Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 Kaffi á könnunni og næg bílastæði b ó k a b ú ð f o r l a g s i n s OPIÐ ALLA VIRKA DAGA kl. 10–18 OG LAUGARDAGA kl. 10–14 Fiskislóð 39 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Það er mikilvægt að vera með hjálm þegar maður fer út að hjóla og það vita krakkarnir í hjólaskóla Dr. Bæk og frístundamiðstöðvarinnar Kamps. Námskeiðið er fyrir börn á aldrinum 10-12 ára og var það fyrsta haldið í gær. Lauk því með hjóla- ferð í Nauthólsvík þar sem snætt var nesti og not- ið veðurblíðunnar. Ef veðrið verður eins gott í sumar og í gær þá verða eflaust næg tækifæri fyr- ir krakkana til að draga fram hjólin sín. Krakkarnir hjóla með hjálm inn í sumarið Morgunblaðið/Eggert Hjólaskóli frístundamiðstöðvarinnar Kamps og Dr. Bæk á ferð í Nauthólsvík Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þessi vottun styrkir stöðu okkar enn frekar. Smásalarnir fara fram á á þetta. Meira en helmingur af veltu okkar er í smásölu á Bretlandsmark- aði og þar er að finna kröfuharða kaupendur á borð við verslanakeðj- urnar Tesco og Marks og Spencer. Við erum að mæta þeirra kröfum með þessari vottun,“ segir Lárus Ás- geirsson, forstjóri Icelandic Group, um þau tíðindi að fyrirtækið hefur fengið svokallaða MSC-vottun fyrir allar afurðir úr þorski og ýsu frá Ís- landi óháð veiðarfærum. Skammstöfunin stendur fyrir Marine Stewardship Council og mun allur þorsk- og ýsuafli af Íslandsmið- um fá heimild til að bera vottunar- merkið MSC. Segir í tilkynningu Icelandic Group vegna þess, að stað- allinn sé sá víðtækasti og virtasti í heiminum yfir sjálfbærar fiskveiðar sem byggjast á vísindalegri ráðgjöf. Umgengnin fær góða umsögn Lárus segir aðspurður að vottunin sé gæðastimpill fyrir íslenska fisk- veiðistjórnunarkerfið. „Vottunin felur í sér mjög jákvæða umsögn um kerfið og umgengni okk- ar Íslendinga við þessa mikilvægu auðlind. Hér er á ferð vottun sem horft er til um allan heim. Hvað við- skiptahliðina snertir hefur hún fyrst og fremst markaðslega þýðingu. Stórir viðskiptavinir okkar í Evrópu og Bandaríkjunum eru fyrst og fremst í smásölu. Það eru stórversl- anirnar sem eru að kaupa fisk. Margar þeirra hafa gert kröfu um vottun og er þar undirliggj- andi sú almenna krafa hjá versl- anakeðjum að vera eingöngu með vottaðar af- urðir. Vottunin greiðir því fyrir aðgengi að verslunarkeðjum. Ef við hefðum ekki þessa vottun gæti það takmarkað aðgengi okkar með fiskinn að þessum stóru keðjum. Icelandic mun veita útflytjendum á íslenskum fiski heimild til að nýta sér þessa vottun og hafa margir þeirra lýst yfir áhuga á að nýta sér það. Samfara þessari vottun heldur Icelandic Group áfram að styðja verkefnið Icelandic Responsible Fisheries sem snýst um ábyrgar fiskveiðar við Ísland og uppruna- vottun afurða af Íslandsmiðum.“ Horft til staðla FAO Að sögn Lárusar er meðal annars stuðst við staðla Matvæla- og land- búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóð- anna (FAO) þegar lagt er mat á hvort skilyrði vottunarinnar séu uppfyllt. „Í framhaldi af þeirri úttekt er gefin þessi vottun. Ísland skoraði mjög hátt á prófinu og stóðst það raunar með glæsibrag,“ segir Lárus. Í lok síðasta árs var Icelandic Group með starfsemi á Íslandi, í Evrópu og Asíu og var heildarveltan um 87 milljarðar krónar. Starfsmenn félagsins voru um 1.600. Ísland fær bestu einkunn  Icelandic Group fær alþjóðlega gæðavottun fyrir þorsk og ýsu af Íslandsmiðum  Forstjóri fyrirtækisins segir þetta gæðastimpil fyrir fiskveiðistjórnunarkerfið Lárus Ásgeirsson Birgðir af íslenskum kartöflum frá síðasta hausti eru nokkurn veginn gengnar til þurrðar og byrjað að flytja inn erlendar. Ástæðan er sú að uppskera brást eða var lélegri en í meðalári í mikilvægum kart- öfluræktarhéruðum. Innlenda uppskeran hefur stundum dugað þar til nýjar íslenskar koma á markaðinn um mitt sumar. Guðni Hólmar Kristinsson hjá Sölufélagi garðyrkju- manna segir þó að flest undanfarin ár hafi þurft að flytja inn kartöflur í júní og júlí. Hann segir að nú séu ákveðin skil, birgðir almennt á þrotum þótt einhverjir framleiðendur kunni að eiga eitthvað eftir. Innfluttar kartöflur ættu að vera komnar í búðir. Bergvin Jóhannsson, formaður Landssambands kartöflubænda, segir að framleiðendum sé sífellt að fækka og þótt aðrir stækki við sig minnki heildar- framleiðslan. Þá segir hann að uppskeran hafi ekki verið nægilega góð á síðasta sumri. Þannig hafi upp- skeran í Eyjafirði verið innan við helmingur af með- alársuppskeru og aðeins sæmileg uppskera í Þykkva- bænum. Betur hafi gengið í Villingaholtshreppi og Hornafirði. Nýjar íslenskar kartöflur koma á markaðinn í lok júlí, ef tíðin verður þokkaleg. Þangað til þarf að flytja inn erlendar kartöflur. helgi@mbl.is Íslenskar kartöflur á þrotum Morgunblaðið/Golli Jarðepli Kartöflurnar eru á þrotum og byrjað að flytja inn erlendar. Glænýjar íslenskar koma aftur í lok júlí.  Flytja þarf inn kartöflur til sölu í rúma þrjá mánuði „Hér er það að gerast að for- sætisráðherra, sem mælti fyrir þingsályktun- artillögu um breytingar á stjórnarráði Ís- lands, lýsir því yfir að það þing- mál sem hún er að flytja og er ríkisstjórnarmál sé í andstöðu við stjórnarskrá landsins. Það eru að mínu viti mikil og grafalvarleg tíð- indi sem ráðherrann færir þarna fram, óháð því hvort hún hefur á réttu eða röngu að standa um hvort þetta stangist á við stjórnarskrána. Það er ekki kjarni málsins í þessu samhengi,“ segir Einar K. Guðfinns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, í tilefni af þeim ummælum Jó- hönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra á Alþingi sl. miðvikudag að „fyrirhugaðar breytingar á fjölda og heitum ráðuneyta í Stjórnarráði Ís- lands … [séu] í raun í andstöðu við stjórnarskrána“. Gengur gegn eiðstafnum „Kjarni málsins er að ráðherrann er að flytja mál í nafni ríkisstjórn- arinnar sem er að hennar mati brot á stjórnarskrá. Þetta er ekki síst al- varlegt af þeim sökum að um leið og alþingismenn taka sæti á Alþingi rita þeir eiðstaf að því að virða ákvæði stjórnarskrárinnar,“ segir Einar sem telur að forseti Alþingis hljóti að bregðast við ummælunum. Málið hafi ekki verið þingtækt. Forseti Alþingis skoði málið Einar K. Guðfinnsson  Forsætisráðherra ræðir lögbrot á þingi Nú er ljóst að það verður Fljótsdals- hérað sem mætir Grindavík í úr- slitaþætti Útsvars í Ríkissjónvarp- inu föstudagskvöldið 27. apríl. Fljótsdalshérað sigraði Garðabæ með 74 stigum gegn 69 í síðari undanúrslitaþættinum sem fram fór í gærkvöldi. Áður hafði Grindavík lagt Reykjavík í fyrri undan- úrslitaþættinum. Það voru 24 sveitarfélög sem hófu keppni í Útsvari veturinn 2011-2012 og var fyrsti þátturinn sýndur 2. september í fyrra. Fljótsdalshér- að og Grinda- vík í úrslitum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.