Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012 Haldnir verða tónleikar til styrktar Davíð Erni Arnarssyni og fjöl- skyldu hans í Austurbæ fimmtudag- inn 21. júní kl. 21. Davíð greindist með krabbamein í hálsi í janúar 2008 og hefur síðan barist hetju- lega við þennan erfiða sjúkdóm. Meðal þeirra sem fram munu koma á tónleikunum eru Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens, Sálin hans Jóns míns, Brimkló, Krummi, Dúndurfréttir, Sigga Beinteins, Jón Jónsson, KK, Illgresi, Esther Jökulsdóttir og Guðrún Árný Karlsdóttir. Þeim sem ekki hafa tök á að mæta á tónleikana, en langar að leggja sitt af mörkum, er bent á styrktarreikning: 324-26-171105, kt. 171180-5549. Styrktartónleikar fyrir Davíð Örn Baráttumaður Davíð Örn Arnarsson. Um 300 manns koma að tökum kvikmyndarinnar Oblivion hér á landi, þar af helmingurinn Íslend- ingar, samkvæmt upplýsingum frá fjölmiðlafulltrúa tökuliðsins, Claire Raskind. Í tökuliðinu eru, auk Ís- lendinga, Bandaríkjamenn, Bretar og Pólverjar og munu tökur standa yfir víða um land í tvær vikur. Að sögn Raskind verður um sjö- undi hluti myndarinnar tekinn upp á Íslandi. Fyrirtækið Truenorth þjónustar tökulið myndarinnar hér á landi og hefur undirbúningur fyrir tökurnar staðið yfir í tvo mánuði. Heilmikið umstang er í kringum kvikmyndatökur af þess- ari stærðargráðu og nefnir Raskind að tökulið hafi tekið á leigu alla fjórhjóladrifna jepplinga sem fáanlegir hafi verið á bílaleig- um landsins. Ljóst sé því að töku- liðið muni eyða miklu fé á Íslandi meðan á tökum stendur. Oblivion verður frumsýnd 26. apríl á næsta ári. Morgunblaðið/Júlíus Stjarnan Tom Cruise, aðalleikari myndarinnar, spókaði sig í miðbæ Reykjavíkur um nýliðna helgi ásamt eiginkonu sinni Katie Holmes. 1/7 hluti Oblivion tekinn á Íslandi Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Reaction Intermediate er heiti sumarsýningaraðar Skaftfells, mið- stöðvar myndlistar á Austurlandi, er hófst um helgina. Alls kyns verk, ellefu talsins, verða sett þar upp í sumar. Listamenn eru ýmist bú- settir eða ættaðir frá Austurlandi og einnig taka nokkrir erlendir gestalistamenn, sem dvelja í Skaft- felli í sumar, þátt í sýningunni. „Við auglýstum eftir tillögum frá austfirskum listamönnum sem og þeim sem ætluðu sér að dvelja hér hjá okkur í sumar og fengum ágæt- is viðbrögð. Það má því segja að á einhvern máta séum við að kort- leggja hvað er í gangi í myndlist- inni hér fyrir austan,“ segir Tinna Guðmundsdóttir forstöðukona Skaftfells á Seyðisfirði. Verkin verða sýnd á Vestur- veggnum svokallaða og í Bókabúð- inni og eru afar fjölbreytt að sögn Tinnu, þar af verða tveir gjörn- ingar. „Við ákváðum að hleypa frekar eins mörgum verkum að og við gætum og hafa tíðar skiptingar á þeim í staðinn. Hvert verkefni er því sjaldnast lengur til sýnis en í þrjár vikur. Titill sýningarinnar vís- ar í að við fáum fólk til að vinna hratt en Reaction Intermediate mætti þýðast sem einhvers konar skilyrðislaus viðbrögð.“ Í Skaftfelli munu listamennirnir fá mikið svigrúm. Eitthvað verður um opnar vinnustofur og námskeið og nokkrir ætla sér að einblína á samstarf við bæjarbúa eins og Jap- aninn Takeshi Moro sem býr og starfar í San Fransisco en hann er aðstoðarprófessor í listum og lista- sögu í Santa Clara háskólanum. Á Vesturvegg sýnir hann ljósmyndir sem teknar eru af eftirlætisstöðum nokkurra íbúa Seyðisfjarðar. Þá eru íbúarnir sjálfir alltaf einver hluti af myndinni. „Fólk er að opinbera staðinn sinn og hann verð- ur ekki leyndarmál lengur,“ segir Tinna. Moro og Anna Anders frá Þýskalandi eiga fyrstu verkin á sumarsýningaröðinni en Anders býður upp á nokkur myndbands- verk í Bókabúðinni. „Anna hefur unnið með myndbandsvél frá árinu 1986 og það sem er skemmtilegt við þessi myndbönd er að hún reynir að taka allan söguþráð í burtu þannig að lesendur fá á tilfinn- inguna hvað er að gerast fremur en að vita það nákvæmlega.“ Verk Önnu eru meðal annars sérstök að því leyti að hún notar eina mynd- bandsupptökuvél og aðeins eitt sjónarhorn. Þá hefur hún notað tækifærið og myndað litrík hús á Seyðisfirði meðan á dvöl hennar stendur hérlendis. Dagskránni í Skaftfelli lýkur 16. september en í ágúst verða sjö verk sett upp. Mörg og ólík verk í sumar Skynvillur Stilla úr myndbandsverki Önnu Andersen frá Þýskalandi.  Erlendir og austfirskir lista- menn með sýn- ingar í Skaftfelli LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar INTOUCHABLES Sýnd kl. 8 - 10:20 MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 MADAGASCAR 3 2D Sýnd kl. 4 PROMETHEUS 3D Sýnd kl. 7 - 10 SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 7 -10 THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 4 LEITIN AÐ UPPRUNA OKKAR GÆTI LEITT TIL ENDALOKANNA HHHH “SCOTT TEKST AÐ SKAPA RAFMAGNAÐA STEMNINGU Í PROMETHEUS” -V.J.V., SVARTHOFDI.IS HHHH -ROGER EBERT -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þriðjudagstilboð ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR Þriðjudagstilboð Einstök perla sem er orðin langaðsóknarhæsta mynd allra tíma, af þeim sem eru ekki á ensku. ÍSL TEXTI Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðju dagst ilboð TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS PIRANHA 3DD KL. 8 - 10 16 PROMETHEUS KL. 5.45 - 8 - 10.20 16 SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 12 MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L MADAGASCAR 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L PRIANHA 3D ÓTEXTUÐ KL. 6 - 8 - 10 16 PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16 PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.30 16 PROMETHEUS 2D KL. 8 - 10.30 16 MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10 ÞEIR ERU MÆTTIR AFTUR! TVÖFÖLD SPENNA, TVÖFÖLD HRÆÐSLA OG TVÖFALT MEIRA KJÖT Í 3-DD! STUNDUM ÞARFTU AÐ STÍGA INN Í LÍF ANNARRA, TIL AÐ SJÁ HVAÐ VANTAR Í ÞITT. MYNDIN SEM ER AÐ SLÁ Í GEGN UM ALLAN HEIM! -V.J.V., SVARTHOFDI.IS- ROGER EBERT INTOUCHABLES ÍSL. TEXTI KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 PIRANHA 3D KL. 8 - 10 16 PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16 MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L MIB 3 3D KL. 5.30 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.