Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Póst- og fjarskiptastofnun stefnir að því að halda uppboð á 4G-tíðnisvið- um fyrir árslok, en 4G býður upp á stóraukinn gagnaflutningshraða fyr- ir farsíma og farnet. Þannig muni fólk geta sótt sér mun meira af gögn- um, t.d. sjónvarpsmyndefni. Björn Geirsson, forstöðumaður lögfræði- deildar Pósts- og fjarskiptastofnun- ar, segir að í sumum tilfellum bjóði 4G upp á meiri gagnaflutningshraða en sjáist í fastlínutengingum á borð við ADSL í dag. Björn segir að verið sé að hanna uppboðsskilmálana og að þeir verði kynntir hagsmunaaðilum og almenn- ingi í byrjun haustsins og þá veitt samráð við markaðsaðila. „Þá mun- um við leggja upp línurnar hvernig tíðniheimildum verður skipt upp, hvað þær verða stórar og hvaða kvaðir þeim fylgja, til dæmis varð- andi útbreiðslu. Uppboðsskilmálarn- ir munu því slá tóninn og verða mjög mikilvægir hvað varðar uppbygg- inguna á þessu sviði, hvar þjónustan byggist upp og á hvaða hraða.“ Hann segir að ekki sé búið að taka ákvörð- un um hversu margar tíðniheimildir verði boðnar upp. Tilraunin gengið vel Símafyrirtækið Nova fékk á síð- asta ári tilraunaleyfi frá Póst- og Fjarskiptastofnun til þess að setja upp tilraunakerfi með 4G. Liv Berg- þórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir að tilraunin hafi gengið mjög vel, en fyrirtækið hafi verið með um 200 manns í prófunum á 4G-boxum og -pungum. Farsímar með 4G séu hins vegar ekki komnir. Liv segir að einkum sé horft til Norðurlandanna sem fyrirmynd hvað varði uppbyggingu á 4G-þjón- ustu Nova, en þau séu fremst í flokki við að innleiða hina nýju tækni. Þar sé meira verið að horfa á möguleika 4G netsins fyrir heimili, sumar- bústaði og fólk á ferðinni. Margrét Stefánsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Símans, segir að 4G sé næsta skref í farsímatækni og að Síminn ætli sér að taka fullan þátt í því. „Við fylgjumst mjög vel með því sem er að gerast í nágrannalöndun- um og undirbúum að hefja uppbygg- ingu hér út frá reynslunni þar.“ Kerfið verði síðan byggt jafnt og þétt upp, líkt og gert hafi verið með 3G-þjónustuna. Tíðniheimildir líklega boðnar upp í haust  Símafyrirtæki undirbúa 4G-væðingu Morgunblaðið/Golli Snjallsími Stefnt er að uppboði á 4G-tíðnum fyrir árslok. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég er alveg klár á því að aðra vik- una í ágúst verður brjálaður lundi,“ sagði Sigurgeir Jónasson, ljósmynd- ari og lundaveiðimaður til fjölda ára í Vestmannaeyjum. Hann var ásamt fleirum í Álsey í þrjá daga í síðustu viku að dytta að veiðihúsi Álseyinga. „Það var lundi alla dagana, samt var sólskin og ekkert lundaveður eins og við köllum það þegar er skýj- að, súld, gola og lágþrýstingur,“ sagði Sigurgeir. Þessa daga var gengið vítt og breitt um Álsey. „Lundinn var vel við norðan í eynni en það var enn betra að vest- anverðu. Þetta var eins og í góðu lundaári, bara eðlilegt ástand. Það var lundi á flugi, í brekkunum og á sjónum,“ sagði Sigurgeir. Svona var þetta þrátt fyrir háan loftþrýsting, norðanátt og þurrviðri, sem ekki eru kjöraðstæður. Það þótti næstum því óeðlilegt hvað lundinn var þaulsæt- inn í þessum þyrrkingi. Hann var við allan daginn og fjölgaði mikið í brekkunum á kvöldin. Heima við veiðihúsið er staður sem er kallaður Kamarsklöppin. Þar hefur venjulega setið lundi þegar mikið er af fugli. „Hann hefur ekkert sést þar sem neinu nemur í tvö til þrjú ár en nú taldi ég allt upp í ellefu lunda á klöppinni í einu og þar komast ekki mikið fleiri fyrir,“ sagði Sigurgeir. Í gönguferðunum um eyna sáust þrjár dauðar pysjur. Sigurgeir hafði það eftir manni sem fór í fjölskyldu- ferð í Álsey á laugardag að þá hefði ekki sést nein dauð pysja. Sigurgeir sagði það oft hafa gerst, áður en fár- ið brast í viðkomu lundans, að menn hafi rekist á dauðar pysjur. Sigurgeir fór einnig í Álsey fyrir rúmum þremur vikum. Þá var lund- inn byrjaður að bera glærátu sem nýklaktar pysjur fá að éta. Í síðustu viku var hann kominn með lítil síli. Eyða í gagnasyrpunni Sigurgeir sagði lundaveiðimenn í Vestmannaeyjum hafa tekið fullan þátt í friðun lundans sem sérfræð- ingar lögðu til. Hann sagði eina af- leiðingu friðunarinnar þá að mikil- vægari gagnaöflun væri hætt. „Sérfræðingarnir tapa með þessu heimildum sem þeir hafa getað stól- að á,“ sagði Sigurgeir. „Þeir hafa getað flett upp í dagbókum lunda- kalla til margra tuga ára um veiðina. Þannig hafa þeir fengið samanburð við nútímann. Nú kemur gat í skrán- inguna og engin veiði bókuð í eyj- unum eins og áður.“ Sigurgeir gengur fram hjá Skip- hellum, ofan við Friðarhöfn, yfirleitt fjórum sinnum í viku. Á sunnudag sá hann lunda fljúga ofan við Friðar- hafnarskýlið en enginn lundi hefur komið í brúnir Skiphellanefs í sumar fyrr en nú. Þótt enn horfi vel fyrir lundann benti Sigurgeir á að ekki væri útséð um hvort pysjurnar ná því að verða fleygar. Ritunni virðist ganga betur að koma upp ungum sínum nú en í fyrrasumar. Margir rituungar eru orðnir fleygir og mikið er af stálp- uðum ungum í hreiðrum, að sögn Sigurgeirs. Þá virðist langvíu hafa gengið vel að koma pysjum sínum upp og er fuglinn víðast hvar farinn úr berginu, þótt varpið hafi verið seint á ferðinni. „Okkur lundaveiðimönnum virðist allt vera nær því að vera eðlilegt nú miðað við síðustu þrjú til fjögur árin þegar veruleg óáran var í þessu,“ sagði Sigurgeir um bjargfuglana í Vestmannaeyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Lundi Hér er horft frá Álsey til Heimaeyjar. Mikið af lunda situr uppi eða svífur með brúnum á myndinni sem var tekin í júlí 1993. Sigurgeir ljósmyndari segir ástandið í Álsey nú mun betra en það hefur verið undanfarin sumur. „Þetta var eins og í góðu lundaári“  Reyndur veiðimaður segir að mikið af lunda sé nú í Álsey Skammstöfunin 4G stendur fyrir „Fourth generation“ og merkir því að um fjórðu kynslóð fjarskipta- tækni sé að ræða, á eftir NMT, GSM og UMTS. Innan fjórðu kyn- slóðarinnar etja nú kappi einkum tveir mismunandi fjarskiptastaðl- ar, WiMax og LTE. Virðist sem LTE- staðallinn sé að ná yfirhöndinni í nágrannalöndum okkar. Sú mikla aukning á gagnaflutningshraða sem fylgir 4G má nánast líkja við byltingu, þar sem farsímar og önn- ur tæki sem geta tengst inn á 4G- netið verða nú með hraðari net- tengingu en margar heimilistölvur. Með 4G verður hægt að sækja gögn á hraðanum 20-30 megabæt á sekúndu (Mbps). Til saman- burðar er hraðinn á 3G um 2-3 Mbps og hraðinn á ADSL-kerfum um 10 Mbps. 4G er því um tíu sinn- um hraðara en 3G og þrisvar sinn- um hraðara en ADSL. Tíu sinnum hraðara en 3G 4G FARSÍMATÆKNIN RYÐUR SÉR TIL RÚMS Stæsta lundabyggð í heimi er í Vestmannaeyjum. Stærsta lundavarpið þar er í Álsey þar sem lundabyggðin er um 176.000 m2 og þar voru meira en 210.000 lundaholur, sam- kvæmt talningu sem Erpur S. Hansen og Arnþór Garðarsson gerðu eftir myndum sem teknar voru á árunum 1989-93. Álsey 210.000 LUNDAHOLUR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fiskistofa hefur engar sannanir fyrir því að lax komi í stórum stíl sem meðafli við makrílveiðar. Vitað er að lax slæðist alltaf með. Til- kynningar sjómanna og athuganir veiðieftirlitsmanna sýna að samtals rúmlega 400 laxar komu í flotvörp- ur íslenskra skipa á árunum 2010 og 2011. Orðrómur hefur annað slagið komist á kreik um að uppsjávar- veiðiskipin moki upp laxi við veiðar sínar. Jókst umræðan þegar stór- felldar makrílveiðar hófust hér við land enda fara göngur laxfiska og makríls nokkuð saman, bæði í tíma og rúmi. Veiðiréttareigendur og laxveiðimenn hafa því verið á varð- bergi gagnvart þessu í nokkur ár. Fiskistofa hefur staðið fyrir rannsókn á laxi með meðafla. Á árinu 2010 voru útgerðarmenn beðnir um að senda hausa af löxum sem komu í vörpurnar og á síðustu vertíð var verkefnið útvíkkað og náði einnig til vinnsluskipa. Jafn- framt var eftirlit Fiskistofu aukið með því að eftirlitsmönnum var fjölgað. Lágt hlutfall meðafla Þeir 400 laxar sem fundust í makrílaflanum samsvara 5,5 löxum á hverjar þúsund lestir af makríl og síld. Hlutfallið var heldur hærra seinna árið en það fyrra enda var meira unnið til manneldis það árið. Athuganir Veiðimálastofnunar og Matís á sýnum sem tekin voru úr löxunum á árinu 2010 gefa vís- bendingu um að laxinn er ekki úr íslenskum laxveiðiám, heldur frá Noregi, Bretlandseyjum og öðrum Evrópulöndum. Aðeins um 5% lax- anna voru íslenskir. Hvergi jafngóðar upplýsingar Eyþór Björnsson fiskistofustjóri telur að þessar athuganir gefi ágætar vísbendingar um lax í með- afla og bætir því við að sérfræð- ingar stofnunarinnar fullyrði að hvergi séu til jafngóðar upplýsing- ar um þessi atriði. Athugun Fiskistofu er haldið áfram á yfirstandandi vertíð. Jafn- framt er verið að vinna frekar úr þeim sýnum sem tekin hafa verið. Ekki mikill lax með makrílnum Morgunblaðið/Einar Falur Laxveiðar Íslenskur lax virðist lítið vera að þvælast á veiðislóð makríl- og síldveiðiskipa fyrir austan land. Meira er þar af norskum og skoskum laxi.  Laxinn sem kemur sem meðafli á makrílveiðum er mestallur erlendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.