Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 25
Starf óskast Vill komast á sjó 24 ára hraustur og duglegur strákur vill komast á sjó. Er fljótur að læra. Er búinn að skrá sig í Slysavarnaskólann. Sími 894 0509. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara                            !  "# $  % & ' '! (%% )))        *  +    , -!   ,   (      * .   "                /    Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Iðnaðarpláss í Hafnarfirði 165 fmtil leigu. Ýmsir aðrir möguleikar, allt að 900 fm. Uppl. í s. 893 9777 eða 862 4685. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar, verðlaunagripir, Smiðjuvegi 6, rauðri götu, Kópavogi. fannar@fannar.is - sími 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt TLBOÐ TILBOÐ TILBOÐ FÆST í B, C skálum á AÐEINS KR. 2.750. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, Lokað laugardaga í sumar. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur TVEIR ALGJÖRLEGA FRÁBÆRIR !! Teg. 42027 - glæsilegur nýr litur í C,D,E skálum á kr. 5.800, buxur í stíl á kr. 1.995. Teg. 11001 - sömuleiðis frábær nýr litur í C,D,E,F skálum á kr. 5.800, buxur í stíl á kr. 1.995. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, Lokað laugardaga í sumar. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Teg. 407 Mjúkir og þægilegir dömu- inniskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 11.900. Teg. 915 Mjúkir og þægilegir dömu- inniskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 11.900. Teg. 6912 Mjúkir og þægilegir dömu- sandalar úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 12.550. Teg. 6500 Mjúkir og þægilegir dömu- sandalar úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 41. Verð: 9.850. Teg. 70 Sérlega mjúkir og þægilegir dömu-inniskór úr leðri, skinnfóðraðir. Teygjuefni í hliðum. Stærðir: 35 - 40. Verð: 7.900. Teg. 99131 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 15.685. Teg. 06 Mjúkir og þægilegir dömu- skór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: hvítt og svart. Stærðir: 36 - 42. Verð: 13.975. Teg. 99113 Litir: svart og hvítt - Stærðir: 36 - 42. Verð: 15.685. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið: mán. - föst. 10 - 18. Lokað laugardaga í sumar Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaþjónusta Ökukennsla Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Í dag er kvaddur góður vinur og félagi. Leiðir okkar Grétars lágu fyrst saman þegar barátta var um bætt kjör í verslunum, styttri vinnu- tíma og það að verslanir væru lokaðar á helgidögum. Á þessum tíma fór Verslunarmannafélag Reykjavíkur nokkrum sinnum í verkföll. Grétar var mikill félagsmála- maður og barðist fyrir bættum kjörum félagsmanna. Hann var í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur í mörg ár, einnig í stjórn LÍV. Grétar var einn af stofnfélögum Kiwaniklúbbsins Elliða árið 1972. Þar gegndi hann öllum helstu embættum fyrir klúbbinn. Mikil gæfa var það fyrir klúbbinn að fá þennan gleðigjafa. Hann var ekki í vandræðum með að setja saman skemmtidagskrá, semja vísur og segja allskyns skemmtisögur á hátíðum klúbbs- ins. Þarna var á ferð mikill ná- kvæmismaður sem gott var að treysta og vinna með, hann var ávallt tilbúinn að taka að sér hin ýmsu störf. Nú þegar við nokkrir félagar erum komnir á þann góða aldur að vera betri borgarar, var ákveðið að hittast einu sinni í viku í kaffisopa. Þar mætti Grétar allt- af meðan hann hafði heilsu til, sagði brandara og fór með vísur um okkur félagana. Hann var ávallt hrókur alls fagnaðar, sann- ur gleðigjafi. Ég vil þakka Grétari samfylgd- ina í gegnum árin og allar þær ánægjustundir sem ég hef átt með honum í leik og starfi. Við hjónin sendum Sigrúnu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Megi minning um góðan dreng lengi lifa. Ragnar og Gunndís. Minningar eru dýrmætar. Þær birtast eins og myndir og oft er það ekki það stórkostlega eða fréttnæma sem situr fastast í minninu heldur það litla, venju- bundna, daglega og dýrmæta. Dagleg umgengni við Grétar Hannesson er einmitt eitt af þessu dýrmæta í lífi okkar sam- starfsmanna hans sem gleymist aldrei. Það er sjaldgæft að geta státað af svo góðri lund og það var eins og frá honum stafaði ljós og dulinn kraftur. Grétar var dug- legur og vinnusamur. Heilsuleysi frá unga aldri aftraði honum ekki frá því að vera auk vinnunnar hjá VR á kafi í félagsmálum og ötull félagsmaður í Kiwanis áratugum saman. Starfi sínu hjá VR sinnti hann með gleði, var mættur snemma og ávallt fyrstur manna til að taka að sér verkefni sem tengdust þeim félagsmálum sem fylgja því að starfa hjá stéttarfélagi, oftast utan hefðbundins vinnutíma. Hans aðalstarf lengst af var fólgið í samskiptum við trúnaðarmenn og félagsmenn almennt og oft höfðum við það á tilfinningunni að hann þekkti með nafni alla fé- lagsmenn VR. Myndirnar af okkar elskulega Grétari eru margar. Við sem átt- um því láni að fagna að vinna með honum hjá VR getum rifjað upp margt sem gleður hug og hjarta. Hann stendur okkur fyrir hug- skotsjónum sem hvíthærður glæsilegur maður, kankvís á svip, kannski dálítið stríðnislegur, allt- af í góðu skapi, skemmtilegur, já- kvæður og góður vinur og félagi. Grétar Hannesson ✝ Grétar Hann-esson fæddist í Reykjavík 9. apríl 1937. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 22. júlí 2012. Útför Grétars var gerð frá Foss- vogskirkju 30. júlí 2012. Hann sagði gjarnan sömu brandarana oft og alltaf var hægt að hlæja. Frægasti frasinn hans var t.d. „Hvað vinna margir hjá VR?“ og svaraði sér svo sjálfur að bragði „Ja, svona um það bil helmingurinn“ og ávallt bauð hann okkur virðulega góða kvöldið ef við mættum of seint. Það var ekki endilega hvað hann sagði sem fékk okkur til að brosa heldur hvernig hann sagði það. Myndbrot flökta fyrir augum; Grétar á spjalli við félagsmenn, að flytja tækifærisvísur um okkur vinnufélagana á góðri stund, stíga dans við stelpurnar eða syngja „O sole mio“ alveg upp úr þurru. Það var gleði í kringum hann. Eftir að hann hætti að vinna og var ennþá rólfær kom hann oft í heimsókn til okkar til VR, ávallt aufúsugestur. Þá var spáð í málin og spjallað mikið. Hann lét sig varða um VR og okkur vinnu- félagana. Það var okkur mikils virði. Við söknuðum Grétars þegar hann hætti að vinna og munum sakna hans áfram. Við sendum Rúnu hans og fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsmanna hjá VR, Anna Björg Siggeirsdóttir. Kæri Grétar. Ég hef verið vinur þinn í meira en 40 ár eftir að þú komst til London í nýrnaaðgerð og kynnt- ist eiginmanni mínum Malcolm heitnum og þið urðuð strax bestu vinir. Ég á svo margar ánægju- legar minningar með þér; þegar við heimsóttum ykkur 1969 eftir þriggja daga siglingu og aftur 1995 og 2005. Þú og fjölskylda þín tókuð alltaf vel á móti okkur og við skemmtum okkur við að rifja upp gamla tíma með myndum og glensi. Þegar þið heimsóttuð okkur til Englands var líka mikið fjör og nú eru börnin okkar vinir og skrifast á. Stundirnar mínar á Ís- landi eru bestu fríin sem ég hef átt á ævinni. Grétar, þú varst gegnheill heiðursmaður og einstakur vinur og þú munt ávallt skipa stóran sess í hjarta mínu. Malcolm er bú- inn að bíða í langan tíma eftir að sameinast vini sínum. Hugur minn er hjá Rúnu og fjölskyldu. Ástarkveðjur, Rosetta M. Foulger og fjölskylda, Lowestoft, Englandi. Góður vinur er genginn. Grét- ar Hannesson, sem andaðist 22. júlí sl. var einn af traustustu og virkustu félagsmönnum VR um margra áratuga skeið. Hann vann um langt árabil við afgreiðslu- störf í matvöruverslun og kynnist þar vel störfum og kjörum fólks. Grétar átti sæti í stjórn VR í rúma tvo áratugi. Auk þess gegndi hann ýmsum trúnaðar- stöfum fyrir VR; var í trúnaðar- mannaráði félagsins, sat í stjórn orlofsheimilasjóðs og var um tíma varamaður í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, svo nokkuð sé nefnt. Hann hóf störf á skrifstofu VR 1986 og vann þar til starfs- loka. Hann stjórnaði m.a. nám- skeiðum sem VR hélt fyrir trún- aðarmenn á vinnustöðum um margra ára skeið. Grétar sat flest öll þing Landssambands ísl. verzlunarmanna og einnig þing ASÍ frá því að verslunarmenn fengu aðild að ASÍ 1964. Grétar sat lengi í samninga- nefnd VR og bjó yfir mikilli reynslu og þekkingu úr þeirri starfsgrein sem hann hafði lengi unnið við. Miklar breytingar hafa orðið á kjörum fólks frá því að Grétar fór að taka þátt í fé- lagsstarfinu og leggja baráttunni fyrir bættum kjörum verslunar- manna lið. Sem dæmi má nefna styttingu dagvinnutímans úr 48 stundum í 37½ stund, lengingu orlofs úr tveimur vikum í rúmar fimm, stofnun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem nú er einn stærsti og traustasti lífeyrissjóð- ur landsins, aðild að atvinnuleys- istryggingasjóði, stofnun orlofs- sjóðs, stofnun sjúkrasjóðs, sem m.a. hefur staðið að byggingu hjúkrunarheimilisins Eirar, þar sem margir aldraðir félagsmenn VR, sem misst hafa heilsuna, fá nú aðhlynningu og umönnun. Allt hefur þetta kostað mikla baráttu og fórnir og var Grétar mjög virkur þátttakandi í þeirri baráttu. Spor hans liggja í ferli allra þessara mála. Í fjóra áratugi fórnaði hann miklum tíma og kröftum í baráttunni fyrir bætt- um kjörum verslunar- og skrif- stofufólks, sem menn njóta í dag og í framtíðinni. Grétar sá VR verða stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Honum þótti mjög vænt um stétt- arfélagið sitt og hann mætti á alla fundi, sem félagið boðaði til og tók virkan þátt í öllu starfi þess. Grétar var mikið ljúfmenni í allri umgengni, hagmæltur og dáður af öllum sem áttu samleið með honum. Hann var glaðlyndur og oft var stutt í hláturinn sem smitaðist í viðstadda. Grétar var orðvar, ég heyrði hann aldrei tala illa um nokkurn mann. Hann hafði góð áhrif á umhverfi sitt. Nú þegar Grétar er kvaddur hinstu kveðju flyt ég honum ein- lægar þakkir fyrir allt hið mikla og góða starf sem hann innti af hendi í þágu VR á starfsferli mín- um á þeim vettvangi. Persónu- lega þakka ég honum áratuga góð kynni, sem aldrei bar skugga á. Ég og kona mín sendum eft- irlifandi konu hans Sigrúnu Steingrímsdóttur, börnum og öðrum aðstandendum einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Grétars Hannessonar. Magnús L. Sveinsson. Kær kveðja til góðs vinar. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast Grétari fyrir rúmum 20 árum í Kiwanisklúbbn- um Elliða og urðu samskipti okk- ar sífellt meiri eftir því sem á leið. Við unnum saman í mörgum verkefnum fyrir Elliða og alltaf var Grétar tilbúinn þegar leitað var til hans, hvort sem var að setja saman vísur, flytja gaman- mál eða sinna þjónustuverkefn- um. Sérstaklega er mér minnis- stætt þegar hann fyrstur allra bauð sig fram í K-dagsnefnd El- liða fyrir tveimur árum þrátt fyrir veikindi sín og leysti það starf af einstakri alúð og natni eins og honum var einum lagið. Hann var einstakur félagi sem ég naut að hafa samskipti við. Við ræddumst mjög oft við síðastliðin ár og alltaf var jafngaman tala við hann því að allt var stutt í húmorinn þrátt fyrir erfið veikindi. Hann reynd- ist mér sannur vinur sem stóð alltaf við bakið á mér í veikindum mínum og þrengingum síðastliðið ár. Fyrir það er ég honum ákaf- lega þakklátur. Kæra Sigrún og fjölskylda, allt virðist nú svart og enga ljósglætu að sjá í myrkrinu. En eftir lifir minning um góðan dreng sem alltaf kom með birtu inn í til- veruna. Skáldið Tómas Guðmundsson segir: Nú veit ég að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva, sem hismi feykt á bál, unz sérhver sorg öðlast vængi og sérhver gleði fær mál. Kær kveðja, Páll V og Ída.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.