Morgunblaðið - 31.07.2012, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012
Það getur verið að ég fari hérna eitthvað um sveitina. Það er núekki alveg skipulagt, en ég verð hérna fyrir austan,“ segir Sæ-mundur „Sæmi rokk“ Pálsson, fyrrverandi lögreglumaður, að-
spurður hvað hann ætli að gera á afmælisdaginn en hann fagnar 76
ára afmæli sínu í dag. Að sögn Sæmundar er hann nú staddur í
sumarbústað austur í Öndverðarnesi ásamt eiginkonu sinni.
Sæmundur á tvíburabróður, Magnús Pálsson, en að sögn Sæmund-
ar hafa þeir bræður oftast hist á afmælisdeginum ef þeir hafa verið
báðir í bænum, svo verður þó ekki að þessu sinni. „Ég veiddi lax í
Hofsá og það var meiningin að hafa hann svona í matinn í morgun,“
segir Sæmundur, aðspurður hvort hann hyggist gera vel við sig á af-
mælisdaginn, og bætir við: „Fiskur er það besta sem til er, alveg
tvímælalaust.“
Þá minnist hann sérstaklega fimmtugsafmælis síns en þá var hann
staddur í Austurríki ásamt Ólafi Guðnasyni og eiginkonu hans. „Það
voru um tvö hundruð manns, eða eitthvað svoleiðis, í rosalegu „húll-
umhæ“ þarna, hljómsveit og flott. Ég hringdi í bróður minn og hann
var að segja mér það að hann væri með eitthvað um hundrað manns í
veislu hjá sér en þá sagði ég: „já, ég er hérna með rúmlega tvö hundr-
uð“ og leyfði honum að heyra hávaðann,“ segir Sæmundur og að það
hefði verið gaman ef þeir hefðu verið saman. skulih@mbl.is
Sæmundur Pálsson er 76 ára í dag
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Sæmi Rokk Sæmi Rokk í hörkusveiflu í Silfurtunglinu um 1960.
Sæmi fagnar afmæli sínu ásamt eiginkonu sinni fyrir austan fjall.
Borðar nýveiddan
lax á afmælinu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Kópavogur Valdís Eva fæddist 14. febr-
úar kl. 2.18. Hún vó 4.265 g og var 52
cm löng. Foreldrar hennar eru Herdís
Ómarsdóttir og Margeir Ásgeirsson.
Nýir borgarar
Hlutavelta
Lára Pálsdóttir, 9
ára, og Margrét Mist
Hannesdóttir, 10
ára, héldu tombólu á
Eiðistorgi og seldu
dót sem þær höfðu
safnað. Alls söfnuðu
þær 8.778 kr. sem
þær gáfu Rauða
krossinum.
M
argrét fæddist í
Reykjavík, ólst upp
í Svíþjóð í fimm ár á
námsárum foreldra
sinna og síðan í
Vesturbænum í Reykjavík. Hún var
í Melaskóla og Hagaskóla, lauk stúd-
entsprófi frá MR 1992, stundaði nám
í trésmíði við Iðnskólann í Reykjavík
í eitt ár, stundaði síðan nám í hljóð-
færasmíði við New Ark School of Vi-
olin Making í Bretlandi frá 1993 og
útskrifaðist þaðan sem hljóðfæra-
smiður 1996.
Úr hljóðfærasmíði í verkfræði
Margrét hóf síðar nám í verkfræði
við Cardiff University í Wales, árið
2000, lauk þaðan diplómaprófi í
framleiðsluverkfræði, hóf nám í iðn-
aðarverkfræði við HÍ, lauk þaðan
B.Sc.-prófi 2004 og MSc.-prófi 2006.
Margrét hóf fiðlunám þegar hún
var sjö ára, hjá Lisbet Vecchi í Sví-
þjóð, hóf nám við Tónmenntaskól-
ann í Reykjavík er hún var ellefu ára
og lærði þar á fiðlu hjá Gígju Jó-
hannsdóttur, stundaði síðan nám við
Tónlistarskóla Reykjavíkur, skipti
Margrét María Leifsdóttir, verkfræðingur og hljóðfærasm., 40 ára
Í Girona á Spáni Margrét með börnin frá vinstri, María, Máni, Margrét með Snorra og Diljá Helga.
Slökkvilið og hljóðfæri
Í Barselóna á Spáni Margrét og Snorri á kvöldgöngu.
yfir á víólu er hún var sextán ára og
var þá eitt ár hjá Rut Ingólfsdóttur
og síðan hjá Ingvari Jónassyni og
lauk 6. stigs prófi á víólu 1993. Þá
sótti hún fjölda námskeiða, einkum í
Svíþjóð.
Margrét lék töluvert með Sinfón-
íuhljómsveit æskunnar og með ýms-
um áhugahljómsveitum í Bretlandi.
Vann við hljóðfæri í Hong Kong
Margrét starfaði við fiðlusmíði og
viðgerðir í Bern í Sviss í nokkra
mánuði árið 1996, flutti síðan heim
til Íslands um skeið en vann svo á
hljóðfæraverkstæði fyrir gömul og
verðmæt hljóðfæri í Hong Kong til
ársloka 1997, flutti þá heim til Ís-
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
–– Meira fyrir lesendur
:
Meðal efnis verður:
Endurmenntun
Símenntun
Iðnnám
Tómstundarnám-
skeið
Tölvunám
Háskólanám
Framhalds-
skólanám
Tónlistarnám
Skólavörur
Skólatölvur
Ásamt full af
spennandi efni
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 13. ágúst
Þann 17. ágúst kemur
út glæsilegt sérblað um
skóla og námskeið
sem mun fylgja
Morgunblaðinu
þann dag
SÉRBLAÐ
Skól
ar &
náms
keið
Skólar & námskeið