Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012 Intouchables, eða Ósnert-anlegir, er aðsóknarmestakvikmynd Frakklands fráupphafi kvikmyndaaðsókn- armælinga þar í landi, þ.e. af þeim sem ekki er töluð enska í. Hvað veld- ur er ómögulegt að segja en það kemur þó ekki á óvart, þetta er bráð- skemmtileg og falleg mynd sem á sína dramatísku og sorglegu kafla. Aðalleikararnir tveir, þeir Cluzet og Sy, standa sig líka afbragðsvel í býsna ólíkum hlutverkum og myndin er byggð á sannsögulegum atburð- um, sem er líklegt til að auka áhuga fólks á henni og forvitni. Myndin segir af Philippe, auð- manni sem býr í glæsihýsi í París og er lamaður fyrir neðan háls eftir slys og þarf þ.a.l. á umönnun að halda all- an sólarhringinn. Hann auglýsir eftir aðstoðarmanni og sækja margir um. Einn þeirra er Driss, frakkur ungur maður úr einu af fátækrahverfum Parísar með afbrotaferil að baki. Í ljós kemur að Driss hefur engan áhuga á starfinu heldur er hann ein- göngu mættur í viðtalið til að fá eyðublað undirritað fyrir atvinnu- leysissjóð, staðfestingu á því að hann hafi mætt svo hann fái áfram at- vinnuleysisbætur. Driss vekur áhuga Philippe með framhleypni sinni og áhugaleysi og er hann beðinn að mæta aftur næsta morgun, þá fái hann undirskriftina. Driss til mik- illar furðu býður auðmaðurinn hon- um þá starfið og veðjar við hann um að hann muni ekki endast í tvær vik- ur. Annað kemur á daginn, Driss skilar sínu, að vísu með nokkrum mótþróa enda nánast hömlulaus þeg- ar að samskiptum kemur við annað fólk. Driss og Philippe verður vel til vina þótt ólíkir séu, sá fyrrnefndi óheflaður og lífsglaður en sá síð- arnefndi hlédrægur yfirstéttamaður, listunnandi og listaverkasafnari sem syrgir látna eiginkonu sína og fyrra líf. Driss reynist Philippe mikill fengur og þeir njóta lífsins og sam- vista hvor annars, m.a. með því að reykja jónur og fara í nudd hjá föngulegum konum. Margt bráð- fyndið kemur upp á við daglegt amstur þeirra félaga en hvor hefur sína djöfla að draga. Það er fyrst og fremst leikur þeirra Sy og Cluzet sem gerir það að verkum að aldrei er dauður punktur í myndinni. Cluzet sýnir mikil tilþrif í hlutverki hins lamaða fagurkera, leikur auðvitað með andlitinu einu sem hlýtur að vera töluverð áskorun fyrir leikara. Hinn senegalski Sy er frábær í hlutverki Driss og hann leikur heldur betur með öllum lík- amanum, ekki síst þegar hann stígur magnaðan dans við lag Earth, Wind and Fire í afmælisveislu yfirmanns- ins (einhverra hluta vegna kom Ed- die Murphy á sínum bestu árum upp í huga gagnrýnanda þegar Sy var í hvað mestum ham og Cluzet skugga- lega líkur Dustin Hoffman á köflum). En ... þeldökkur afbrotamaður úr fátækrahverfi kennir hvítum og lífs- leiðum yfirstéttabubba að njóta lífs- ins ... kannski finnst einhverjum þetta heldur klisjukennt, móðgandi staðalímyndir jafnvel, að svart og hvítt séu eins og svart og hvítt, hver veit? Nei, þvert á móti held ég að sagan sýni að lífið er ekki svart/hvítt, það er óteljandi blæbrigði af gráum. Og þegar mynd er svona vel leikin og skemmtileg er auðvelt að fyrirgefa klisjur, ef einhverjar eru. Kátir Driss (Omar Sy) og Philippe (François Cluzet) fara á kostum í hlutverkum sínum í Intouchables. Að mati gagn- rýnanda er hér á ferðinni falleg, bráðskemmtileg og mannleg kvikmynd sem óhætt er að mæla með. Heillandi leikur og falleg saga Háskólabíó Intouchables bbbbn Leikstjórar og handritshöfundar: Eric Toledano og Olivier Nakche. Aðalleik- arar: François Cluzet, Omar Sy og Anne Le Ny. Frakkland, 2011. 112 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR „Þetta kom mér vissulega á óvart, en í þessu felst góð hvatning. Þetta mun hjálpa mér að takast á við ný markmið,“ segir Ari Bragi Kárason trompetleikari. Hann hlaut um ný- liðna helgi verðlaun úr Minningar- sjóði Kristjáns Eldjárns gítarleik- ara, en úthlutað var úr sjóðnum í fjórða sinn sl. laugardag á afmæl- isdegi Kristjáns. Ari Bragi er fæddur 1989 og byrj- aði að læra á trompet aðeins níu ára gamall undir handleiðslu föður síns, Kára H. Einarssonar. Hann lauk miðstigi í klassískum trompetleik frá Tónlistarskóla Seltjarnarness árið 2005, útskrifaðist af klassískri braut Tónlistarskóla FÍH 2007 og af djass- og rokkbraut ári síðar. Frá hausti 2008 hefur hann stundað nám við The New School of Jazz and Contemporary Music í New York og lýkur námi þaðan undir lok þessa árs. „Það er mjög mikil áhersla á tónsmíðar í skólanum og á að nem- endur skapi sér sína eigin rödd sem er mjög hvetjandi,“ segir Ari Bragi og tekur fram að hann dreymi um að geta gefið út sína eigin tónlist. Hann muni því sennilega nota verðlauna- féð, sem nemur einni milljón króna, til þess að láta þann draum rætast. Ari Bragi hefur hlotið ýmsar við- urkenningar á ferli sínum. Má þar nefna afreksverðlaunin Maddy Award frá Interlochen-skólanum í Michican 2006 og námsstyrk frá Minningarsjóði Árna Scheving sem hann hlaut fyrstur manna 2008. Hann hlaut í fyrra Íslensku tónlist- arverðlaunin í flokknum „bjartasta vonin“. Ari Bragi hefur komið fram og leikið inn á diska með fjölmörg- um tónlistarmönnum og hljóm- sveitum bæði hér á landi og erlend- is, s.s. Sigur Rós, Bubba Morthens, Hjaltalín, Einari Scheving, Krist- jönu Stefánsdóttur, Ane Brun í Nor- egi og Grizzly Bear í Bandaríkj- unum. Þeir tónlistarmenn sem áður hafa hlotið verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara eru Kristinn H. Árnason gítarleikari (2007), Daníel Bjarnason, hljóm- sveitarstjóri, tónskáld og píanóleik- ari (2009), og Helga Kristbjörg Guð- mundsdóttir harmonikuleikari (2011). silja@mbl.is Þetta er góð hvatning  Ari Bragi Kárason trompetleikari hlaut verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara Gleðistund Unnur Sara Eldjárn, dóttir Kristjáns, afhenti Ara Braga Kára- syni verðlaunin, við hátíðlega athöfn í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is –– Meira fyrir lesendur - nýr auglýsingamiðill ...þú leitar og finnur Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið) Mið 20/6 kl. 19:30 AUKASÝN. Fös 22/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Allra síð.sýn. Þór Breiðfjörð - söngvari ársins! Allra síðasta sýning 23. júní. Afmælisveislan (Kassinn) Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30 Þrenn Grímuverðlaun! Sýningar í september komnar í sölu. Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins (Kassinn) Fös 22/6 kl. 19:30 Aeðins þessi eina sýning! VESALINGARNIR - ÞÓR BREIÐFJÖRÐ, SÖNGVARI ÁRSINS. SÍÐUSTU SÝNINGAR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.