Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Hádegisverðartilboð Tvíréttað í hádegi frá 1.890,- Fljót og góð þjónusta Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is ● Daði Kristjánsson, verðbréfamiðlari hjá HF Verðbréfum, telur að krónan sé of sterk sem stendur og að Seðlabanki Íslands ætti að vinna að veikingu henn- ar til að auðvelda afnám gjaldeyrishaft- anna. Segir hann að þetta megi t.d. gera með kaupum á gjaldeyri fyrir pen- inga sem eru prentaðir og þannig megi minnka styrk krónunnar. Þetta kom fram í frétt Bloomberg-fréttaveitunnar um gjaldeyrismál á Íslandi í gær. Frá því er einnig greint að gengið sem Seðlabankinn hafi verið að kaupa evrur á upp á síðkastið hafi hækkað nokkuð og sé núna 246 krónur á evruna miðað við 219 krónur þegar útboðin hófust fyrir ári. Segir að krónan sé of sterk um þessar mundir FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Lánveitingar þýskra banka til jaðar- ríkja evrusvæðisins hafa dregist saman um næstum 20% frá því í árs- byrjun og hafa ekki verið minni frá því árið 2005. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs minnkuðu lánveitingar þýskra banka til Grikklands, Írlands, Ítalíu, Portú- gals og Spánar um 55 milljarða evra og námu samtals 241 milljarði evra, að því er fram kemur í greiningu bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley. Þýskir og franskir bankar hafa á síðustu tveimur árum reynt eftir fremsta megni að draga úr áhættu sinni gagnvart jaðarríkjum mynt- bandalagsins. Nýjustu hagtölur frá Evrópska seðlabankanum og Þýska seðlabankanum gefa hins vegar til kynna að þessi útlánasamdráttur fari nú ört dýpkandi. Lán þýskra banka til Ítalíu drógust til að mynda saman um 25% á fyrstu fimm mánuðum árs- ins borið saman við aðeins 7% sam- drátt á öllu síðasta ári. Óhjákvæmileg aðlögun Á það er bent í frétt Financial Tim- es að þessi þróun endurspegli vax- andi ótta um að hugsanlegt uppbrot evrópska myntbandalagsins muni óhjákvæmilega leiða til gjaldeyris- hafta í þeim ríkjum sem neyðist til að kasta evrunni. Að sama skapi benda sumir sérfræðingar á í þessu sam- hengi að fjármálastofnanir séu undir þrýstingi um að reiða sig í minna mæli á heildsölufjármögnun og auka lánveitingar til raunhagkerfisins í sínum heimaríkjum. Greinandi Morgan Stanley telur aftur á móti þessa þróun óheppilega og niðurstaðan verði að öllum líkind- um hægari efnahagsbati á evrusvæð- inu og aukinn kerfislægur óstöðug- leiki á fjármálamörkuðum. Sú staðreynd að þýskar fjármála- stofnanir hafa nú dregið hratt saman seglin í útlánum til jaðarríkja evru- svæðisins er í samræmi við ábend- ingar Evrópska seðlabankans að í kjölfar fjármálakreppunnar sem skall á haustið 2007 hafi tekið að vinda ofan af þeirri samþættingu sem stóð óslitið yfir á evrópskum fjármálamörkuðum frá upptöku evr- unnar við síðustu aldamót. Greinendur benda hins vegar á að þetta eigi ekki að koma á óvart þótt vissulega verði aðlögunarferlið sem framundan er ekki sársaukalaust. Þá skuldakreppu sem evrusvæðið glímir við um þessar mundir – og ekki sér fyrir endann á – má að hluta rekja til þeirra afleiðinga sem upptaka evr- unnar hafði í för með sér fyrir lán- veitingar þvert á aðildarríki mynt- svæðisins. Aukið innstreymi lánsfjármagns gaf stjórnvöldum, fyr- irtækjum og heimilum á evrusvæð- inu tækifæri til að sækja sér lánsfé á meira og minna sömu kjörum og þýska ríkinu bauðst. Með öðrum orð- um þá gerðu fjármálamarkaðir í raun ekki lengur greinarmun á „góðum“ og „slæmum“ lántaka sem aftur leiddi til sjálfsuppfyllandi spírals: ráðamenn á evrusvæðinu sannfærð- ust um að stofnun myntbandalagsins hefði tekist jafnvel betur en margir höfðu vonast eftir í upphafi – og sú skoðun varð síðan til þess að auka enn á þá taumlausu bjartsýni sem ríkti. Það var engu að síður ljóst, hafa margir hagfræðingar fært rök fyrir, að þetta var ástand sem gat aldrei varað til lengdar. Samtímis þessu óeðlilega árferði á fjármagnsmörkuðum skapaðist gríð- arlegt ójafnvægi innan evrusvæðis- ins þar sem samkeppnishæfni margra jaðarríkjanna fór hratt þverrandi gagnvart Þýskalandi. Kátt í kauphöllum Snarpur útlánasamdráttur til jað- arríkja evrusvæðisins mun auka enn á þann tröllvaxna vanda sem ráða- menn standa frammi fyrir. Samtímis skertu aðgengi að lánsfjármörkuðum munu þær raddir gerast enn hávær- ari að Evrópski seðlabankinn grípi til frekari aðgerða til að stemma stigu við lausafjárþurrð á mörkuðum. Stefnusmiðir bankans munu koma saman til fundar á fimmtudaginn en Mario Draghi, bankastjóri Evrópska seðlabankans, lýsti því yfir með mikl- um þunga í síðustu viku að evran væri komin til að vera og að peninga- málayfirvöld á evrusvæðinu myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að aðstoða skuldahrjáð ríki mynt- bandalagsins. Með þessum hætti telja sérfræðingar á markaði að Draghi hafi opnað fyrir þann mögu- leika að seðlabankinn byrji á ný að kaupa evrópsk ríkisskuldabréf á eft- irmarkaði eða reyni með öðrum hætti að hafa bein áhrif á lántökukostnað jaðarríkjanna. Markaðir hafa blásið í lúðra sína í kjölfar ummæla Draghis. Gengi evr- ópskra hlutabréfa hélt áfram að hækka í gær – þriðja daginn í röð – og ávöxtunarkrafan á spænsk og ítölsk ríkisskuldabréf til tíu ára hefur sömuleiðis lækkað skarpt. Skipti þá engu máli þótt fréttir bærust um að spænska hagkerfið hefði dregist saman um 0,4% á öðrum ársfjórðungi borið saman við 0,3% efnahagssam- drátt á fyrstu þremur mánuðum árs- ins. Vandanum enn slegið á frest? Ef eitthvað er að marka væntingar markaðsaðila þá standa líkur til þess að Evrópski seðlabankinn tilkynni á fimmtudaginn að bankinn sé reiðubúinn að kaupa evrópsk ríkis- skuldabréf af fjármálastofnunum á markaði. Slík aðgerð myndi draga úr vaxtakostnaði evruríkja án þess að til kæmi bein lánveiting frá Evrópska seðlabankanum. Sumir hagfræðingar óttast þó að þetta leiði aðeins til þess að vand- anum verði enn slegið á frest. Bankar og stjórnvöld muni þess í stað freist- ast til þess draga það á langinn að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir til að annars vegar bæta laskaða efnahags- reikninga sína og hins vegar kynna til sögunnar kerfislægar umbætur í efnahagslífinu. Þýskir bankar draga saman seglin AFP Lánsfjárþurrð Þýskir bankar hafa minnkað útlán til jaðarríkjanna um 20%.  Lánveitingar til jaðarríkja evrusvæðisins drógust saman um 20% fyrstu fimm mánuði ársins  Vax- andi ótti um uppbrot evrunnar og gjaldeyrishöft  Samdráttur á Spáni mældist 0,4% á 2. ársfjórðungi 500 400 300 200 100 0 1999 2012 Erlendar lánveitingar þýskra banka (í milljörðum evra) Heimild: Bundesbank, Morgan Stanley og Evrópski seðlabankinn. Írland Portúgal Grikkland Ítalía Spánn                                         !"# $% " &'( )* '$* +,+-,. +/0-12 +,0-33 ,0-004 ,0-004 +3-3// +,2-/, +-..0+ +5,-5+ +15-52 +,+-.1 +/0-5/ +,+-+, ,0-04. ,0-04. +3-5.+ +,1-,3 +-..14 +52-2. +1/-,. ,0/-0.3. +,+-52 +/+-2. +,+-13 ,0-+,1 ,0-+,1 +3-/02 +,1-4, +-../+ +52-5/ +1/-43 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Nýherji tapaði 30 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 14 milljóna króna hagnað á sama tíma fyrir ári. Salan dróst saman um 8% á þessu tímabili og nam 3,7 milljörðum króna. Sé litið til fyrstu sex mánaða árs- ins nam tapið 15 milljónum. Rekst- ur Nýherja móðurfélagsins og TM Software gekk vel en tap var af rekstrinum erlendis, segir í tilkynn- ingu. „Rekstur Nýherja móðurfélags og TM Software ehf. gekk vel og var hagnaður umfram áætlanir. Tap var hins vegar af rekstri Appli- con-félaganna á Íslandi og í Dan- mörku,“ segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í tilkynningu. „Nokkur óvissa er um rekstur er- lendra dótturfélaga, en gert er ráð fyrir að áfram verði góður gangur í innlendum rekstri.“ Eiginfjárhlutfall hefur hækkað úr 26,0% í 28,9% frá áramótum, þar sem efnahagsreikningurinn hefur minnkað. Meðalfjöldi stöðugilda var 522 á fjórðungnum. Nýherji tapaði 30 milljónum króna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.