Helgafell - 01.03.1942, Page 30

Helgafell - 01.03.1942, Page 30
16 HELGAFELL staðafjöldinn þar naumast 5 af hundraði, en hinir landshlutarnir standa næst- um í stað á þessu sviði. 1 stuttu máli sagt: Hið skáldaauðga Vesturland hefur hlutfallslega þrisvar sinnum fleiri kvenna-staði en Austurland með sín fáu skáld og litlu Ijóðagerð. Þetta væri frábær tilviljun og mjög dularfull, ef ekki hafa eitt sinn verið náin menningartengsl milli skáldmenntar og upphafs hinna stærri kvenna-staða. Magnús Ólsen hefur gert að umræðuefni stórfelldan og afar merkilegan mun á norskum og íslenzkum ,,staða"-nöfnum- Að tali hans eru kunnir í Noregi um 2500 ,,staðir“, en á íslandi um 1100, sem hafa að forlið manns- nafn eða viðurnefni. Hann bendir á það, að meir en tíundi hver íslenzkra ,,staða“-bæja er kenndur við konunafn, en kvenna-staðir Noregs séu alls um 30, þegar hæpin dæmi eru með talin, og muni nær sanni að lækka þá tölu um helming. Það var sízt furða, þótt hinn gagnmerki og hugmyndaríki vísinda- maður gengi ekki þegjandi fram hjá þessum feikna mun á kvenna-staða- tölum landanna og freistaði að finna orsök hans. Magnús Ólsen hyggur, að miseldri á ,,staða“-bæjum íslands og Noregs valdi miklu um muninn, og einnig ólík búskaparskilyrði 'í löndunum. Virðist hann þá ætla, að fjöldi bæja beri nöfn umkomulausra kvenna, sem lítt eða ekki nutu stuðnings karl- manna við búskapinn. Skýringartilraunir þessar hafa að vissu leyti valdið mér leiða, því að það má af líkum ráða, hvers vegna gjörhugull vitmaður hefur ekki fest auga á merg málsins. Hin rótgróna gamla trú, að íslenzka þjóðin og fornmenning hennar sé að meginstofni norsk, hefur byrgt fyrir útsýnið. Sem huliðshjálmur hefur hún öldum saman hvílt yfir ýmsum mikil- vægustu viðfangsefnum norrænnar sögu og breytt þar birtu í myrkur og skini í skugga. Þegar skuggavaldi þessum hefur verið rutt úr vegi, þurfum við ekki að spyrja, hvers vegna íslenzkir kvenna-staðir séu hlutfallslega allt að 17 sinnum fleiri en hinir norsku. Við snúum þá rólega blaði við og segjum: Þessi stórfelldi munur sýnir, að fornaldarkonur íslands hafa notið ólíkt meira athafnafrelsis og virðingar en kynsystur þeirra af norskum ættum. Eftir að landnámum lauk á Islandi, var Noregur nær því skáldalaust land um aldaraðir. Það, sem þar hafði áður verið ort, féll í gleymsku, að því und- an skildu, sem borgið var útflytjendum, er ísland byggðu. Svo sem að lík- um lætur, var það einmitt kyn það, er kenna má við skáldmenntina, er varð- veitti ávöxt hennar: eddukvæði, kappakvæði og ýmis önnur ljóð, en aðrir ekki til langframa. Á víkingaöld er það sannkölluð tízka bæði á Islandi og í Noregi að kalla býli nöfnum, sem enda á -,,staðir“ og auðkenna þá með heitum ábúendanna. Meðal þessara bæja reyndust kvenna-staðir Noregs vera undir einum hundraðshluta, eða líklega svo sem 0,6%, en kvenna- staðir Islands um 11 af hverju hundraði- Af íslenzku landshlutunum hefur Austurland langfæst skáld og kvenna-staði, og þar geymdust einnig trauð- lega ljóð í manna minnum. Hér kemur nú röðin upp á við og gildir jafnt um

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.