá heima-
gerðar gjafir þótt það hafi bara
verið prjónaðir sokkar.
Krakkarnir mínir nutu þeirra
forréttinda að eiga langafa og
langömmu. Sóley var oft hjá ykk-
ur í pössun og Berglind var sér-
staklega hrifin af þér, amma var
stundum sár þegar hún vildi frek-
ar vera hjá þér. Jón Steinar var
líka mjög hrifinn af afalanga þótt
hann væri ekki mjög langur. Þau
segja stundum að tala „Selfoss“ og
það eru orð sem ég segi og hljóma
alveg eins og þú.
Elsku afi, núna veit ég að þú
hefur fengið frið frá veikindum og
ert kominn á góðan stað. Þakka
þér allt sem þú hefur gert fyrir
mig og allt sem þú hefur kennt
mér.
Þín
Unnur Eva.
Stefán Jónsson
Atli Hraunfjörð
lést 28. mars eftir margra ára
hrakandi heilsu. Eftir þrautir af
hjartveiki og Parkinson fékk hann
heilablóðfall sem svipti hann mikl-
um samskiptamöguleikum við um-
hverfið. Hann hafði þó fótavist og
hafði ánægju af því að hitta fólk og
hlusta á samræður, en átti erfitt
með að tjá sig. Slíkt hlýtur að vera
þungt fyrir opinn og glaðsinna
mann, sem hefur jafnvel skýra
hugsun, að geta illa tekið þátt í
samræðum.
Við Atli kynntumst þegar sonur
minn og dóttir hans gengu í hjóna-
band, stofnuðu heimili og tóku til
að eignast mannvænleg börn. Það
var okkur Atla skiljanlega ánægja
að fylgjast með framþróun litlu
fjölskyldunnar og þroska
barnanna, sem nú eru að verða
fulltíða fólk. Barnalánið varð sem
best verður á kosið og við Atli vor-
um auðvitað rígmontnir með okk-
ar framlag. Hann var meiri afi en
ég og sinnti afkomendum okkar
betur, sem greinilega létu sér
mjög annt um hann til æviloka. Og
ekki var hún Sigríður konan hans
minni amma barnanna en hann
var afi.
Óhjákvæmilega kynntumst við
Atli allnokkuð þegar árin liðu. Við
áttum margar góðar samræður.
Atli þekkti margt sem mér var
hulið. Hann var Nýalssinni og út-
skýrði kenningar dr. Helga Pjet-
urss fyrir mér af mikilli þekkingu.
Minnist ég þeirra stunda hlýlega.
Atli var fjölfróður og víðlesinn og
samræður okkar bárust um heima
og geima. Ég held að Atli hafi ver-
ið listamannssál að innri gerð.
Hann orti mikið af tækifærisljóð-
Atli Hraunfjörð
✝ Atli Hraun-fjörð fæddist í
Reykjavík 5. júlí
1941. Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð 28.
mars 2012.
Jarðarför Atla
fór fram frá Digra-
neskirkju 4. apríl
2012.
um og lagði á margt
gjörva hönd.
Sem málarameist-
ari kom Atli fram í
auglýsingakvik-
myndum í gamla
daga. Þegar maður
hugsar til þess létt-
leika sem þá ein-
kenndi hinn röska
mann við fulla heilsu,
þá koma í hugann orð
séra Hallgríms, um
blómstrið eina, sem upp vex á
sléttri grund.
Svo stutt er þetta líf og gæfan
stopul, að margir kunna ekki að
lifa því fyrr en það er um seinan
eins og hún amma mín Sigríður
orðaði það í kör sinni. Það er þungt
að horfa upp á slík hamskipti lífs-
ins hjá ástvinum hjálparlaus og
geta engu breytt. Ekkert fær
keypt glataða heilsu til baka og
ekkert stoðar að kvarta yfir ósann-
girni lífsins. Við erum svo mátt-
vana þegar í grunninn er gætt.
Þetta skildi séra. Hallgrímur
manna best úr sínu lífi. Myndlík-
ing hans hér að framan hefur fylgt
þessari þjóð alla tíð frá vöggu til
grafar. „Afskorið verður fljótt“.
„Ég hefi nú ráðið gátuna.. Eðli
drauma er mér nú kunnugt orðið.
Mér er það alveg ljóst, að ég skipti
um meðvitund, þegar ég vakna. Í
svefni fæ ég þátt í lífi einhvers
annars. “
Með þessum orðum dr. Helga
Pjeturss vil ég kveðja Atla Hraun-
fjörð. Hvort sem við vökum eða
sofum eru kraftar að verki sem við
þekkjum ekki. Ef til vill kynnumst
við þeim síðar lífs eða liðin. Og það
er ávallt gott að eiga sér drauma
um hið góða í lífinu. Mörgum
draumum varð Atli Hraunfjörð af
vegna heilsubrests. Nú sefur hann
í draumi fjölskyldunnar.
Við minnumst hans í blóma lífs-
ins, meðalhás og réttholda fríð-
leiksmanns, sem var góðglettinn
og hispurslaus í framkomu, reglu-
maður, bóngóður og brosmildur
höfðingi.
Veri hann ávallt sæll.
Halldór Jónsson.
Ég vil minnast frænda míns
Gauja, eins og hann var kallaður
af þeim sem þekktu hann vel. Við
áttum eitt sameiginlegt og mikið
áhugamál en við vorum báðir safn-
arar og lögðum mikla vinnu og fé í
þessa iðju. Og til marks um það
átti Guðjón mjög stórt bókasafn
sem mun vera með þeim stærri
hér á landi.
Guðjón vann mörg störf um
sína löngu ævi og allt vann hann af
mikilli alúð og snyrtimennsku sem
honum var svo ríkulega í blóð bor-
in eins og er áberandi í okkar
frændgarði vítt og breitt. Kynni
mín af þeim Kirkjubólssystkinum
voru mismikil, aðstæður þess tíma
gerðu það að verkum, en öll voru
þau sterkvönduð. Ég kveð frænda
Guðjón Árni
Sigurðsson
✝ Guðjón ÁrniSigurðsson
fæddist á Kirkju-
bóli í Mosdal í Arn-
arfirði 17. apríl
1921. Hann and-
aðist á Hrafnistu
16. mars 2012.
Útför Guðjóns
Árna fór fram frá
Fossvogskirkju 27.
mars 2012.
minn með broti úr
ljóði; Minni Bíldu-
dals eftir Sigfús Elí-
asson.
Himnesku klettar, þér
háu fjöll,
hlýðið á boðskap þess
nýja dags!
Um bláskyggðan vog,
um blómavöll,
frá birtu morguns til
sólarlags
andi Guðs boðar frá eilífðarheimi:
Enginn fortíðarvinum gleymi.
Og baráttan hörð vakti gleði með grönn-
um,
og glaðværir strákhnokkar urðu að
mönnum.
Hér íklæddust holdi þær himnesku
dísir.
Um heimsbyggð af arnfirzkri menningu
lýsir.
Ég heiti á Guð þessa lands – minna
ljóða,
að lýsa upp hjörtun, að skapa hið
góða,
að blessa þann stað, er vér gistum svo
glaðir.
Það gulli sé letrað á klettanna raðir.
Jón Kr. Ólafsson, söngvari,
Reynimel, Bíldudal.
✝
Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGU SIGURLAUGAR ERLENDSDÓTTUR,
Sillu frá Vatnsleysu,
Rauðalæk 55.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjóls, 3. hæð, fyrir hlýja og
góða umönnun.
Tómas Hjálmarsson,
Kristín Hjálmarsdóttir, Valgeir Þórðarson,
Birna Reynisdóttir,
Linda Heide Reynisdóttir, Sigfús Jónsson,
Heiðbjört, Hjálmar Jón, Hlynur Jón.
✝
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengda-
móður, ömmu og systur,
EDDU FARESTVEIT,
Lautasmára 3,
Kópavogi.
Gunnsteinn Gíslason,
Guðrún Brynja Gunnsteinsdóttir,
Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir, Davíð Jónsson,
Gísli Kristján Gunnsteinsson, Lilja Ingimundardóttir,
barnabörn og systkini hinnar látnu.
✝
Okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu
sem sýnt hafa okkur vináttu og samhug við
fráfall okkar ástkæra
EYJÓLFS RÚNARS SIGURÐSSONAR,
Miðvangi 57,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11 G
á Landspítalanum fyrir einstaka umönnun og sérstaka hlýju.
Starfsfólk Setbergsskóla í Hafnarfirði sem fylgt hefur
okkur eftir og aðstoðað í veikindum og við fráfall Eyjólfs
fær einstakar þakkir frá okkur.
Rannveig Vigfúsdóttir,
Vigfús Almar Eyjólfsson,
Inga María Eyjólfsdóttir, Sigurður Kristinn Ómarsson,
Inga María Eyjólfsdóttir, Sigurður Hallur Stefánsson,
Huldar Örn Sigurðsson, Sólveig Ósk Jónsdóttir.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
ÖNNU MÖRTU HELGADÓTTUR
frá Uppsölum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis-
stofnunar Blönduóss fyrir einstaka alúð og umönnun.
Sigurður H. Ingþórsson, Gunnhildur Lárusdóttir,
Kristmundur Ó. J. Ingþórsson, Herdís Sigurbjartsdóttir,
Sigrún B. Ingþórsdóttir, Hjálmar Magnússon,
Þorsteinn R. Ingþórsson, Sigurbjörg M. Jónsdóttir,
Magnús H. Ingþórsson, Margrét Rögnvaldsdóttir,
Guðmundur E. Ingþórsson, Guðrún S. Kjartansdóttir,
Birgir L. Ingþórsson, Sigríður Bjarnadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur dýrmæta samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför okkar elskulegu eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LÁRU ÁGÚSTSDÓTTUR,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu
starfsfólki lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness fyrir
einstaka umönnun og hlýju.
Hafsteinn Sigurbjörnsson,
Jóhanna G. Þorbjörnsdóttir, Ásgrímur R. Kárason,
Sigurbjörn Hafsteinsson, Sesselja L. Allansdóttir,
Ingólfur Hafsteinsson, Heiðrún Hannesdóttir,
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, Jónas Geirsson,
Berent Karl Hafsteinsson, María Lilja M. Viðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.