Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 17

Helgafell - 01.03.1942, Qupperneq 17
UMHORF 3 vega og aðdráttum til þýzka hersins. Amerískir fréttaritarar, sem þessum málum voru kunnugir áður en Banda- ríkin fóru í stríðið, telja að ekki fari sög- ur af öðru eins þrælahaldi frá því að pýramíðarnir miklu í Egyptalandi voru byggðir. VETUR í Áætlanir Þjóðverja um RÚSSLANDI kyrrstöðu á austurvígstöðv- unum fóru út um þúfur að nokkru leyti, þótt Hitler tæki sjálfur við herstjórn. Vegna fannfergi og hörkufrosta reynd- ist örðugt að beita skriðdrekum og Rússar sóttu hvarvetna fram með skíðahersveitum sínum og riddaraliði. ,,Stutta*‘ vetrarvíglínan var rofin á mörgum stöðum, og enn er óvíst, hversu langt Rússar muni komast vestur áð- ur en ísa leysir. Vegna sóknar Rússa Þýz\a eigin\onan Eiginma&urinn 1940 1941 hafa Þjóðverjar neyðzt til þess að flytja til Rússlands mikið varalið, sem ann- ars átti vafalaust að geyma til vor- sóknarinnar. Fleiri menn hafa verið kvaddir til vopna í Þýzkalandi sjálfu, og Þjóðverjar farið í liðsbón til allra ríkja þeirra, sem þeim eru háð. Þeir þurfa á gífurlegum fjölda hermanna að halda, og Ungverjar einir hafa til dæmis lofað þeim hálfri milljón manna til austurvígstöðvanna. Rúmenar og Búlgarar munu varla heldur láta sitt eftir liggja. Þegar sóknin hefst í vor, og hennar er vart langt að bíða, munu Þjóðverjar því enn hafa óvígan her og ógrynni hergagna, og þá verður tekið á því, sem til er. Hitt er svo annað mál, hvern árang- ur sóknin ber í Rússlandi. Rússar eru ekki vanbúnir. Þeir sækja enn fram og reyna að ná aftur af Þjóðverjum sem mestum löndum fyrir vorið. Fram- leiðsla þeirra er í bezta lagi, og þeir fá enn miklar birgðir hergagna frá Banda- ríkjunum og Bretlandi og hafa þau til taks, er vora tekur. Auk þess æfa þeir nýja heri fyrir austan Volgu, og telja fréttararitarar í Kuibishev, að þar séu um 3.500.000 til 4.000.000 manna að æfingum. Þessum her verður tefltfram, þegar er Þjóðverjar hefja sóknina, og meira að segja getur verið að Rússar verði fyrri til. { VÍKING Á Samtímis því að Þjóð- ATLANTSHAFI verjar hefja sókn í vor suður og austur á bóginn munu þeir gera eina tilraun enn til þess að teppa siglingar á Atlantshafi og koma í veg fyrir flutning hergagna frá Bandaríkj- unum til Rússlands og Bretlands. Þeir hafa gert sér mikla flugstöð í Þránd- heimi og enn aðra í Narvík, en þaðan munu kafbátar þeirra, önnur herskip og flugvélar herja á kaupskip andstæð- inganna á Norður-Atlantshafi. Kafbátar frá Narvík mundu reynast Bretum og Rússum skæðir á hafinu milli íslands og Norður-Noregs, en þar er siglingaleiðin til hafna í Norður- Rússlandi. Það mundi heldur engu til spilla, ef Þjóðverjar hefðu fáein stór herskip í víking á þessum slóðum, og ekki verður ósennilegt talið að það hlutverk sé ætlað Gneisenau, Scharn- horst og Prinz Eugen, sem nýlega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.