Morgunblaðið - 31.07.2012, Side 22

Morgunblaðið - 31.07.2012, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 ✝ Hallvarður Sig-urður Guð- laugsson fæddist á Búðum í Hlöðuvík á Hornströndum 16. október 1919 og ólst þar upp. Hann lést í faðmi barna- barna sinna mið- vikudaginn 18. júlí sl. Hallvarður var sonur hjónanna Ingibjargar Guðnadóttur, f. 18.4. 1888 í Hælavík, d. 6.2. 1970 í Reykjavík og Guðlaugs Hall- varðssonar f. 5.7. 1886 í Skjald- bjarnarvík í Árneshreppi, d. 2.3. 1941 í Hlöðuvík. Systkinahóp- urinn var fjölmennur og voru þau í aldursröð: Þórleifur Bjarnason hálfbróðir, sam- mæðra f. 30.1. 1908, d. 22.9. 1981; Einar Guðmundur f. 3.10. 1916, d. 3.10. 2000; Bergmundur, f. 12.3. 1918, d. 10.4. 1990; Guð- laug Kristjana, f. 23.12. 1920, d. 12.9. 2004; Ólafur, f. 28.11. 1922; Magnús, f. 29.1. 1924, d. 22.12. 1998 og Sigrún, f. 4.6. 1925, d.2.3.2012. Ungur fór Hallvarður til Hest- eyrar og var í fyrstu smali og gekk þar í barnaskóla. 17 ára gamall sneri hann aftur á æsku- félagssýn. Árið 1946 kynntist Hallvarður lífsförunauti sínum, Lilju Guðvöru Guðmundsóttur, og hófu þau búskap fyrst í Hafn- arfirði þar sem frumburðurinn og einkasonurinn Guðmundur Jóhann fæddist þ. 26. janúar 1947. Árið 1956 fluttust ungu hjónin í nýtt hús sem Hallvarður byggði að Hófgerði 1 í Kópavogi og voru þau ein af frumbyggjum þessa ört vaxandi bæjarfélags. Það var kraftur í Hallvarði á þessum árum því hann lét ekki staðar numið og byggði með öðr- um hjónum tvíbýlishús að Auð- brekku 21 þar sem þau bjuggu um nokkurra ára skeið uns hann byggði þriðja húsið og nú mynd- arlegt einbýlishús að Furugrund 12 þar sem hann bjó til dauða- dags. Guðmundur einkasonur Hallvarðar og Lilju giftist Önnu Margréti Jónsdóttur árið 1986, en Anna Margrét er dóttir hjónanna Jóns Þórðarsonar frá Borgarholti í Miklaholtshreppi og Þórunnar Elfu Magnúsdóttur rithöfundar, en þau eru bæði lát- in. Með hjónabandi Guðmundar og Önnu komu barnabörnin til sögunnar. Fyrst var það Lilja Dögg þ. 9. júlí 1986, maki Elvar Már Ólafsson, en þau eignuðust dreng viku eftir dauða Hall- varðar, síðan kom nafni Hall- varðar, Hallvarður Jón þ. 7. ágúst 1989 og loks Elfa Rún þ. 3. nóvember 1994. Útförin fer fram frá Digraneskirkju í dag, þriðjudag- inn 31. júlí 2012 kl. 11. slóðirnar í Hlöðuvík og Hælavík. Árið 1941 fluttist Hall- varður til Reykja- víkur og starfaði við ýmis störf. Hann var virkur í Skíða- deild Ármanns og vann mikið og gott starf í að byggja skíðaskála félagsins í Jósepsdal sem leiddi til að Hall- varður komst á námssamning í trésmíði árið 1945 hjá Gissuri Símonarsyni. Að loknu námi starfaði hann við smíðar uns hann gerðist árið 1966 um- svifamikill byggingarmeistari á Stór-Reykjavíkursvæðinu og kom hann að byggingu margra stórhýsa. Segja má að starfsferli hans hafi lokið með byggingu Digraneskirkju, þá kominn vel á áttræðis aldur. Eftir að Hall- varður útskrifast sem trésmiður 1949 og fram til ársins 1966, er hann gerist byggingameistari, var hann virkur í Trésmiða- félagi Reykjavíkur, í trúnaðar- ráði og í verðskrárnefnd tré- smiða, sem hann veitti formennsku í mörg ár. Hall- varður var einnig virkur í stjórn- málum og hafði róttæka þjóð- Elsku pabbi minn. Þessi enda- lok voru virkilega snöggt bað, en vissulega þinn stíll. Þegar þú ákveður að nú sé nóg komið og tímabært að ljúka þessu og gefur um leið öllu lækna- og spítalak- jaftæði langt nef. Fyrir þig var þetta eflaust besta leiðin, en fyrir okkur sem eftir stöndum var þetta þungbær reynsla. E.t.v. fannst þér líka komið nóg og góð og viðburðarík ævi að baki. Þegar þú ert allur, elsku pabbi minn, leita á hugann ýmsar minningar. Fyrstu árin í Hafn- arfirði eru nokkuð fallin í gleymskunnar dá. Þó rámar mig nokkuð í þá áráttu mína, að vilja frekar spýtu í kofa frekar en „nammi“ hjá Kidda frænda kaup- manni. Húsið sem þú byggðir í Hóf- gerði 1 og tímabilið í vesturbæ Kópavogs er mér ógleymanlegt. Þar gafst þú mér fyrsta bogann og örvamæli sem þú hafðir smíð- að. Þessi bogi var öndvegisverk- færi og eftir fyrstu prófraun kom ég heim hróðugur og sagði að ég hefði skotið í tarf en meinti hvarf! Það var mikill kraftur í þér á þessum árum, því næst byggðir þú og mamma ásamt hjónunum Sveini og Elnu tvíbýlishús að Auðbrekku 21. Þar kviknaði tón- listaráhugi minn og dellan fyrir Shadows og Bítlunum. Forstofu- herbergi mitt hýsti heilt trommusett og oft heila hljóm- sveit. Kæri pabbi minn! Almennt verður þú ekki sakaður um óraunsæi nema þá í það eina skipti þegar þú hugðist gera mig að trésmið og tókst mig á náms- samning í því skyni. Þetta stóð í u.þ.b. tvö ár en þá var orðið ljóst að dæmið myndi aldrei ganga upp. Þó að ég geti verið nokkuð fimur á strengina, þá spretta upp ótal þumalfingur þegar kemur að smíðum. Síðar fann ég minn stað í byggingarvinnunni í verkum sem þú stjórnaðir. Fyrst sem handlangari og síðar járnamað- ur. Þegar á leið held ég að þú haf- ir verið sáttur við þessa þróun mála. Bæði þú og mamma studduð mig af heilum hug þegar ég tók þá ákvörðun að helga mig tónlist og gera tónlistarkennslu að framtíðarstarfi mínu. Þið veittuð mér ómetanlegan stuðning í þeirri fyrirætlan minni. Á sama tíma tókum við Anna Margrét saman og fyrsta barnabarnið Lilja Dögg kom fljótlega til sög- unnar 1986. Ég veit að þetta veitti mikilli gleði inn í líf ykkar. Þetta var e.t.v. eitthvað sem þið höfðuð ekki endilega reiknað með. Þú varst að vísu frægur fyr- ir að djöflast í börnum og gera þau óþekk. Varst vinsæll hjá þeim en ekki jafn vinsæll hjá for- eldrum. Næstur kom svo nafni þinn Hallvarður Jón 1989 og svo skautadrottningin Elfa Rún 1994. Ég veit að þessi þrjú barna- börn veittu mikilli fyllingu inn í þitt líf og mömmu. Eitt af stórvirkjunum, sem munu geyma nafn þitt um ókom- in ár er bygging Búðabæjar í Hlöðuvík árið 1977. Eftir ferða- lag á Hornstrandir 1970 tekur þú þá ákvörðun að byggja Búðabæ. Þú færð Magga frænda í lið með þér, en að stærstum hluta er þetta þitt frumkvæði. Við sem eftir lifum munum njóta góðs af. Elsku pabbi, þá er komið að kveðjustund. Nú hefur þú kvatt hina jarðnesku tilveru og lagt upp í nýtt ferðalag. Þar veit ég að þú verður hrókur alls fagnaðar í mögnuðum félagsskap og líklegt að þar verði Indriði draugur úr Hlöðuvík í Hásæti. Þinn, Guðmundur Jóhann. Það eina sem við vitum fyrir víst í þessu lífi er að einhvern tímann eigum við eftir að deyja. Samt kemur dauðinn oftast sem óvinur úr launsátri. Þannig leið mér miðvikudaginn 18. júlí þegar Hallvarður tengdafaðir minn kvaddi þennan heim okkur að óvörum. Það er sárt að sjá eftir þeim sem manni þykir vænt um. Hall- varður var sterkur hlekkur í okk- ar fjölskyldu. Hann var alltaf til staðar fyrir okkur. Vakandi áhugi hans og næmi fyrir barna- börnunum var mér mikils virði. Mér sýndi hann aldrei annað en velvilja og virðingu. Þegar ég hugsa um farinn veg koma ótal myndir upp í hugann sem tengj- ast Hallvarði. Honum tókst alltaf að hressa upp á umhverfi sitt, hafði góða nærveru en var samt aldrei skoðanalaus um menn og málefni. Oft áttum við góðar stundir að ræða málefni líðandi stundar. Yfirleitt vorum við sam- mála en ekki alltaf og það gerði ekkert til því skoðanir hans voru áhugaverðar. Hann var litríkur „karakter“ og hressti alltaf upp á umhverfi sitt hvar sem hann kom. Ég var svolítið montin að eiga hann fyrir tengdapabba. Hann var alla tíð trúr sínum uppruna og lífsgildi þau sem hann lærði í æsku norður á Horn- ströndum fylgdu honum alla tíð. Hann tileinkaði sér ungur þá elju og þann dugnað sem þurfti til að búa á svo harðbýlu landsvæði. Dugnaður var hans aðalsmerki en einnig sterk réttlætiskennd. Hann var alla tíð fróðleiksfús, las mikið og fylgdist vel með. Hann hafði skýra hugsun alveg fram í andlátið. Það er því hægt að segja að hann hafi gengið þetta líf til enda með fullri reisn. En þó að við sem eftir stönd- um séum döpur og hnípin, getum við samt verið sátt við að hann kvaddi þetta líf sáttur og saddur lífdaga. Ég á Hallvarði mikið að þakka og tómið sem hann skilur eftir er stórt. Ég er þakklát fyrir að börnin mín hafi átt svona góð- an afa. Hann var góð fyrirmynd og hans verður lengi minnst. Svo óska ég honum alls góðs í nýjum heimkynnum og vona að við eig- um eftir að hittast á ný. Anna Margrét Jónsdóttir. Elsku afi minn. Þau urðu ansi skrítin og snögg hjá okkur endalokin þennan mið- vikudaginn, sennilega vissir þú hvernig þessi bílferð myndi enda og það er huggun í því að vita það að þú varst ekki ósáttur við það að fá að yfirgefa okkur. Árin eftir að amma dó voru þér mjög erfið og hrakandi heilsa gerði lítið til að bæta ástandið. Þú varst sáttur við þína ævi og afrek og vildir fá að ljúka þessu lífi með sóma, sem þú gerðir, eins og allt annað sem þú tókst þér fyrir hendur. Það eru engin orð sem geta lýst því hversu góður afi þú varst og hve sárt þín verður saknað. Þín manneskja, Lilja Dögg. Þann 18. júlí síðastliðinn urðu þáttaskil í lífi mínu þegar afi lést okkur að óvörum, það hefði kannski ekki átt að koma á óvart en í okkar huga var hann ekki á förum. Afi var alla tíð mjög hrein- skiptinn í samskiptum, vakandi áhugi hans fyrir velferð okkar systkinanna skipti okkur miklu máli, hann reyndi aldrei að breyta neinu í fari okkar og við metum það mjög mikils. Hann var mjög næmur á það hve ólík við vorum og mat okkur hvert út af fyrir sig. Hann og Lilja amma höfðu það fyrir sið að koma a.m.k. í eina góða heimsókn í viku hverri og þá voru málefni líðandi stundar tekin fyrir og rædd og það var oft gaman að hlusta á afa þegar hann var kominn í ham en allt var þetta þó í léttum tón. Afi bar uppruna sínum gott vitni, Hornstrandir voru harðbýlt svæði þar sem þörf var fyrir allar vinnandi hendur. Hann var ung- ur þegar hann byrjaði að vinna á Hesteyri sem smali og við síldina, þar gekk hann líka í barnaskóla. Síðar meir flutti hann til Reykja- víkur og tók þau störf sem til féllu uns hann fór að læra tré- smíði. Vinnan hans veitti honum gleði og hann var alla tíð mjög fé- lagslyndur. Margar minningar koma upp í hugann en mér eru sérstaklega minnisstæð þau mörgu skipti sem ég fór með afa að heimsækja Óla bróður hans út á Granda þar sem hann var að smíða sumarbú- staði. Það var gaman að hlusta á þá rabba saman og ekki laust við svolítinn faglegan meting á milli þeirra bræðra. Hann var sáttur við sitt lífs- hlaup, hann las mikið, fór í dag- legar gönguferðir, hafði skoðanir á landsmálunum fram á síðasta dag. Þó að við finnum fyrir tómi og depurð þá er það ekki víst að það sé þannig frá hans bæjardyr- um séð, hverjar svo sem þær bæjardyr kunna að vera. Takk fyrir að vera svona góður afi, þín verður lengi minnst. Hallvarður Jón Guðmundsson. Elsku afi minn, seinasta vika er búin að vera bæði erfið og skrítin. Eins og þú vissir vel var ég á Spáni þegar þú ákvaðst að fara til ömmu. Það er búið að vera mjög stutt á milli lífs og dauða hjá okkur í fjölskyldunni, því barnabarnabarnið þitt fædd- ist viku eftir að þú lést. Þú sýndir okkur systkinunum alltaf mikinn áhuga og stuðning í áhugamálum okkar og hafðir sér- staklega gaman af því að heyra um velgengni okkar í bæði skóla og vinnu. Þið amma komuð alltaf í heim- sókn á sunnudögum. Oft þegar þið voruð á leiðinni heim aftur þá faldi ég skóna þína svo amma gæti verið komin út í bíl á undan. Þið buðuð mér líka oft með niður í bæ og þá kíktum við í Kolaport- ið og skoðuðum höfnina. Ég man eftir einu skipti þar sem ég af- þakkaði boðið ykkar í bæjarferð og rétt eftir að þið fóruð grét ég óstöðvandi, ég veit ekki alveg hvað ég var að hugsa, mig lang- aði svo sannarlega að fara með ykkur. Þegar ég var yngri fannst mér alltaf gaman að fara í pössun til þín og ömmu. Þú reyndir einu sinni að setja fléttur í hárið á mér en þú varst svo harðhentur að amma þurfti að taka yfir. Svo var alltaf lambalæri í hádeginu á sunnudögum, mér þótti það furðulegt, en það var siður sem þið hélduð í eins og marga aðra. Það var mikið líf í kring um þig, þú varst með sérstakan einkahúmor, einhvernveginn náðirðu að fá eiginlega alla til að líka vel við þig. Þú skilur eftir þig margar góðar minningar, einn af mínum uppáhaldsstöðum er þar sem þú ólst upp, í Hlöðuvík, þar mun minning þín lengi lifa. Þín afastelpa, Elfa Rún. Hornstrandahöfðinginn, frændi minn og fóstri, er farinn yfir móðuna miklu, sárt er að kveðja þig frændi en samt léttir að vita þig lausan við þrautir og þjáningu og vita þig kominn í fang Liljunnar þinnar og ástvina handan móðunnar miklu. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég heyrði ömmu mína og mömmu tala um hann Halla sinn, hann sem var svo hress og mikill prakkari og oftar en ekki kallaði amma mig nafninu hans og sagði mér að ég léti oft eins og hann Halli þegar hann var með prakk- araskapinn. Hann kom nokkrum sinnum vestur ásamt Lilju konu sinni og Guðmundi syni þeirra og þá var fjör þegar hann gantaðist við okkur strákana, kenndi okkur að tuskast og slást. Ég átti síðar á lífsleiðinni eftir að kynnast frænda mínum betur, við fluttum árið 1965 til Hafnar- fjarðar og þá urðu samskiptin meiri og alltaf var frændi minn til í að tuskast og eins og alltaf fylgdi honum hressileiki og fjör. Síðla árs 1966 var ég að leita eftir vinnu og námssamningi í rafvirkjun og gekk illa þar sem atvinnuástandið var ekki gott, það er svo einn daginn að frændi minn kemur í heimsókn og heyrir um þennan vanda minn og segir þá: „Viggi minn, þú kemur og verður handlangari hjá okkur, við erum félagarnir í Vestra sf. að byggja blokk í Fellsmúlanum og vantar duglegan strák, þú ferð svo bara á samning þegar við er- um búnir að sjá hvað þú getur,“ svo hló hann sínum hressilega hlátri. Þeir voru hressir og skemmti- legir félagarnir Hallvarður, Magnús bróðir hans, Hannes Helga, Finnbogi Jónasar, Benni Davíðs og síðar kom Sigurjón Pétursson í hópinn. Ég byrjaði svo á samningi 1968 og lauk hon- um 1973. Alla tíð meðan ég vann hjá frænda mínum vorum við mjög nánir og honum var mjög umhugað um að ég lærði allt sem máli skipti, deildi námstímanum niður í tímabil, svo var ég látinn faraa milli verkefna til að námið Hallvarður Sigurð- ur Guðlaugsson ✝ Ástkær eiginmaður, faðir og bróðir, GARÐAR THOR MIDDLETON, búsettur í Bandaríkjunum, áður til heimilis í Garðabæ, lést mánudaginn 23. júlí. Guðrún Stefánsdóttir, Rannveig María Middleton, Matt Frankel, Þóra Mist Middleton, Maríanna Alexandersdóttir, Sigríður E. Bjarnadóttir, Bragi Sigurðsson. ✝ Minn elskulegi eiginmaður og besti vinur, GUNNAR SMITH pípulagningameistari, lést á Sólvangi föstudaginn 20. júlí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks 3. hæðar Sólvangs fyrir frábæra umönnun. Fyrir hönd barna okkar og fjölskyldna þeirra, Edda Eiríksdóttir Smith. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN HANSEN, sem lést á heimili sínu mánudaginn 23. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. ágúst klukkan 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð SÁÁ. Jóhann Birgir Magnússon, Jón Gústaf Magnússon, María Carmen Magnúsdóttir, Kata Gunnvör Magnúsdóttir, Gréta Magnúsdóttir, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR AÐALSTEINSDÓTTIR MALMQUIST frá Skuggahlíð í Norðfirði, lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 28. júlí. Útför hennar verður gerð frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 3. ágúst kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Þorgerður Malmquist, Ragnar Sverrisson, Björn Malmquist, Kristín Briem, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.