Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 112 Grafarvogi - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is Kojur íbjarga málunum Margar stærðir og gerðir af kojum og rúmum, litlum og stórum, breiðum og mjóum fyrir barnaherbergið og sumarbústaðinn! Sérverslun með kojur og fylgihluti Vefverslun husgogn.is erum á Facebook Golf er ekki flókin íþrótt – göngutúr með markmið. Þeir sem vilja stytta göngutúr sinn umtalsvert geta æft sig og byrjað að ergja sig á hægfara golfurum, því þó að íþróttin sé í sjálfu sér einföld getur reynst erfitt koma kúlunni í holuna í sem fæstum höggum, en það sparar viðkomandi umtalsverðan tíma. Á vefsíðunni learnaboutgolf.com má finna tæm- andi leiðbeiningar um þá hluti sem golfari þarf að hafa í huga þegar hann stundar golfíþróttina. Þar má finna ráð fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Ráðin henta ólíkum aðstæðum golfsins – hvernig kylfu þú átt að kaupa þér, hvernig á að spila í vindi og virkni hverrar kylfu svo dæmi séu nefnd. Og mundu: Ef hnéð færist um of til hægri hefur það áhrif á axlarstöðu þína. www.learnaboutgolf.com Morgunblaðið/Golli Golfæfing Nú þegar vora tekur gleðjast golfarar og halda út á völl. Stundaðu golf af viti Vortónleikar Samkórs Kópavogs verða haldnir í Langholtskirkju á morgun, laug- ardaginn 21. apríl, kl. 16.00. Á efnisskránni eru vinsæl dægurlög liðinna ára, söngvar um ástina, sólina og sumarið sem er á næstu grösum. Hljóðfæraleikarar eru Agnar Már Magnússon á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Bergþór Pálsson syngur einsöng. Stjórnandi kórsins er Skarphéðinn Þór Hjartarson, tónmenntakennari og sjálfstætt starfandi tónlistarmaður. Miða- sala fer fram á www.samkor.is og við innganginn. Vortónleikar Samkórs Kópavogs Söngvar um ást og sól Ég hata tónlist! Sungið um æskuna er yfirskrift styrktartónleika sem haldnir verða í Bíósal Duushúsa á morgun, sunnudaginn 22. apríl, kl. 15. Þar koma fram Bylgja Dís Gunn- arsdóttir sópransöngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari ásamt Kór Holtaskóla. Stjórnandi kórsins er Guðbjörg Rut Þórisdóttir ení honum eru um 30 börn á aldr- inum 10-15 ára. Efnisskrá tónleik- anna dregur upp mismunandi myndir af æskunni í íslenskum þjóðlögum. Einnig verða fluttir ljóðaflokkarnir A Charm of lullabies eftir Benjamin Britten og I hate music eftir Leonard Bernstein en þar útskýrir hin 10 ára gamla Barbara á mjög skemmtilegan hátt hvers vegna hún hatar tónlist. Hægt er að panta miða hjá skólarit- ara í Holtaskóla í síma 420-3500 eða kaupa miða við innganginn. Tónleikar Kórs Holtaskóla ásamt gestum Tónleikar Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópransöngkona, kemur fram. Sungið um æskuna Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þ að er einhver tilfinning inni í þessu, einhver kraftur sem gefur öll- um svo mikið,“ segir Ása Berglind Hjálm- arsdóttir, meistaranemi í list- kennslunámi við Listaháskóla Ís- lands. Hún vinnur nú að rannsókn á áhrifum tónlistar á líðan eldri borgara. Hún hefur, ásamt hópi fólks sem kallar sig Tónar og trix, unnið að tónlistarsköpun frá árinu 2007. Hópurinn er á breiðu aldurs- bili; frá sjötugsaldri til níræðs. „Þetta byrjaði sem hluti af loka- verkefni mínu í BA-námi. Svo vatt þetta upp á sig og við hittumst enn í dag,“ segir Ása Berglind. Hún vinnur nú að lokaverkefni sínu í listkennslunámi. Í því tekur hún viðtöl við þátttakendur í hópn- um og metur hvaða áhrif söng- urinn hefur á daglegt líf þeirra. „Þetta er unnið með hjálp við- tala og dagbókarskrifa. Í þessum viðtölum hefur komið fram hversu mikils virði þetta er fyrir þá sem taka þátt í því,“ segir Ása Berg- lind. Þegar hópurinn kemur saman eru sungin dægurlög. Bæði gömul og ný. Nýlega tókst hópurinn til að mynda á við lagið „Brotlentur“ með hljómsveitinni Valdimar. Miklar framfarir „Þetta er hópur sem ég hef verið að vinna með frá 2007. Við erum með hljóðfæri og gömul dægurlög. Svo sköpum við líka tónlist. Reglulega kemur einhver með eitthvað sem hann hefur verið að vinna að heima hjá sér, bæði texta og lög. Vanalega vinnum við þetta hins vegar í sameiningu. Sköpun skiptir sköpum óháð aldri Ása Berglind Hjálmarsdóttir, meistaranemi í listkennslunámi við Listaháskóla Íslands, skrifar lokaverkefni sitt í listkennslu um samspil tónlistar og líðanar eldri borgara. Ása Berglind segir tónlistarstarfið gefa hópnum mikla lífsfyllingu. Meistaranemi Ása Berglind Hjálmarsdóttir vinnur með Tónum og trix. Lagaval Hópurinn tekst á við bæði gamalt og nýtt í tónlistinni. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.