Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012 Iðnaðarryksugur NT 25/1 Eco Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is NT 55/1 Eco Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. Þegar gerðar eru hámarkskröfur Sjálfvirk hreinsun á síu Forsetakosningar 30. júní 2012 Kjörstaðir í Reykjavík Í Reykjavíkurkjördæmi suður: Í Reykjavíkurkjördæmi norður: Hagaskóli Ráðhús Hlíðaskóli Laugardalshöll Breiðagerðisskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi Ölduselsskóli Borgaskóli Íþróttamiðstöðin Austurbergi Ingunnarskóli Árbæjarskóli Klébergsskóli Ingunnarskóli Kjörfundur hefst laugardaginn 30. júní kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördegi og þar mun talning atkvæða hefjast að loknum kjörfundi kl. 22.00. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur á kjördegi og þar mun talning atkvæða hefjast að loknum kjörfundi kl. 22.00. Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna forsetakosninga 30. júní nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 20. júní nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemdum vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður Skrifstofa borgarstjórnar Leiðsögumenn Þórleif Hjartardóttir og Jón Ingvar Jónsson. Englendingar Ensku hjónin Steve og Dorothy Barker horfa á EM á Íslandi. Göngugarpar Austurrísku hjónin Iris og Helmut Mayer. 30-40 vörubretti, samkvæmt upp- lýsingum frá Ekrunni. Í mörgum tilvikum eru skipin að mestu full- birg af matvörum þegar þau leggja úr heimahöfn, en einnig er algengt að þau láti senda frysti- og þurrgáma með flutningaskipum hingað til lands og vörurnar úr þeim séu hífðar um borð. „Fá sér oft sopa hér“ Olíufélögin segja svipaða sögu. Ekki er algengt að skipin kaupi mikið af svartolíu hérlendis. Þau kaupi hana í öðrum höfnum, „en fá sér oft sopa hér,“ eins og einn við- mælandi komst að orði. Aðallega eru það skip sem halda norður fyr- ir land og áfram til Noregs. Þó sé verið að selja um tvö til þrjú hundruð tonn að meðaltali af svartolíu um borð. Strangar reglur gilda um sorpmeðhöndlun um borð í skipum. Heimildir herma að allt að 50 manns starfi að slíkum mál- um um borð og er flokkun mikil. Auk þess eru í sumum þeirra brennslur þar sem sorpið er notað sem orkugjafi. Samkvæmt upplýsingum frá Gámaþjónustunni, sem þjónustar mörg skipin með sorplosun, kemur nánast allt sorp flokkað í land. Um er að ræða pappír, plast, niðursuðudósir, spilliefni og fleira. Það sem kemur í land og er ekki endurvinnanlegt er brennt, í sam- ræmi við reglur. Sorpið fer því ekki til urðunar hér á landi. Úr meðalskipi koma 2-3 gámar af sorpi, að því er fulltrúi Gámaþjón- ustunnar segir. Morgunblaðið/Júlíus Skemmtun Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica, systurskip Costa Concordia sem strandaði við Ítalíu í janúar, lagðist að Skarfabakka í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.