Morgunblaðið - 31.07.2012, Page 28

Morgunblaðið - 31.07.2012, Page 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú skalt leggja harðar að þér í vinnu til þess að geta slakað betur á þegar heim er komið. Nýjar hugmyndir gætu meira að segja látið á sér kræla í nótt, vakið þig og krafist athygli. 20. apríl - 20. maí  Naut Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast þín eigin við- brögð. Passaðu hvað þú tekur þér fyrir hendur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Frelsinu fylgir mikil ábyrgð, sem þú axlar um leið og þér er veitt frelsi og sjálfstæði í starfi. Gættu þess bara að eyða ekki of miklu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnst þú enn eiga margt ógert en mundu að veraldlegum hlutum má auð- veldlega skjóta á frest. Við getum lært margt af unga fólkinu. Kannski að dagur- inn verði einn sá besti í mánuðinum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert örlát/ur í eðli þínu og stund- um getur það hreinlega gengið of langt. Leitaðu þér samstarfsmanna áður en þú lendir í ógöngum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ýmis tækifæri standa þér opin og það er erfitt að velja. Reyndu að nota tækifærið og snúa hlutunum þér í hag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér er efst í huga að grípa til óhefð- bundinna úrræða til að leysa ákveðin vandamál. Láttu þessar aðstæður ekki leiða þig út í hluti sem þér eru á móti skapi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert ekki í miðju eldsins en þú skynjar hitann mjög vel. Kýldu á’ða jafnvel þótt þú sért ekki viss. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Lokaðu þig ekki af frá umheim- inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Fólk virðist einstaklega samvinnuþýtt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú skalt halda óhikað til streitu áformum þínum varðandi heimilið eða hvaðeina sem hefur með fasteignir að gera. Er ekki óþarfi að eyða peningum sem þú átt ekki bara til þess að slá um sig? 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú eigir að sýna meiri hörku í við- kvæmu máli. Góðar sálir dragast að þér í von um að þú þarfnist þeirra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er óhollt að byrgja allar tilfinn- ingar sínar inni. Mundu að ekkert er dýrmætara í heimi hér en heilsan. Karlinn á Laugaveginum komgangandi upp Snorrabraut- ina þegar ég mætti honum, eins og hann væri að koma frá kín- verska sendiráðinu. Honum hefur alltaf þótt gaman af kínverskum ljóðum í þýðingu Helga Hálfdán- arsonar og tuldraði fyrir munni sér: Konan vill að krakkinn sé með kollinn gáfum fylltan. Ég lít með sorg á sjálfs mín hag af sjálfs mín gáfum spilltan og vona að þetta veslings grey verði tröllheimskur drjóli og fái að enda farsælt líf í forsætisráðherrastóli. „Þessa vísu orti Sú Túng Pó (1036-1101) við fæðingu sonar eða fyrir daga jafnréttis kynjanna,“ sagði hann og bætti við: „Nú er þannig ort við fæðingu dóttur.“ Síðan fór hann með vísu eftir Vang Sí (um 590-644) um leið og hann dró mig inn á næstu krá: Vínlaus dagur er varla neinn, þó væri ég hlynntastur banni; en hver getur þraukað allsgáður einn þegar öl sér á hverjum manni. Og um leið og við lyftum fyrstu bjórkollunni bætti hann við: Stein- grímur leyfir engum að sjá ferils- krá fjárfestisins Huangs Nubos: Ögmundur leit á leiðtogann og ljótt hann sagði; kollhúfur þá karlinn lagði kínverskur að yfirbragði Bjarni Jóhannesson sem lengi var skipstjóri á Súlunni og lands- kunn aflakló kenndi mér þessa vísu eftir Sigurgeir Sigurðsson í Flatey og sagðist hafa lært hana ungur: Enn þá syngur upp við hlein útsynningur baldinn. Þegar springur aldan ein önnur hringar faldinn. Jakob Ó. Pétursson, Peli, rit- stjóri á Akureyri var snjall hagyrð- ingur. Hann kom einu sinni til Vopnafjarðar í einstöku blíðviðri „þar sem ríkti sól yfir sundum og blámi fjallanna blasti við, hvert sem litið var“. Á fellsbrúninni ofan við kauptúnið varð honum þessi vísa af munni: Yfir bæinn allan sést út um sæ og gjögur seiðir á daginn sumargest sveitin ægifögur. Einhverju sinni sagði Peli: Orka vaknar ei hjá mér unga snót þó finni. Lítið var – en lokið er lífshamingju minni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kollhúfur þá karlinn lagði G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d ÞAÐ ER MORGUN OG DAGURINN ER ÞEGAR ÓNÝTUR HVAÐ ERUÐ ÞIÐ AÐ GERA!? ÞIÐ RÆNDUÐ MIG Í SÍÐUSTU VIKU!? FYRIRGEFÐU, ÞESSIR KASTALAR LÍTA ALLIR EINS ÚT KALLI HVAÐ VARÐ UM ALLA FÍFLANA? ÉG FJARLÆGÐI ÞÁ ALLA MEÐ TÖLU! ÞETTA ER KASTARAHAUGUR EN EKKI BLÓMABEÐ! TALANDI UM BLÓMABEÐ... ÞÁ KÆMI ÞAÐ ÖRUGGLEGA VEL ÚT AÐ GRÓÐURSETJA LILJUR HÉRNA JÁ, EÐA TÚLÍPANA ÞETTA ER ÓÞOLANDI! VARSTU AÐ SETJA FLEIRI VANDRÆÐALEGA HLUTI Á GRÍMS-LEAKS? JÁ, ÞAÐ ER SIRKUS- FJÖLSKYLDAN Í ÞETTA SKIPTI HVAÐ GERÐU ÞAU? SVO VIRÐIST SEM BIL KEANE SÉ BARA AÐ SÖTRA KOKTEILA Á SÓLAR- STRÖND... Á MEÐAN BÖRNIN TEIKNA MYNDASÖGURNAR Í ÞRÆLABÚÐUM Í HONDÚRAS EES EKKI NÓG HRINGUR Víkverji er að lesa endurminn-ingar sænska knattspyrnu- mannsins Zlatans Ibrahimović sem komnar eru út í íslenskri þýðingu hjá Draumsýn forlagi. Það er fróð- leg lesning. Ibrahimović fjallar að vonum um ýmsa samferðamenn sína í spark- inu, leikmenn, þjálfara og forsvars- menn félaganna sem hann hefur leikið með. Kappinn er ekki allra og fyrir vikið hefur gengið á ýmsu. Frægar eru til dæmis deilur hans við gulldrenginn Rafael van der Va- art meðan þeir voru hjá Ajax. Van der Vaart fær á baukinn í bókinni. Ibrahimović nefnir hann þó á nafn, það er meira en hann gerir við samherja sinn í landsliðinu til fjölda ára, Fredrik Ljungberg. Ibrahimović hatar hann bersýnilega eins og pestina og niðurlægir Ljungberg með því að tala um hann án þess að nafngreina hann. Á einum stað í bókinni, þar sem Ibrahimović lýsir metnaði sínum til þess að verða dýrasti knattspyrnu- maður Norðurlanda, segir: „Það var sænskur leikmaður sem hafði farið til Arsenal fyrir fjörutíu millj- ónir, það þótti þá mikið og Valencia borgaði sjötíu milljónir fyrir Norð- manninn John Carew.“ x x x Seinna, þegar Ibrahimović fjallarum þátttöku Svía á EM 2004, segir hann: „Prímadonnan hélt sínu striki. „Hjá Arsenal gerum við svona. Þannig á maður að gera það. Því að hjá Arsenal vitum við það og ég spila með því liði.“ Þetta var að- ferðin hans. Ég varð hálffúll yfir þessu. „Ég er svo slæmur í bakinu,“ sagði hann. „Ég get ekki farið með venju- legri rútu. Ég þarf mína eigin. Ég þarf að fá þetta og þetta.“ Ég meina bara. Hvern fjandann var hann að koma hingað og látast til- heyra einhverri yfirstétt með okk- ur? Lars Lagerbäck ræddi við mig um hann. „Zlatan minn. Reyndu að taka á þessu eins og atvinnumaður. Við megum ekki við neinum deilum í liðinu.“ „Ef hann sýnir mér virðingu, sýni ég honum virðingu. Punktur.““ víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín. (Jóhannes 14,15.) LEÐURTÖSKUR Á GÓÐU VERÐI Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is SJÓN ER SÖGU RÍKARI Smáralind Stofnsett 1934 Sími: 528 8800 drangey.is Drangey | Napoli NÝ SENDING - MARGAR GERÐIR KR. 16.900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.