Morgunblaðið - 31.07.2012, Page 21

Morgunblaðið - 31.07.2012, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 ✝ Bragi VestmarBjörnsson fæddist á Sjónarhóli í Hafnarfirði 18. júní 1929. Hann lést á heimili sínu 23. júlí 2012. Foreldrar Braga voru Guðbjörg Jónsdóttir, f 20.1. 1894, d. 21.11. 1993, og Björn Eiríksson, f. 9.9. 1894, d. 7.5. 1983. Systkini Braga voru: Bjarni Vestmar, f. 14.11. 1925, d. 27.12. 1986, Bára, f. 16.5. 1927, d. 9.5. 2006, Jón Boði, f. 4.12. 1931, Birgir, f. 22.2. 1935, d. 2.9. 2011, og Guðlaug Berglind, f. 21.2. 1937. Eiginkona Braga var Erna Guðmundsdóttir, f. í Reykjavík 5.6. 1930, d 12.7. 1996. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guð- mundsson, f. 20.11. 1898, d. 25.2. 1982, og kona hans Halldóra Danivalsdóttir, f. 9.8. 1909, d. 7.3. 1999. Börn Braga og Ernu eru: 1) Guðbjörg Birna, f. 3.11. 1946, gift Rafni Þ. Eggertssyni, skilin. Syn- ir þeirra eru 1) Eggert, barns- móðir Fjóla Sigurðardóttir. Dótt- ir þeirra er Angela. Barnsmóðir Alda J.S. Stangeland, d. 2005. Sonur þeirra Daníel. 2) Örn. Seinni maður Guðbjargar er Rolf A. Larsen. 2) Harpa, f. 4.8. 1950, gift Sigurði Knútssyni, skilin. Synir þeirra eru 1) Bragi, sam- býliskona Ellen Tryggvadóttir. Þau slitu samvistir. Sonur þeirra kvæntur Guðrúnu Hallgríms- dóttur. Synir þeirra eru Atli, sambýliskona Svala Ingiberts- dóttir, dóttir þeirra er Þórey, Bjarni, Björn og Ari. Árið 1999 kynntist Bragi Önnu Luckas, f. í Þýskalandi 16.3. 1940, og hafa þau verið lífs- förunautar síðan. Börn Önnu eru 1) Karl Udo Luckas, f. 1965, kvæntur Rósu L. Thorarensen, börn þeirra eru Arnór, Svava og Ástrós. 2) Claudia M. Luckas, f. 1966, gift Þórði Bachmann, synir þeirra eru Steinar, sambýliskona Kristín Hansdóttir, Atli og Hilm- ir. 3) Frank D. Luckas, f. 1968, kvæntur Gígju Magnúsdóttur, dætur þeirra eru Anna og Katla. Bragi lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1946 og meira fiski- mannaprófi frá Stýrimannaskól- anum 1950. Var stýrimaður og skipstjóri á ýmsum fiskiskipum til 1968. Var skipstjóri og leið- beinandi í meðferð Asdic-tækja í Skotlandi 1968-1970. Eftir að hann fluttist aftur til Íslands starfaði hann hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð, Þörungavinnslunni á Reykhólum, Icedan og Viking og lauk þar starfsævi 75 ára að aldri. Bragi var áhugamaður um hesta, brids og hljóðfæraleik en hann spilaði sjálfur á harm- onikku og orgel frá unga aldri. Hann stundaði útivist, sund og hjólreiðar og ferðaðist síðari ár víða um heim. Bragi lét að sér kveða í ýmsum málefnum, var virkur í félagsstarfi s.s. hjá Al- þýðubandalaginu og félagsstarfi Þroskahjálpar þar sem hann spil- aði oftar en ekki á ýmsum uppá- komum. Útför Braga fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 31. júlí 2012, kl. 15. er Esra. Bragi er kvæntur Hyacinth Robinson. Sonur þeirra er Alexand- er. 2) Knútur Á. kvæntur Nönnu Þ. Árnadóttur, skilin. Börn þeirra eru Sig- urður, barnsmóðir hans Kristjana Haf- steinsdóttir, þeirra sonur er Elías. Guð- björg, Óliver. 3) Jó- hannes, d. 2003. Kona hans Val- eria C. Sathler. Dóttir þeirra er Jasmín. 3) Þóra f. 18.9. 1953, gift Hafsteini Ólafssyni. Börn þeirra eru 1) Hrafnhildur, gift Friðriki Árnasyni. Börn þeirra eru Sindri, Logi og Emilía Glóð. 2) Brynhildur, gift Árna K. Magn- ússyni. Börn þeirra eru Magnús, Þórarinn, Valdimar, Hallveig, Þóra. 3) Hanna, gift Sigurði J. Sigurðssyni, skilin. Börn þeirra eru Sesselja, Patrekur og Benja- mín. 4) Jónas, sambýliskona Dagný V. Einarsdóttir. 4) Geir, f. 22.3. 1955, kvæntur Sigríði Þórs- dóttur, skilin. Synir þeirra eru 1) Ingvar, kvæntur Söru Watkins- Geirsson. Sonur þeirra er Jagg- er. 2) Eyvar. Kvæntur Antoníu Guðnadóttur, skilin. Börn þeirra eru Perla, Guðni, Ísar. Seinni kona Geirs var Elísabet M. Ást- valdsdóttir, þau skildu. 5) Erna Dóra Bragadóttir f. 5.6. 1957, gift Arnfinn Johnsen. Börn þeirra eru Nína og Brynjar. Guð- mundur Ýmir, f. 4.7. 1961, Elsku pabbi minn, mig brest- ur orð þegar ég vil þakka þér fyrir lífið sem þú gafst mér á þínum unglingsárum. Minning- arnar streyma svo hratt og eru svo margar; lítil telpa að fara með pabba sínum í róður. Við gengum niður að höfn, við Nýju Bílastöðina stóðu nokkrir skrýtnir karlar og ég fann hvernig hönd þín tók þétt og hlýtt um mína litlu. Öryggi fyllti mig. Sögulistin þín gerði hverja sögu að ævintýrastund. Hvern- ig þú kenndir mér að tefla. Spilagleði þín, sem ég hef notið allt mitt líf, og gladdir alla með, nú síðast bara fyrir nokkrum dögum. Ég þekki engan annan sem sest við píanóið og byrjar að æfa Bach hátt á áttræðis- aldri. Þar sem við manneskjur áttum erfitt með að tala saman dróst þú með framkomu þinni og hljóðfæri fram samhug og gleði. Samræður okkar um „stóru málin“ þar sem við vor- um ekki alltaf sammála ein- kenndust af gagnkvæmri virð- ingu. Fjallageitin pabbi minn: „Við skreppum hér upp á Laka.“ Ferðirnar með þér og Önnu þar sem við Rolf upplifð- um framandi menningu og sam- an nutum sólar og hita. Það dýrmætasta sem þú gafst mér samt eru viðhorf um frjálsa hugsun, um réttlæti, heilindi og það góða í manneskjunni. Ég veit að í huga mínum munum við halda áfram samræðum okkar, því minningarnar eru svo sterk- ar. Við öll sem höfum fengið að vera samferða þér og njóta sam- fylgdar þinnar höfum svo mikið að þakka fyrir og þín verður sárt saknað. Bless, pabbi minn. Guðbjörg Birna. Kveðjustund. Að kveðja pabba er ótrúlega erfitt. Hann var svo gefandi og lifandi per- sónuleiki. Alltaf til staðar fyrir okkur öll, jafnt á erfiðum stundum sem gleðistundum. Sögurnar hans og músíkin eiga eftir að lifa með okkur og með börnum og barnabörnum okkar allra. Gönguferðirnar ógleyman- legar, t.d. þegar við gengum á Keili og seinna á Laka, einnig gengum við oft á Helgafell og þá með börnin sem voru orðin fær um slíkar göngur og sum voru nú bara sett á háhest. Margar voru útilegurnar líka, alltaf jafngaman. Pabbi þreyttist aldrei á að segja okkur frá og benda á markverða staði enda mikill sögumaður og hafði gam- an af að vera úti í náttúrunni. Já minningarnar eru margar um gleðistundirnar sem við átt- um öll saman, pabbi spilandi á harmonikkuna sína eða á píanó- ið. Hann spilaði mest eftir eyr- anu og héldum við lengi vel að hann kynni ekki að lesa nótur, sem var auðvitað ekki rétt en hann þurfti þær bara ekki nema hann væri að spila lög sem hann þekkti ekki mjög vel. Að spila eftir nótum fór hann að æfa eftir að hann var kominn yfir 75 árin. Elsku pabbi, þín er svo sárt saknað og þú skilur eftir þig svo óendanlega mikið. Síðustu vikur voru þér erfið- ar en alltaf vildir þú fara fram og hitta þá sem komu til að heilsa upp á þig. Að sjá börnin sem komu og kúrðu sig upp að þér með tárin í augunum sagði meira en nokkur orð um hvað þau elskuðu þig mikið. Þegar ég var sjálf barn fannst mér að öll börn ættu að eiga slíkan föður og finnst það enn. Pabba sem spilaði við okkur og lék, sagði sögur og fór með okkur í sundlaugina og göngu- túra. Sem sjómaður, sem oft var lengi að heiman, tókst þér að bæta okkur upp tímann sem þú varst fjarverandi með svo mik- illi nálægð þegar þú varst heima. Alltaf varst þú kletturinn sem við treystum á og brást aldrei. Takk pabbi fyrir allt sem þú hefur verið mér og mínum. Elsku Anna og fjölskylda, ykkur þakka ég fyrir árin sem pabbi átti með ykkur, það er ekki sjálfgefið að kynnast fjöl- skyldu sem ykkar, enda voruð þið öll honum óendanlega mikils virði. Harpa. Hafið bláa hafið hugann dregur Hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur Bíða mín þar æsku draumalönd (Örn Arnarson) Aðfangadagskvöld á Sjónar- hól, börnin syngjandi í hurðinni, Bragi þenur orgelið hennar ömmu af lífskrafti og gleði, rest- in af fullorðna fólkinu situr í stofunni og horfir á með hrifn- ingu. Jólasveinarnir koma með epli í poka, dansað í kringum jólatréð. Þetta var Sjónarhóls- gengið samankomið í höfuð- stöðvunum. Seinna meir var sumarhitt- ingur tekinn upp, grillað, faðm- ast og kysst og auðvitað var harmonikkan miðpunktur gleð- innar og söngsins. Jólahitting- ur fjölskyldunnar færðist úr stað, harmonikkan alltaf með í för og enn komu jólasveinarnir með pokann sinn að gauka að þeim yngstu. Síðustu jól voru engin undantekning, Sjónar- hólsgengið samankomið og nú á nýjum Sjónarhól, margra sakn- að, nýir meðlimir innlimaðir með faðmlögum og kossum og harmonikkuspilarinn gladdi okkur í sitt síðasta sinn. Stolt- ur, lúinn, með blik í augum, horfði yfir hóp afkomenda for- eldra sinna, hlýr og glaður. Nú er gleðigjafinn okkar all- ur og það verður erfitt að fylla hans skarð á hittingum Sjónar- hólsfjölskyldunnar. Óþreytandi hafði hann það af að kenna okk- ur „Hafið bláa hafið“, sem er orðið ómissandi á öllum stund- um, bæði í gleði og sorg. Alltaf var faðmur hans opinn, ekki síst fyrir börnin, sem löðuðst að honum, enda var hann hafsjór af sögum og ævintýrum, og með ráð undir rifi hverju fyrir ung- lingana og nýbakaða foreldra. Talandi um Sjónarhólshitt- ing er ekki hægt annað en að minnast lítillega á þá Sjónar- hólsbræður, Braga, Boða og Birgi, sem voru oft á tíðum mið- punktur ærsla og gleði þegar fjölskyldan kom saman og allir skipstjórar í eðli sínu. Í gegnum tíðina hafa samskipti þeirra verið mjög litrík enda lífsskoð- anir þeirra mjög ólíkar. Bragi og Birgir voru aldrei sammála þegar pólitík bar á góma, þá var betra að halda sig til hlés, en fyrirgefning, faðmlag, kossar og stök tár breiddu yfir allt sem sagt hafði verið og voru þeir sammála um að vera ósammála í þeim efnum. Yndislegt í raun að fá að upplifa svona sterka karaktera og svona miklar til- finningar og ást. Ómetanleg gjöf að deila til komandi kyn- slóða. Samheldni og vinátta þeirra Sjónarhólssystkina var mikil og góð, t.d. hafa þau haldið upp á giftingardag foreldra sinna í mörg ár með því að hittast ásamt mökum sínum og borða saman, nú eru þau Boði og Gulla ein eftir. Við kveðjum í dag með mikl- um söknuði og þakklæti Braga Vestmar Björnsson, sem svífur seglum þöndum, svífur burt frá ströndum, fyrir stafni er haf og himinninn. Inga, Magnús, Sólveig, Laufey og fjölskyldur. Bragi Vestmar Björnsson ✝ Jósef HelgiHelgason fædd- ist á Patreksfirði 15.10. 1941. Hann lést á Landspít- alanum 22.7. 2012. Foreldrar Jósefs voru Helgi Gestsson húsasmíðameistari, f. á Saurbæ í Rauða- sandshreppi, og Sig- ríður Ingveldur Brynjólfsdóttir hús- móðir, f. á Þingeyri í Dýrafirði. Systkini Jósefs: Ingibergur Gest- ur, f. 9.4. 1939, d. 9.4. 2002, Sigríð- ur Bryndís, f. 23.5. 1940, Jónína Þóra, f. 16.7. 1946, d. 15.9. 1992, Hrönn, f. 31.1. 1949, Einar, f. 3.10. 1950, og Kristrún, f. 11.2. 1960. Jósef ólst upp á Patreksfirði fyrstu árin en flutti síðan til Reykjavíkur. Hann var við nám í Heyrn- leysingjaskólanum frá fimm ára til 16 ára aldurs. Jósef vann við fiskvinnslu bæði á Patreksfirði, Þingeyri og suður með sjó sem ungur maður og var eft- irsóttur flakari. Jósef vann hjá föður sínum við húsasmíðar og í mörg ár hjá húsgagnaframleið- anda. Útför Jósefs fer fram í Foss- vogskirkju í dag, þriðjudaginn 31. júlí 2012, kl. 13. Jósep, vinur minn til margra ára, lést á sjötugasta aldursári eftir erfið veikindi. Við fráfall hans hefur margt leitað á hug- ann. Minningar frá veru okkar við Heyrnleysingjaskólann eða Málleysingjaskólann í Stakkholti, eins og hann hét þá, streyma fram. Eftir að hafa sjálf stundað nám við skólann starfaði ég um árabil við skólann og kom m.a. að umönnun yngri nemenda í heimavist skólans. Fyrstu kynni mín af Jósep tengdust heimahög- um okkar beggja. Brandur Jóns- son skólastjóri treysti mér fyrir Jósep, sem hann þurfti að koma einum heim til foreldra sinna á Patreksfirði, en þá var ég á leið með strandferðaskipi heim í Ön- undarfjörð. Þrátt fyrir að hafa varla slitið barnsskónum sjálf gekk þetta allt vel. Jósep var þá lítill drengur og mér er í minni hvað hann var ljúfur og skemmti- legur. Það voru persónueinkenni sem fylgdu honum alla tíð. Síðar fluttist fjölskylda Jóseps suður til Reykjavíkur og bjó Jós- ep lengi vel í foreldrahúsum. Faðir hans var húsasmíðameist- ari og starfaði Jósep við trésmíð- ar með föður sínum í fjölda ára. Hann var vinnusamur og starfaði síðar við fiskverkun og hús- gagnasmíðar í fjölda ára. Kynni okkar Jóseps og jafn- aldra hans áttu eftir að verða nánari. Heyrnarlausir áttu með sér samfélag sem leiddi til stofn- unar Félags heyrnarlausra og fór starfsemin í fyrstu fram á heim- ilum okkar sem réðum yfir stóru húsnæði. Það var ekkert tiltöku- mál að fjölga stólum og baka langt fram á nótt kvöldið áður en fundir voru haldnir, eftirvænting- in eftir að hitta félagana var mik- il og fjölskyldan tók þátt í því. Fundirnir, sem Jósep var dugleg- ur að sækja, stóðu oft langt fram á nótt og gott kaffimeðlæti var nauðsynlegt. Í dag þykja það sjálfsögð mannréttindi að aka bíl en árið 1964 fengu heyrnarlausir leyfi til að aka bíl eftir mikla baráttu. Okkar góði skólastjóri, Brandur Jónsson, var þar fremstur í flokki og kunnum við honum miklar þakkir fyrir. Fyrst fór kennslan fram heima hjá okkur hjónum, að beiðni Brands. Guðmundur, mað- urinn minn fór yfir bóklega þátt- inn með okkur, túlkaði allt og út- skýrði og túlkaði svo fyrir okkur í bílprófinu sjálfu. Það fóru marg- ar helgar og kvöld í námið og börnin okkar fylgdust spennt með árangrinum. Jósep vinur okkar var einn af þeim mörgu sem notfærðu sér að fá réttindi til að aka bíl. Fyrir heyrnarlausa á þessum tíma, þar sem engin hjálpartæki; símar eða tölvur auðvelduðu samskiptin, fylgdi bíl- prófinu mikið sjálfstæði og frelsi. Þetta vissi Brandur og hann fylgdi málinu stíft eftir við yf- irvöld. Eftir lát Jóseps hittumst við nánir vinir hans og minnt- umst hans. Hann hafði góða mannkosti til að bera, var ætíð ljúfur og spaugsamur og féll vel inn í hópinn. Við þökkum góða samfylgd sem aldrei bar skugga á. Við Guðmundur vottum að- standendum samúð okkar. Bless- uð sé minning hans. Hervör Guðjónsdóttir. Jósef Helgi Helgason Við fráfall Drafn- ar Sigurgeirsdóttur í Hvammi er ein af okkar mestu blómakonum í fyrrum Mosfellssveit og síðar Mosfellsbæ horfin á braut. Ásamt Helga Ólafssyni eigin- manni sínum, lagði hún af stað með viðamikla blómarækt í Hvammi á sínum tíma. Þau byggðu upp fallega gróðrarstöð í fögru umhverfi og varð blóma- framleiðsla þeirra þekkt bæði hér í Mosfellsbæ og nágranna- byggðum. Heimili þeirra hefur ávallt ver- ið með afbrigðum fallegt og hlý- legt, sundlaug í garði, að sjálf- sögðu blóm í hverju horni og öllu Dröfn Sigurgeirsdóttir ✝ Dröfn Sigur-geirsdóttir fæddist í Reykjavík 19. júní 1942. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 7. júlí 2012. Útför Drafnar fór fram frá Lága- fellskirkju 19. júlí 2012. þessu fylgdi gest- risni og vinátta í allra garð. Dröfn var kát og skemmti- leg kona, hún hafði mjög gaman af ferðalögum og minnist ég þeirra hjóna í ferðahóp á Sikiley og víðar um heim á sínum tíma, en flestar ferðir lágu til Playa del Ingles á Kanaríeyjum þar sem glatt var á hjalla í góðum hóp alla daga. Í Hvamm til Drafnar og Helga var ávallt gott að koma, þar ólu þau upp börnin sín, ræktuðu blómin og þar var vinátta og gest- risni í hávegum höfð. – Jarðarför Drafnar fór fram að viðstöddu miklu fjölmenni hér í Mosfellsbæ í síðustu viku og þar mættu fjöl- margir ferðafélagar og vinir þeirra hjóna. Við fráfall þessarar góðu vinkonu okkar er Helga, börnum og fjölskyldum sendar innilegar samúðarkveðjur. Gylfi og Elfa, Mosfellsbæ. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI SÆVAR ÞÓRÐARSON, Arnarhrauni 34, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 24. júlí, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 2. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Ásta Ágústsdóttir, Ágúst Helgason, Erika Johnson, Hulda Sigurveig Helgadóttir, Þröstur Ásgeirsson, Örvar Helgason, Þóra Helgadóttir, barnabörn og langafabarn. ✝ Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, GUÐNÝ BERGSDÓTTIR fyrrv. blaðamaður, frá Akureyri, Kong Georgsvej 110, Kaupmannahöfn, lést á heimili sínu miðvikudaginn 25. júlí. Jarðað verður í kyrrþey í Kaupmannahöfn að ósk hinnar látnu. Guðmundur Bergsson, Þórunn Bergsdóttir, Guðrún Bergsdóttir, Bergur Bergsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.