Morgunblaðið - 31.07.2012, Síða 12

Morgunblaðið - 31.07.2012, Síða 12
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það er búið að veiða 104 laxa í Krossá, það hefur því gengið nokk- uð vel því það er 18 löxum meira en á sama tíma í fyrra. Ekki geta margar ár státað af betri veiði nú en í fyrra,“ segir Trausti Bjarna- son bóndi á Á á Skarðsströnd. Veiðitímabilið fór betur af stað en nokkru sinni fyrr í Krossá, með góðum göngum, en síðan hefur róast yfir ánni. „Það gengur alltaf eitthvað, fjórir, fimm á nóttu, en vandamálið er að það er allt að verða vatnslaust. það rignir ekkert hérna,“ segir hann. Síðustu daga höfðu ekki fallið neinir dropar hjá Trausta en hins vegar rignt fyrir sunnan og vestan hann. „Nú hafa rúmlega 250 laxar farið gegnum teljarann og meira ætti að hafa veiðst, en aðstæður eru erf- iðar. Ég var sjálfur við veiðar um helgina en það var 18 til 20 stiga hiti og sól, enda afraksturinn ekki glæsilegur. Við sáum heldur ekki marga af löxunum, þeir troða sér undir bakka við aðstæður sem þessar.“ Ótrúlega gott miðað við … „Þetta verður skrýtið laxveiði- sumar,“ segir Þröstur Elliðason hjá veiðiþjónustunni Strengjum, en hann er meðal annars leigutaki Breiðdalsár, Jöklu og Hrútafjarðarár. Hann segir að vissulega hafi eldri veiðimenn upp- lifað niðursveiflu fyrr, en margir yngri veiðimanna hafi ekki gert það. „Nú hafa um 60 laxar veiðst í Hrútu í mánuðinum sem er bara ótrúlega góð veiði mikið við vatns- skortinn þar í sumar. Það hefur verið rosalega þurrt,“ segir hann en veitt er með þremur stöngum í Hrútafjarðará. „Svo er þokkalegur gangur á Jöklusvæðinu en því er ekki að neita að það er miklu minni veiði í Breiðdalsá en undanfarin sumur. Mest er að veiðast stórlax en smávegis smálax er að slæðast með.“ Undanfarið hafa veiðst átta til níu laxar á dag í Breiðdalsá, eða um einn lax á stöng. Langt í lokatölur „Í morgun var skýjað hérna og þá tók laxinn vel, við fengum fimm í morgun í Hnausastreng, suma grálúsuga og nýgenga, en svo sáum við nokkuð sem ekkert okkar hafði séð áður. Einn laxinn, sem var 86 cm langur, var orðinn nokkuð leg- inn en samt með lús. Hvað veld- ur?“ spyr Steen Johansson, sem er við veiðar í Vatnsdalsá. Steen er margreyndur veiðimaður sem hefur verið búsettur í Noregi um árabil. Hann lætur vel af veiðunum, þrátt fyrir að aðstæður hafi verið frekar erfiðar, og er afar ósáttur við um- mæli fiskifræðings í sjónvarpi í lið- inni viku, en hann spáði áframhald- andi niðursveiflu í laxveiðinni. „Reyndir veiðimenn átta sig á því að náttúran gengur upp og nið- ur, og ef þeir eru geta ekki sætt sig við niðursveiflu, þá eru þeir ekki þess verðugir að njóta upp- sveiflunnar,“ segir Steen. „En að fræðimaður haldi því fram að næsta ár verði verra, án þess að hafa yfirsýn yfir lokatölur þessa árs, getur haft alvarlegar afleið- ingar fyrir fjölda fólks sem hefur lífsviðurværi sitt af laxveiðum hér á landi: bændur, leigutaka, leiðsögumenn, starfsfólk í veiði- húsum og starfsfólk veiðifæraversl- ana. Mér finnst það ábyrgðarleysi að gefa út svona yfirlýsingu, besti laxveiðitíminn er varla hálfnaður og langt í lokatölur. Nei, mér finnst út í hött að koma með sleggjudóma á miðju veiðitímabili. Fiskifræðingurinn ætti að skilja hvaða afleiðingar svona tal getur haft á afkomu fjölda fjölskyldna, “ segir Steen og bendir á að veiðin sé miklu meira en tölur; það sé til- hlökkunin, móttökurnar við ána og veiðifélagarnir, svo eitthvað sé nefnt. „Skrýtið laxveiðisumar“  Betri gangur í Krossá en á sama tíma í fyrra  Þröstur Elliðason segir yngri veiðimenn ekki þekkja niðursveiflu  Veiðimaður gagnrýnir harðlega „sleggjudóma á miðju veiðitímabili“ Lukkuleg Rebekka Guðmundsdóttir veiddi þennan rúmlega átta punda lax í Þverá í Borgarfirði á dögunum. Morgunblaðið/Einar Falur Hnausalax Steen Johansson með lax sem hann veiddi í Vatnsdalsá. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Miðað við síðustu tvö ár er lítið af laxi í ánni, en það hjálpar hvað miklu er sleppt aftur af þeim löxum sem veiðast. Þeir veiðast margir aftur,“ segir Rafn Valur Alfreðsson leigutaki Miðfjarðarár. Hann segir veiðina hafa verið ágæta. Þegar rigndi í síðustu viku komu til að mynda góð skot, með yfir 40 laxa dög- um. „Við kvörtum því ekkert. Í morgun komu upp 15 laxar og 25 í gær; nú hafa um 615 veiðst. En það er lítið af fiski að ganga, hér sem annarsstaðar. Svo er annar hver fiskur sem við veið- um selbitinn eða með netaför- um, sem er mikið áhyggjuefni.“ Lítið af laxi að ganga SELBITNIR Í MIÐFJARÐARÁ Lax Göngur eru sagðar minni í ár. Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum Frí flugubox Krókar fylgja öllum túpum www.frances.is Heimsþekktar flugur atvinnumanna         

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.