Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 6
2.000 1.000 0 -1.000 -2.000 -3.000 -4.000 -5.000 Heimild: Hagstofa Íslands. *Á fyrsta ársfjórðungi ætti munurinn að vera 20 og 600 á þeim næsta. Munurinn stafar af því að gögnin eru ófrágengin. Öll úrvinnsla er á ábyrgð blaðamanns. 2008 2009 2010 2011 2012 (1. ársfj.) 2012 (2. ársfj.) Aðfluttir umfram brottflutta: Íslenskir ríkisborgarar alls (-6.307 á tímabilinu) Ísl. ríkisb. til Noregs (-3.490 á tímab.) Íslenskir og erlendir ríkisborgarar samt. (-7.812 á tímab.) Erlendir ríkisborgarar (-1.502 á tímab.) -4 77 -2 .4 66 - 1. 70 3 -1 .3 11-9 1 -1 .2 16 -9 37 -9 36 -1 30 -1 20 -2 20 -1 90 1. 14 4 1. 62 1 -4 .8 35 -2 .3 69 -2 .1 34 -4 31 -1 .4 0 4 -9 3 -6 10 * 15 0 10 * -3 80 Búferlaflutningar eftir efnahagshrunið BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á fyrstu þrem mánuðum ársins flutt- ust hingað 150 íslenskir ríkisborgar- ar frá Noregi eða jafn margir og á næsta ársfjórðungi, samtals 300 á fyrri helmingi ársins. Brottfluttir til Noregs voru talsvert fleiri eða 270 á fyrsta ársfjórðungi og 340 á þeim næsta, samtals 610 á fyrstu sex mán- uðum ársins. Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar til Noregs eru því 310 fleiri en aðfluttir á tímabilinu. Eins og kortið hér fyrir ofan ber með sér hafa nú alls um 7.800 fleiri flutt frá landinu en til þess frá hrun- árinu 2008 og er mikill meirihluti, eða um 6.300, íslenskir ríkisborgar- ar. Undirstrikar það hversu margir erlendir ríkisborgarar sem hingað komu á þensluárunum hafa ákveðið að setjast að á Íslandi og svo hitt að enn vilja margir flytjast hingað. Skýrir þetta tvennt hvers vegna fækkunin frá hruni er ekki meiri. 600 innflytjendur í ársbyrjun Á fyrsta ársfjórðungi var Pólland upprunaland flestra erlendra ríkis- borgara en þaðan fluttust 180 til landsins af alls 600 erlendum inn- flytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 35 erlendir ríkis- borgarar til landsins. Af þeim 450 er- lendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 150 manns, sem þýðir að 150 fleiri er- lendir ríkisborgarar fluttust hingað á fyrsta ársfjórðungi en frá landinu. Viðsnúningur varð á öðrum árs- fjórðungi en af þeim 910 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá land- inu fóru flestir til Póllands, 350 manns. Verður þetta að teljast nokk- uð fjölmennur hópur Pólverja á ekki lengri tíma. Pólland var uppruna- land flestra erlendra ríkisborgara á öðrum ársfjórðungi en þaðan flutt- ust 170 til landsins af 530 erlendum innflytjendum. Á öðrum ársfjórð- ungi ársins fluttu því 380 fleiri er- lendir ríkisborgarar frá landinu en til þess og alls 230 frá ársbyrjun. Um 1.600 erlendir ríkis- borgarar án vinnu í lok júní Alls voru 1.587 erlendir ríkisborg- arar án atvinnu í lok júní, þar af 902 Pólverjar eða um 57% þeirra útlend- inga sem voru á skrá í lok júní. Flest- ir atvinnulausra erlendra ríkisborg- ara voru starfandi í byggingariðnaði eða 235. Þar af voru 1.194 á höfuð- borgarsvæðinu og 393 á landsbyggð- inni, að því er fram kemur í skýrslu Vinnumálastofnunar. Fyrir ári, eða í júní 2011, voru 1.932 erlendir ríkis- borgarar atvinnulausir á Íslandi, þar af 1.426 á höfuðborgarsvæðinu. Straumur til Noregs  Yfir 600 íslenskir ríkisborgarar fluttu til Noregs á fyrri helmingi ársins  Margir Pólverjar fóru frá landinu í vor Morgunblaðið/Valdís Thor Framkvæmdir á Snorrabraut Margir Íslendingar freista enn gæfunnar í Noregi, tæpum fjórum árum eftir efnahagshrunið haustið 2008. Nánast sama tala » Alls voru 1.932 erlendir ríkisborgarar án vinnu í júní 2011, 345 fleiri en í júní í ár. » Brottfluttir erlendir ríkis- borgarar umfram aðflutta voru 230 á fyrri helmingi ársins en í fyrra voru brottfluttir erlendir ríkisborgarar 93 fleiri en að- fluttir. » Frá ársbyrjun 2011 og fram til 30. júní á þessu ári eru brottfluttir erlendir ríkisborg- arar umfram aðflutta því sam- anlagt 323. » Sú tala er nánast jöfn þeirri fækkun sem hefur orðið á at- vinnuleysisskrá hjá þessum hóp á milli ára í júní. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir ólík- legt að hælisleitandinn, sem fór héðan til Bandaríkjanna sem laumufarþegi á bandaríska rann- sóknarskipinu Knorr, verði sendur hingað aftur. Stöð 2 sagði frá því í kvöldfréttum á laugardag að mað- urinn hefði verið færður í umsjá bandarískra yfirvalda þegar skipið lagði að bryggju í Falmouth á austurströndinni en Kristín segir Útlendingastofnun ekki hafa bor- ist tilkynning þar að lútandi. Laumufarþeginn komst um borð í skipið þegar það lá við Mið- bakka í Reykjavík um miðjan mánuðinn og eru sterkar líkur á því að um sé að ræða tvítugan mann sem sótt hefur um hæli á Íslandi en hefur oftar en fjórum sinnum verið staðinn að því að reyna að smygla sér um borð í millilandaskip. Útlendingastofnun barst síðastliðinn miðvikudag fyr- irspurn frá heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna um manninn og var því svarað þannig að maðurinn væri þekktur hér undir því nafni sem hann gaf stofnuninni upp en að uppruni hans hefði ekki verið staðfestur. Hafa viljað til Íslands eftir synjun í Bandaríkjunum Bandaríkin eiga ekki aðild að Dyflinnarreglugerðinni og segir Kristín að sér sé ekki kunnugt um neinar reglur né lög sem skyldi Ísland til að taka aftur við mann- inum. Þá rekur hana ekki minni til, að sú staða hafi komið upp síð- astliðin tíu til fimmtán ár, að bandarísk yfirvöld hafi sóst eftir því að senda hælisleitanda aftur til Íslands. Hún segir að hins vegar hafi það gerst, að hælisleitendur sem hafi fengið synjun í Bandaríkj- unum, hafi óskað eftir því að fá að fara áfram til Íslands. „Þá skoðum við hvort viðkomandi hefur dval- arleyfi á Íslandi eða einhverja stöðu, og ef ekki þá segjum við nei,“ segir Kristín, en ríki taki ekki við fólki nema það hafi dval- arleyfi eða ríkisborgararétt í við- komandi ríki. Litlar líkur á að maðurinn verði sendur til baka  Ekkert heyrt frá Bandaríkjunum Morgunblaðið/G.Rúnar Á brott Ólíklegt er að maðurinn verði sendur aftur til Íslands. Fleiri hafa skráð sig á unglinga- landsmót UMFÍ sem haldið verður á Selfossi um helgina en nokkru sinni. Í hádeginu í gær voru skrán- ingar að nálgast annað þúsundið og ekki búið að ljúka samantekt allra tilkynninga. Kom þetta fram hjá Ástu Stef- ánsdóttur, framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Árborgar, og nefndarmanns í undirbúnings- nefnd, þegar forráðamenn Árborg- ar kynntu fyrirhugað mót á íþrótta- vellinum við Engjaveg. Fram kom hjá Eyþóri Arnalds, formanni bæjarráðs, að búið væri að verja 430 milljónum kr. í upp- byggingu íþróttamannvirkja bæj- arins frá árinu 2009 og sú tala verð- ur komin í tæpar 500 milljónir á næsta ári en þá verður Landsmót UMFÍ haldið á Selfossi. „Þetta eru gríðarlegar fjárhæðir en við teljum að við getum fengið góða ávöxtun af því góða íþrótta- og forvarna- starfi sem unnið er hér,“ er haft eftir Eyþóri á Sunnlenska.is. Keppni á unglingalandsmótinu hefst snemma á föstudagsmorgun en mótið verður sett formlega á aðalvellinum á Selfossi um kvöldið. Margt verður um að vera fyrir ung- menni, ekki aðeins íþróttakeppni. Mótinu lýkur á sunnudagskvöld. Metþátttaka í unglingalandsmóti á Selfossi Þú velur og draumasófinn þinn er klár GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir) Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum Íslensk framleiðsla H Ú S G Ö G N Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is Verslun okkar er opin: Virka daga kl. 9-18 Laugardaga lokað Sunnudaga lokað BaselTorino Lyon Verð áður 342.900 kr Boston-Lux 2H2 Aðeins 205.900 kr *Takmarkað magn Nice 2+Tunga Aðeins 114.900 kr Verð áður 190.900 kr *Takmarkað magn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.