Morgunblaðið - 31.07.2012, Side 33

Morgunblaðið - 31.07.2012, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Eins og margir kvikmynda- rýnendur höfðu spáð þá er nýjasta hasar- og spennumyndin um leður- blökumanninn The Dark Knight Rises komin efst á aðsóknarlista kvikmyndahúsanna. Þá er franska kvikmyndin Intouchables í öðru sæti á list- anum. Ekkert útlit er fyrir því að vinsældir myndarinnar fari dvín- andi þrátt fyrir að þetta muni vera sjötta vikan í röð sem hún situr á listanum. Þá hefur gamanmyndin Ísöld 4: Heimsálfuhopp fallið niður um þrjú sæti en þetta er þó þriðja vik- an í röð sem hún er á listanum. Grínmyndirnar Ted, Madagascar 3 og Magic Mike, ásamt spennu- myndinni um köngulóarmanninn, Amazing Spider-Man sitja áfram á listanum í fylgd The Dark Knight Rises, Intouchables og Ísöld 4. Chernobyl Diaries og Prometheus hafa skriðið af listanum og vikið fyrir íslensku kvikmyndinni Svart- ur á leik sem situr nú í níunda sæti, en þetta muna vera 22. vikan sem sú mynd lendir á aðsóknar- lista kvikmyndahúsanna. Bíóaðsókn helgarinnar Hasar Nú er að duga eða drepast í lokaspretti leðurblökumannsins í The Dark Knight Rises gegn illum öflum Gotham borgar. Leðurblökumaðurinn efst Bíólistinn 27.-29. júlí 2012 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd The Dark Knight Rises Intouchables Ísöld 4: Heimsálfuhopp Ted Madagascar 3 Amazing Spider-Man Magic Mike Dream House Svartur á Leik What to Expect When You’re Expecting Ný 2 1 3 6 4 5 8 12 7 2 7 3 3 7 5 3 4 22 6 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 „Þátttakendurnir keyra þetta fyrst og fremst áfram af ástríðu og áhuga. Þar af leiðandi gera þau það sem þeim sýnist, það sem þau lang- ar til þess að gera,“ segir Ásgrímur Sverrisson dagskrárstjóri Bíó Para- dísar. Hann sér um stuttmynda- keppnina Stuttmyndadaga í Reykjavík, ásamt Hrönn Sveins- dóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradísar, en þeir eru haldnir í kvikmyndahúsinu dagana 3. til 4. september. Skilafrestur til þess að senda inn myndir er til 10. ágúst. Segja má að Stuttmyndadagar séu vettvangur sköpunarútrásar upprennandi kvikmyndagerðar- manna en hver sem er getur sent inn stuttmynd. Dómnefnd sér svo um að velja þær myndir sem kom- ast áfram í keppnina. Í ár sitja þau Ingvar Þórðarson kvikmyndafram- leiðandi, Ísold Uggadóttir kvik- myndaleikstjóri og Örn Marinó Arnarson kvikmyndagerðarmaður í dómnefndinni. Fern verðlaun eru veitt, fyrir fyrstu þrjú sætin hljóta vinningshafar peningaupphæð en fjórðu verðlaunin eru áhorfenda- verðlaunin þar sem gestir Stutt- myndadaga greiða atkvæði um bestu myndina. Í fyrra var það Marsibil Sæmundardóttir sem lenti í fyrsta sæti fór með sigur af hólmi með hrollvekjuna Freyja. Að sögn Ásgríms hefur keppnin stækkað töluvert frá því hún var fyrst haldin árið 1992, en þá bárust 28 stuttmyndir til dómnefndar. Til samanburður bárust dómnefnd 64 myndir í fyrra. „Það sem hefur áhrif á fjölda stuttmynda sem eru sendar inn er stafræna byltingin sem hefur gert mörgum mun auð- veldara að gera stuttmyndir. Tækn- in er orðin mun ódýrari. Í farsímum eru gæðin í myndavélum jafnvel svo góð að hægt er að ágæra ágætis stuttmynd á þá,“ segir Ásgrímur. Hann bætir við að tilkoma Kvik- myndaskóla Íslands hafi haft já- kvæð áhrif á framleiðslu kvikmynda og stuttmynda á Íslandi, og þar af leiðandi á Stuttmyndadaga. „Þátt- takendur þaðan hafa oft verið sig- ursælir á seinni árum keppninnar,“ segir Ásgrímur. Engu að síður segir hann hátíðina vera opna öllum, áhugamönnum jafnt sem atvinnu- mönnum. „Það er mikill kraftur í grasrót- inni og margir áhugaverðir hlutir sem gerast þar. Samt sem áður er þetta erfiður bransi, þar sem marg- ir eru kallaðir en fáir útvaldir. En það er að sama leyti gott fyrir alla að það sé öflug grasrót. Þetta er framtíðin í kvikmyndabransanum, og því mikilvægt að hafa sem mesta breidd og fjölbreytni. Vonandi fylgja sem flestir eigin sannfæringu og ástríðum í staðinn fyrir að eltast við það sem þegar er í gangi og vin- sælt í kvikmyndaheiminum,“ segir Ásgrímur. larah@mbl.is Hrollur Marsibil Sæmundardóttir hlaut fyrstu verðlaun á Stuttmyndadögum í fyrra, en leikstjóra myndarinnar sem hlýtur fyrsta sætið er boðið á Short Film Corner á Kvikmyndahátíðinni í Cannes auk 100.000 kr. peningaverðlauna. Grasrótarvettvangur kvikmyndagerðar  Skilafrestur fyrir Stuttmyndadaga rennur út 10. ágúst. STÆRSTA MYND ÁRSINS  EMPIRE  KVIKMYNDIR.IS  HOLLYWOOD REPORTER  SÉÐ OG HEYRT TILB OÐ EGILSHÖLL VIP 12 12 12 12 12 12 12 KRINGLUNNI L L L L 12 12 12 16 16 L L L L KEFLAVÍK 16 ÁLFABAKKA THE DARK KNIGHT RISES kl. 2 - 4:30 - 5:30 - 6 - 8 - 9 - 10 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES VIP kl. 2 - 6 - 10 2D MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D DREAMHOUSE kl. 8 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 3D UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 1:30 2D DARK KNIGHT RISES kl. 5:30 - 6 - 9 - 10 2D MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 3D AKUREYRI DARK KNIGHT RISES kl. 7 - 10:20 2D LOL kl. 6 2D DREAM HOUSE kl. 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES kl. 4:40-8-11:20 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 6 2D12 16 SELFOSSI THE DARK KNIGHT RISES kl. 6 - 8 - 10 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 11:15 2D UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 6 2D DARK KNIGHT RISES 1 - 2 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10:10 - 11:10 2D TED kl. 5:40 - 10:30 2D MAGIC MIKE kl. 8 2D ÍSÖLD 4 ísl.Tali kl. 2 - 4 3D MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1 - 3 2D ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.