Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is Hjá Parka færðu flísar í hæsta gæðaflokki frá þekktum Ítölskum framleiðendum Flísar eru stórglæsilegt og endingargott gólfefni, sem auðvelt er að þrífa. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Að minnsta kosti þrír menn biðu bana af völdum felli- bylsins Saola sem gekk yfir Filippseyjar í gær og um helgina. Allt að tvær milljónir íbúða voru án rafmagns í Manila og nágrenni á sunnudag. Piltur svamlar hér í leit að eigum sínum og fjölskyldu sinnar innan um brak hreysa sem eyðilögðust í óveðrinu. AFP Reynir að bjarga eigum sínum Skæður fellibylur gekk yfir Filippseyjar Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Um 200.000 manns flúðu átökin í Aleppo, fjölmennustu borg Sýr- lands, um helgina, að sögn Valerie Amos barónessu, sem stjórnar hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna. Hún sagði að ekki væri vitað hversu margir væru enn í borginni og var- aði við neyðarástandi ef átökunum linnti ekki. Amos sagði að embættismenn Sameinuðu þjóðanna hefðu „miklar áhyggjur af afleiðingum þess að sprengjum, skriðdrekum og öðrum þungavopnum er beitt“ í árásum á íbúðahverfi í Aleppo, Damaskus og fleiri stöðum í Sýrlandi. Margir íbúa Aleppo hefðu leitað skjóls í skólum og öðrum opinberum byggingum. „Fólkið þarfnast tafarlausrar hjálp- ar, matvæla, dýna og teppa, hrein- lætisvarnings og drykkjarvatns,“ sagði Amos. Hermt er að um 125 manns hafi beðið bana í átökunum í Sýrlandi í fyrradag – 46 óbreyttir borgarar, 45 hermenn og 34 uppreisnarmenn. Óttast er að enn meira mannfall verði í Aleppo. Árangursríkur skæruhernaður Sprengjuárásir stjórnarhersins hafa einkum beinst að hverfi í suð- vesturhluta Aleppo þar sem vopn- aðir hópar uppreisnarmanna hafa hreiðrað um sig. Fréttaritari BBC í grennd við borgina, Ian Pannell, segir að hersveitir einræðisstjórnar- innar beiti miklu öflugri vopnum í Aleppo en uppreisnarmenn veiti þeim harða mótspyrnu með árangursríkum skæruhernaði á göt- unum. Uppreisnarmennirnir nota Kal- ashníkov-riffla og létt flugskeyti gegn hersveitum sem beita skrið- drekum, sprengjuvörpum, stór- skotavopnum, árásarþyrlum og her- þotum. Pannell segir að margir uppreisnarmannanna séu bardaga- fúsari en hermennirnir og ef til vill viljugri til að fórna lífi sínu fyrir mál- staðinn en margir þeirra sem hafa verið kvaddir til að gegna herskyldu. Leon Panetta, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði að árás- ir stjórnarhersins á óbreytta borg- ara í Aleppo yrðu Bashar al-Assad Sýrlandsforseta að falli. „Hann tryggir aðeins að stjórn hans hrökkl- ast frá völdum með því að beita eigin þjóð slíku ofbeldi.“ Varað við mikilli neyð í Aleppo  Um 200.000 manns flúðu frá borg- inni  Skortur á mat og drykkjarvatni AFP Skæruhernaður Uppreisnarmaður með flugskeyti í Aleppo. Sýrlenskur herforingi, sem gekk til liðs við uppreisnar- mennina, spáir einræðisstjórninni falli á næstu tveim- ur mánuðum og segir að hernaðarvél hennar sé að hruni komin vegna minnkandi baráttuvilja hermanna og erfiðleika við að sjá þeim fyrir mat og eldsneyti. „Bensínið er næstum uppurið,“ hefur breska blaðið The Guardian eftir herforingjanum Mohammad Al- Zobi. „Þeir eru að verða uppiskroppa með eldflaugar. Það er varla til brauð eða vatn handa hermönnunum.“ Um 100 herforingjar hafa gengið til liðs við upp- reisnarmennina vegna óánægju með blóðsúthelling- arnar. Þverrandi baráttuvilji SEGIR STJÓRNARHERINN AÐ HRUNI KOMINN Stjórnarhermenn í Damaskus. Traian Basescu, forseti Rúmeníu, komst hjá ákæru til embættismissis í gær þegar skýrt var frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla um málið væri ógild vegna ónógrar kjörsókn- ar. Um 87,5% þeirra, sem greiddu atkvæði, studdu ákæru á hendur for- setanum til embættismissis og að- eins 11,2% greiddu atkvæði gegn henni. Basescu hafði í fyrstu hvatt kjósendur til að greiða atkvæði gegn tillögunni en síðar beðið stuðnings- menn sína um að sniðganga at- kvæðagreiðsluna. Yfirkjörstjórn Rúmeníu sagði í gær að kjörsóknin hefði verið rúm 46%, en hún þurfti að vera yfir 50% til að atkvæðagreiðslan teldist gild. Basescu fagnaði niðurstöðunni og sagði að þorri kjósendanna hefði „hafnað valdaráni“ með því að taka ekki þátt í atkvæðagreiðslunni. Erkióvinur forsetans, Victor Ponta forsætisráðherra, kvaðst ætla að virða niðurstöðuna og ekki beita sér frekar fyrir því að Basescu yrði vikið úr embætti. Áður hafði Ponta sagt að ríkisstjórnin gæti ekki unnið með forsetanum sem væri rúinn trausti. Basescu var fyrst kjörinn forseti árið 2004 og beitti sér fyrir inngöngu Rúmeníu í Evrópusambandið fyrir fimm árum. Hann naut stuðnings hægri- og miðjumanna, var einn af vinsælustu stjórnmálamönnum landsins en fylgi hans hrundi, eink- um vegna sparnaðaraðgerða sem hann knúði fram árið 2010 skv. sam- komulagi við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Vinnubrögð beggja gagnrýnd Átökin milli forsætisráðherrans og Basescus hófust þegar Ponta myndaði ríkisstjórn vinstri- og mið- flokka eftir að hægristjórn var felld í vantraustsatkvæðagreiðslu á þingi Rúmeníu í maí. Ponta og bandamenn hans sögðust vilja koma Basescu frá til að verja réttarríkið og sökuðu for- setann um að hafa tekið sér meiri völd en stjórnarskráin kvæði á um að hann hefði. Evrópusambandið og Bandaríkjastjórn gagnrýndu hins vegar tilraun stjórnarinnar til að koma forsetanum frá og hún var sök- uð um að virða lýðræðisleg grunn- gildi að vettugi. bogi@mbl.is Forsetinn komst hjá embættissviptingu  Of lítil kjörsókn  87% þeirra sem kusu lögðust gegn Basescu AFP Umdeildur Traian Basescu með „lýðræðiskyndilinn“ í Búkarest. Yfirvöld í Hong Kong segjast hafa náð góðum árangri í að hefta út- breiðslu apa í borginni með því m.a. að gera þá ófrjóa. Embættismenn segja að öpunum hafi fækkað um 15% á fjórum árum, eða úr 2.320 ár- ið 2008 í 1.965 í fyrra. Villtir apar þykja mikil plága í Hong Kong, þeir eiga það til að áreita íbúana og elta fólk í von um að verða sér úti um mat. Ýmislegt hefur verið reynt til að stemma stigu við apaplágunni, t.d. varðar það háum sektum að gefa öpunum að éta, auk ófrjósemisaðgerðanna. AFP Apar gerðir ófrjóir til að fækka þeim

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.