Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 213. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Banaslys á Steingrímsfj.heiði 2. Bruce Willis búinn að fá nóg 3. Alvöru prinsessur sniðgengnar 4. Jakob Jóhann biðst afsökunar »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Um helgina sást til bandarísku leik- konunnar Jennifer Connelly og eigin- manns hennar Paul Bettany, sem lék í kvikmyndinni Da Vinci Code, á líkamsræktarstöðinni World Class á Seltjarnarnesi. Connelly er stödd á Íslandi við tökur á myndinni Noah. AFP Connelly og Bettany í ræktinni á Nesinu  Leikararnir Jó- hannes Haukur Jóhannesson og Arnar Dan fengu nýverið hlutverk Kains og Abels í kvikmyndinni Noah sem leik- stjórinn Darren Aronofsky leik- stýrir. Ekki munu Jóhannes og Arnar fara með neinn texta í myndinni og eru hlutverk þeirra partur af inngangi myndarinnar. Tveir íslenskir leikarar í Noah  Á djasstónleikum KEX hostels í kvöld kl. 21 kemur fram kvartett gít- arleikarans Andrésar Þórs Gunn- laugssonar. Með honum spila Agnar Már Magnússon á pí- anó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Þeir flytja tónlist af nýrri hljóm- plötu Andrésar sem nefn- ist Monokrom. Andrés flytur djass af Monokrom á KEX Á miðvikudag Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjartviðri. Hiti 13 til 18 stig V-til, en annars 8 til 13. Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag Hægviðri og bjart með köflum, líkur á skúrum S- og V-lands. Hiti 10 til 15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg austlæg átt eða hafgola. Skýjað með köflum, en súld við SV-ströndina. Hiti víða 10 til 15 stig. VEÐUR KR-ingar eru áfram á toppi Pepsi-deildar karla í fótbolta eftir sannfærandi sig- ur á gömlu erkifjendunum frá Akranesi í gærkvöld, 2:0. FH-ingar voru efstir í tæpan klukkutíma eftir að Hólmar Örn Rúnarsson tryggði þeim nauman sigur á Fram, 1:0, með marki rétt fyrir leikslok. Keflvíkingar höfðu betur í Suður- nesjaslagnum gegn Grindavík þar sem Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði sigurmarkið, 2:1, á síðustu stundu. »2-3 KR áfram stigi á undan FH Íslensku landsliðsmennirnir í hand- bolta taka daginn snemma því klukk- an 8.30 að íslenskum tíma verður flautað til leiks Íslands og Túnis á Ól- ympíuleikunum í London. Túnisbúar eru með nokkra þrautreynda leik- menn sem spila með toppliðum í Frakklandi og reiknað er með hörku- leik gegn líkam- lega sterku liði þeirra. »4 Strákarnir snemma á ferðinni gegn Túnis ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Nokkrum sinnum í viku liggur leið Erlends Bogasonar kafara með ferðamenn að hverastrýtunum ein- stæðu í Eyjafirði, þar sem heitt vatn streymir upp. Í sumar hafa á annað hundrað ferðamenn farið með Er- lendi að strýtunum og er það mikil aukning frá síðasta ári, er hann hóf að skipuleggja ferðir frá Hjalteyri. Við Arnarnesstrýturnar tekur stein- bíturinn Stefanía yfirleitt á móti hon- um og þiggur kúfskel úr lófa kafarans. „Á og við strýturnar út af Arnar- nesi er mikið líf og þar hefur Stefanía tekið á móti mér í þrjú ár,“ segir Er- lendur. „Hún kemur beint til mín, býður góðan dag og fær hjá mér skel. Hún eltir mig síðan um strýturnar og er vinaleg og flott. Nafnið á steinbít- inn sóttum við til aðstoðarkonu sjón- varpsliðs frá National Geographic, sem kom hingað til að safna efni um upphaf lífs á jörðinni. Strýturnar eru taldar sambærilegar við það sem var í upphafinu og hafa sjónvarpsstöðvar frá mörgum löndum farið með mér. Við stóru strýtuna út af Ystuvík austan megin í firðinum er lífríkið öðru vísi, en þar er gríðarlega mikið af ufsa megnið af árinu. Síðan þykir örverulífríkið við strýturnar einnig afar sérstakt.“ Strýturnar í Eyjafirði eru einu friðuðu náttúruminjar í sjó við Ísland og einu neðansjávarhverastrýturnar í heiminum sem fundist hafa á grunnsævi. Viðkvæm svæði Hæsta strýtan er miðja vegu milli Ystuvíkur og Hjalteyrar. Hún rís um 45 metra frá sjávarbotni og endar 15 metra undir yfirborðinu. Nærri læt- ur að hæð hennar sé svipuð og á 8-9 hæða blokk. Norðan Arnarnesnafa við Hjalteyri eru nokkrar strýtur og rísa þær stærstu 10-12 metra frá botni á stóru svæði. Erlendur segir að svæðin séu mjög viðkvæm og leggur áherslu á að umgangast þau með gát. Erlendir ferðamenn hafa verið einir um hituna í strýtuferðum sumarsins og komið víða að, en Íslendingar hafa hins veg- ar einnig sótt köfunarnámskeið í gömlu verksmiðjunni á Hjalteyri. Áður en farið er í köfun fer fram fræðsla um strýturnar og viðkvæmt lífríkið. Stóra strýtan hefur gildnað „Stóra strýtan virðist ekki hafa hækkað síðustu ár og skýri ég það með því að fyrir ofan 15 metra dýpi er mikil hreyfing og rót í sjónum,“ segir Erlendur. „Hins vegar hefur hún gildnað og bætt utan á sig. Ég setti út ból við bæði svæðin þegar ég byrjaði með þessar ferðir til að halda bátunum kyrrum. Þegar akkerum var kastað við stóru strýtuna lét hún á sjá á nokkrum dögum en síðan hefur hún jafnað sig aftur.“ Steinbíturinn býður góðan dag  Fleiri kafa við einstakar hvera- strýtur í Eyjafirði Morgunblaðið/Ágúst Ingi Ævintýri Erlendur Bogason siglir út úr höfninni á Hjalteyri með erlenda ferðamenn til að kafa við strýturnar í Eyjafirði, sem þykir einstök upplifun. Erlendur er einnig með námskeið í köfun í gömlu verksmiðjunni á Hjalteyri. Samherji veitti í fyrravetur Erlendi og félögum hans þriggja milljóna króna styrk til að rann- saka strýturnar og lífríkið við þær og á þeim. Erlendur segir að þessi myndarlegi styrkur nýtist vel og hafi komið eftir að opinberir aðilar hafi hafnað styrkumsóknum nokkrum sinn- um. Aðstæður í Eyjafirðinum séu einstakar til rannsókna. Erlendur segir ekki útilokað að finna fleiri hverasvæði í Eyjafirðinum og segist hann einkum horfa til svæðis yst í firðinum; við Kjálkanes út undir Gjögri. Einstakar aðstæður EKKI ÚTILOKAÐ AÐ FLEIRI SVÆÐI FINNIST Í EYJAFIRÐI Ljósmynd/Bjarni Eiríksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.