Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 3
Útgefandi
Reginn hf., kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201
Kópavogi, www.reginn.is.
Hlutafé útgefanda
Heildarfjöldi útgefinna hluta í Regin er
1.300.000.000 hlutir. Þeir eru allir í einum flokki.
Seljandi
Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf.,
kt. 530407-1790, Austurstræti 11, 155 Reykjavík.
Áskriftartímabil
Útboðið hefst kl. 10:00 þann 18. júní 2012
og lýkur kl. 16:00 þann 19. júní.
Verðbil og útboðsgengi
Að áskriftartímabilinu loknu mun seljandi
ákveða útboðsgengi sem verður það sama til
allra sem taka þátt í útboðinu. Útboðsgengið
verður á verðbilinu 8,1-11,9 kr. á hvern hlut
í Regin. Seljandi mun byggja ákvörðun sína
um útboðsgengi á þeim tilboðum sem berast
í útboðinu að teknu tilliti til markmiða sinna
með útboðinu.
Fyrirkomulag útboðs
Útboðið er tvískipt. Í tilboðsbók eru til sölu
633.750.000 hlutir eða sem nemur 48,75% af
heildarhlutafé í Regin. Í áskriftarhluta eru til
sölu 341.250.000 hlutir eða sem nemur 26,25%
af heildarhlutafé í Regin. Ein áskrift er heimil
fyrir hverja kennitölu í útboðinu. Þátttaka
í útboðinu er skuldbindandi fyrir fjárfesta.
1. Tilboðsbók – áskriftir að lágmarki
50 m.kr. að kaupverði
Í tilboðsbók skila fjárfestar áskrift sinni til
umsjónar- og/eða söluaðila á sölutímabilinu
á sérstöku áskriftareyðublaði sem nálgast má
hjá Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskiptum
Landsbankans.
2. Áskriftahluti – áskriftir á bilinu 100.000-
49.999.999 kr. að kaupverði
Fjárfestar skrá áskriftir sínar á áskriftarvef
Landsbankans, sem opinn verður á
áskriftartímabilinu: www.landsbankinn.is/
reginnutbod. Til að skrá áskriftir sínar verða
fjárfestar að hafa aðgang að netbanka, sem getur
verið hvaða íslenski viðskiptabanki sem er.
Fjárfestar skrá kennitölu sína og panta lykilorð
á áskriftarvefnum sem þeir fá sent sem rafrænt
skjal í netbanka sinn. Fjárfestar geta skilyrt
áskrift sína við það að endanlegt útboðsgengi
fari ekki umfram ákveðið hámarksverð á hlut.
Ef fjárfestir tilgreinir ekkert hámarksverð
í áskrift sinni skoðast áskriftin sem gerð á
útboðsgengi.
Úthlutun og skerðing áskrifta
Áskriftir undir útboðsgengi verða ekki sam-
þykktar og aðilar sem bjóða verð undir
útboðsgengi eða tilgreina hámarksverð sem
er undir útboðsgengi fá ekki úthlutað hlutum
í útboðinu.
Áskriftir í tilboðsbók sem eru á og yfir útboðs-
gengi verða samþykktar. Ef umframeftirspurn
verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir
í tilboðsbók skertar hlutfallslega, með tilliti til
heildartilboðsfjárhæðar tilboðsgjafa sem buðu
á og yfir útboðsgengi að teknu tilliti til tilboðs-
gengis þeirra.
Áskriftir í áskriftarhluta sem eru á útboðsgengi
og hámarksgengi yfir útboðsgengi verða
samþykktar. Verði umframáskrift í þessum hluta
útboðsins verða áskriftir ekki skertar niður fyrir
100.000 kr. að kaupverði. Leitast verður við
að skerða ekki áskriftir sem eru allt að 2 m.kr.
að kaupverði. Að öðru leyti verður skerðing
hlutfallsleg.
Seljandi áskilur sér rétt til þess að breyta þeim
fjölda hluta sem eru boðnir til sölu í hvorum hluta
útboðsins fyrir sig og til þess að hafna áskriftum
að heild eða í hluta án frekari rökstuðnings.
Gjalddagi og afhending
Greiðsluseðlar verða sendir í netbanka áskrifenda.
Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla er 27. júní
2012. Afhending hluta fer eingöngu fram gegn
greiðslu áskriftarloforða og fer fram 29. júní 2012.
Fyrsti dagur viðskipta í Kauphöll
Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag
með hluti í Regin með eins viðskiptadags
fyrirvara. Fyrsti dagur viðskipta getur í fyrsta
lagi orðið 2. júlí 2012.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsjónar- og söluaðili útboðs
og töku hlutabréfanna til viðskipta
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, Hafnarstræti 5,
3. hæð, 155 Reykjavík, sími 410 7340,
fyrirtaekjaradgjof@landsbankinn.is.
Söluaðili útboðs í tilboðsbók
Markaðsviðskipti Landsbankans, Hafnarstræti 5,
3. hæð, 155 Reykjavík, sími 410 7330,
reginnutbod@landsbankinn.is.
Hlutafjárútboð
í fasteignafélaginu Regin hf.
lýkur í dag
Hlutafjárútboð í Regin hf. fer fram dagana 18. og 19. júní 2012. Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. mun bjóða til sölu 975.000.000
áður útgefna hluti í Regin, sem samsvarar 75% af heildarhlutafé í Regin. Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama verði sem liggja
mun á verðbilinu 8,1-11,9 kr. á hvern hlut í Regin. Söluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 7,9-11,6 ma.kr. Markaðsvirði alls
hlutafjár í Regin miðað við fyrrgreint verðbil er á bilinu 10,5-15,5 ma.kr.
Útboðið er markaðssett á Íslandi. Skilyrði fyrir þátttöku í útboðinu eru að þátttakendur hafi íslenska kennitölu og séu fjárráða.
Útboðið er tvískipt og skiptist í tilboðsbók og áskriftarhluta. Meginmarkmið seljanda með útboðinu er að Reginn uppfylli
skráningarskilyrði Aðalmarkaðar Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár.
Ráðgjafar Landsbankans veita upplýsingar um áskriftarhluta útboðsins í síma 410 4040, fjarmalaradgjof@
landsbankinn.is, kl. 9-20 meðan á útboðinu stendur.
Sótt hefur verið um töku allra hlutabréfa í Regin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin). Seljandi mun
falla frá útboðinu ef eftirspurn verður ekki nægjanleg til þess að Reginn uppfylli skráningarskilyrði Aðalmarkaðar Kauphallarinnar
um dreifingu hlutafjár eða ef ekki næst að selja yfir 50% af heildarhlutafé í Regin í útboðinu. Seljandi hefur ákveðið að halda
eftir 25% eignarhlut í Regin eftir útboðið og hefur skuldbundið sig til þess að selja þann eignarhlut ekki í 10 mánuði eftir töku
hlutabréfa í Regin til viðskipta í Kauphöllinni.
Reginn hefur birt lýsingu sem dagsett er 11. júní 2012. Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar í lýsingunni
áður en þeir taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Regin. Lýsinguna má nálgast á vefsíðu Regins, www.reginn.is.