Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012 Veiðir og eldar bráðina H elgi Mar fæddist í Reykjavík en ólst upp á ættaróðali stórfjölskyldunnar á Ingimarsstöðum á Þórshöfn. Hann var í Grunnskól- anum á Þórshöfn, lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1992, lauk BA-prófi í íslenskum fræðum með fjölmiðla- fræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands 1997, lauk prófum í hag- nýtri fjölmiðlun frá Háskóla Ís- lands 1998 og lauk MBA-prófi frá Schiller International University í Heidelberg í Þýskalandi með al- þjóðaviðskipti sem sérsvið árið 2007. Með brimsalt blóð í æðum Helgi ólst upp við sjóinn á Þórs- höfn, lék sér þar í fjörunni og er með brimsalt blóð í æðum. Hann fór ungur á skak með föður sínum á trillu hans á Þórshöfn, var nokk- ur sumur á handfæraveiðum með föður sínum, auk þess hann réri á humarbátum og var á síldarbátum á sumrin samhliða námi í fram- haldsskóla og háskóla. Helgi Mar Árnason 40 ára Systurnar með sjávarnöfnin Dætur Helga Marar og Írisar. Frá vinstri: Særún, Hafrún Birna og Marín. Þeim stóra landað Helgi Mar í Laxveiði í Laxá í Aðaldal. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Arthur Þór Stef- ánsson verður ní- ræður á morgun, 20. júní. Í tilefni dagsins býður hann vinum og vandamönnum að þiggja veitingar að Hrafnistu í Hafnarfirði í veislusalnum á fimmtu hæð á milli kl. 16 og 18 á afmælisdaginn. 90 ára Árnað heilla Reykjavík Stefán Þórir fæddist 28. ágúst. Hann vó 3.970 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Unnur Björg Stefánsdóttir og Elvar Örn Þórisson. Nýir borgarar Ísafjörður Birkir Hafsteinn fæddist 7. ágúst kl. 18.43. Hann vó 3.468 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Katrín Fríða Þorkelsdóttir og Jón Ólafur Eiríksson. Það er mjög einfalt mál,“ segir Hlöðver Magnússon þegar hanner inntur eftir hvernig hann muni eyða afmælisdeginum, „égverð að heiman“. Hlöðver nær þeim merkisáfanga að verða sjötugur í dag. Hann og kona hans, Ástríður Sveinsdóttir, verða eins og fyrr segir að heiman á afmælinu en þau eru búsett á Selfossi. Hlöðver sinnti löggæslustörfum nánast alla sína starfsævi, „ég starfaði fyrst hjá lögreglunni í höfuðborginni og svo í Árnessýslu“, segir hann. Hlöðver lét af störfum við 65 ára aldurinn, en þá hafði hann unnið sem lögreglumaður í samtals 42 ár. Þegar blaðamaður undrast þennan háa starfsaldur segir Hlöðver hann ekki einsdæmi, „þeir eru nú til nokkrir sem endast þetta lengi“. Aðspurður hvort starfið hafi verið strembið segir hann svo ekki vera, „það fer bara eftir því hvernig menn taka því sem að höndum ber, sjáðu til. Menn geta gert sér það erfitt og geta gert sér það nokkuð létt líka“, segir Hlöðver. „Maður tekur einfaldlega á hverju máli fyrir sig.“ Þegar hann er spurður nánar út neikvæð áhrif starfsins á lög- reglumenn kannast Hlöðver lítið við slíkt, ,,nei, langt í frá. Maður verður alltaf að horfa á björtu hliðarnar, það er algjört skilyrði“. Hlöðver á einn son og tvær dætur, sem öll eru uppkomin. gudrunsoley@mbl.is Hlöðver Magnússon lögreglumaður 70 ára Reynslumikill Hlöðver sem í dag er sjötugur hóf störf hjá lögregl- unni aðeins 23 ára gamall. Samtals starfaði hann við löggæslu í 42 ár. Skilyrði að horfa á björtu hliðarnar Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is                             !  " # $   % &            $   &               $   $%&               $   &      ! "         ## "   '  "         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.