Helgafell - 01.03.1942, Síða 18
4
HELGAFELL
sluppu úr klóm Breta um Ermarsund
frá Brest til Kiel og Wilhelmshaven,
en þaÖan er auðvelt að sigla þeim til
Narvíkur. Reynist sú tilgáta rétt, að
sjóhernaður Þjóðverja á Atlantshafi
fari stórum í vöxt með vorinu, verða
flota- og flugstöðvar Breta og Banda-
ríkjamanna á íslandi enn mikilvægari
en þær hafa áður verið.
ÁTÖK Á NYRZTU Margt bendir til
VÍGSTÖÐVUNUM þess, að Bretar hafi í
hyggju að koma í veg fyrir áform
Þjóðverja um stöðvun siglinga milli
Bretlands og Rússlands. Brezkar flug-
vélar eru dag hvern á sveimi yfir
ströndum Norður-Noregs og Þjóðverjar
flytja þangað mikið lið, til þess að vera
viðbúnir innrás, sem ýmsir fréttaritarar
láta í veðri vaka að muni verða gerð,
og ætli Bandamenn sér að ná Norður-
Noregi, og ef til vill Noregi öllum.
Sænska stjórnin hefur kvatt mikið lið
til vopna, og heræfingar voru nýlega
haldnar í Jamtalandi, þar sem beitt
var skíðahersveitum, vélahersveitum
og flugliði. 70,000 menn, sem áður
voru undanþegnir herþjónustu, vegna
heilsubrests, hafa nú verið kvaddir til
nýrrar læknisskoðunar, og verður hver
maður tekinn í herinn, sem þar getur
nokkuð gagn gert. Sænska ríkisþing-
ið samþykkti í vetur geysimiklar fjár-
veitingar til eflingar landvörnum, og
verður því fé einkum varið til aukn-
ingar flughers og vélahersveita. Lund-
únaútvarpið gat þess fyrir skemmstu,
að Svíar hefðu endanlega hafnað kröf-
um Þjóðverja um liðflutninga yfir Sví-
þjóð frá Noregi til Finnlands.
í Svíþjóð er líklegt talið, að átökin
harðni á nyrztu vígstöðvunum, þegar
vora tekur, og verði þá Svíum hætt.
Það er varla heldur að ástæðulausu,
að sænska stjórnin grípur til þeirra
ráðstafana, sem gerðar hafa verið, og
þær benda ótvírætt til þess, að mikil
tíðindi muni gerast þar norður frá áð-
ur en langt um líður.
HLUTVERK JAPANA Flestir eru sam-
í VORSÓKNINNI mála um að megin-
sókn Þjóðverja verði beint suður á bóg-
inn, til Kaukasus, Irans og Iraks og Su-
ezskurðsins. Þeir hefðu vafalaust stefnt
til Suez í fyrravor, ef þeir hefðu treyst
Rússum til þess að hafazt ekki að á
meðan. Nú er síðasta tækifærið til þess
að ná olíulindunum og Suezskurðin-
um, og einskis verður látið ófreistað
til þess að ná því marki. Ef það heppn-
aðist, hrepptu Þjóðverjar nægar birgðir
olíu og hefðu þar að auki tekið hönd-
um saman við bandamenn sína Jap-
ana, sem innan skamms verða mikils
ráðandi á Indlandshafi og munu reyna
að sækja þaðan til Suez.
Þegar sókn Þjóðverja að vestan
hefst, mun Japönum ætlað að sjá til
þess, að enginn liðsauki berist Bretum
í Egyptalandi um Indlandshaf, en þá